Dagur - 20.03.1974, Side 2
2
Minnismerki m Jón Eiríksson
ÁGÆTUR kunningi minn,
Heimir Hannesson, lögfræðing-
ur, ritar athyglisverða grein í
Dag, 20. febr. sl., sem hann nefn
ir „Heilsuræktarmiðstöð rísi á
Akureyri." Þar fjallar hann um
nýgerða þróunaráætlun sérfræð
inga Sameinuðu þjóðanna um
íslenzk ferðamál, einkum lið,
sem kallaður er ferðamannamið
stöð (multi purpose resort),
sem nýtti jarðhita til baða, en
við hlið þess, eða í nágrenni,
skíðaaðstöðu, veiðar og aðrar þá
útivist, sem hægt væri að koma
við. Heimir leiðir að því rök, að
ekki sé hægt að fallast á þá
frumhugmynd hinna erlendu
sérfræðinga, að þessari miklu
miðstöð verði valinn staður í
eða við Reykjavík og nefnir
réttilega í því sambandi bæði
byggðasjónarmið og fleiri þjóð-
félagslegar ástæður. Heimir tel-
ur Akureyri koma mjög fast-
lega til greina í sambandi við
staðarvalið. Ekki vil ég varpa
rýrð á þá skoðun Heimis, en ég
þykist viss um, að hann sé mér
sammála um það, að fleiri staðir
geti komið til greina og að mál
sem þetta þurfi ýtarlegrar at-
hugunar við áður en ákvörðun
er tekin.
Tillögur Magnúsar G.
Björnssonar..
Magnús G. Björnsson, skipu-
lagsarkitekt, hefur sett fram
ákveðnar hugmyndir um skipu-
lag og nýtingu náttúruauðlinda
við Mývatn, svo sem skýrt var
frá í blöðum á síðasta ári. Eitt
af því, sem Magnús leggur til,
er uppbygging ferðamannamið-
stöðvar, þar sem Mývatnssvæð-
ið hafi, frá náttúrunnar hendi,
mikið aðdráttarafl fyrir ferða-
menn og bjóði upp á óvenjulega
fjölbreytni. Magnús néfnir t. d.
merkileg jarðfræðileg fyrir-
brigði, mikið og fjölbreytilegt
fuglalíf, frjósamar gróðurvinjar,
einkennilegar hraunmyndir,
miklar eyðimerkur, mánalands-
lag, háhitasvæði með leirhver-
um og brennisteinsútíellingum
í öllum regnbogans litum, neðan
jarðarbaðstaði með 40 stiga
heitu vatni og góða möguleika
til silgungsveiði. Þá kemur og
fram, að samkvæmt veðurfars-
rannsóknum er mjög hagstætt
veðurfar á þessu svæði, jafnt
sumar sem vetur, og vegna
veðurfars eru möguleikar á upp
byggingu „vetrartúrisma" fvrir
hendi. Magnús telur, að Mý-
vatnssvæðið hafi elnstæða mögu
leika í sambandi við ákveöinn
hóp ferðamanna, þ. e. heilsu-
hælisgesti, en slíku fólki telur
hann að muni fjölga mjög á
næstunni vegna aukinnar
streitu og skaðlegs umhverfis í
mörgum stórborgum erlendis.
Undramáttur leirbaða og
þurrabaðs.
Eftir að ég las grein Heimis
Hannessonar fannst mér sérstök
ástæða til að vekja athygli á
tillögum Magnúsar, og til við-
bótar ætla ég að benda á nokk-
ur atriði, sem snerta Mývatns-
svæðið og ég tel að líta beri á,
þegar staðarval fyrir ferða-
mannamiðstöð kemur til álita:
1. Jarðgufur í og við Jarðbaðs
hóla hafa lengi verið viður-
kenndar sem heilsuböð. í ís-
landslýsingu, sem Oddur Ein-
arsson, Skálholtsbiskup, er tal-
inn hafa ritað fyrir nær 400 ár-
um, segir hann frá undramætti
leirbaða og þurrabaðs við Jarð-
baðshóla, sem draga út svita og
vonda vessa úr holdi manna,
eyða sumum innansjúkdómum,
kláða og útbrotum og eru þann-
ig lækning mörgu mapnanna
meini.
