Dagur - 15.05.1974, Side 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÉBSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Málin skýrast
ÓLAFUR Jóhannesson, forsætisráð-
herra, rauf þing og boðaði alþingis-
kosningar 30. júní. Ástæðan var sú,
að þingmenn Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna á Alþingi, þeiij
Björn Jónsson, Hannibal Valdimars-
son og Karvel Pálmason, rufu
stjórnarsamstarfið. Áður hafði
Bjarni Guðnason, sem á þing var
kosinn af sömu samtökum, skorist
úr leik. Stjómarflokkarnir höfðu
því glatað naumum meirihluta sín-
um á Alþingi og forsætisráðherra
hlaut að taka ákvörðun um afsögn
eða þingrof og valdi síðara kostinn
eftir skamma umhugsun.
Aðdragandi þessara tíðinda var
stjórnarfmmvarp um efnahagsmál,
sem lagt hafði verið fram á Alþingi
og forsætisráðheiTa mælti síðan fyr-
ir í neðri deild. Þá gerðist það, að
Björn Jónsson sagði af sér og fyrr-
greindir flokksmenn hans slitu
stjórnarsamstarfið, og urðu þar með
viðskila við flokksbróður sinn, Magn
ús Torfa Ólafsson, menntamálaráð-
herra, sem þá sagði sig úr þingflokki
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna. Vegna staðfestu mennta-
málaráðherra varð að engu sú
draumsýn Hannibals og Gylfa, að
mynda nýja ríkisstjórn með stuðn-
ingi Sjálfstæðisflokksins. Þeirri hug-
mynd forsætisráðherra að mynduð
yrði þjóðstjórn allra flokka, er sæti
að völdum fram að haustkosningurti,
og leysti sameiginlega aðsteðjandi
efnahagsvanda og flokkadeilum
linnti um skeið á þessu þjóðhátíðar-,
sumri var hafnað. Enginn mögúleiki
var heldur til myndunar meirihluta-
stjórnar og því einsýnt, að skjóta
yrði málum undir úrskurð þjóðan
innar með nýjum kosningum.
Þegar forsætisráðlierra hafði rofið'
þing og kosningar ákveðnar, ætlaði
allt um koll að keyra í herbúðum
stjórnarandstæðinga. Þeir sömu
stjórnmálaflokkar, sem ekki fengust
til að ræða efnislega frumvarp stjóm
arinnar um efnahagsmálin og neit-
uðu þinglegri meðferð þess, efndu
fyrst til málþófs á Alþingi, en hófu
síðan æðisgengna herferð gegn for-
sætisráðherra út af þingrofinu. For-
sætisráðherra kom þá fram fyrir
þjóðina, sem þjóðskörungur, hiklaus
og drengilegur í senn og sneri vöm
í sókn. Hann hefur lýst því yfir, að
hann og stjóm hans muni ekki beitai
valdi, svo sem með útgáfu bráða-
birgðalaga, nema í ítrastu neyð til
að verja þjóðina verstu áföllum dýr-
tíðaröldunnar, fram yfir kosningar,
og um nauðsyn þess era allir stjóm-
málaflokkar sammála. □
Litið f krinn um vkkur
Kosningaskriísfoía á Húsavík KRISTÍNARKVÖLD
SIGURÐUR ÓLI BRYNJÓLFS-
SON kennari skipar efsta sæti
B-listans við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar á Akureyri, er fram
fara 26. maí n.k. og skipaði það
, ejpnig v.ið síðustu bæjarstjómar
kosningar.
Sigurður Óli er upp runninn
í Glerárhverfi, sonur Brynjólfs
Sigtryggssonar og konu hans,
Guðrúnar Rósinkarsdóttur, er
síðar bjuggu lengi í Ytra-Krossa
nesi, þar ólst Sigurður upp í
stórum systkinahópi, og þar átti
'uháfcih‘ heima til 1965 að hann
flúl'tr í bæinn.
' Sigurður Óli varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri
" vorið 1950 og BA-prófi í eðlis-
fræði og stærðfræði lauk hann
við Háskóla íslands árið 1954.
