Dagur - 15.12.1973, Side 1

Dagur - 15.12.1973, Side 1
Dagub LVI. árg. — Akureyri, laugardaginn 15. des. 1973 — 59. tölublað Flestir búa til laufabrauð Hrísey, 13. desember. Hér er í heiðri haldinn sá góði siður að búa til laufabrauð og eru víst flestir búnir að því nú. Að öðru leyti búa menn sig undir jóla- MIKLIR PENINGAR í UMFERÐ Sauðárkróki, 14. desember. Snjór er lítill í héraðinu og truflar ekki samgöngurnar, en hríðarhraglandi hefur verið undanfarna daga. Jólaösin byrj- aði með fyrsta móti á Sauðár- króki. Atvinna hefur verið mikil og er ennþó, og miklir peningar í umferð. Hegranesið seldi fyrir skömmu afla sinn í Grímsby, 67.5 tonn fyrir 3.6 milljónir og var meðalverðið 58 krónur pr. kíló. Var þetta sæmileg sala. □ JÓLAKAUPTÍÐIN í HÁMARKI Blönduósi, 14. desember. Hér á Blönduósi er 15 stiga frost, en bjart veður, en hríðargarg var hér í gærkveldi. Verið er að bora eftir heita vatninu á Reykjum við Reykja- braut, nálægt Húnavallaskóla. Mun borinn kominn á 160 metra dýpi og lítur fremur vel út með árangur, að því er manni skilst. Það er Blönduóshreppur, sem fyrir þessu stendur og hefur tryggt sér hitaréttindin á Reykj um. Síðustu daga er feikna mikil ös í verzlunum og mikið keypt. Vegir eru góðir og fært um allt og fólk kemur langt að til að verzla í jólakauptíðinni. G. J. | HAPPDRÆTTI |FRAMSÓKNAR I = ÞAÐ eru vinsamleg tilmæli i i að þeir sem fengið hafa happ | = drættismiða heimsenda, geri i i skil sem allra fyrst. Við i i greiðslu taka umboðsmenn | 1 samtakanna út um byggðir i i sambandsins og Dagur, Ak- i i ureyri, og skrifstofan, Hafn- i | arstræti 90, Akureyri. Skrif- i i stofan er opin frá kl. 2 til 6 | E síðdegis. Laugardaga frá kl. i i 9 til 12 á hádegi. Sími 21180. i í F.F.N.E. í hátíðina með ýmsum hætti. Við erum ekki neitt æstir spilamenn í Hrísey og stundum lítið spil, en erum hins vegar áhugasamir dansmenn og ætlum að halda fjóra dansleiki, auk barna- skemmtunar. Ég borða rjúpur á jólum, aðr- ir borða hangikjöt, jafnvel svina kjöt, ásamt mörgu öðru. Heim- boð eru nokkur að jafnaði og svo mun enn verða. Hörkuveður var hér síðdegis í gær og í nótt, alveg aftaka- veður, eitt af meiriháttar norð- an hvassviðrum sem komið hafa. En það var ekki tiltakan- lega mikil kvika og við eigum höfn, sem dugar í svona veðri. Hér við éyna liggur Brettingur með 70 tonn af fiski. Hann bíð- ur þess að veður gangi niður og fer þá til sinnar heimahafnar, Vopnafjarðar, með aflann. Kominn er talsverður snjór og komnir nokkrir skaflar eftir hvassviðrið. Litlu-jólin fyrir skólabörnin verða á laugardaginn og lýkur þar með skóla og gefið jólafrí. Ef flugfreyjur verða ögn samn- ingaliprari en þær hafa verið, og flugvélar halda áfram ferð- um sínum með farþega, fáum við ungt fólk heim, sem verið hefur í skóla. Er það ánægjuleg tilbreyting. S. F. Mynd þessi átti að koma í síðasta blaði, en barst of seint. Hún er leið sína að Sandbúðum. af Húsvíkingunum, sem lögðu (Ljósm.: J. J.) Dðlvíkurbátur fékk rækju viS Grímsey Dalvík, 13. desember. í gær- kveldi og í nótt var