Dagur - 06.10.1973, Qupperneq 7
VERKFRÆÐíNGAR frá Vega-
gerð ríkisins fóru norður yfir
Sprengisand í annarri viku
september tii að ,fá betri yfir-
syn yfir væntanlegt vegarstæði
milli Suður- og Norðurlands.
Á því ferðalagi munu þeir hafa
skoðað Bárðardal, Hólafjall og
lEyjafjarðardal. Auk þess fór
flokkp^ áhugamanna af Akur-
eyri óg ‘uf. Eyjafirði með vega-
gerðarmenn með I sér um Hóla-
fjall.. od' 'Eyjafjarðardal föstu-
dagijnillftí september. En Akur-
eyrárþær j og Mj ólkurflutninga-
félag íírarnagilshrepps hafa lof-
að fjárátuðningi í vegagerð upp
úr Eýjafírði.
Síðar segir Sigurjón:
„. . . . Okkur, sem unnum á
Vatnahjalla og könnuðum inn-
dali og Fjöll, var ljóst, að ákjós-
anlegt var að komast með bíla-
slóð upp úr botni Eyjafjarðar-
dals, en okkur var jafnframt
ljóst, að þótt vegalengdin frá
Haíráreyrum og inn úr botni
væri- aðeins 14 km og með jöfn-
um halla, þá kom sú leið ekki
til greina sem rudd leið, fyrst
og fremst vegna mýrlendis.
Dalurinn er aftur á móti væn-
legur fyrir upphlaðinn veg.
Hallinn er jafn 1:25. . . . “
Þarna komast þeir Björn og
Sigurjón að kjarna málsins.
Mér finnst þessir aðilar hafa
sýnt lofsverðan áhuga á þessu
máli, og ég vona, að þetta verði
upphaf á miklum framkvæmd-
um, svo þarna komi greiðfær
framtíðarvegur milli landsfjórð
unga.
I framhaldi af þessu ætla ég
til fróðleiks og gámans að rifja
upp sumt af því, sem ritað hefur
verið um þessa hálendisleið.
Björn Þórðarson segir í Ferð-
um — riti Ferðafélags Akur-
eyrar — 1973:
' „Þann 10. september 1939 var
gerður út leiðangur til að at-
huga líklegt vegarstæði upp úr
Eyjafirði. Farið var á hestum
frá innstu bæjum í Eyjafirði og
haldið inn Eyjafjarðardal. Þeg-
ar komið var að Ströngulækj-
u'm féllust mönnum hendur —
ómögulegt — engin tæki —
engir peningar — aðeins hug-
sjónin. Austan Eyjafjarðarár
var sýnilega vegarstæði, en brú
á Eyjafjarðará? — útilokað. Þá
varð Vatnahjalli fyrir val-
inu. . . . “
Sigurjón Rist segir frá göngu
ferð sinni um Eyjafjarðardal
veturinn 1973 í Ferðum á þessa
leið:
„. .. . Það er komið fram í
apríl, vorið er í nánd, leysing
hafin í byggð, 1.6 metra sæmi-
léga jafnfallinn snjór á Sprengi-
sandi, einmitt rétti tíminn til að
mæla á snjóstikunum. . . .“
- Frá Bæjarstjórn ..
(Frainhald af blaðsíðu 8)
ist framkvæmdir eigi síðar en
næsta ýor. Ennfremur skorar
bæjarráð á háttvirt samgöngu-
ráðuneyti, að útvega meira fjár-
magn til þessara framkvæmda.
Myndlistarfélagið.
Myndlistarfélag Akureyrar
leitar eftir fjárstuðningi hjá
bæjarsjóði til greiðslu á hálfum
launum eins fastráðins kennara,
auk styrks til ýmiss annars
skólakostnaðar, vegna nýstofn-
aðs Myndlistarskóla.
Bæjarráð hefur lagt til, að
greidd verði hálf laun eins
myndlistarkennara í sex mán-
uði úr bæjarsjóði, en ákvörðun
um frekari styrkveitingu verði
frestað til næstu fjárhags-
áætlunar.
Eyjafjarðardalur er óhæfur
fyrir ruddan veg, en ákjósan-
legur fyrir upphlaðinn veg.
1 framhaldi af þessu er svo
gaman að athuga, hvað sumir
aðrir hafa sagt um upphlaðinn
veg yfir hálendið. Þá er miðað
við a. m. k. 2 m upphlaðinn veg
að meðaltali sbr. mælingar Sig-
urjóns á snjódýptinni 1.6 m.
