Dagur - 26.06.1974, Síða 2
2
Vinstra samstarf á Húsavík
KOSNINGABARÁTTAN er í
fullum gangi og um allt kjör-
dæmið búagt Framsóknarmenn
undir átökin 30. júní n. k.
Blaðið hafði fyrir skömmu
samband við Egil Olgeirsson,
raftæknifræðing, nýkjörinn bæj
arfulltrúa Framsóknarflokksins
á Húsavík. Egill er fæddur á
Húsavík 24. ágúst 1949 og er
því með yngstu bæjarfulltrúum
flokksins (ath. ef til vill yngst-
ur). Egill er uppalinn á Húsa-
Egill Olgeirsson.
vik en stundaði nám sitt í
Noregi. Síðan var hann tvö ár
búsettur í Reykjavík, en er nú
sestur að í sinni heimabyggð, á
Húsavík, og starfrækir þar raf-
tækniþjónustu. Auk þess stund
ar hann kennslu við Gagnfræða
skóla Húsavíkur og Iðnskóla
Húsavíkur. — Egill er giftur
Pálínu Stefánsdóttur frá Djúpa-
vogi og eiga þau þrjá syni.
Hvað vilt þú segja um úrslit
bæjarstjórnarkosninganna á
Húsavík?
Þau eru fagnaðarefni, at-
kvæðalega séð, fyrir allt Fram-
sóknarfólk. Vil ég nota þetta
tækifæri til að þakka öllum
kjósendum sem veittu okkur
brautargengi svo og öllu því
stuðningsfólki sem með óeigin-
gjörnu starfi veitti okkur lið í
baráttunni. Framsóknarflokkur
inn vann mann á Húsavík og
varð aftur stærsti flokkurinn í
kaupstaðnum. Var það því skoð
un flokksmanna að rétt væri og
eðlilegt að flokkurinn stæði
fyrir myndun meirihluta. Fram
sóknarflokkurinn bauð þá öll-
um listum upp á viðræður um
myndun meirihluta á breiðum
grundvelli. Þessu hafnaði Sjálf-
stæðisflokkurinn og vil ég hér
með leiðrétta þau ummæli Jóns
Á. Árnasonar, annars af bæjar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins,
er hann viðhafði í samtali við
íslending skömmu eftir kosning
ar og sagði þar að Framsóknar-
flokkurinn hefði hafnað sam-
starfinu. Sjálfstæðismenn hafa
látið í það skína síðar, að þeir
h&fi verið aiidvígir samstarfi
vflT „kornmúnista", en viljað
mynda meirihluta með fulltrú-
um Framsóknarflokksins. Hin-
ir listárnir tóku boði okkar og
upp úr viðræðum mynduðu
vinstri menn meirihluta með
sjö .bæjarfulltrúum af níú.
Á Húsavík hefur verið álhliða
uppbygging undanfarin ár, og
ríkt mikil bjartsýni meðal fólks
í tíð núverandi vinstri stjórnar
í landinu. Við erum að vinna að
stórverkefnum við uppbygg-
ingu Húsavíkurhafnar, varan-
legri gatnagerð o. fl. Ég tel eðli-
legt að ríkið veiti þeim bæjar-
félögum sem standa í stórfram-
kvæmdum s. s. hitaveitu og
varanlegri gatnagerð, alla hugs-
anlega aðstoð í tækni- og fjár-
málum. Og til slíks treystum
við best vinstri stjórn undir for-
ustu Framsóknarflokksins, því
það er sú stjórn sem sýnt hefur
á sl. þrem árum að hún er ríkis-
stjóm landsins alls.
Hvað vilt þú segja um þing-
kosningarnar 30. júní n. k.?
Ég held, að það sem fólk taki
mið af í þessum kosningum sé
fyrst og fremst, hvort það vill
áfram vinstri stjórn í landinu,
sem fylgir markvissri uppbygg-
ingarstefnu í byggðamálum og
tekst á við verkefnin af ábyrgð
og árverkni, eða „viðreisnar-
stjórn“ afturhalds, atvinnuleys-
is, landflótta og gengishruns. Ég
er þeirrar skoðunar að baráttan
hér í kjördæminu verði nokkuð
hörð og standi milli höfuðafl-
anna í landspólitíkinni, þ. e.
íhaldsaflanna annars vegar og
hins vegar Framsóknar, forustu
flokks framfara, uppbyggingar
og bjartsýni. Þess vegna álít ég
að stuðningur við Framsóknar-
flokkinn sé einn þess megnugur
að tryggja okkur áframhald
vinstri ríkisstjórnar.