Hann hefur verið kennari við
Gagnfræðaskólann á Akureyri
síðan hann lauk háskólaprófi
sínu, og einnig hefur hann
kennt við Iðnskólann. Samhliða
námi og síðan kennslu, hjálpaði
hann foreldrum sínum og síðan
móður sinni, eftir að hún varð
ekkja, við bústörfin í Ytra-
Krossanesi og gerir raunar enn.
í bæjarstjórn var Sigurður
Óli Brynjólfsson fyrst kosinn
1962 og svo ætíð síðan. Sem að
líkum lætur um svo starfhæfan
og traustan mann, hefur hann
verið kjörinn til hinna ýmsu
trúnaðarstarfa innan bæjar-
stjórnar og utan. Hann er t. d.
formaður fræðsluráðs Akureyr-
ar, skólamálum aldrei fleygt svo
fram, sem þau nú gera. Bæjar-
ráðsmaður hefur hann verið
mörg undanfarin ár. Margþætt-
um trúnaðarstörfum utan bæjar
stjórnar hefur hanh einnig
gegntgsvo sem fyrir Framsókn-
arflokkinn og samvinnufélögin.
Sigurður Óli Brynjólfsson er
44 ára, kvæntur Hólmfríði Krist-
jánsdóttur frá Holti í Þistilfirði
og eiga þau soá og fjórar dætur.
Sigurður ÓIi Brynjólfsson
segir:
Hið sérstæða ástand, sem ríkti
meðan prentaraverkfallið stóð
yfir hefur gert okkur erfitt fyr-
ir að koma á framfæri nauðsyn-
legum upplýsingum til Akureyr
inga um bæjarmálin og vekja
athygli þeirra á mikilvægi þess,
að fram verði haldið þeirri fram
kvæmdastefnu sem upp var tek-
in hér í bænum undir forystu
Framsóknarmanna.
Þess gerist þó líklega ekki
þörf, vegna þess að fólk þarf
ekki annað en að líta í kringum
sig á ferð sinni um bæinn, til
Mótmæli gegn veiðibanni
í 58. TÖLUBLAÐI DAGS á Ak-
ureyri, segir ritstjórinn frá er-
indi formanna 6 veiðifélaga við
Eyjafjörð, til bæjarstjórnar Ak-
ureyrar, þar sem þeir óska eftir
meðmælum hennar til landbún-
aðarráðherra, þar sem hann er
beðinn að setja bann á veiðar
göngusilungs í Eyjafirði innan
línu þvert yfir fjörð um nyrstu
odda Hríseyjar.
Við undirritaðir eigendur og
ábúendur jarða á Svalbarðs-
strönd erum algerlega andvígir
slíku veiðibanni, sem og hvers
konar árásum á eignarrétt okk-
ar Meirihluta jarða hér fylgja
hefðbundin réttindi bænda til
silungsveiða í lagnet og ádrátt-
arveiði. Þessi hefðbundnu rétt-
indi verða eigi frá jörðum skilin
meðan eignarrétturinn er frið-
helgur. |
Svalbarðsströnd, 31. desember 1973,
Eiríkur Geirsson, Veigastöðum,
Guðmundur G. Haraldsson,
Halllandi,
Pálmi Valdimarss., Meyjarhóli,
Sigfús Árelíusson, Geldingsá,
Friðrik Leósson, Höfn,
Ari Jónsson, Sólbergi,
Stefán Júlíusson, Breiðabóli,
Einar J. Grant, Litlahvammi,
Valdimar Kristjánss., Sigluvík,
Steingr. Valdimarsson, Heiðar-
holti,
Jónas Björnsson, Meðalheimi,
Bjarni Hólmgrímss., Svalbarði,
Kjartan Magnússon, Mógili,
Jóhannes Halldórss., Vaðlafelli,
, Hreinn Ketilsson, Sunnuhlíð,
. Jónas Halldórsson, Sveinbjam-
argerði,
Jón Ó. Jensson, Garðsvík,
Kristján Benediktsson, Efri-
Dálksstöðum,
Ingi Þór Ingimarsson, Neðri-
Dálksstöðum,
Helgi Sigurðsson, Brautarhóli,
Jóhannes Laxdal, Tungu,
Sveínberg Laxdal, Túnsbergi,
Árni Sigurjónsson, Leifshúsum,
Grímur Jóhannesson, Þóris-
stöðum,
Friðrik Friðbjarnarson, Gauts-
stöðum,
Haukur Halldórsson, Svein-
bjarnargerði,
Karl Gunnlaugsson, Svalbarðs-
eyri,
Þórhallur Geirfinnsson,
Halldór Jóhanness., Þórsmörk,
Haukur Laxdal, Tungu.
