Dagur - 27.02.1974, Side 7
7
Yaranleg gatnagerð ■ í þétfbýli
GATNAGERÐ í þéttbýli er ein
hin fjárfrekasta framkvæmd
hvers bæjarfélags hér á landi.
Og til stórra átaka í því efni
þarf meira fjármagn en tekju-
stofnar lögheimila. Svo er það
a. m. k. hér á Akureyri.
Mikið af einbýlishúsum og
tiltölulega dreifð byggð, veldur
löngu umferðarkerfi og kostn-
aðarsömu. Þar við bætist, að
gera þarf eldri götur upp að
nýjú og reynist sú endurnýjun
að jafnáði miklu dýrari en ný-
lagning .gatna, vegna holræsa,
síma, rafveitu og vatnsveitu-
lagna. , '
Bæjarstjórn Akureyrar byrj-
aði seint á varanlegri gatna-
gerð. Má þar nefna sem dæmi,
að árið 1964 eða fyrir tíu árum
síðan, voru hinar malbikaðar
götur aðeins 4 km af 38 km
heildarlengd gatna, og þá voru
ennfremur malargötur gerðar af
FRÁ SÖGUFÉLAGI
EYFIRÐINGA
BÓKIN Bæjarlýsingar í Eyja-
firði, eftir Jónas Rafnar yfir-
lækni, kemur út á þessu ári.
I tilefni af því beinir félags-
stjórnin því til allra í Önguls-
staðahreppi, Saurbæjarhreppi
og Hrafnagilshreppi, að þeir
láni útgáfunni ljósmyndir af
bæjunum frá fyrstu áratugum
20. aldar eða eldri, eða vísi okk-
ur á bækur og rit, þar sem slík-
ar myndir hafa birzt. Og auð-
vitað ná þessi tilmæli einnig til
fólks úr áðurnefndum hrepp-
um, þótt annars staðar sé búsett
og allra, sem eiga slíkar myndir.
Þeir, sem geta liðsinnt okkur,
snúi sér til Valdimars Gunnars-
sonar, Bringu, sími um Munka-
þverá, eða undirritaðs.
Jóhannes Óli Sæmundsson,
sími 12331, Akureyri.
slíkum vanefnum, að þær þarfn-
ast nær allar endurbyggingar.
Er ljóst af þessu, þótt of skammt
hafi miðað, hver stefnubreyting
hefur orðið í þessum efnum.
Nú eru malbikaðar götur
bæjarins hins vegar orðnar 18—
19 km og í sumar verður búið
að malbika um 40% af götum
bæjarins. Nú þegar teygir hið
malbikaða gatnakerfi sig um
helztu umferðaræðarnar og
undirbygging gatna í nýju
íbúðahverfunum er þannig, að
göturnar eru tilbúnar til mal-
bikunar. Hefur gatnagerð því
miðað meira en tölur um mal-
bikaðar götur gefa til kynna.
Það hefur þó síður en svo
verið auðveldara en áður að
vinna að þessum málum vegna
þess hve miklu fjármagni hefur
þurft að verja til lagningar
nýrra gatna og holræsa í hinum
nýju og stóru byggðahverfum
bæjarins.
Sem dæmi um það, hvernig
fjármagni er nú varið til gatna
á Akureyri, má nefna, að 15
millj. kr. er varið til venjulegs
viðhalds gatna. En 33 millj. kr.
fara til lagningar gatna og hol-
ræsa í nýjum hverfum. Til und-
irbyggingar eldri gatna í bæn-
um fara 12.5 millj. kr. og um
19 millj. kr. til malbikunar
gatna og gangstétta.
Af framansögðu sézt, að það
þarf að halda vel á málum ef
takast á að vinna upp þann
hala, sem bærinn dregur á eftir
sér í varanlegri gatnagerð. Sýn-
ist næsta eðlilegt, að stöðum
eins og Akureyri væri veitt sér-
stök fjármagnsfyrirgreiðsla til
að hraða þessum framkvæmd-
um. í því samþandi er helzt að
benda á, að hlutdeild þéttbýlis-
staða í vegafé ætti að fara meira
eftir þörf staðanna til fjár-
magns, vegna gatnagerðar en
nú er, þar sem höfðatölureglan
ein ræður að mestu útdeilingu
fjárins.
Útsölunni fer senn að Ijúka
STÓR AUKINN AFSLÁTTUR
\7erð á kápum frá kr. 1.000.00.
Verð á kjólum frá kr. 500,00.
VERZLUN BERNHARÐS LAXÐAL
AKUREYRI.
Á AÐEINS 1.170,00
STÆRÐIR 42-48
Denim-buxur
Á AÐEINS 1.280,00
ALLAR STÆRÐIR
VEFNABARVÖRUDEILD
Elít og aiinað frá bæjarstjórn —
Gjöf til Góðtemplarareglunnar.
í tilefni af 90 ára afmæli Góð-
templarareglunnar á Akureyri
samþykkir bæjarráð að veita
reglunni fjárstyrk að upphæð
kr. 100.000,00 til verndunar og
viðhalds Friðbjarnarhúss.
Díselvarastöð Laxárvirkjunar.
Rætt var um staðsetningu
nýrrar díselvarastöðvar í bæjar-
landinu.
Ákvörðun var frestað og ósk-
að frekari upplýsinga um
hávaða, titring og mengun.
Reglur um hundahald í bænum.