versta veð- ur hér á Dalvík en var farið að lægja um fimmleytið í morgun. Skemmdir urðu ekki svo ég viti, enda ekki mikið brim. í gær tepptust bílar eitthvað og fólk varð að bregða fyrir sig r Báfar keypfir á Arskógssfrönd ÚTGERÐARMENN á Árskógs- strönd hafa nýlega keypt tvo fiskibáta. Guðmundur Benediktsson á Litla-Árskógssandi og nokkrir aðrir keyptu 47 tonna stálbát frá Neskaupstað. Hann heitir Valur og er fimm ára. Sigurður og Jóhannes Trausta synir á Hauganesi og synir þeirra hafa keypt 50 tonna stál- bát frá Eskifirði, tveggja ára gamlan, og heitir hann Víðir Trausti. — Munu bátar þessir verða gerðir út frá heimahöfn- um. Þá er Konráð Sigurðsson út- gerðarmaður á Litla-Árskógs- sandi og synir, ásamt Sveini Gunnlaugssyni, að láta byggja 25—30 tonna eikarbát hjá Skipa smíðastöð KEA á Akureyri. Tveir menn, þeir Gylfi Bald- vinsson, Engihlíð, og Hjalti Sig- fússon á Rauðuvík, fóru nýlega til rjúpna á vélsleða fram í Þor- valdsdal. í þverdal þar, er Þver- árdalur heitir, fundu þeir á og tvö lömb hennar og voru allar kindurnar aðþrengdar orðnar. Sóttu skytturnar þá sleða og . fluttu féð síðan til byggða. Var þetta útigöngufé frá Björgum í Arnarneshreppi. Sn. K. betri fótunum og ganga spöl og spöl og einhverjir munu hafa orðið hríðtepptir, svo sem Olafs firðingar, sem hér voru staddir en komust ekki Múlaveg. En hvergi varð það að slysi. Eftir að dragnótatímabilinu lauk fékk Snorri Snorrason út- gerðarmaður sér rækjutroll og fór einn rækjutúr í fyrradag á Sæþóri einhvers staðar norð- austur af Grímsey, þar sem áður hafði fundizt góð rækja. í fjórum hollum fékk hann 2100 kg af góðri rækju og hefði feng- ið mun meira, en varð að hætta vegna storms. Rækjuna fór hann með til Akureyrar og er hún unnin í Niðursuðuverk- smiðju K. Jónssonar & Co. Rækjan veiddist held ég á 270 faðma dýpi, eða a. m. k. á miklu dýpi. Toppkyndistöðin fyrir hita- veituna á Dalvík er komin í gang og reynist ágætlega. Svo er verið að kaupa díselvél til að setja við borholurnar á Hamri, þar sem heita vatnið er tekið, og á hún að vera til vara, ef raforku þrýtur, því að dæla þarf vatninu upp á yfirborðið. Þá er fyrirhugað að leita meira vatns í sumar, fyrst með mjóum tilraunabor og síðan með öðrum stærri. Verður fyrst borað nær veginum en áður, en þar telja jarðfræðingar líklegan stað til árangurs. Vel bílfært hefur ennþá verið fram í dalina, en í svona tíð getur það spillzt fljótt. Eins og vant er, er færið verst hér sunn- an við Dalvíkina. J. H. Akureyrartogararnir KALDBAKUR landar í dag, laugardag. Svalbakur landaði 5. desem- ber 69 tonnum og landar aftur í síðari hluta næstu viku. Harðbakur landaði 3. desem- ber 85 tonnum og landar aftur eftir helgina. Sólbakur landaði 12. desem- ber og fór á veiðar í gær. Allir Akureyrartogararnir munu verða á veiðum um jólin. Mikil velluaukning hjá Nemendakvöld í T ónlistarskólanum í YFIRLITSERINDI Erlendar Einarssonar forstjóra kom m. a. fram, að mikil veltuaukning hefur orðið hjá Sambandinu Raforkan glæðist heldur TRUFLANIR hafa orðið á fram