Sá boðskapur sem Framsókn-
arflokkurinn hóf fyrir meira en
hálfri öld um byggðastefnu,
(Framhald af blaðsíðu 8)
þega verið hrint í framkvæmd
og málefni aldraðra og öryrkja
verið tekin nýjum tökum. Ég
nefni m. a., að skattabreytingar
hafa orðið launþegum og lág-
launafólki í hag. Tekjuskattur
er nú t. d. lægri en hann hefur
nokkru sinni verið, og var í því
efni mjög komið til móts við
óskir launþegasamtakanna, Það
er ekki minnsta kjarabótin, að
fclld hafa verið niður þungbær
persónubundin gjöld eins og
almannatryggingargjald og ið-
gjald til sjúkrasamlags. Hafa
menn hugleitt, hversu mikil
kjarabót er fólgin í afnámi
slíkra gjalda? Ef slík persónu-
gjöld væru enn við lýði, myndi
það þýða tugi þúsunda í skatt
fyrir fjölmennar fjölskyldur.
Má ætla, að slík gjöld hefðu
þurft að vera um 20 þús. kr. á
mann, ef í gildi væru. En e. t. v.
er mesta kjarabótin fólgin í at-
vinnuörygginu og hinni miklu
eftirspurn eftir vinnuafli, þann-
ig að atvinnuleysi hefur verið
gert útlægt á íslandi, en áður
en núverandi stjórn tók við
hafði verið langvinnt atvinnu-
leysi, þannig að þúsundir
manna lifðu af atvinnuleysis-
styrk eða flýðu land í atvinnu-
leit. — Þannig hafa kjaramál
vinnandi fólks tekið algerum
stakkaskiptum síðan núverandi
ríkisstjórn tók við völdum.
samvinnu og jöfnuð á enn fullt
erindi til þjóðarinnar. Hann er
í fyllsta samræmi við kröfur og
þarfir samtímans og framtíðar-
innar. Því hefur efling Fram-
sóknarflokksins aldrei verið
mikilvægari en einmitt nú,
vegna þeirrar þróunar sem orð-
ið hefur í tíð ríkisstjórnar Olafs
Jóhannessonar, sem nú hlýtur
að verða kosið um.
Því vil ég skora á ykkur með-
bræður og velunnarar vinstri
stjórnar, kastið ekki atkvæði
ykkar á glæ 30. júní n. k. Kjósið
B-listann. □
Bætt afkoma aldraðs fólks.
Ríkisstjórn Olafs Jóhannes-
sonar hefur stuðlað að stórbætt
um kjörum elli- og örorkulíf-
eyrisþéga og tryggt meiri jöfn-
uð meðal þessa fólks og bætt
fjárhagsafkomu þess. Nú þurfa
menn ekki að kvíða fjárhags-
erfiðleikum í ellinni eins og
áður var. Möguleikar fólks til
sjálfsbjargar á ellidögum hafa
verið stórbættir með sérstökum
aðgerðum Alþingis og ríkis-
stjórnar. Þessara kjarabóta nýt-
ur eðlilega fyrst og fremst það
fólk, sem ekki hefur tryggt sér
lífvænlegar tekjur með þátt-
töku í lífeyrissjóðum eða á ann-
an hátt. Þótt vissulega standi
enn margt til bóta í þessum efn-
um, þá verður því ekki móti
mælt, að núverandi ríkisstjórn
hefur umbreytt tryggingakerf-
inu frá því sem var á stjórnar-
árum íhlads og krata.
Framsóknarflokkurinn hefur
unnið að öllum þessum málum
í samvinnu við samstarfsflokka
sína síðasta kjörtímabil. Lífs-
kjarabætur til handa almenn-
ingi og atvinnuöryggi eru grund
vallarstefnumál Framsóknar-
manna. Reynsla síðustu ára er
gleggsti vottur þess, að engum
flokki er betur treystandi en
Framsóknarflokknum til þess
að hafa forystu fyrir hagsmuna-
málum hinna vinnandi stétta.
Ingvar Gíslason.
Sala
BARNAVAGN til sölu.
Uppl. í síma 2-19-71.
TÚNÞÖKUR til sölu.
Uppl. í síma 1-19-47
milli kl. 19—20 og á
Leifsstöðum.
Til sölu nýlegur 4ra
tonna bátur.
Nánari uppl. í síma
2-23-12 eftir kl. 7.
Þovttapottur til sölu ,
kr. 2.500.
