Dagur


Dagur - 20.03.1974, Qupperneq 7

Dagur - 20.03.1974, Qupperneq 7
7 Húsnæði Vantar herbergi eða litla íbúð til leigu frá 1 júní n. k. Tilboð leggist inn á afgr. Dags merkt: Herbergi. Nýlegt einbýlisbús við Beikilund til leigu í maí Uþpl. í síma 22650 milli kl. 12 og 1. íbúð óskast. Einhleyp eldri kona óskar eftir að fá leigða litla íbúð strax eða í vor. Helzt á Brekkunni. Uppl. í síma 21181. UNGUR PILTUR óskar eftir herbergi strax. Uppl. í síma 22589 kl. 19-20. HERBERGI ÓSKAST TIL LEIGU Uppl. í síma 21020, kl. 4—7 e. h. Bifreiðir Til sölu bifreiðin A 1550, Cortína árg. ’68. Uppl. í síma 12174 e. li. Til sölu Moskvitch stadion, árg. ’72, ekinn 14.000 km. Uppl. í síma 12314. Vil kaupa notaðan vörubíl til niðurrifs, 3—4ra tonna. Uj^pl. í síma 12166 frá kl. 7—8 á kvöldin. TIL SÖLU er Opel Caravan árg. 1961. Uppl. gefur Pétur Hjartarson í síma 12219. FORD BRONCO, árgerð 1973, ekinn 10 þús. km, sjálfsk., 8 cl., vökvastýri, klæddur, með st-ækkuðum glugg- um, til sölu. Uppl. í síma 1-12-49 eftir kl. 6. Atvinna UNGLINGSSTÚLKA óskast til að gæta tveggja ára telpu í sum- ar. Uppl. í síma 2-23-39. Barngóð 12—13 ára stúlka óskast til að gæta eins árs drengs í sumar. Uppl. í síma 22298. ■ II !■■■■■! Kvikmyndasýning \ DER KONGRESS TANZT, gömul, þýsk gam- anmynd, verður sýnd í Borgarbíói laugardaginn 23. marz kl. 2 e. h. — Aðgangur ókeypis. j! ÞÝSK-ÍSLENSKA FÉLAGIÐ, AKUREYRI. ■ ■■■■■■ i !■■■■■■■■■■■■■■< !■■■■■■ J A F F A appelsínur ÚRVALSGÓÐAR Atvinna Vantar nokkra karlmenn til starfa á dagvakt nú þegar. ULLARVERKSMIÐJAN GEFJUN T W E E D Nú er margeftirspurða TWEED-efnið komið. Kaupum hreinar léreffstuskur PRENTVERK 0DDS BJÖRNSS0NAR H.F. HAFNARSTR. 88 - AKUREYRI - SÍMI 2-25-00 Þj óðliátí ðarlundir í Reykjavík var nýlega samþ. á fundi stjórnar starfsmanna Skógræktar ríkisins og for- manna héraðsskógræktarfélag- anna, að minnast 75 ára afmælis og ellefu alda byggðar í landinu m. a. sem hér segir: Gróðursett verði í „þjóðhátíð- arlund“ í hverju héraði, í skóg- ræktargirðingum Skógræktar- innar. Félögum og einstakling- um verði um leið gefinn kostur á að gróðursetja í sérstaka reiti, sem merktur verði þeim. Þessi fundur ályktaði eftir- farandi: 1) Sameiginlegur fundur for- manna héraðsskógræktarfélaga, stjórnar Skógræktarfélags Is- lands og starfsmanna Skógrækt ar ríkisins skorar á landsmenn alla að taka þátt í því að minn- ast 11 alda byggðar í landinu og 75 ára afmælis skógræktar á ís- landi með því að leggja nokkuð af mörkum til eflingar skóg- ræktar og landgræðslu. Því er beint til allra sveitarfélaga að leggja hér nokkuð af mörkum og ekki minna en sem svarar 10 kr. á hvern íbúa. 2) Fundurinn minnir á, að Skógræktarfélag íslands var stofnað á Þingvöllum á Alþingis hátíðinni 1930. Að margra dómi var það bezta gjöfin, sem þjóð- inni hlotnaðist á því afmælisári. Landgræðslusjóður var stofnað- ur lýðveldisárið 1944 með mjög almennum fjárframlögum hvar- vetna að á landinu. Landgræðslusjóður hefur reynzt mikil lyftistöng skóg- ræktarstarfsins og staðið straum af plöntuframleiðslu gróðrar- stöðvanna að verulegu leyti. Þetta ætti að vera hverjum íslendingi hvatning til þess að taka þátt í landgræðslustörfum