□
Sigurður Óli Brynjólfsson.
að sjá þá miklu breytingu, sem
orðið hefur á bænum og bæjar-
lífinu hin síðustu ár.
Þá mun einnig staðan í lands-
málapólitíkinni núna verða til
þess að menn tengja bæjarmál-
in meira við heildarstefnuna og
þann árangur sem hún leiðir til,
heldur en annars hefði verið.
Akureyringar vita, að fram-
kvæmdastefnan hér tók fjörkipp
með þessari ríkisstjórn, svo sem
Slippstöðin, Útgerðarfélagið og
sjúkrahúsið eru góð dæmi um.
Atvinnuleysið og flótti fólks-
ins frá Norðurlandi og jafnvel
til útlanda á Viðreisnarstjórnar-
árunum mun verða rifjað upp
og borið saman við endurreisn
atvinnulífsins og almennar fram
farir, sem orðið hafa í tíð ríkis-
stjórnar Ólafs Jóhannessonar.
Þar kemur enn skarpar fram
framkvæmdastefna Framsóknar
manna heldur en á einum
ákveðnum stað svo sem á Akur-
eyri. Þar gætu menn haldið að
harmonikuleikari á Ak.
, HEIMSÞEKKTUR harmonikku
leikari, ítalinn Salvatore di Ge-
suajdo, heldur tónleika í Sam-
komuhúsinu á Akureyri (leik-
húsi) fimmtudaginn 16. maí, og
hefjast tónleikarnir kl. 20.30.
Gesualdo varð víðfrægur árið
1962, þegar hann varð sigurveg-
ari í alþjóðlegri keppni í har-
monikkuleik, sem haldin var í
Spjzburg, en þá var hann 22 ára
gamalL.Eftir þetta hefur Gesu-
aldo gert víðreist og aukið hróð
ur . sinn á fjölmörgum tónleik-
um í vestur- og austur Evrópu,
Bandaríkjunum og ísrael.
Árið 1970 lauk Gesualdo
meistaraprófi í tónsmíðum frá
Rossini tónlistarháskólanum í
Peafp, en hann hefur einnig lagt
stund á kór- og hljómsveitar-
stjórn hjá Franco Ferrara.
Gesualdo kom hingað til
lands árið 1972, og hélt þá tón-
leika í Norræna húsinu, auk
þess lék hann fyrir hljóðvarp
og sjónvarp.
Að þessu sinni heldur Gesu-
aldo tvenna tónleika í Reykja-
vík, en kemur einnig fram á Ak
ureyri, Húsavík og Neskaup-
stað.
Listamaðurinn kemur hingað
til lands frá Englandi, þar sem
hann hefur leikið og haldið fyr-
irlestra í tónlistarháskólum, en
héðan heldur Gesualdo til Kaup
mannahafnar í boði Konunglega
Tónlistarháskólans.
Á efnisskrá þeirri, sem Gesu-
aldo leikur á Akureyri, eru
bæði létt og alvarleg verk, má
þar nefna: Malguena eftir Le-
cuona, Acquarelli Cubani eftir
Fancelli og Toccata og fúga í
d-moll eftir Bach. Sjaldgæft er,
að harmonikkusnillingar haldi
tónleika hér á landi, og er það
vonum seinna að hinum fjöl-
mörgu áhugamönnum þessa
hljóðfæris bjóðist tækifæri sem
þetta.
Tónlistarfólk kynnist á tón-
leikum þessum fjölbreyttum
framfarirnar yrðu vegna tilvilj-
unarkenndra atvika, þótt um-
fang þeirra sé raunar miklu
meira en nokkurn tíma gæti
orðið, ef ekki væri um mark-
vissa stefnu að: ræða.