Uppl. í síma 2-13-26.
BARNAVAGN til sölu.
Uppl. í síma 1-19-81
eftir hádegi.
Til sölu JF vagn með
sjálfvirkum losunar-
útbúnaði fyrir þurr-
liey og vothey.
Hentar vel sem búfjár-
áburðardreifari.
Bergvin Tóhannsson,
Áshóli,
sími um Grenivík.
BARNAVAGN til sölu.
Uppl. í síma 2-14-33.
Til sölu HONDA SS 50
árg. 1973 í mjög góðu
standi.
Uppl. í síma 2-26-51
milli kl. 7—8 á kvöldin.
GÓÐ AUGLÝSING
GEFUR GÓÐAN ARÐ
Bifreidir
FIAT 1100 1967 til sölu
Afar góð bifreið.
Uppl. í síma 2-22-52
eftir kl. 18 á kvöldin.
Skoda station árg. 1964
til sölu nú þegar.
Selst ódýrt.
Uppl. í síma 1-23-46
eftir kl. 5 e. h.
Bíllinn A-1038 Opel
station árg. 1966 er til
sölu, ekinn aðeins
51.000 km.
í m jög góðu lagi.
Heimasími 2-26-35.
Á vinnustað 1-11-97.
Gunnlaugur Einarsson.
Til sölu mjög góður
SAAB 96 árg. 1974.
Gott verð.
Uppl. í síma 2-18-61 og
á kvöldin í 2-16-61.
KJORSTAÐUR
við Alþingiskosningar, sem fram eiga að fara 30.
þ. m., verður í Oddeyrarskólanum.
Bænum hefur verið skipt í kjördeildir, sem hér
segir:
I. KJÖRDFJLD:
Aðalstræti, Akurgerði, Álfabyggð, Ásabyggð, Ás-
hlíð, Ásvegur, Austurbyggð, Barðstún, Beyki-
lundur, Byggðavegur, Birkilundur.
II. KJÖRDEILD:
Bjarkarstígur, Bjarmastígur, Brekkugata, Dals-
gerði, Eiðsvallagata, Einholt, Einilundur, Eyrar-
landsvegur, Eyrarvegur, Engimýri, Espilundur,
Fjólugata, Fróðasund, Geislagata.
III. KJÖRDEILD:
Gilsbakkavegur, Gleráreyrar, Glerárgata, Goða-
byggð, Gránufélagsgata, Grenivellir, Grundar-
gata, Grundargerði, Grænagata, Grænamýri,
IJáagerði, Hafnarstræti, Hamarstígur.
IV. KJÖRDEILD:
Hamragerði, IJelgamagrastræti, Hjalteyrargata,
Hlíðargata, Ilólabraut, Hólsgerði, Holtagata,
Hrafnagilsstræti, Hríseyjargata, Hvannavellir,
Höfðahlíð, Kaldbaksgata, Kambagerði, Kambs-
mýri, Kaupvangsstræti, Klapparstígur, Kleifar-
gerði, Klettaborg, Klettagerði, Kotárgerði,
Krabbastígur, Kringlumýri.
V. KJÖRJJEILD:
Kvistagerði, Langahlíð, Langamýri, Langholt,
Laugargata, Laxagata, Lerkilundur, Lyngholt,
Lundargata, Lækjargata, Lögbergsgata, Miðhúsa
vegur, Mýrarvegur, Munkaþverárstræti, Möðr-u-
vallastræti, Norðurbyggð.
VI. KJÖRDEILD:
Norðurgata, Oddagata, Oddeyrargata, Ráðhús-
stígur, Ráðhústorg, Ránargata, Rauðamýri,
Reynilundur, Reynivellir, Skarðshlíð 1 til Skarðs
hlíð 21.
VII. KJÖRDEILD:
Skarðshlíð 23 til 40, Skipagata, Skólastígur, Snið-
gata, Sólvellir, Spítalavegur, Stafholt, Steinholt,
Stekkjargerði, Stórholt, Strandgata, Suðurbyggð,
Vanabyggð.
VIII. KJÖRDEILD:
Víðilundur, Víðimýri, Víðivellir, Þingvallastræti,
Þórunnarstræti, Þverholt, Ægisgata, Býlin.
Kjörfundur hefst kl. 9.00 árdegis og lýkur kl.
11.00 síðdegis.
Akureyri, 24. júní 1974.
KJÖRSTJÓRN AKUREYRAR.
- Atviimuöryggi, kjarabætur verkamanna . .