Dagur - 15.05.1974, Síða 8
Dagur
Akureyri, miðvikudaginn 15. maí 1974.
Silfurfingur-
bjargir. g . y GULLSMIÐIB ,
Fermingar- ^ íf M' N SIGTRYGGUR
gjafir, \U|^ J & PÉTUR
mikið úrval. - I AKUREYRI
SMÁTT & STÓRT
Húsavík við Skjálfandaflóa er mikill athafnabær.
(Ljósm.: E. D.).
Metafli hjá Húsavíkurbátimum
Húsavík, 13. maí. — Leikfélag
Húsavíkur hefur nýlega lokið
sýningum á sjónleiknum Góða
dátanum Sveik eftir Jeroslaf
Hasek í þýðingu Karls ísfelds.
Alls urðu sýningar 14 og að-
sókn var góð, þrátt fyrir inflú-
ensufaraldur, sem gekk um þær
mundir er á sýningum stóð.
Leikstjóri var Benedikt Árna-
son. Með aðalhlutverkið, Sveik,
fór Ingimundur Jónsson við mik
inn fögnuð leikhúsgesta. í þeirri
leikgerð, sem Leikfélagið sýndi
leikritið, er sýningin áhrifamik-
il ádeila á allan styrjaldarrekst-
ur og' jafnframt háð um vopna-
skaksfólk. Leikfélaginu hefur
verið boðið að sýna í Iðnó í
Reykjavík í júlí í sumar og hafa
leikfélagsmenn áhuga á að
þekkjast boðið.
Karlakórinn Þrymur og Lúðra
sveit Húsavíkur efndu til tón-
leika í félagsheimilinu á Húsa-
vík 11. þ. m. Söng- og hljóm-
sveitarstjóri er Robert Besdek.
Fjórir einsöngvarar: Eysteinn
Sigurjónss., Guðmundur Gunn-
laugsson, Jóhann Gunnarsson
og Jón Sveinsson sungu með
kór og hljómsveit. Flutt voru
verk innlendra og erlendra höf-
unda, þeirra á meðal lag eftir
Steingrím Sigfússon organista á
Húsavík, en það lag tileinkaði
höfundur og gaf Þrym í tilefni
40 ára afmælis kórsins á s.l.
hausti. Félagsheimilið var full-
skipað áheyrendum, sem fögn-
uðu vel kór, hljómsveit og ein-
söngvurum.
Tónlistarskóla Húsavíkur var
slitið í gær. Að venju var þá
efnt til nemendatónleika og
fóru þeir fram í Barnaskólan-
um. Skólastjóri er Steingrímur
Sigfússon organisti Húsavíkur-
kirkju.
Margir Húsvíkingar notuðu
góða veðrið í gær til að setja
niður kartöflur. Allmargir voru
þó búnir að því áður, og hjá
bæjargjaldkeranum er kartöflu-
grasið komið upp, en hann setti
niður í sinn garð viku fyrir sum
aVmál. Sami maður, Hjörtur
Tryggvason, sló lóð sína síðasta
vetrardág.
Fiskafli Húsavíkurbáta frá
áramótum til aprílloka var 2790
lesjjir :og |r það meiri afli en
dæmi eru til um áður á þeim
mánuðum og um 1000 lestum
meiri afli en á sama tíma í
fyrra. Mesta aflahrotan var í
aprílmánuði. Aðallega hefur ver
ið veitt með línu og mestur afli
hefur verið hjá , þilfarsbátum,
sem lengra hafa sótt. Hrogn-
kelsaveiði er miklu minni í vor
en í fyrra og mikið minna stund
uð en þá.
Tékknesku listamennirnir, er
hér dvelja, segjast ekki hafa séð
eins stóra túlípana í Prag eins
og þá, sem blómstrað hafa fyrir
nokkru hér á Húsavík. Þ. J.
ÞYRNIR í AUGA
Kosningaávarp Framsóknar-
manna á Akureyri, sem borið
var í livert hús, er íhaldinu mik
ill þyrnir í auga. íhaldsmenn
lesa það og lesa — og vel sé
þeim fyrir það — en við lestur-
inn eykst dapurleiki þeirra að
miklum mun.
Þó hafa íhaldsmenn séð einn
ágætan vitnisburð um sig á
prenti hjá Framsókn. Ilann er
sá, að framkvæmdastefna Fram-
sóknar hafi gengið betur á síð-
asta kjörtímabili en næst áður
og það sé auðvitað því að þakka,
að íhaldið liafi þá átt einum
fleiri í bæjarstjórninni.. Ekki
má gera lítinn hlut íhaldsins
minni en hann er. Það verður
þó að hryggja flokksmenn þess
með því að benda á þá augljósu
staðreynd, að á síðasta kjörtíma
bilinu, sem raunar stendur enn,
er sú ríkisstjórn að völdum í
landinu, sem hefur byggða-
stefnu á dagskrá, ekki aðeins á
pappírnum, heldur í verki. Það
er byggðasiefnan í landsmálun,
um, sem hér hefur ráðið meiru
um framgang góðra bæjarmála
en eittt atkvæði íhalds í bæjar-
stjórn.
