Dagur - 28.11.1973, Síða 1

Dagur - 28.11.1973, Síða 1
Fréftabrél frá Siglufirði Siglufirði, 27. nóvember. Nú mun vera kaldasti nóvember- mánuður í áratugi. Síðustu þrjá sólarhringa hefur frosið verið 10—15 stig en er að draga úr því í dag. Snjór er allmikill og jarðlaust að kalla. Rysjótt veður og erfitt um sjósókn, einkum fyrir smærri línubáta. Aftur á móti er afli ágætur þegar á sjó gefur. Erfiðlega hefur gengið að fá fólk til að beita línuna. Hafa siglfirzkar húsmæður hlaupið í skörðin og bjargað miklu, Ein- göngu er beitt smokkfiski frá Rússum og þykir hann góður til beitu. Stálvíkin, nýi skuttogarinn okkar, varð fyrir því óhappi að fá í vörpuna mikið af braki og netadræsum og lentu netin í skrúfunni. Stálvíkin var dregin til ísafjarðar, þar sem hún varð að liggja um vikutíma, en er aftur farin á veiðar. Meiraprófsnámskeið í bifreiða akstri stendur yfir á Siglufirði og munu 27 ljúka prófi. Aðal- kennarar eru Sigurður Indriða- son frá Akureyri og Sigurður Ágústsson frá Reykjavík. Landleiðin til Sauðárkróks er sæmilega fær annað slagið. Drangur kemur frá Akureyri tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum, og til Siglu- fjarðar er flogið þrisvar í viku frá Reykjavík, þegar fært er, á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Nýjan prest höfum yið feng- ið, ungan og efnilegan, frá Reykjavík, séra Birgi Gunnars- son. Aftur á móti erum við ó hrakhólum með lækna. Síðan Sigurður Sigurðsson héraðs- læknir fór frá okkur á síðasta ári, hafa verið hér fimm eða sex læknanemar, sem starfað hafa einn til tvo mánuði hver. Nú er hér norskur læknir, en því miður fer hann heim til sín fyrir áramótin. J. Þ. SÁTTASEMJARI TEKUR VIÐ ALLSHERJAR samhingáfund- ur Alþýðusambandsins og at- vinnurekenda var haldinn á mánudaginn. Voru samninga- málin rædd þar á víð og dreif, án niðurstöðu. Samningamálin eru nú komin í hendur sátta- semjara ríkisins. Q Nýja Illjómdeildin í Vöruhúsi KEA, annarri hæð. (Ljósm.: G. P. K.) Tvær nýjar verzlunardeildir Á MÁNUDAGINN opnaði KEA tvær nýjar verzlunardeildir í nýbyggingu sinni við Hafnar- stræti, Hljómdeild og Leikfanga og ritfangadeild, og eru þær báðar á annarri hæð Hafnar- strætis 93, samtals hafa þær um 200 fermetra sölurými. Þar var strax mikil ös því að bæði kom Veetir eru enn vel færir BJÖRN Brynjólfsson hjá Vega- gerðinni sagði blaðinu eftirfar- andi í gær: Vegir eru enn allgóðir. Naum ast er hægt að segja, að snjór hafi komið á Öxnadalsheiði ennþá og er þar öllum bílum fært. Menn eru þar frá okkur í dag að jafna smávegis ruðninga. Er suðurleiðin öll mjög greið- fær. ■ Aörir vegir hér í kring mega einnig teljast góðir. Vaðla heiði er að vísu ófær en vegur- inn um Dalsmynni góður og allt austur á Tjörnes. Þar var kom- inn nokkur snjór og ófært. En verið er að opna þann veg í dag. Til Mývatnssveitar er vegurinn sæmilega góður, svo og Kísil- vegurinn. Þá er frá því að segja, að vörubílar frá Héraði komu hingað í gær og urðu þeir ekki fyrir töfurti. Er þetta betra en búizt var við. Múlavegur er opinn nú og verið að vinna við snjóruðning. Vegavinnuflokkar eru nú að hætta störfum og koma heim. fólk til að skoða og til þess að kaupa, svo að orð var á því haft, að þetta væri annar Þor- láksdagur. Kaupfélag Eyfirðinga bauð fréttamönnum að skoða hinar nýju deildir og skýrði Björn Baldursson vöruhússtjóri frá framkvæmdum. En samkvæmt samþykkt KEA um að sameina hinar ýmsu sérverzlanir undir eina stjórn, af hagkvæmnis- ástæðum, í eitt vöruhús, er með opnun hinna tveggja nýju deilda, þriðja áfanga náð í þess- ari skipulagningaráætlun. í Vöruhúsi KEA eru þessar sérdeildir: Vefnaðarvörudeild, deildarstjóri Kári Johansen, Leik- og ritfangadeild, deildar- stjóri Frímann Guðmundsson, Járn- og glervörudeild, deildar- stjóri Jóhann Snorrason og Herradeild, deildarstjóri Erling Aðalsteinsson. En auk þessara deilda og deildarstjóra, er Teppadeild, verzlunarstjóri Ólaf ur Axelsson, Skódeild, verzlun- arstjóri Hulda Jóhannsdóttir og Hljómdeildin nýja, verzlunar- stjóri Rafn Sveinsson. Deildir þær, Hljómdeild og Leik- og ritfangadeild, sem opnaðar voru á