Dagur - 06.06.1974, Side 1
Maður cg barn vcru hætí komin
SNEMMA á hvítasunnudags-
morgun var morgunglaður veiði
maður að freista gæfunnar með
stöng á Oddeyri. Sá hann þá
bát á hvolfi skammt austur í
álnum og gerði lögreglunni
þegar aðvart. Lögreglan brá
fljótt við, fór á báti og bjargaði
manninum, sem var dasaður
orðinn, og flutti hann í sjúkra-
hús, þan sem hann hresstist
brátt.
Það bar við klukkan tæplega
átta á mánudagskvöldið, að
kallað var í sjúkrabíl og lækni
frá Saurbæ í Eyjafirði. Þar
hafði sex ára telpa fallið í Eyja-
fjarðará. Yngri bróðir hennar
kallaði á hjálp og var telpunni
bjargað, en hún var þá meðvit-
undarlaus. Faðir hennar, Jón
Friðriksson, lífgaði hana með
blástursaðferðinni, en til vonar
og vara var hún flutt í sjúkra-
hús og hresstist þar.
Um hvítasunnuhátíðina var
mikil ölvun á Akureyri og var
fangahúsið þá fullskipað.
Samkvæmt viðtali við lög-
reglu og slökkvilið. □
Hafnargerð lyrir 40 millj.
Húsavík, 5. júní. Laxveiði í
Laxá í Þingeyjarsýslu hefst 10.
júní. Leiguhafi er Laxárfélagið,
sem er þrískipt: Húsavíkur-
deild, Flúðir, Akureyrardeild,
Straumar og Reykjavíkurdeild.
Húsvíkingar hefja veiðina og
veiða til 15. júní. Næstu fjóra
daga veiða stjórnarmenn Laxár
félagsins, en hin almenna veiði
hefst 20. júní. Rúmlega 1700 lax
ar fengust á veiðisvæði Laxár-
félagsins í fyrra og hefur félag-
ið þó ekki nema hluta af Lax-
ánni.
Á Húsavík var hrognkelsa-
veiði mjög léleg í vor. Aðeins
fengust 600 tunnur af grásleppu
hrognum á móti 1250 tunnum í
fyrra, en mun færri stunduðu
veiðarnar nú í vor.
Áætlaðar eru 40 milljónir
króna til hafnarframkvæmda í
Baguk
kemur næst út á laugardaginn.
Auglýsingar berist snemma.
Húsavíkurhöfn í ár og er vinna
þegar hafin. Unnið er að gerð
garðs, sem á að liggja á ská inní
höfnina frá vesturenda suður-
garðs, sem er aðal hafnarbryggj
an á Húsavík. Gert er ráð fyrir
öruggu hafnarlægi í krikanum
á milli bryggjunnar og nýja
garðsins. Nýi garðurinn verður
18 metra breiður og stefnt er að
því, að hann verði 90 metra
langur í ár. Þ. J.
Laugaskóla í
BLAÐIÐ hitti í gær að máli
Björn Pálsson skólastjóra á
Laugum í Reykjadal og spurði
hann frétta, m. a. af skólastarf-
inu. Hann sagði þá eftirfarandi:
Laugaskóla var slitið 24. maí.
Viðstaddir voru meðal annarra
10 og 20 ára nemendur skólans
og færðu þeir honum góðar
gjafir. Prófum við skólann luku
103 nemendur í fjórum bekkjar-
deildum, í öðrum bekk 18, 39
luku miðskólaprófi, 25 luku
gagnfræðaprófi og 21 lands-
Ólafur V Noregskonungur kemur til Akureyrar síðdegis í dag í
opinbera heimsókn. Þessi aldni þjóðhöfðingi vinaþjóðar er öllum
kærkominn. Myndin tekin á Ak. 1947 af Eðvarði Sigurgeirssyni.
Nemendur frá Blönduósi hér á ferð
KVENNASKÓLINN á Blöndu-
ósi lauk störfum 30. maí. For-
stöðukonan var á ferð hér á
Akureyri fyrir skömmu ásamt
nokkrum nemendum sínum, og
skoðaði þá meðal annars
Kjarnaskóg, þar sem meðfylgj-
andi mynd var tekin.
Um skólann sagði hún m. a.
eftirfarandi: Við vorum með
Reykjadal nýlega slitið
prófi. Skólinn var fullskipaður
í haust en nokkrir hættu námi.
Árangur á prófum var þokka-
legur. Má þar nefna, að af 21 í
landsprófsdeild náðu 18 fram-
haldseinkunn. Fastráðnir kenn-
arar við skólann voru sjö og
stundakennarar þrír.
í sumar verður sumarhótel
starfandi á Laugum, eins og
fyrirfarandi ár, í umsjá Oskars
Ágústssonar íþróttakennara.