í Vísi 11. október 1969 birtist
grein, sem heitir: BORGAR
VEGUR YFIR SPRENGISAND
SIG UPP Á EINU ÁRI? Þar
stendur þetta m. a.:
„. . . . Vegurinn frá Þjórsá að
Tungnaá, yfir 30 km á lengd,
mun aðeins kosta 8.5 milljonir
króna.... Ef reiknað væri með
sama kostnaði, mundi vegur frá
Þórisósi og niður í vegakerfi
Eyjafjarðar kosta um 35 millj-
ónir króna. . . . Þarna mundi
leiðin Reykjavík—Akureyri
verða rúmir 350 km eða nær
100 km styttri en þegar farið
væri um byggðir.... Ef aðeins
sparnaðurinn á vöruflutningum
væri reiknaður út, kæmu út úr
því dæmi 80—90 milljónir
króna árlega, eða tvisvar til
þrisvar sinnum hærri upphæð
en vegurinn gæti hugsanlega
orðið ódýrastur. ... Þá er eftir
að meta sparnaðinn af því, að
þessi vegur gæti hlíft núverandi
vegum norður í land á vorin,
þegar frost er að fara úr
jörð.... Séu öll þessi atriði
rétt, má halda því fram grín-
laust, að vegur yfir Sprengi-
sand kostaði minna en ekki
neitt, eða svo mætti segja um
veg, sem borgaði sig upp á
skemmri tíma en einu ári í bein
um útreiknanlegum kostnaðar-
tölum. . . . “
Síðan þessi grein var skrifuð
hefur allt verðlag hækkað til
muna, en hlutföllin í útreikn-
ingnum ættu þó að vera þau
sömu.
í Morgunblaðinu 19. marz
1970 er grein eftir Karl Friðriks
son fyrrverandi vegaverkstjóra
hér norðanlands, en Karl var
einmitt mjög kunnugur á þess-
uxn slóðum. Greinina nefnir
hann: NOKKUR ORÐ UM
SPRENGISANDSVEG.
Karl miðaði hugmynd sína
við Hólafjall, sem hann taldi
erfiðasta hluta leiðarinnar suð-
ur á land. Um þann hluta segir
hann m. a.:
„. . . . Viðvíkjandi Hólafjalli,
sem er hæsti hluti leiðarinnar,
er það álit mitt, að vel upp-
byggður vegur eftir því verði
varla nokkunx tíma snjóþung-
ur, en náttúrlega geta skapast
þar vond veður, en með þéttri
merkingu ætti hann í flestum
veðrum að verða fær, og það
ætti að verða veginum til gildis,
ef góður afleggjari yrði af hon-
um að sæluhúsinu við Lauga-
fell, sem nú er upphitað með
laugarvatni. ... Og nú vil ég
skora á Akureyringa og Eyfirð-
inga að fylgja hugmyndinni fast
fram til sigurs, því þetta er ekki
eingöngu þörf flutningaleið,
heldur ómetanleg leið fyrir alla
þá, sem unna fegurð og tign
hálendisins.“
Öll þessi orð Karls heitins
Friðrikssonar vildi ég gera að
mínum.
Ef ég að lokum dreg saman
það helzta, sem lesa má úr þess-
um tilvitnunum hér að framan,
verður niðurstaðan þessi.
Það er hægt að gera góðan
veg um Eyjafjarðardal og þá
leið suður yfir Sprengisand. Sá
vegur ætti að verða snjóléttur,
en vond veður mundu öðru
hvoru tefja eða hefta ferðir að
vetrinum. Vegagerðin yrði dýr,
en þó mundi hún ekki kosta
eins mikið og það, sem sparast
á einu ári í rekstri bifreiða, sem
fara þá leið, vegna þess hve hún
er mikið styttri en núverandi
leið milli Akureyrar og Reykja-
víkur.
Með þetta í huga ættu Akur-
eyringar og Eyfirðingar með
samstilltu átaki að geta hrint
framkvæmdum af stað.
Angantýr II. Hjálmarsson.
Get tekið tvær reglu-
samar stúlkur í fæði.
Uppl. í síma 2-12-24.
Mig vantar á næstunni
AÐSTOÐARSTÚLKU.
Jón Bjarnason
úrsmiður,
Hafnarstræti 94.
Til sölu Ford BRONCO
árgerð 1666 í mjög
góðu lagi.
Upplýsingar gefur
Hörður Svanbergsson.
sími 1-11-61.
Opel Record Cupe 1900
L 2ja dyra sportbifreið.
til sölu.
Stefán Stefánsson,
Litlu-Tjörnum,
sími um Fosshól.
Land Rover dísel árg.
1972 til sölu.
Stefán Stefánsson,
Litlu-Tjörnum,
sími um Fosshól.
e • e
Bændiir - Norðlendingar
Höfum á lager hina endingargóðu LUC.AS
rafgeyma í dráttárvélar og bifreiðar.
ÁRS ÁBYRGÐ.
SJÁLFSÞJÓNUSTAN S.F.
KALDSBAKSGÖTU - SÍMI 1-12-93.
Opið alla daga frá kl. 8,30—23,00.
Styrktarfélag vangefinna býður nú upp á
FIMM NÝTÍZKU BIFREIÐIR
í vinninga.
Miðinn kostar tvö hundruð krónur.
MÁLEFNIÐ VARÐAR ALLA.
JÓHANNES ÓLI SÆMUNDSSON,
sími (96) 1-23-31.
Umboðsmaður fyrir A- og Þ-miða.
UMBOÐ Á AKUREYRI:
BYGGINGAVÖRUDEILD