TVÍSTRAÐ LIÐ
íhaldsmenn á Akureyri kvarta
undan því leynt og ljóst, hve
bæjarfulltrúar þeirra séu laus-
ir í rásinni í bæjarmálunum,
jieirra lið sé vístrað. Þeir benda
á, að þeir láti Framsókn ráða
ZKT HEILSUHÆLI
Náttúrulækningafélag Akureyr-
ar, en formaður þess er Laufey
Tryggvadóttir, undirbýr bygg-
ingu heilsuhælis ó Norðurlandi.
Konur berjast fyrir þessu máli
og hafa þær þegar safnað um
fimm milljónum króna. Auðvit-
að hrekkur það skammt til að
byggja hæli fyrir 120—130
manns, svo sem áætlað er. En
konur eru þrautseigar og vinna
ótrauðar að undirbúningi heilsu
hælisbyggingarinnar.
Bæjarstjórn hefur sýnt mál-
inu skilning og lofað vissri fyr-
irgreiðslu. Hitt er þó meira um
vert, að almenningur mun í vax
andi mæli taka upp baráttuna
með þeim, sem forystuna hafa.
□
Kosninffarnar á Húsavík
Á HÚSAVÍK hefur um ár og
áratugi ríkt alhliða uppbygging-
ar- og framfarastefna undir for-
ystu eða með þátttöku Fram-
sóknarflokksins. Framsóknar-
fólk á Húsavík gengur enn til
kosninga með það sem aðalmark
mið, að áframhald verði á slíkri
þróun.
Má í þessu sambandi nefna
örfá aðalatriði:
í verklegum framkvæmdum
verði einkum lögð áhersla á var
anlega gatnagerð og hraðað
verði þeirri áætlun, sem nú er
unnið eftir og uppbyggingu
Húsavíkurhafnar og skipulag
hafnarsvæðisins með tilliti til
VEITT LAUSN FRÁ
EMBÆTTI
HIÐ KUNNA yfirvald Þingey-
inga, Jóhann Skaptason sýslu-
maður, er nú að íjúka löngum
embættisferli sínum. Hann er
orðinn sjötugur og hefur verið
veitt lausn frá störfum frá 1.
júní að telja. □
mannvirkjagerðar, svo sem ver-
búða og aðstöðu til viðhalds á
bátaflotanum.
Félags- og menningarmál:
Unnið verði ötullega að upp-
byggingu íþrótta- og æskulýðs-
mála og bættri aðstöðu fyrir
slíka starfsemi í samvinnu við
þá aðila, sem að þeim mólum
standa. Þá verði rík áhersla
lögð á byggingu barnadagheim-
ilis, markvisst stefnt að gerð
annarra dagvistunarstofnana
fyrir börn og í samvinnu við
styrktarfélag aldraðra í Húsa-
vík og S. Þingeyjarsýslu, unnið
að byggingu dvalarheimilis fyr-
ir aldraða á Húsavík og félags-
leg aðstaða þeirra aukin og
bætt.
Uiphverfismól:
Hraðað verði gerð skrúðgarðs
við Búðará og frágangi annars
útivistarsvæðis og skipulagður
verði fólkvangur við Botnsvatn.
Vakin verði í vaxandi mæli at-
hygli á nauðsyn náttúruverndar
og hreinlætis í fögru bæjarlandi
Húsavíkur.
Samgöngu- og umferðarmál:
Framsóknarflokkurinn beiti
áhrifum sínum í bæjarstjórn til
að bættar verði sámgöngur við
kaupstaðinn og flýtt verði end-
urbótum og uppbyggingu Húsa-
víkurflugvallar í Aðaldal. Hótel-
rekstur og ferðamál verði skipu
lögð og samræmd.
Húsnæðismál:
Framsóknarflokkurinn stefnir
að því að ávallt séu til skipu-
lögð og undirbúin svæði til
íbúðabygginga. Reynt verði með
öllum tiltækum ráðum að bæta
úr þeim húsnæðisskorti, sem nú
er ríkjandi, t. d. með byggingu
leiguíbúða, samkvæmt reglu-
gerð frá stjórnvöldum og kaup
staðurinn hefur þegar sótt um
þátttöku í. Og áfram verði hald-
ið á þeirri braut, ef vel reynist.