nú á þessu þjóðhátíðarári, og gera með því sitt til þess að þjóðin standi í skilum við land- ið. 3) Fundurinn fagnar því, að ríkisstjórnin tók það upp í mál- efnasamning sinn, að gerð skyldi „heildaráætlun* um land- græðslu og skipulega nýtingu landsgæða. Sú áætlun hefur nú verið gerð, og mun við það mið- að, að þjóðin minnist 11 alda byggðar í landinu með verðugu heildarátaki í þessum efnum. Fundurinn skorar á Alþingi að veita verulega fjármuni til landgræðslumála í samraémi við áætlun þessa. | - 4) Fundurinn vill hvetja al- menning til að ganga í skóg- ræktarfélög og gerast þar virkir félagar. Félögin eru hvött til aukinna starfa á öllum sviðum skógræktarmála og sérstaklega til aukinnar kynningar á ár- angri þeim, sem náðzt hefur með skógrækt á íslandi. 5) Fundurinn beinir þeirri áskorun til skólastjóra og ann- arra forráðamanna skóla í land- inu að þeir gefi skólafólki kost á og hvetji það til virkrar þátt- töku í skógrækt og öðrum land- græðslustörfum. Fundurinnlýsir stuðningi við þær hugmyndir, sem koma fram í frumvarpi um landgræðslu- störf skólafólks. 6) Fundurinn vill beina því til hvers konar félaga, stofnana og einstaklinga, sem vilja taka þátt í plöntun þjóðhátíðarlunda eða ljá skógrækt á einhvern hátt lið á þjóðhátíðarárinu, að þau snúi sér til viðkomandi skógræktarfélags eða Skógrækt arfélags íslands. Félögin eru fús til samvinnu og reiðubúin til að veita hvers konar leiðbeiningar og fyrirgreiðslu. □ ■ KJÖRDÆMISÞINGIÐ (Framhald af blaðsíðh 1) góður rómur gerður að þessum fróðlegu og skörulegu ræðum. Fyrir þinginu lágu drög að ýmislœnar ályktunum um lands mál, kjördæmismál og mál kjör dæmissambandsins, sem nú voru öll tekin til endurskoðunar í þrem aðalnefndum, þeim breytt í meðförum nefndanna og svo þingsins sjálfs að því loknu, eftir því sem þurfa þótti og þingheimur óskaði. Formaður landsmálanefndar var Hjörtur E. Þórarinsson, for- maður kjördæmisnefndar Sig- urður Jónsson og formaður fjár- hags- og skipulagsnefndar var Haraldur M. Sigurðsson. Umræður voru allmiklar á þingi þessu, en þó að sjálfsögðu minni en á tveggja daga kjör- dæmisþingum. Þá var þinginu stjórnað af röskleika af aðal- forseta. Kosin var tólf manna upp- stillingarnefnd, er undirbúi framboðslista fyrir næstu al- þingiskosningar og ný sam- bandsstjórn var kjörin. Nýkjörna stjórn kjördæmis- sambandsins skipa þessir menn: Hilmar Daníelsson, formaður, Þormóður Jónsson, ritari, Hákon Hákonarson, gjaldkeri, Helgi Jónsson, varaformaður, meðstjórnendur Jóhann Helga- son, Ármann Þórðarson og Aðal björn Gunnlaugsson. í miðstjórn voru kjörnir: Haraldur M. Sigurðsson, Ingi Tryggvason, Hjörtur E. Þórar- insson, Baldvin Baldursson og Sigurður Jóhannesson, Formað- ur, Hilmar Daníelsson, sjálf- kjörinn. Frá yngri mönnum: Guð- mundur Bjarnason, Bjarni Aðal geirsson og Jóhann Antonsson. í framboðsnefnd voru eftir- taldir menn kjörnir: Sigurður Jóhannesson, Sólveig Gunnars- dóttir, Ingvar Baldursson, Árni Hermannsson, Helgi Jónsson, Sigurgeir Halldórsson, Guð- mundur Bjarnason, Indriði Ketilsson, Haukur Halldórsson, Benedikt Lund, Jóhann Helga- son og Sigurður Jónsson. Q

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.