Akureyringsjr: munu áreiðan-
lega.vel atvinpuleysið og flótta
unga fólksins,: sem leiddi svo
gjarnan af sér> löngun foreldra
að fylgja í fótsppr þeirra. Akur-
eyringar munq líka vel hafa tek
ið eftir þeirri breytingu, að
unga fólkið af öllum mennta-
stigum, bæði heimafólk og að-
flutt, óskar nú að dvelja hér og
treystir bænum fyrir velferð
sinni og afkomenda sinna í stór-
urn ríkara mæli en áður.
Það sýnir best álit fólksins á
stöðu -Akureyrar, hve byggðin
hefur þanist út, enda fólksfjölg-
un mikil og atvinnulífið fjöl-
breytt og tryggt. Hingað er
mqrgt að sækja, sem aðrir kaup-
staðir hafa ekki upp á að bjóða
og fólk gerir sér ljóst að með
áframhaldandi stefnu bjartsýn-
is og áræðis er hér ekki tjaldað
til einnar nætur eins og sumir
fengu tilfinningu fyrir undir
Viðreisn.
Þessi vaxandi bjartsýni fólks-
ins á fyrst og fremst rætur að
rekja til framkvæmdastefnu
þeirrar, sem Framsóknarmenn
leiddu í öndvegi í bæjarstjórn
um leið og fólkið veitti þeim
nauðsynlegt traust til að verða
leiðandi afl og forystuflokkur í
málefnum bæjarins með ötulan
bæjarstjóra í starfi til að fylgja
málunum eftir. Enn frekar
styrktist þessi bjartsýni manna,
þegar áhrifa stefnu Ólafs J6-
hannessonar fór að gæta á þessu
kjörtímabili.
Rétt er að taka það fram, að
við höfum aldrei gert tilraun
til að dylja neinn þess, að fram-
kvæmdirnar kosta fjármuni. Og
um leið og við gerum kröfur til
þjóðfélagsins gerum við miklar
kröfur til okkar sjálfra. Við telj
um þó að aðstreymið til bæjar-
ins hafi sannað okkur að menn
vilja heldur framkvæmdir, þótt
Sala
Prjónavél til sölu.
Sími 2-19-83.
möguleikum þessa hljóðfæris í
vönduðum flutningi.
Aðgöngumiðar fást í bókabúð-
inni Huld og einnig við inngang
inn.
Stjórn Tónlistarfélags Akur-
eyrar hefur stuðlað að heim-
sókn Gesualdo til Akureyrar.
O
BRÉFASKÓLI ÆSK
ÚT ER KOMIÐ 1. bréf þessa
árs frá Bréfaskóla ÆSK, en
skólastjóri hans er séra Jón Kr.
ísfeld í Búðardal. Prófasturinn
í Þingeyjarþingi, séra Sigurður
Guðmundsson og vígslubiskup-
inn, séra Pétur Sigurgeirsson,
rita þar ávarpsorð. En þréfið
flytur annars ýmis konar verk-
feni fyrir 8—10 ára börn og í
öðru lagi verkefni fyrir 11—13
ára börn. Sitthvað fleira er í
þessu bréfi og valið við barna
hæfi. □
Ung kýr til sölu.
Uppl. í síma 2-15-19.
Til sölu 3ja tonna trilla.
Mjög vel með farín.
Uppl. í síma 2-29-89
frá kl. 17-18.
KÝR til sölu.
Sími 2-26-58,
Jóhannes Hjálmarsson,
Stíflu.
Til sölu kerruvagn og
Dual steríó fónn.
Uppl. í Akurgerði 1 a.
Til sölu húsbóndastóll
með skemli og barna-
ním. Selst ódýrt.
Sími 2-14-69 f. h.
Bamakerra til sölu.
Uppl. í síma 2-14-56.
þær kosti nokkuð, heldur en
kyrrstöðu. Því treystum við því,
að kjósendur veiti okkur enn
vaxandi fylgi, til þess að fram-
kvæmdastefnan verði ekki
stöðvuð;
Sem dæmi um það, hver ár-
angur hefúr náðst á þessu kjör-
tímabili má nefna: Reistur var
fyrsti áfangi nýs skóla í Gler-
árhverfi. Þar eru nú við nám
440 nemendur. — í haust verð-
ur tekinn í notkun fyrsti áfangi
nýs skóla í Lundarhverfi og er
áætlað a ðþar verði um 300 nem
endur á fyrsta vetri. Þar bíður
mikið uppbyggingarstarf og
einnig við Glerárskólann. Vegna
þessa aukna húsnæðis er fyrst
mö.gulegt að taka upp skipulega
kennslu sex ára bárna og verð-
ur það gert í haust. Skólalóðirn-
ar hafa verið stórbættar. Mikl-
ar endurbætur hafa verið gerð-
ar á Húsmæðraskólahúsinu og
starfsemi hans efld' og færð í
nýtt horf. Unnið er að því að
koma upp verkkennsluaðstöðu
í Iðnskólanum.