2. Góðar skíðabrekkur eru
rétt við byggðina í Reykjahlíð,
þar sem hægt er að stíga á
skíðin heima við hóteldyr.
3. Á næstunni munu hefjast
beinar flugferðir milli Reykja-
víkur og Mývatnssveitar.
4. Staðarval við Mývatn er
hagstætt fyrir íbúa Austur- og
Norðausturlands, en litlir mögu
leikar eru á uppbyggingu heilsu
baðstaða og jarðhita á Austur-
landi, svo sem kunnugt er.
5. Hótelin við Mývatn eru of
lítil til að fullnægja gistlþörf-
inni yfir sumarmánuðina, en
standa svo ónotuð í 7—8 mán-
uði á ári.
6. Laxá í Þingeyjarsýslu er
talin eftirsóttasta laxveiðiá
landsins, þ. e. neðan við Brúar.
Efri hluti árinnar er þekktur
fyrir góða urriðaveiði, og þar
mun lax senn fara að veiðast.
Heilbrigðisþjónusta fyrir
Mývatnssveit og Hólsfjöll.
Heilsuræktarmiðstöð við Mý-
vatn ætti að skapa möguleika á
bættri heilbrigðisþjónustu og
auknu öryggi fyrir íbúa Skútu-
staðahrepps, sem nú eru um
500 ög sækja slíka þjónustu til
Húsavíkur, nema hvað læknar
hafa viðtalstíma einu sinni í
hálfum mánuði í Skjólbrekku.
Sumir landsménn munu að vísu
búa við yerri kjör í þessum
efnum, en ætli t. d. Akureyring-
um brigði ekki við, ef þeir
þyrftu allt í einu að fara að
sækja heilbrigðisþjónustu til
Olafsfjarðar.
Ég vil einnig, og ekki síður,
minna á íbúa Hólsfjalla og Efra-
Fjalls í þessu sambandi, en eins
og kunnugt er, samþykkti Bún-
aðarþing nýlega ályktun um
stuðning við þessar byggðir og
þingsályktunartillaga sama efn-
is liggur nú fyrir Alþingi. Ég
held að fátt geti betur stuðlað
að viðhaldi byggðar á Fjöllum
en vel uppbyggður vegur yfir
Mývatnsfjöll og vaxandi þjón-
ustumiðstöð í Reykjahlíð, þar
með talin heilbrigðisþjónusta í
sambandi við umrædda lieilsu-
ræktarmiðstöð. Vegalengdin
milli Grímsstaða á Fjöllum og
Reykjahlíðar ■ er 41 km. Frá
Grímsstöðum til Húsavíkur eru
95 km, en þangað þurfa Fjöll-
ungar nú að sækja læknis-
þjónustu.
Láta skai víðsýni ráða.
Enginn ágreiningur held ég
að sé um það, að Akureyri
þurfi að efla sem höfuðstað
Norðurlands. Þar er nú þegar
margvísleg og vaxandi þjón-
usta, vaxandi skólamiðstöð,
verzlun og iðnaður. Fleiri staði
þarf líka að efla og auka þar
ýmsa þjónustu, og fleiri staðir
geta að sjálfsögðu komið til
greina fyrir ferðamannamiðstöð
en Akureyri og Mývatnssveit.
Áður en ákvörðun verður tekin
í þessu móli þarf að skoða alla
þá staði vel og láta síðan víð-
sýni ráða.
Jón Illugason.
KÓR Menntaskólans við Hamra
hlíð heimsækir Akureyri og
Norðurland eystra í lok næstu
viku.
Kórinn kemur til Akureyrar
föstudagsmorguninn 22. marz
og kemur þá fram í Gagnfræða-
skóla Akureyrar og á kvöld-
vöku í setustofu Menntaskólans,
sem nemendur úr MA og MH
hafa skipulagt sameiginlega.
