Dagur - 28.11.1973, Qupperneq 1
Fréftabrél frá Siglufirði
Siglufirði, 27. nóvember. Nú
mun vera kaldasti nóvember-
mánuður í áratugi. Síðustu þrjá
sólarhringa hefur frosið verið
10—15 stig en er að draga úr
því í dag. Snjór er allmikill og
jarðlaust að kalla. Rysjótt veður
og erfitt um sjósókn, einkum
fyrir smærri línubáta. Aftur á
móti er afli ágætur þegar á sjó
gefur. Erfiðlega hefur gengið að
fá fólk til að beita línuna. Hafa
siglfirzkar húsmæður hlaupið í
skörðin og bjargað miklu, Ein-
göngu er beitt smokkfiski frá
Rússum og þykir hann góður
til beitu.
Stálvíkin, nýi skuttogarinn
okkar, varð fyrir því óhappi að
fá í vörpuna mikið af braki og
netadræsum og lentu netin í
skrúfunni. Stálvíkin var dregin
til ísafjarðar, þar sem hún varð
að liggja um vikutíma, en er
aftur farin á veiðar.
Meiraprófsnámskeið í bifreiða
akstri stendur yfir á Siglufirði
og munu 27 ljúka prófi. Aðal-
kennarar eru Sigurður Indriða-
son frá Akureyri og Sigurður
Ágústsson frá Reykjavík.
Landleiðin til Sauðárkróks er
sæmilega fær annað slagið.
Drangur kemur frá Akureyri
tvisvar í viku, á þriðjudögum
og fimmtudögum, og til Siglu-
fjarðar er flogið þrisvar í viku
frá Reykjavík, þegar fært er, á
þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum.
Nýjan prest höfum yið feng-
ið, ungan og efnilegan, frá
Reykjavík, séra Birgi Gunnars-
son. Aftur á móti erum við ó
hrakhólum með lækna. Síðan
Sigurður Sigurðsson héraðs-
læknir fór frá okkur á síðasta
ári, hafa verið hér fimm eða
sex læknanemar, sem starfað
hafa einn til tvo mánuði hver.
Nú er hér norskur læknir, en
því miður fer hann heim til sín
fyrir áramótin. J. Þ.
SÁTTASEMJARI
TEKUR VIÐ
ALLSHERJAR samhingáfund-
ur Alþýðusambandsins og at-
vinnurekenda var haldinn á
mánudaginn. Voru samninga-
málin rædd þar á víð og dreif,
án niðurstöðu. Samningamálin
eru nú komin í hendur sátta-
semjara ríkisins. Q
Nýja Illjómdeildin í Vöruhúsi KEA, annarri hæð.
(Ljósm.: G. P. K.)
Tvær nýjar verzlunardeildir
Á MÁNUDAGINN opnaði KEA
tvær nýjar verzlunardeildir í
nýbyggingu sinni við Hafnar-
stræti, Hljómdeild og Leikfanga
og ritfangadeild, og eru þær
báðar á annarri hæð Hafnar-
strætis 93, samtals hafa þær um
200 fermetra sölurými. Þar var
strax mikil ös því að bæði kom
Veetir eru enn vel færir
BJÖRN Brynjólfsson hjá Vega-
gerðinni sagði blaðinu eftirfar-
andi í gær:
Vegir eru enn allgóðir. Naum
ast er hægt að segja, að snjór
hafi komið á Öxnadalsheiði
ennþá og er þar öllum bílum
fært. Menn eru þar frá okkur í
dag að jafna smávegis ruðninga.
Er suðurleiðin öll mjög greið-
fær. ■ Aörir vegir hér í kring
mega einnig teljast góðir. Vaðla
heiði er að vísu ófær en vegur-
inn um Dalsmynni góður og allt
austur á Tjörnes. Þar var kom-
inn nokkur snjór og ófært. En
verið er að opna þann veg í dag.
Til Mývatnssveitar er vegurinn
sæmilega góður, svo og Kísil-
vegurinn. Þá er frá því að segja,
að vörubílar frá Héraði komu
hingað í gær og urðu þeir ekki
fyrir töfurti. Er þetta betra en
búizt var við. Múlavegur er
opinn nú og verið að vinna við
snjóruðning.
Vegavinnuflokkar eru nú að
hætta störfum og koma heim.
fólk til að skoða og til þess að
kaupa, svo að orð var á því
haft, að þetta væri annar Þor-
láksdagur.
Kaupfélag Eyfirðinga bauð
fréttamönnum að skoða hinar
nýju deildir og skýrði Björn
Baldursson vöruhússtjóri frá
framkvæmdum. En samkvæmt
samþykkt KEA um að sameina
hinar ýmsu sérverzlanir undir
eina stjórn, af hagkvæmnis-
ástæðum, í eitt vöruhús, er með
opnun hinna tveggja nýju
deilda, þriðja áfanga náð í þess-
ari skipulagningaráætlun.
í Vöruhúsi KEA eru þessar
sérdeildir: Vefnaðarvörudeild,
deildarstjóri Kári Johansen,
Leik- og ritfangadeild, deildar-
stjóri Frímann Guðmundsson,
Járn- og glervörudeild, deildar-
stjóri Jóhann Snorrason og
Herradeild, deildarstjóri Erling
Aðalsteinsson. En auk þessara
deilda og deildarstjóra, er
Teppadeild, verzlunarstjóri Ólaf
ur Axelsson, Skódeild, verzlun-
arstjóri Hulda Jóhannsdóttir og
Hljómdeildin nýja, verzlunar-
stjóri Rafn Sveinsson.
Deildir þær, Hljómdeild og
Leik- og ritfangadeild, sem
opnaðar voru á mánudaginn,
eru mjög smekklegar, Innrétt-
ingar eru frá Stokkhóhni.'
