Dagur - 06.06.1974, Qupperneq 8
Bagur
AUGLVSINGASÍMl
Dagur
Akureyri, fimmtudaginn 6. júní 1974
STÚ-
DENTA-
SKEIÐAR
F. v.: Bjami Einarsson, Sem Knudsen, Ilendrine Frederiksen, Danícl Lcmmert og Jónas Christansen
Grænlendingar í heimsókn
SMATT & STORT
AKUREYRI á vinabæ á Græn-
iandi, Narssak. Vinabæjasam-
starfið hófst með heimsókn
Grænlendinga hingað árið 1971,
sem dvöldu þá hér í nokkra
daga og létu vel yíir för sinni.
A síðasta ári fóru svo nokkrir
Akureyringar vestur til Nars-
sak, þeirra á meðal Bjarni Ein-
arsson bæjarstjóri, sem rómaði
mjög viðtökurnar vestra og átti
Dagur viðtal við liann um ferð-
ina, að henni lokinni.
Sveitarfélagið Narssak er
mjög stórt og er Eiríksfjörður
innan þess. Narssakbær sjálfur
er úti á nesi við mynni fjarðar-
ins, og flugvöllur er við fjarðar-
liotninn. Á þessum slóðum cru
iiinar fornu byggðir íslendinga
og þarna er aðal landbúnaðar-
héraðið. Þarna eru bændur fjár
margir og eiga einnig hesta.
Sauðféð er upprunnið frá ís-
landi og sumir segja hrossin
líka. Heyskapur er lítill og
bjargar sauðfé sér mest á úti-
gangi og tínír eitthvað tölunni
í harðindum. í Narssakbænum
búa nær 2000 manns og auk
]jess býr sveitafólkið í strjál-
býli, svo sem kvikfjárbænda er
siður.
Grænlendingar, sem eru yfir
40 þúsund talsins, eru listelskir,
hagir í höndum, hafa yndi af
hljóðfæraleik, eru miklir veiði-
menn og samkvæmt umsögn
þeirra Akureyringa, er heim-
sóttu Narssak í fyrra, eru heim-
ili þeirra hin myndarlegustu,
bæði í kaupstaðnum og í sveit-
unum, þrifaleg og bera listræn-
um áhuga ljósan vott, og gest-
risnin er þar í hávegum höfð.
GrundvÖllur atvinnulífsins í
Narssak er sjósókn og fisk-
vinnsla. Þarna er mjög fullkom-
ið frystihús og aflann sækja
15—30 tonna þilfarsbátar á
fjarðamiðin. Útifyrir sækja er-
lendir togarar fast. Hver á er
full af laxi og Grænlendingar
mega nú veiða 1100 tonn í net
og þykir í því efni sinn stakkur
fremur þröngt skorinn.
En víkjum nú aftur að gest-
um þeim, sem hingað eru komn
ir frá Narssak þeirra erinda að
kynna sér land og fólk og at-
vinnuhættina þó fyrst og
íremst.
í þessari för var Sem Knud-
sen bóndi, Hendrine Frederik-
sen iðnaðarkona, Jónas Christ-
iansen útgerðarmaður og Daníel
Lemmert skólastjóri. Þetta er
hið myndarlegasta fólk og kem-
ur í alla staði vel fyrir.
Bæjarstjórn Akureyrar
greiddi fyrir því með ofurlítilli
fjárveitingu, að Grænlendingar
kæmust hingað og vonandi
verður svo áfram, og þyrfti rík-
ið einnig að styrkja þessar
kynningarferðir. Þessi fjárveit-
ing byggist á þeirri skoðun, að
árangursríkara sé fyrir þessa
nágranna okkar að koma hing-
að ’til að kynnast atvinnu- og
‘félagsmálum, fremur en að
senda vitmenn vestur til að
leiða fólk „í allan sannleika".
En eflaust geta Grænlendingar
sitthvað af okkur lært og jafn-
víst er, að íslendingar geta
einnig margt lært af þeim.
Þrír hinna fjögurra Græn-
lendinga dvöldu hér fyrir norð-
an siðustu viku maímánaðar,
skoðuðu Akureyrarkaupstað og
nágrennið, en sá fjórði, bónd-
ÞEGAR ríkisstjórn Ólafs Jó-
hannessonar tók við viildum
sumarið 1971, voru efnahagsmál
í megnu öngþveiti eftir viðskiln
að íhaldsstjórnar í 12 ár. M. a.
tók núverandi ríkisstjórn við
langvarandi verðbólguarfi, sem
manna á meðal nefndist „hroll-
vekjan mikla11, að gefnu tilefni
frá færasta efnahagssérfræðingi
Sjálfstæðisflokksins, Ólafi
Björnssyni hagfræðiprófessor.