mánudaginn, eru mjög smekklegar, Innrétt- ingar eru frá Stokkhóhni.' Hinar ýmsu sérverzlanir, inn- an Vöruhúss KEA, munu auð- velda viðskiptavinunum að verzla og ættu því að verða vin- sælar. En til samans hafa þær 1230 fermetra sölurými, auk lagera og annars nauðsynlegs húsnæðis. Samkvæmt nýútkomnum KEA-fréttum var byrjað að rífa gömul hús á baklóð við Hafnar- stræti 95 snemma árs 1971, vegna nýbyggingar þeirrar, er þar reis síðan, og er sex hæða hús. Gólfflötur er samanlagt 3532 fermetrar og bæði er vöru- lyfta og fólksflutningalyfta í húsinu. O Fundur um frjósemi sauðfjár Svavar Ottesen. AÐALFUNDUR Framsóknar- félags Akureyrar var haldinn föstudaginn 23. nóv. sl. For- maður, Svavar Ottesen, minnt- ist Gísla Guðmundssonar al- þingismanns, en flutti síðan skýrslu stjórnar, en gjaldkeri félagsins, Sólveig Gunnarsdótt- ir, las upp reikningana og skýrði þá. Allmargir nýir íélag- ar gengu í félagið á fundinum. Þá var gengið til stjórnarkjörs og var fráfarandi stjórn öll endurkjörin, en hana skipa: Svavar Ottesen foripaður, Sig- urður Óli Brynjólfsson ritari, Sólveig Gunnarsdóttir gjald- keri og meðstjórnendur Sigurð- ur Jóhannesson og Baldur Hall dórsson, Hlíðarenda. Ingvar Gíslason alþingismað- ur mætti á fundinum og sagði frá störfum Alþingis. Einnig mætti sem gestur Jónas Jóns- son alþingismaður og tók þátt í umræðum, en fjölmargir tóku til máls og stóð fundurinn til kl. rúmlega 2 e. m. Eftirtaldir félagar Frarhsókn- (Framhald á blaðsíðu 5) FUNDUR AÐ HÓTEL KEA FRAMSÓKNARFLOKKURINN efnir til fundar að Hótel KEA n. k. föstudag, 30. nóv., kl. 21.00. Fundarefni er störf og stefna flokksins. Framsöguræður flytja Steingrímur Hermannsson al- þingismaður, Guðmundur G. Þórarinsson borgarfulltrúi, Ólaf ur Ragnar Grímsson prófessor og Elías S. Jónsson fram- kvæmdastjóri SUF. Allt Framsóknarfólk á Akur- eyri og nágrenni er hvatt til þess að mæta á fundinum. Q ANNAR Bændaklúbbsfundur vetrarins var haldinn að Hótel KEA mánudaginn 26. nóv. sl. Um 80 manns mættu á fund- inum. Ræðumaður var dr. Ólaf- ur R. Dýrmundsson yfirkennari við Framhaldsdeildina á Hvann eyri. Framsöguræðan fjallaði um frjósemi sauðfjár og, ýmsa þá þætti sem áhrif hafa á hana. Sagði dr. Ólafur að frjósemin væri sá þáttur í sauðfjárrækt- inni sem mest áhrif hefur á arð semi sáuðfjárbúanna. Frjósem- ina má auka á þrennan hátt aðallega, þ. e. með kynbótum, fengieldi og hormónagjöf. Kynbæturnar væru langtíma ráðstöfun og varanleg í stofn- inum, en þær væru seinvirkar og þörfnuðust mikillar þolin- mæði, einnig þyrfti að fylgja þeim eftir með góðri fóðrun. Fengieldi er mikið notað og oft með góðum árangri. Talið væri bezt að láta ærnar ekki leggja af fyrrililuta vetrar, þá þyrfti minna fengieldi en ef féð væri í mikilli aflagningu. Jöfn og góð fóðrun er farsælust. Þá taldi dr. Ólafur að yfirleitt næð ist því betri árangur sem fengi- eldið væri lengra, t. d. byrja frekar 10 dögum fyrir fang en 4 dögum. Hann taldi að eggja- hvíturíkt fóður s. s. síldarmjöl væri vænlegt til árangurs í þessu sambandi, en ennfremur gætu ýmis steinefni og snefil- efni haft áhrif, en á því sviði vantaði okkur rannsóknir. Hormónagjöf til að auka frjó- semi væri fljótvirk og einföld en henni fylgja ýmsir annmark- ar. Alltaf væri hætta á marg- lembum ef hormónag'jöf væri mikil og einnig ef of lítið væri gefið væri árangur enginn. 500 einingar væri yfirleitt talinn hæfilegur skammtur. Þá ræddi dr. Ólafur nokkuð um tilraunir sem hann er með í gangi á Hvanneyri. Má þar nefna athugun á því hversu langur fengitími ánna er, en þar hefur kornið í ljós að ærnar beiða nokkuð reglulega allt fram í apríl—maí. Þá eru í gangi tilraunir með að samstilla gangmál ánna, þ. e. að láta nokkrar eða margar beiða sama daginn. Gæti þetta atriði komið sér vel í sambandi við starfsemi sauðfjársæðingastöðva. Að framsöguræðu lokinni hóf ust fjörugar umræður og stóðu þær til kl. 1. Fundarstjóri var Sigurður Jósefsson bóndi á Torfufelli. Q Dagum Aukablað kemur út á laugar- daginn, því enn bíður mikið efni og ennfremur auglýsingar.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.