Kórinn syngur svo í Borgar-
bíói laugardaginn 23. marz kl.
15 og er öllum heimill aðgangur
svo lengi sem húsrúm leyfir.
Á sunnudaginn heldur kórinn
til Húsavíkur, þar sem hann
heldur síðdegistónleika, en um
kvöldið kemur hatin fram í
Skjólbrekku í Mývatnssveit.
BRÉF frá Lionsklúbbi Horna-
fjarðar:
„Eins og kunnugt er, hefur
mörgum af sonum íslenzku þjóð
arinnar verið reist minnismerki.
En einn þeirra hefur, hvað
þetta snertir, verið óbættur hjá
garði, en það er Jón Eiríksson
konferensráð. Hlýtur það þó að
vera samróma dómur allra, sem
vilja kynna sér sögu okkar, að
við eigum fáum meiri þakkir að
gjalda. Nú er ætlunin að reisa
þessum landa vorum verðugan
bautastein, er á að rísa á fæð-
ingarstað hans, Skálafelli í
Suðursveit. Er þess vænst, að
hann geti risið í sumar eða
haust, ef þær áætlanir, sem
gerðar hafa verið, standast.
Það eru tilmæli okkar til
þeirra, er þetta bréf lesa, að
þeir leggi eitthvað af mörkum
til þessa fyrirtækis, en forgöngu
hefur Lionsklúbbur Horna-
fjarðar.
Minnismerkið verður gert af
Sigurjóni Ólafssyni myndhöggv
ara, og til þess að framkvæmdir
geti hafist sém fyrst, er mjög
áríðandi að fjárframlög eða lof-
orð um stuðning berist okkur
hið fyrsta.“
í viðtali við sóknarprestinn í
Bjarnarnesi, Skarphéðin Pét-
ursson, sagði hann meðal ann-
ars þetta:
Þegar ég kom hingað austur
1960, varð ég þess vísari, að af
öllum þeim ræðum, sem fluttar
höfðu verið í Hornafirði, var
það ein sem lifði og var hún þó
aldrei skrifuð og allflestir eldri
menn mundu þó meira eða
minna. Þessi ræða var flutt 17.
júní 1911. Hana bar þannig að,
að þennan dag var haldin veg-
leg samkoma til minningar um
Jón Sigurðsson, en þegar þess-
ari samkomu var að ljúka og
allir tilkynntir ræðumenn höfðu
lokið máli sínu, kom séra Pétur
Jónsson ó Kálfafellsstað gang-
andi eftir vellinum og sté í
ræðustólinn, án þess að biðja
um orðið og flutti eftirminni-
lega ræðu. Hann sagði: Hér hef-
ur verið mikið talað um Jón
Sigurðsson. Ég gæti talað um
Jón Sigurðsson. Ég þekkti Jón
Sigurðsson, svaf meira að segja
hjá honum einu sinni. En ég
ætla ekki að tala um hann. Ég
ætla að tala um annan Jón.
Hann var nú ekki úr Nesjunum.
Hann var fæddur á Skálafelli í
Suðursveit. Ég ætla að tala um
Jón Eiríksson. Svo hélt klerk-
urinn þrumandi ræðu um Jón
Eiríksson, sem ekki verður
lengra rakin.
Jón Eiríksson var tveim árum
yngri en Eggert Ólafsson og sam
tímis honum í Skálholtsskóla,
en þangað kom Jón 1743 og þá
15 vetra gamall, af fátæku
bændafólki kominn. Vegna frá-
Sumarið 1971 fór Kór Mennta
skólans við Hamrahlíð í söng-
ferð til Bretlands og tók m. a.