nú, er 15700 kw í stað 18500 kw, leiðslu raforkunnar við Laxá, sem við fáum þegar allt er í lagi. svo að grípa varð til skömmt- Þessar truflanir byrjuðu í fyrri- unar á orkuveitusvæðinu. nótt við Mývatn, ennfremur Rafveitustjórinn sagði blað- urðu talsverðar rennslistruflan- inu meðal annars eftirfarandi ir í Laxárdal, en við inntakið eftir hádegi í gær, föstudag: voru ekki neinar truflanir nú, Raforkuframleiðslan við Laxá því að allt krap, sem ofanað t........................... kom, stöðvaðist í Laxárdalnum, ........................... en þar fyrir neðan var áin til- j'ílk &—•« n"r -jr-rv tölulega hrein. Mun naumast II 3 A \jr U M YórÁ.t s,kömmtfun- f getum •*"— haldið þeirri framleiðslu, sem kemur næst út á þriðjudags- nú er, með því að keyra allar kvöld, næstsíðasta blað fyrir tiltækar díselstöðvar á orku- jól. veitusvæðinu. □ fyrstu níu mánuði þessa árs frá sama tímabili sl. ár, og nemur hún 47 %. Hafa allar deildir auk ið veltu sína sem hér segir: Innflutningsdeild 64%, Véla- deild 53%, Sjávarafurðadeild 53%, Búvörudeild 33%, Skipa- deild 31% og Iðnaðardeild 34%. Væri vonazt til, að þessi aukn- ing myndi ná að vera upp á móti stórauknum kostnaðar- hækkunum á flestum sviðum, sem væru m. a. nær 28% launa- hækkun á tímabilinu hjá mán- aðarkaupsfólki í Reykjavík, um 35% vaxtahækkun innanlands, hækkaðar afskriftir og stór- hækkaðir erlendir vextir. Þá kom einnig fram í erindi forstjóra, að fyrstu níu mánuði ársins hefur Sambandið fjárfest fyrir 126.6 millj. kr. Stærsti lið- urinn er vegna kaupa á Dísar- fellinu, en auk þess hefur tals- vert verið fjárfest í verksmiðj- unum á Akureyri og í nýju fóðurblöndunarstöðinni. 1 ræðu Erlendar kom einnig fram, að með vaxandi veltu hef ur aukizt það fjármagn, sem Sambandið þarf að lána kaup- félögunum frá áramótum til hausts, meðan beðið er eftir inn leggi vegna sláturafurða. Væri sveiflan í reikningsstöðu félag- anna á þessu ári um 400 millj. kr. og ásamt vaxandi veltu allra deilda skapaði þetta nú stór- aukna fjárþörf. Við þetta bætt- ust nú mjög miklar verðhækk- anir á mörgum vöruflokkum og því væri nú brýnna en nokkru sinni fyrr að efla eigið fjármála kerfi hreyfingarinnar, og taldi hann vandann, sem iramundan væri í þessum málum, vera slíkan, að e. t. v. væri ástæða til að kalla saman sérstakan kaupfélagsstjórafund um þetta efni í byrjun næsta árs. □ NÆSTA miðvikudag, 19. desem ber, kl. 20.30, verður nemenda- kvöld í Tónlistarskóla Akur- eyrar. Nemendur þeir, sem lengra eru komnir, leika á píanó. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyf- ir. Tekið verður á móti fram- lögum í Minningarsjóð Þor- gerðar Eiríksdóttur. □ FLUGFREYJUR í VERKFALLI RÚMLEGA 30 klukkustunda samningafundi um kaup og kjör flugfreyja, lauk á fimmtudags- kvöld án samkomulags og kom því verkfall til framkvæmda á miðnætti það sama kvöld. Lauk þá farþegaflugi F. í. innanlands, en unnt er að fljúga með fragt og póst. Flugferðir F. í. og Loft- leiða landa á milli lögðust niður.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.