Verið er að byggja íþrótta-
hús, sem enn er skammt á veg
komið vegna skorts á fram-
kvæmdafé. Fyrst er stefnt að
því að byggja 18x33 metra
íþróttasal, ásamt búningsklef-
um, gufuböðum og hreinlætis-
aðstöðu. í öðrum áfanga verður
svo sundlaugarbygging.
Veðráttan hefur leikið við
Reykdælinga eins og aðra lands
menn að undanförnu og gróður
er langt á undan því venjulega.
En frostnæturnar síðast í maí
fóru illa með ung barrtré og
menn óttast að berjaspretta
verði ekki í haust. Kartöflugrös
voru á sumum stöðum komin
upp en féllu.
Bændur í Reykjadal mála
hús sín og snyrta í tilefni þjóð-
hátíðar og hefur Lionsklúbbur-
inn Náttfari einhverja forgöngu
um það.
- Segja má, að Reykdælingar
búi allvel hvað þingmenn snert-
ir, því að þrír úr sveitinni sátu
þing í vetur, um lengri eða
skemmri tíma. Þykir það gott,
miðað við höfðatöluregluna.
Tveir Reykdælingar standa nú
í kosningaeldinum.
Nokkuð mikið er unnið að
vegagerð í sumar í Hallbjarnar-
staðabrekkum og brýr verða
byggðar á Reykjadalsá og ána
við Breiðumýri. Q
Akureyrartogararnir
BLAÐIÐ fékk eftirfarandi upp-
lýsingar lijá skrifstofu Útgerðar
félags Akureyringa h.f. á þriðju
daginn:
Svalbakur EA 2 landaði 57
tonnum 29. maí.
Harðbakur EA 3 landaði 164
tonnum tveim dögum áður.
Sólbakur landaði 22. maí 23
tonnum og er væntanlegur á
morgun.
Svalbakur EA 302 landaði 230
tonnum 3. júní.
Sléttbakur EA 304 landaði 24.
maí 163 tonnum. Q
sar
í AKUREYRARKIRKJU er
eitt stærsta og vandaðasta pípu-
oregl landsins. — Marteinn
Hunger Friðriksson orgelleikari
við Háteigskirkjuna í Reykja-
vík er nú á tónleikaferðalagi
um landið, og leikur á hið stór-
fenglega orgel Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 6. júní kl. 21.
Marteinn Hunger er einn af
okkar bestu orgelleikurum, og
var sá eini úr hópi íslenskra
orgelleikara, sem tó k þátt í
Samnorrænu samkeppninni í
orgelleik í fyrra. Márfeinn er
fæddur í Austur-Þýskalandi, og
naut hann þar ágætrar kennslu
í háborg orgelleiks, Leipzig.
Á efnisskrá verða leikin verk
eftir J. S. Bach (Toccata
adagioog fúga), Jón Leifs, Pál
Ísólísson o. fl.
Aðgöngumiðar verða seldir
við inngang kirkjunnar og
kosta þeir 250 kr., en aðeins 100
kr. fyrir skólafólk og aldraða.
námskeið í skólanum í vetur,
tvö hússtjórnarnámskeið fyrir
heimavistarnemendur, fjögur
vefnaðarnómskpið, þrjú sauma-
og hannyrðanámskeið og eitt
sníðanámskeið. Auk þess fengu
unglingar úr barna- og miðskól-
anum kennslu hjá okkur í mat-
reiðslu og handavinnu. Um 180
nemendur stunduðu nám í skól
anum í vetur. Við Kvennaskól-
ann á Blönduósi starfa þrír fast
ir kennarar og stundakennarar.
í lok skólans fórum við í skóla-
ferðalag til Akureyrar í dásam-
legu veðri. Q
Ljósmæður
þinga
LJ ÓSMÆDR AFÉLAG íslands
er elsta félagið innan heilbrigðis
stéttarinnar og 55 ára. Aðal-
fundur þess verður haldinn í
Hrafnagilsskóla á laúgardaginn
og er það í fyrsta sinn að það
er haldið utan Reykjavíkur.
Norðurlandsdeild félagsins ann-
ast undirbúning, en formaður
liennar er Margrét Þórhalls-
dóttir, og munu um 70 félags-
konur mæta. Bæjarstjórn Akur
eyrar býður þeim til kvöldverð-
a'r sama dag í Skíðahótelinu.
Flestar ljósmæðurnar verða
klæddar íslenskum búningum á
þessum aðalfundi. Q
GÍGJ4N SYNGUR
í SKJÓLBREKKU
SÖNGFÉLAGID GÍGJAN á
Akureyri, sem skipuð er 47 kon
um, syngur í Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit föstudaginn 7. júní
og hefst söngurinn kl. 9 síð-
degis. Söngstjóri er Jakob
Tryggvason, einsöngvarar eru
Helga Alfreðsdóttir og Gunn-
fríður Hreiðarsdóttir og undir-
leikari Dýrleif Bjarnadóttir.
Gígjan hélt þrjá samsöngva á
Akureyri í maímánuði og voru
þeir mjög vel sóttir og hlaut
söngurinn góða dóma almenn-
ings. Q