þátt í alþjóðlegu tónlistarmóti
í Wales, þar sem hann vakti
mikla athygli og hlaut góða
dóma. Önnur utanferð kórsins
var farin í marz 1973. Þá tók
kórinn þátt í norrænni æsku-
kórakeppni, sem haldin var í
Noregi. Keppninni var sjón-
varpað um öll Norðurlönd nema
ísland og íslenzku þátttakend-
urnir hlutu mikið hrós.
Á efnisskrá kórsins í Norður-
ferð 1974 eru m. a. verk eftir
J. S. Baeh, G. F. Handel, Ii. L.
Hassler, Garl Orff, Björgvin
Guðmundsson, Emil Thorodd-
sen, Gunnar Reyni Sveinsson,
bærra gáfna sinna við námið
var hann valinn úr hópi nem-
enda af hinum stranga skóla-
meistara, Harboe, til menntunar
erlendis.
Jón lauk embættisprófi í lög-
um sumarið 1758 og átti þá
margra kosta völ. Hann kaus
prófessorsembætti við akademí-
ið í Sórey og gegndi því embætti
í tólf ár. Var honum þá boðin
doktorsnafnbót en hann afþakk-
aði. Árið 1771 var Jón kvaddur
til Sóreyjar á ný til trúnaðar-
og virðingarstarfa í rentukamm-
erinu, sem þá var skipt í norska,
þýzka og danska deild, og brátt
hækkaður í tign og gerðist
mikill áhrifamað.ur og átti um
langt skeið þátt í málum ís-
lands, Færeyja, Finnmarkar og
jafnvel Grænlands. íslandsmál-
efni í rentukammerinu nutu
Jóns Eiríkssonar og er hlutur
hans þar mikill og óumdeildur.
Allt er ísland varðaði, var hon-
um jafnan tilfinningamál. Með
listapenna sínum og aðstöðu,
sem virtur embættismaður í
stjórnkerfi Dana, vann hann
þrekvirki fyrir fósturjörð sína.
Hann andaðist 29. marz 1787,
aðeins 59 ára gamall. Q
FRÁ ÞISTILFIRÐI
NÝLÁTINN er Friðjón Jónsson
frá Þórshöfn. Hann var einn
fyrsti maður, sem stundaði bif-
reiðaakstur á Þórshöfn, var um
tíma formaður verkalýðsfélags
þar og sinnti ýmsum öðrum fé-
lagsmálastörfum. Friðjón var
alinn upp í Hrauntanga á Axar-
fjarðarheiði og beitti sér mjög
fyrir vegalagningu yfir heiðina,
og var leiðsögumaður er þar
var mælt fyrir vegi og var með
í fyrstu för bíls yfir heiðina.
Hann var 67 ára, er hann lézt
og lætur eftir sig konu og fjögur
uppkomin börn.
Sextugur varð 16. marz sl.
Steinn Guðmundsson bóndi á
Þórshöfn. Hann hefur um langt
árabil verið fjallkóngur á Tungu
selsheiði og lætur sér mjög annt
um fjallskil og fyrirgreiðslu á
óskilafé. Ó. H.
Framboðslisti AB
BIRTUR hefur verið framboðs-
listi Alþýðubandalagsins á Ak-
ureyri. Hann skipa: Soffía Guð-
mundsdóttir, Jón Ingimarsson,
Helgi Guðmundsson, Jóhanna
Þorsteinsdóttir, Magnús Ás-
mundsson, Haraldur Bogason,
Steinar Þorsteinsson, Ragnar
Pálsson, Ragnheiður Pálsdóttir,
Birgir Þórhallsson, Rósa Peter-
sen, Gunnar Óskarsson, Jó-
hannes Hermundarson, Þórhalla
Steinsdóttir og Haddur Júlíus-
son. Q
Jón Þórarinsson og Sigfús Ein-
arsson, auk negrasálma og þjóð-
laga bæði innlendra og er-
lendra. Q
Vortískan 1974
Vorum að fá okkar
fyrstu sendingu af
VOR-KJÓLUM.
TÍSKUVERSLUNIN
REGÍNA S.F.
SÍMI 1-10-95.
amrahlíðarkórinn í heimsókn hingað