Því miður verður að segja eins
og er, að ýmsir þeir, sem stóðu
að núverandi ríkisstjórn, vör-
uðu sig ekki nógu vel á verð-
bólguhrollvekju íhaldsins, og
því var ekki brugðið nógu tím-
anlega við, þrátt fyrir endur-
tekna kröfu Framsóknarflokks-
ins um fullnægjandi verðbólgu-
ráðstafanir í tæka tíð,
Framsóknarmenn hvöttu til
þess frá upphafi stjómarsam-
starfsins að gerðar yrðu varan-
inn, fór upp að Gilsbakka í
Borgarfirði, var þar nokkra
daga, síðan á Hesti og síðast á
Lækjamóti, en var hingað kom-
inn á þriðjudagsmorguninn, er
blaðið hitti gestina alla að máli,
ásamt bæjarstjóranum, Bjarna
Einarssyni, sem lætur sér mjög
annt um að þessi íslandsför
megi bera sem ríkulegastan
árangur.
Blaðið lagði nokkrar spurn-
ingar fyrir ferðafólkið, fyrst
spurðum við skólastjórann,
hvað hann vildi segja um ís-
landsdvölina og skólamálin.
Skólastjórinn, Daníel, sem er
ungur miðaldramaður, veraldar
vanur að sjá og vel menntaður,
segir:
Ég hef verið að reyna að setja
mig inn í skólamálin hér, bæði
með viðtölum við skólastjórana
og nemendur. Á þessari stundu
er auðvitað ekkert hægt að
segja um árangurinn. Hann
kemur þá væntanlega fram í
mínu starfi heima; en hægt er
að slá því föstu, að það er fróð-
(Framhald á blaðsíðu 4)
legar efnahagsráðstafanir um
leið og kjör almennings væru
bætt með almennum kjarasamn
ingum, sérstökum stjórnarað-
gerðum og margs konar löggjöf.
Því miður mætti krafa Fram-
Ingvar Gíslason.
KOSNIN G AB ARÁTTAN
Máttarvöldin hafa veitt okkur
blíðara og gróðurríkara vor en
menn áður þekktu, lög og regl-
ur færðu okkur bæjar- og
sveitarstjórnarkosningar og
stjórnvöld landsins bættu við
alþingiskosningum. Ný stjórn-
málasamtök hafa verið mynduð
í landinu, hvert af öðru, er nú
bjóða fram til Alþingis og hér í
Norðurlandskjördæmi eystra
verður kosið um sex lista.
Gamansamur maður sagði í út-
varpi um síðustu helgi, er hann
gerði þessi mal að umtalsefni,
að á vinstri væng stjórnmál-
anna væru margir til foringja
fallnir og því væri skiptingin
þar svo ör. Hins vegar væri fátt
um foringja á hægri væng
stjórnmálanna og klofnaði þar
ekkert frá af þeim sökum.
VINSTRI MENN TAKA
FORYSTUNA
Á Húsavík, í Ólafsfirði og á Dal
vík höfðu vinstri flokkarnir
samvinnu í kosningunum og
hafa nú gert með sér málefna-
samning og tekið við stjórn þess
ara kaupstaða. Hér á Akureyri
urðu kosningaúrslit mjög
óvænt. Sjálfstæðismenn bættu
við sig fylgi og einum manni í
bæjarstjórn. Vinstri menn hafa
þó meirihluta og geta tekið
stjóm bæjarins í sínar hendur
ef þeir vilja. Það hafa þeir raun
ar áður getað en ekki gert.
Athugaðir eru möguleikar á
nánu vinstra samstarfi hér á
Akureyri, vegna áhuga ýmsra
aðila um það. Sjálfstæðismenn
munu að því vinna, að tryggja
sér meirihlutaaðstöðu og þurfa
ekki stuðning nema einhvers
eins af vinstri væng til þess.
Þessari skák er ólokið.