í tilefni af bókun heilbrigðis-
nefndar dags. 24. janúar sl., 2.
liður, gerir bæjarráð eftirfar-
andi tillögu til bæjarstjórnar:
Þar sem ekki hafa komið fram
neinar óskir um breytingu á
gildandi reglum um hundahald
í bænum, leggur bæjarráð til,
að hundahald verði leyft með
Kaun
Viljum kaupa nokkrar
hryssur á aldrinum
3—5 ára.
Ragnar Ingólfsson,
sími 1-23-54,
Arni Magnússon,
sími 1-11-98.
Sala
Vegna flutnings viljum
við selja lítið sem ekk-
ert notað sjónvarp í
fallegum skáp.
Sími 1-13-73.
ísskápur til sölu.
Uppl. eftir kl. 7 í síma
1-13-65.
Til sölu díselvél ásamt
millikassa og gírkassa
úr Austin Gipsy.
Verð kr. 50.000,00.
Uppl. í síma 95-4132
á kvöldin.
Til sölu TAN-SAD
bamakerra.
Uppl. í síma 1-13-66
eftir kl. 6.
Nýlegur barnavagn til
sölu, m jög vel með far-
inn.
Uppl. í síma 2-18-79.
Til sölu sófasett (rað-
sett).
Sími 2-10-28.
Til sölu dökkleit föt
með vesti á meðalmann.
Gott verð.
Uppl. í síma 2-22-35
milli kl. 7—8 á kvöldin.
Til sölu varahlutir í
Moskvits, vinstri fram-
hurð og tvær felgjur.
Uppl. í sírna 2-27-07.
sömu skilyrðum og verið hefir,
en felur heilbrigðisnefnd að
gera tillögur til breytinga, ef
hún telur það nauðsynlegt, til
samræmis við nýja heilbrigðis-
reglugerð.
Framkvæmdaáætlunamefnd.
Um nýbyggingar gatna á ár-
inu hefur verið gerð mikil áætl-
un. Ákveðið er að mæla með,
eins og stendur í fundargerð frá
8. febrúar, um nýbyggingar
gatna:
Skógarlundur tæpar 2.2 millj.
kr., Eikarlundur 4.155 millj. kr.,
götur í iðnaðarhverfi Glerár-
hverfis 4.22 millj. kr., Einholt—
Hraunholt 2.9 millj. kr., Lyng-
holt 1.9 millj. kr., Laufásgata
1.6 millj. kr., Hjallalundur 1.6
millj. kr., Heiðarlundur 1.5
millj. kr. og Safnbraut að Eikar
lundi 0.9 millj. kr. En samtals
er áætlað að í þessi verkefni fari
21.150 millj. kr. i
Atvinna
Laghentan mann vantar
nú þegar. Létt og þrifa-
legt starf.
Sími 1-21-39.
Kona óskast til að gæta
eins árs barns þrjá daga
í viku, helzt á eyrinni.
Sími 2-15-58.
Maður óskast í sveit nú
þegar eða síðar.
Gott kaup í fooði.
Uppl. á Vinnumiðlun-
arskrifstofu Akureyrar
sími 1-11-69.
Ýmisleöt
Get tekið nokkra nem-
endur í stærðfræði und-
ir landspróf eða 3ja
bekk M. A.
Uppl. í síma 1-24-80.
Til holræsa fyrir yfirborðs-
vatn í Lundstúni, frá Hjarðar-
lundi og stofnlögn að iðnaðar-
svæði, er áætlað að verja 7.7
milljónum króna og til malbik-
unar gangstétta og gönguleiða
7.5 millj. kr. Er þetta samanlagt
um 36 milljónir króna.
Til undirbyggingar gatna er
áætlað að verja 12.5 millj. kr.
Þar eru stærstu verkefnin
Gránufélagsgata neðan Laufás-
götu 3.3 millj. kr. og Eyrarveg-
ur 2.4 millj. kr.
Malbikun er áætluð á eftir-
farandi hátt, ásamt kantstein-
um:
Þús. kr.
Mýrarvegur ........ 2.690
Einilundur........... 855
Þingvallastræti
ofan Hamragerðis .. 2.870
Hamragerði......... 2.460
Stekkjargerði ..... 1.420 |
Norðurbyggð....... 955 |
Eyrarvegur að Hjalt-
eyrargötu.......... 1.740
Hörgárbraut ....... 1.220
Vanabyggð ......... 1.160 i
Austurbyggð....... 825 í
Alls 16.195 i
Framkvæmdaféð alls er kr.
65.000.000,00. |
Lundarskóli.
Borizt hefir bréf frá mennta-
málaráðuneytinu, þar sem fall-
ist er á, að staða skólastjóra við
Lundarskóla verði auglýst og
að sett verði í starfið frá 1. júlí
1974.
Fræðsluráð samþykkir að
staðan verði auglýst nú þegar
með umsóknarfresti til 15. apríl
1974. , |
Fræðsluráð leggur til, að hinn
nýi barna- og unglingaskóli í
„Lundshverfi“ verði nefndur
Lundarskóli.
Fræðsluráð samþykkir að
leggja til við bæjarstjórn, að því
verði heimilað að koma á
kennslu 6 ára barna við barna-
skólana á Akureyri þegar á
næsta hausti, ef húsnæði og
önnur aðstaða leyfir.
Fræðsluráð leggur áherzlu á,
að hraðað verði undirbúningi
2. áfanga (íþróttahúss) Glerár-
skólans, þannig að útboðslýsing
liggi sem allra fyrst fyrir. □
Dralonsængur
3 STÆRÐIR
Dralonkoddar
3 STÆRÐIR
Sængurveraefni
STRAUFRÍ
Damask
Lakaefni
HVÍTT OG MISLITT
VEFNAÐARVÖRUDEILD