Námsflokkarnir hafa verið
efldir. Stuðlað að stofnun Mynd
listarskóla og Leikfélaginu gert
kleift að reka atvirtnuleikhús.
Vélskólinn og fyrsta stig Tækni
skólans hér á Akureyri eru á-
nægjulegar staðreyndir. Nátt-
úrugripasafnið eflt.
Enn mætti áfram telja, og svo
væri hægt í flestum málaflokk-
um. Um þetta efni lesa menn
svo í ávarpi Framsóknarfélag-
anna, sem ég vona að sem flest-
ir hafi fengið og muni kynna
sér, segir Sigurður Óli Brynjólfs
' son áð lokumi. □
Húsnæði
3 skólastúlkur óska eftir
lítilli þriggja herbergja
íbúð, helst með eldunar-
aðstöðu, eða þrem her-
bergjum frá 20. sept.
næsta haust.
Uppl. veittar í síma
1-10-55 milli kl. 5 og 7.
Tvær ungar stúlkur
óska eftir herbergi 1.
júní. Helst aðgang að
eldhúsi.
Uppl. gefur Áskell Jóns-
son, sími 1-19-78.
íbúð óskast til leigu frá
1. júní til 1. okt.
Uppl. gefur Guðmund-
ur í síma 1-20-82 til kl.
17.
HÚS til sölu.
íbúð í raðhúsi við
Furulund 15, selst fok-
helt.
Uppl. veitir Guðm.
Jónsson Langholti 22
eftir kl. 7 s. d. næstu
daga.
Ung barnlaus hjón óska
eftir íbúð til leigu
sem fyrst.
Sími 2-17-43.
Herbergi óskast til leigu
Uppl. í síma 1-10-79.
Á HÚSAVÍK verða í komandi
bæjarstjórnarkosningum fjórir
listar í framboði: listi Framsókn
arflokksins, listi Sjálfstæðis-
flokksins, listi Alþýðuflokks og
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna og listi Alþýðubanda-
lags og óháðra kjósenda.
Efstu sæti á lista Framsóknar
flokksins skipa: Haraldur Gísla-
son, mjólkurbússtjóri, Guð-
mundur Bjarnason, bankamað-
ur, Egill Olgeirsson, raftækni-
fræðingur, Jónína Hallgríms-
dóttir, húsmæðrakennari,
Tryggvi Finnsson, framkvæmda
stjóri, Ingimundur Jónsson,
kennari, Aðalsteinn Jónasson,
húsasmiður, Haukur Haralds-
son, mjólkurfræðingur, og Berg-
þóra Bjarnadóttir, húsfrú.
Kosningaskrifstofa Framsókn
armanna er til húsa í Garðars-
braut 5, annarri hæð, og verður
hún opin kl. 20.30—22.30 virka
daga nema laugardaga. En laug-
ardaga og sunnudaga er skrif-
stofan opin kl. 17.00—19.00.
Kjörskrá liggur frammi og er
allt stuðningsfólk hvatt til að
koma eða hafa samband við
skrifstofuna og veita upplýsing-
ar, sem að gagni kunna að koma
í kosningunum.
Símanúmer skrifstofunnar er
4-14-54.
(Aðsent).
EINS og getið var um hér í blað
inu í vetur, var „Kristínar-
kvöld“ haldið að Laugarbqrg í
Hrafnagilshreppi 28. mars s.L’
Kvöldvakan var sótt af fólki úr
héraðinu og frá Akureyri, var
hún öll hin ánægjulegasta. Les-
ið var úr verkum skáldkonpnn-
ar, fluttir leikþættir bæðí úr
„Tengdamömmú“ og „Mel-
korku“. Lesið Var fagurt Ijóð
um líf og störf Kristínar eftir
Hjalta Finnsson bónda í Ártúni.