Hinar ýmsu sérverzlanir, inn-
an Vöruhúss KEA, munu auð-
velda viðskiptavinunum að
verzla og ættu því að verða vin-
sælar. En til samans hafa þær
1230 fermetra sölurými, auk
lagera og annars nauðsynlegs
húsnæðis.
Samkvæmt nýútkomnum
KEA-fréttum var byrjað að rífa
gömul hús á baklóð við Hafnar-
stræti 95 snemma árs 1971,
vegna nýbyggingar þeirrar, er
þar reis síðan, og er sex hæða
hús. Gólfflötur er samanlagt
3532 fermetrar og bæði er vöru-
lyfta og fólksflutningalyfta í
húsinu. O
Fundur um frjósemi sauðfjár
Svavar Ottesen.
AÐALFUNDUR Framsóknar-
félags Akureyrar var haldinn
föstudaginn 23. nóv. sl. For-
maður, Svavar Ottesen, minnt-
ist Gísla Guðmundssonar al-
þingismanns, en flutti síðan
skýrslu stjórnar, en gjaldkeri
félagsins, Sólveig Gunnarsdótt-
ir, las upp reikningana og
skýrði þá. Allmargir nýir íélag-
ar gengu í félagið á fundinum.
Þá var gengið til stjórnarkjörs
og var fráfarandi stjórn öll
endurkjörin, en hana skipa:
Svavar Ottesen foripaður, Sig-
urður Óli Brynjólfsson ritari,
Sólveig Gunnarsdóttir gjald-
keri og meðstjórnendur Sigurð-
ur Jóhannesson og Baldur Hall
dórsson, Hlíðarenda.
Ingvar Gíslason alþingismað-
ur mætti á fundinum og sagði
frá störfum Alþingis. Einnig
mætti sem gestur Jónas Jóns-
son alþingismaður og tók þátt í
umræðum, en fjölmargir tóku
til máls og stóð fundurinn til
kl. rúmlega 2 e. m.
Eftirtaldir félagar Frarhsókn-
(Framhald á blaðsíðu 5)
FUNDUR
AÐ HÓTEL KEA
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
efnir til fundar að Hótel KEA
n. k. föstudag, 30. nóv., kl. 21.00.
Fundarefni er störf og stefna
flokksins. Framsöguræður flytja
Steingrímur Hermannsson al-
þingismaður, Guðmundur G.
Þórarinsson borgarfulltrúi, Ólaf
ur Ragnar Grímsson prófessor
og Elías S. Jónsson fram-
kvæmdastjóri SUF.
Allt Framsóknarfólk á Akur-
eyri og nágrenni er hvatt til
þess að mæta á fundinum. Q
ANNAR Bændaklúbbsfundur
vetrarins var haldinn að Hótel
KEA mánudaginn 26. nóv. sl.
Um 80 manns mættu á fund-
inum. Ræðumaður var dr. Ólaf-
ur R. Dýrmundsson yfirkennari
við Framhaldsdeildina á Hvann
eyri.
Framsöguræðan fjallaði um
frjósemi sauðfjár og, ýmsa þá
þætti sem áhrif hafa á hana.
Sagði dr. Ólafur að frjósemin
væri sá þáttur í sauðfjárrækt-
inni sem mest áhrif hefur á arð
semi sáuðfjárbúanna. Frjósem-
ina má auka á þrennan hátt
aðallega, þ. e. með kynbótum,
fengieldi og hormónagjöf.
Kynbæturnar væru langtíma
ráðstöfun og varanleg í stofn-
inum, en þær væru seinvirkar
og þörfnuðust mikillar þolin-
mæði, einnig þyrfti að fylgja
þeim eftir með góðri fóðrun.
Fengieldi er mikið notað og
oft með góðum árangri. Talið
væri bezt að láta ærnar ekki
leggja af fyrrililuta vetrar, þá
þyrfti minna fengieldi en ef féð
væri í mikilli aflagningu. Jöfn
og góð fóðrun er farsælust. Þá
taldi dr. Ólafur að yfirleitt næð
ist því betri árangur sem fengi-
eldið væri lengra, t. d. byrja
frekar 10 dögum fyrir fang en
4 dögum. Hann taldi að eggja-
hvíturíkt fóður s. s. síldarmjöl
væri vænlegt til árangurs í
þessu sambandi, en ennfremur
gætu ýmis steinefni og snefil-
efni haft áhrif, en á því sviði
vantaði okkur rannsóknir.
Hormónagjöf til að auka frjó-
semi væri fljótvirk og einföld
en henni fylgja ýmsir annmark-
ar. Alltaf væri hætta á marg-
lembum ef hormónag'jöf væri
mikil og einnig ef of lítið væri
gefið væri árangur enginn. 500
einingar væri yfirleitt talinn
hæfilegur skammtur.
Þá ræddi dr. Ólafur nokkuð
um tilraunir sem hann er með
í gangi á Hvanneyri. Má þar
nefna athugun á því hversu
langur fengitími ánna er, en þar
hefur kornið í ljós að ærnar
beiða nokkuð reglulega allt
fram í apríl—maí. Þá eru í
gangi tilraunir með að samstilla
gangmál ánna, þ. e. að láta
nokkrar eða margar beiða sama
daginn. Gæti þetta atriði komið
sér vel í sambandi við starfsemi
sauðfjársæðingastöðva.
Að framsöguræðu lokinni hóf
ust fjörugar umræður og stóðu
þær til kl. 1. Fundarstjóri var
Sigurður Jósefsson bóndi á
Torfufelli. Q
Dagum
Aukablað kemur út á laugar-
daginn, því enn bíður mikið efni
og ennfremur auglýsingar.