Fræðslumál:
Haldið verði áfram uppbygg-
ingu skólanna. Stefnt verði að
því, að ungmenni Húsavíkur
geti stundað menntun sína sem
mest heima fyrir. Bætt skal að-
staða til iðnmenntunar á Húsa-
vík og fjölgun námsbrauta m. a.
til að mennta fólk fyrir sjávar-
útveginn og koma á fullorðins-
fræðslu.
Atvinnumál:
Tryggt verði, að svo miklu
leyti, sem það er á valdi bæjar-
félagsins, að næg atvinna sé í
bænum. Skal í því sambandi
efla framkvæmdasjóð Húsavík-
urbæjar og gera hann hæfari
því hlutverki sínu, að viðhalda
og auka atvinnulíf í bænum.
(Aðsent).
ferðinni í öllum helstu málum.
Hið rétta er,. að bæjarfélaginu
,er það hin mesta nauðsyn að
meiriháttar flokkur, eins og
íhaldið, taki svo áhyrga afstöðu
til mála, að það veiti stuðning
góðum málefnum, sem fram eru
borin. Ilinsvegar er víst nokkur
sannleikur í því, að íhaldið sé
tvístrað. BæjarfuIItrúar þess
hafa flutt burt, aðrir mætt illa
svo þurft hefur að kalla út vara-
og varavaramenn, allt niður í
8.—9. sæti. Að þessu leyti er lið
ið tvístrað og tætingslegt, eins
og allir vita og framboðslisti
þess ber nokkurn vott um.
LEIKIR OG STÖRF
Fullorðnir vinna, skrafa um
þingrof og. tvennar kosningar á
næstu vikum, skoða Sámasýn-
inguna, fara í leikhús, drekka
kaffi slysavarnakvenna, drekka
brennivín á börunum og fara í
kvikmyndahús. Börnin eru enn
þá í skólunum og finna sér tóm-
sundastörf þegar skyldutímum
og námsbókum sleppir, njóta
fyrst og fremst útiverunnar og
svo hvers konar leikja, þar sem
því verður við komið.. Himna-
faðirinn hefur lagt blessun sína
yfir land og lýð í vor með þeirri
einstöku veðurblíðu, að apríl-
mánuður varð 5,1 stigi hlýrri á
Norðurlandi en í meðalári.
DROTTNIN G ARVEGURINN
Akureyringar munu flestir hafa
tekið eftir því, að hraðbrautin
til flugvallarins, Drottningarveg
urinn svokallaði, er ekki aðeins
góður undir bíla og til að flýta
för, heldur er hann einn dá-
samlegasti fuglaskoðunarstaður.
Vegurinn liggur um mestu
fuglabyggð, sem til er við Eyja-
fjörð. Enginn skemmtistaður
getur keppt við þessa fuglapara-
dís á fögrum vordegi — fyrir þá,
sem unna náttúrunni og hafa
hæfileika til að njóta hennar —.
SÝNIÐ BÖRNUNUM
FUGLANA
Það er ómaksins vert fyrir for-
eldra að sýna börnum sínum
hið fjöruga og auðuga fuglalíf
á Leirunum við Drottningarveg
inn. Sá maður er steinrunninn,
sem ekki undrast að sjá ástar-
dans stelkanna, eða hvernig
tjaldurinn tekur sér hádegis-
blund á einum fæti með nef und
ir væng. Menn geta dáðst að list
fiugi sendlinganna, sem um
þetta leyti árs taka með sér lóu-
þræla og sandlóur, en allir þess-
ir fuglar eru af svipaðri stærð
og taka allir þátt í listfluginu,
eins samæfður hópur og . mest
má verða. Þá hafa börnin gam-
an af að heyra um og sjá gæs-
irnar, grænhöfðana, duggendur,
skúfendur, hávellur, rauðhöfða-
endur, grafendur, urtendur,
(Framhald á blaðsíðu 5)
Sumaráætlun F.í.
SUMARÁÆTLUN Flugfélags
íslands gekk í gildi 1. maí. Er
gert ráð fyrir fleiri ferðum og
meiri flutningum en nokkru
sinni áður.
Nú verða í sumar fastar áætl-
unarferðir á milli Akureyrar og
ísafjarðar og verða þær tvisvar
í viku.
Ferðum á innanlandsleiðum
fjölgar í áföngum, og þegar áætl.
unin verður í fullu gildi, verða
farnar 33 ferðir á viku til Akur-
eyrar, 24 til Vestmannaeyja, 15
til Egilsstaða, 12 til ísafjarðar, 9
til Hornafjarðar, 4 til Húsavík-
ur, 3 til Raufarhafnar og Þórs-
hafnar og 3 til Patreksfjarðar,
2 til Norðfjarðar, 4 til Sauðár-
króks, 3 til Þingeyrar og 2 til
Fagurhólsmýrar. □