Svikinn lilekkiii^
ÞAÐ ER himinbliða og gárar
ekki sjó, sagði Sigurður Finn-
bogason, fréttamaður Dags í
Hrísey á mánudaginn. Allt er
orðið fagurgrænt, og ef við ætt-
um kýr, myndum við vera bún-
ir að hleypa þeim út á gróður-
inn.
Ég held, að æðarfuglinn sé í
þann veginn að býrja að verpa.
En rjúpan mun ekki byrjuð að
verpa ennþá. Dálítið er af þeim
blessaða fugli hér í eynni, og er
hér alveg heima við húsin og
heilsar upp á okkur.
En fiskurinn hefur ekki verið
á því að heimsækja okkur og er
það heldur lakara. Það kom
aldrei nein fiskiganga í vor og
aflinn hefur verið lítill. Þeir
eru austur við Langanes á Ey-
rúnu og hafa orðið aðeins varir
þar, eru búnir að landa tvisvar,
um 18 til 20 tonnum.
Grásleppan hefur verið mjög
treg hér við Hrísey, en úthöld
héðan, sem veitt hafa við Flat-
ey, hafa fiskað vel. Tvö úthöld
frá okkur eru komin austur að
Langanesi, fengið góða veiði þar
og leggja upp á Raufarhöfn,
segir fréttaritarinn að lokum.
ÞANN 31. marz s.l. varð mjög
harður bifreiðaárekstur á
„blindri" hæð við bæinn Stóru-
Hámundarstaði á Árskógs-
strönd. Þennan sunnudagsmorg
unn slösuðust 5 manneskjur og
4 bifreiðar stórskemmdust á
þessari einu hæð.
Það er óhugnanlegt að koma
á vettvang eftir alvarleg bif-
reiðaslys — og áleitin spurning-
in: — Hvers vegna skeður
þetta. Mér er ljóst, að sú hlið
málsins er snýr að eiginleikum
og akstursvenjum einstakra öku
manna, verður jafnan háð mann
legum mistökum, en seint verðá
fyrirbyggð. Hina hliðina — er
snýr að ríkisforsjá — vegagerð
og frágangi akbrauta, vil ég at-
huga nánar.
Það mun flestra álit er til
þekkja, að á veginum frá Dal-
vík til Akureyrar sé meira af
hættulegum „blindhæðum“ en
yfirleitt þékkist í íslenzka þjóð-
vegakerfinu með hliðstæða um-
ferð. Þessar slysagildrur fá óá-
reittar að „lúra“ fyrir vegfar-
endum árum og áratugum sam-
an, án þess að trúnaðarmenn
ríkisins sjái ástæðu til að bæta
úr. Og við hin — horfum bara
á, og leyfum þeim að sofa á verð
inum.
Sú raunalega staðreynd er
kunn, að þá fyrst sé að vænta
úrbóta — þegar slysin tala sínu
máli.
Reynsla hefur sýnt, að slysa-
hættu á „blindum“ hæðum má
að mestu útiloka með því að
skipta vegi í tvær akbrautir.
Þar sem þessar framkvæmdir
„Fjörulíu ara afmæli
rr
Á SL. HAUSTI voru liðin 40 ár
frá stofnun Kvenfélagsins Vor-
öld í Öngulsstaðahreppi. Félag-
ið var stofnað 29. okt. 1933 og
voru stofnfélagar 24. Fyrsti for-
maður var Sólveig Kristjáns-
dóttir, Munkaþverá.
Félagið hefur látið ýmis fram-
faramál til sín taka, — þótt
ekki hafi fréttablöð séð ástæðu
til að kynna sér slíka starfsemi
í byggðum fjarðarins.
Húsnæði
Einbýlishús við Ham-
arstíg til sölu.
Uppl. gefur Bjarni
Bjarnason, Verzlunin
Brekka, sími 1-14-00 og
heima 2-28-95.
Ungur reglusamur mað-
ur frá Spáni óskar eftir
herbergi.