BLÁBERJALYNGIÐ
DÖKKNAÐI
Eftir allhörð næturfrost um
fyrri helgi, dökknaði bláberja-
lyng'ð, sem á haustdegi. Mun
þetta þó nokkuð misjafnt eftir
legu landsins. Hætt er við, að
þetta komi fram á berjasprett-
unni í súmar. Lyngið stóð með
blómum þegar kuldinn kom og
hætt er við að þau hafi eyði-
lagst. Þá skennndist rabarbari
sóknarfiokksins um nauðsyn-
legar efnahagsráðstafanir óeðli-
legum mótbyr hjá samstarfs-
flokkunum, svo að af leiddi
mjcg óheppilegan drátt á að-
gerðum, sem vissulega hefur
ekki auðveldað meðferð efna-
hagsmála. Eftir að Samtök
frjálslyndra og vinstri manna
klofnuðu á sl. ári með þeim af-
leiðingum, að stjórnarandstað-
an fékk stöðvunarvald í annarri
þingdeildinni, reyndist ógern-
ingur að koma fram þeim efna-
hagsráðstöfunum, sem allir
hlutu þó að viðurkenna að
væru óumflýjanlegar.
Framsóknarmenn vilja ekki
leyna þeirri staðreynd, að blik-
ur eru á lofti í efnahagsmálum
þjóðarinnar. Þeir munu heldur
ekki hvítþvo sig af ábyrgð sinni
í þessum efnum, en hjá því verð
ur ekki komist að minna á, að
Framsóknarmenn, og umfram
og urðu blöð hans máttlaus,
a. ín. k. þar sem hann stóð á
víðavangi og naut ekki yls frá
húsum eða skjóls. Mun hann
sennilega tréna og valda hús-
mæðrum vonbrigðum. Þá eyði-
lagðist það kartöflugras í görð-
um, sem upp var komið’ Tefur
það sprettuna en eyðileggur
naumast uppskeruvonina.
LAXVEIÐIN HAFIN
Laxveiðin hófst 1. júní í Norð-
urá í Borgarfirði, en þar hefst
sú veiði árlega fyrst. Síðan
verða laxárnar opnaðar hver af
annarri, fyrst á Suðvesturlandi
og síðar á Norðurlandi og síðast
á Norðausturlandi. Hins vegar
hófst laxveiði í net nokkru fyrr
og samkvæmt fréttum af þeim,
lofa þær góðu um veiðina í
sumar.
' I
VEIÐILEYFIN
Verð laxveiðileyfanna er ákaf-
lega mismunandi. Borfirsku
árnar eru sennilega dýrastar.
Hæst eru leyfin í Norðurá, 12
þúsund fyrir stöngina á dag, á
dýrasta tímanum. En algengt
verð i laxveiðiám er 4—7 þús-
und krónur. Á sumum stöðum
eru veiðimannahús og þar veitt
liin ákjósanlegasta þjónusta,
sem jafnan er dýr, jafnvel bílar
og fylgdarsveinar að auki. Þess
má þá líka minnast, að Iaxinn
er dýrmætur fisjkur, og ánægj-
una virðast menn reikna hátt,
því ekki vantar kaupendur
veiðileyfanna.
ÚTLENDINGAR
Útlendir sportveiðimenn sækja
fast í íslensku árnar og greiða
veiðileyfin háu verði. Þetta hef-
ur valdið ýmsum innlendum
stangveiðimönnum áhyggjum,
því að eftirspurn erlendra
manna hefur óefað hækkað lax-
veiðilcyfin til muna. En allt
þetta er á valdi landsmanna
sjálfra og hvað sem um þessi
mál má segja, geta væntanlega
allir glaðst yfir því, að íslensku
laxveiðiárnar hafa batnað mjög
hin síðari ár og laxveiðin auk-
ist til stórra muna, á sama tíma
og laxgengd fer. þverrandi í öll-
um nálægum löndum.
allt Ólafur Jóhannesson for-
sætisráðherra, mæltu ætíð varn
aðarorð um þessi mál og freist-
uðu þess að ná samstöðu um
varanlegar efnahagsráðstafanir.
Það hefur aldrei staðið á Fram-
sóknarmönnum að horfast í
augu við vandann, og vona
verður, að reynslan hafi lokið
upp augum annarra fyrir nauð-
syn þess að gera ávallt þær efna
hagsráðstafanir, sem óhjá-
kvæmilegar eru á hverjum
tíma. Ekki er að efa, að þjóðin
bíður þess, að áhrifaöfl þjóð-
félagsins, þ. á. m. samtök laun-
þega og bænda, sameinist um
sem víðtækastar varnaraðgerð-
ir gegn verðbólgu óg þeirri verð
rýrnun gjaldmiðilsins, sem
ávallt vofir yfir og getur reynst
óumflýjanleg, ef kostnaðar-
hækkanir dynja látlaust á út-
flutningsatvinnuvegunum.
Ingvar Gíslason.
;teð á varnáarorö Framsóknarflokksins