Uppl. gefnar hjá Ferða-
skrifstofu Akureyrar í
síma 1-14-75 og í síma
1-16-57 á kvöldin.
eru í mörgum tilfellum auðveld-
ar og án verulegs kqstnaðar, —
verður enn erfiðara að skilja
hvers vegna það, ,cr . e.kki gcfL
Er ekki einhvers staðar svikinn
hlekkur í kerfinu? i
' *’ Mj
Ég skora á ábyrga aðila, að Hæfá
úr þessum hættulegu vankönt-
um vegarins án tafar.
Framkvæmið áður en fleiri slds-
ast.
Með þökk fyrir birtinguna.
Þorgils 'Sigurðsson.
Konur í kvenfélaginu Iðunni
sáu um undirbúning- og fram-
reiddu myndarlegar veitingar.
Allt var þetta unnið í sjálf-
boðavinnu og má nærri geta að
kvöldvaka sem þessi kostar
ærna fyrirhöfn.
Peningagjafir komu frá fólki
er ekki gat komið á kvöldvök-
una. Sýnir þetta allt að mikill
áhugi er fyrir því að heiðra og
viðhalda minningu Kristínar
Sigfúsdóttur skáldkonu á verð-
ugan hátt.
Kvenfélaginu „Iðunni", frú
Sigríði Schjöth og öllum öðrum,
er lögðu á sig fyrirhöfn til þess
að gera þetta kvöld sem eftir-
minnilegast, eins og raun bar
vitni, færum við alúðarþakkir.
Haldið verður áfram að vinna
að framgangi þessa máls, og
væntum við hér eftir sem hing-
að til styrktar félaga og ein-
staklinga til þess að sjóðurinn
nái tilgangi sínum og verði orð-
inn sá minnisvarði 13. júlí 1976,
er hæfir minningu Kristínar Sig
fúsdóttur skáldkonu.
Hafið öll heila þökk fyrir veitta
aðstoð og höfðingleg framlög.
Lilja Jónsdóttir.
Laufey Sigurðardóttir.
SMÁTT & STÓRT
Félagið hefur haldið nám-
skéið í fatasaumi, prjónaskap,
borðskreytingum og ýmsu
fleiru. Einnig fékk félagið Guð-
ríði Eiríksdóttur skólastjóra til
að hafa sýnikennslu í smurðu
brauði og smáréttum.
Félagið hefur styrkt Hrafna-
gilsskóla, Vestmannaeyjasöfnun
ina, Kristínarsjóð, N.L.F.A. og
fleiri.
í tilefni afmælisins stofnaði
félagið hljóðfærasjóð við félags-
heimilið að Freyvangi með 25
þús. krónu stofnframlagi.
Til nýmæla má telja, að fyrir
jólin komu félagskonur saman
í Freyvangi og bökuðu laufa-
brauð, sem þær seldu svo til
ágóða fyrir félagssjóð sinn. Þótti
konum það ólíkt ánægjulegra
starf, heldur en standa fyrir
almennum danssamkomum.
Ýmislegt fleira hefur félagið
látið til sín taka á fjörutíu ára
starfsferli, þó ekki verði tíund-
að hér, enda störf kvenna oftast
unnin í kyrrþey og oft vanmetin
af öðrum þjóðfélagsþegnum.
Núverandi stjórn félagsins
skipa: Vilbrog Þórðardóttir,
Ytra-Laugalandi, formaður, Sig-
ríður Valdemarsdóttir, Bringu,
ritari, og Ólöf Sigtryggsdóttir,
Brúnalaug, gjaldkeri.
(Fréttatilkynning)
(Framhald af blaðsíðu 8)
skeiðendur og toppendur, svo
ekki sé nú minnst á allt máva-
gerið og krumma. Óðinshaninn,
einn farfugla, er ókominn.
ÆTTI AÐ SKRÚFA FYRIR
ÚTVARPIÐ
Svo ætti fólk, bamanna vegna,
að skrúfa fyrir útvarpstækin í
fuglaskoðunarferðum. Þá heyr-
ist söngur lóunnar, hnegg
hrossagauksins, vell spóans,
gjallandi og margbreytilegur
söngur stelks, jaðrakana, grá-
tittlings, steinklöppu og fleiri
fugla, sem börnin hafa gaman af
að heyra og greina sundur. Lát-
ið ekki bregðast að leiða bömin
út í dásemdir vorsins og leyfið
þeim að njóta þeirra.
BRETUM SNÝST HUGUR
Segja má með sanni, að mörgUm
Bretanum hafi snúist hugur í
landhelgismálum í seinni tíð. í
yfirlýsingu sambands breskra
togaramanna kemur fram, að
þar sem 200 mílna fiskveiðilög-'
saga njóti nú svo mikils stuðn-
ings, sé það algerlega óraum
hæft að gera minni kröfur. 200
milna landhelgi við Bretland
muni Iéiða til yfirráða yfir auð-
ugustu fiskimiðum heiíns. Nörð-
ursjónum. f yfirlýsingu bresku
togaramannanna er á það bent,
að hægt sé að skipta á veiði-
heimldum, t. d. þannig; að ! ís-
lendingum verði Ieyft áð veiða
síld í Norðursjó gegn heiniild
til þorskveiða á islandsmiðum.
Má segja, að mörgum Bretanum
hafi snúist hugur síðan þeir
beittu vopnuðu ofbeldi á íslands
miðum.
i - ; > i ■
ABURÐARDREIFINGIN
Sveinn Runólfsson sandgræðslu
stjóri sagði fjölmiðlum á núð-
vikudaginn, að áburðardreifing
úr lofti væri þegar hafin og
gengi mjög vel.
Aætlað er,að óburðarflugvél-
n dreifi í ár svipuðu magni af
sáðvöru og áburði og í fyrrá,
eða um 800 lestum. En áburðar-
verðið hefur því miður hækkað
um þriðjung frá síðasta ári.
i NORÐURLANDARAÐ
ANDVÍGT
ÁFENGIRAUGLÝSINGUM
Á síðasta þingi Norðurianda-
ráðs var samþykkt með miklum
meirihluta atkvæða að leggja
það til við ríkisstjórnir Norður-
landa, að áfengisauglýsingar
verði algerlega bannaðar. Aðal-
talsmaður auglýsingabannsins
var Guttorm Hansen forseti
norska Stórþingsins.
GRÆNLENDINGAR FLYTJA
BURT
í byrjun ársins voru Grænlend-
ingar 48.400 talsins og hefur
þeim fækkað lítilsháttar. Æ
fleiri Grænlendingar flytja úr
landi og einnig hefur mjög dreg-
ið úr fæðingartölunni, sem var
ein hin hæsta í heiminum fyrir
fáum árum.
AVARP FRAMSÓKNAR-
MANNA
Framóknarfélögin á Akureyri
hafa gefið út prentað kosninga-
ávarp og hefur það verið borið
í hvert hús í kaupstaðnum.
Fólki er bent á að bera saman
loforð þau, sem gefin voru í síð-
ustu bæjarstjórnarkosningum
og efndir þær, sem við blasa,
og ennfremur að lesa þetta nýja
ávarp rækilega. Eftir því verð-
ur unnið.
Framsóknarmenn á Akureyri
leggja áherslu á að auka at-
kvæðafylki sitt svo tryggt sé,
að framkvæmdastefnunni í
bæjarmálum verði fram haldið.
I
TVÆR MEGINÁSTÆÐUR
Tvær eru þær meginástæður,
sem til þess liggja að gera þurfi
efnahagráðstafanir án tafar. —
Önnur er verðhækkun inn-
fluttra vara og hin nýju kaup-
samningarnir, sem auka verð-
bólguna mjög ört ef ekkert er
að gert og er ýmsum atvinnu-
greinum um megn. Til viðnáms
verðbólgunni var efnahagsmála-
frumvarp ríkisstjórnarinnar
flutt, en stjórnarandstæðingar
höfnuðu algerlega þingræðis-
legri afgreiðslu þess.
Þótt stjórnin þurfi nú að
stjórna með bráðabirgðalögum
fram að þingkosningum, verður
nefnt frumvarp ekki gert að
lögum, utan þings, en e. t. v.
einliver atriði þess. En bráða-
birgðalög eru engin nýlunda á
Islandi. Á hverju sumri, er þing
starfar ekki, hefur þurft að gefa
út bráðabirgðalög, og ætti öll-
um að vera slíkt í fersku minni.