Dagur - 26.06.1974, Page 7
7
VEGLEG ÞJÓÐHÁTÍD i ÚLAFSFIRÐI
Ólafsfirði, 19. júní. Þjóðhátíð
okkar Olafsfirðinga hófst hér á
laugardagskvöldið 15. júní með
unglingadansleik fyrir 12—15
ára í Tjamarborg. Fór hann að
öllu leyti hið besta fram.
Sunnudaginn 16. júní klukk-
an 8 árdegis voru fánar dregnir
að hún og var bærinn allur orð-
inn fánum skrýddur um níu-
leytið. Á ljósastaurunum með-
fram tveimur aðalgötum bæjar-
ins blöktu þjóðfáninn og af-
mælisfáni 1100 alda byggðar á
íslandi tií skiptis.
Klukkan 11 flutti sóknarprest
urinn okkar, séra Úlfar Guð-
mundsson, hátíðarmessu í Ólafs
fjarðarkirkju.
Víðavangshlaup á götum bæj
arins hófst klukkan 13 á vegum
íþróttafélagsins Leifturs. Keppt
var í fjórum flokkum. Sigur-
vegarar voru: í fyrsta flokki
Ægir Ólafsson, í öðrum flokki
Guðmundur Garðarsson, í
þriðja flokki Gottskálk Konráðs
son og í fjórða flokki Geirharð-
ur Ágústsson.
Klukkan 14 hófu hestamenn
hópreið um bæinn og síðan vest
ur Ósbrekkuflæðar, þar sem
firmakeppni og kappreiðar
hestamanna fóru fram. Fyrstu
verðlaun hlaut Smári, eigandi
Gunnar Eiríksson, knapi eig-
andi, keppti hann fyrir Raf-
magnsveitur ríkisins. Annar
varð Sörli, eigandi Andrés Krist
insson. Þriðji Fálki, eigandi Ingi
V. Gunnlaugsson.
Að lokum þennan dag kl. 17
fór fram knattspyrnukappleikur
á íþróttavellinum á milli 21 árs
og yngri og 21 árs og eldri.
Yngri mennirnir sigruðu með
4 mörkum gegn 3.
Selbúðir skáta á Skeggja-
brekkudal voru öllum opnar til
skoðunar milli kl. 13 og 16 þenn
an dag í tilefni þjóðhátíðarinn-
ar. Höfðu skátar komið upp
miklum tjaldbúðum á dalnum
og ýmsum fleiri útbúnaði, svo
sem útsýnisturni, 7 metra há-
um, og hengibrú yfir Garðsá,
sem var röskir 20 metrar á
lengd. Þennan frumlega útbún-
að höfðu gestir hina mestu
ánægju að skoða og reyna. Á
mánudaginn 17. júní voru búð-
irnar einnig opnar klukkan 16
til 19 og sóttu þær þá margir
heim.
Klukkan 22 um kvöldið var
svo dansleikur í Tjarnarborg.
Hljómsveitin Fjarkar lék og fór
dansleikurinn hið besta fram.
Var varla hægt að segja að
sæist vín á nokkrum manni og
er það óvenjulegt.
Mánudaginn 17. júní voru
fánar dregnir að hún kl. 8 að
morg'ni eins og fyrri daginn.
Kl. 14 var, vegna rigningar,
hátíðargestum stefnt í félags-
heimilið Tjarnarborg. Þar setti
Akureyrartogararnir
Svalbakur gamli landaði 18.
júní á Akureyri, 85 tonnum.
Harðbakur gamli landaði 13,
júní, 140 tonnum.
Sólbakur landaði 20. júní,
151 tonni.
Svalbakur nýi landaði 24.
júní, 175 tonnum.
Sléttbakur nýi landar í dag,
miðvikudag, ca. 200 tonnum. □
[ Það væri gæfuleysi
| landsbyggðar ef fólkið |
| skipfi um sfjórnar-
I sfefnu.
aÍ|MIMII|MMIIMIIIIIIIIIIIM|IIMIIIIIMIIIIMIIIf|IMMMIIIM
formaður hátíðarnefndar, Krist-
inn Jóhannsson, hátíðina með
ávarpi. Næst flutti bæjarstjór-
inn, Ásgrímur Hartmannsson,
stutt ávarp. Kirkjukór Ólafs-
fjarðarkirkju söng undir stjórn
Franks Herlufsen söngstjóra.
Þá flutti Sólrún Pálsdóttir
ávarp Fjallkonunnar. Baldvin
Tryggvason framkvæmdastjóri
hélt hátíðarræðuna. Þá var þjóð
dansasýning undir stjórn Birnu
Friðgeirsdóttur kennara, Rögn-
valdur Möller kvað rímur, Krist
inn Jóhannsson las upp kvæði,
sem ort var í gamansömum tón
um fyrstu landnámsmennina
hér í Ólafsfirði eftir Ingibjörgu
Guðmundsdóttur á Syðri-Á. Þá
söng kirkjukórinn þjóðsöng
okkar undir stjórn söngstjórans.
Að lokum fóru fram verðlauna-
afhendingar. Að þeim loknum
flutti Kristinn Jóhannsson
nokkur lokaorð og sleit hátíð-
inni.
Stuttu síðar fór fram sund-
keppni í Sundlaug Ólafsfjarðar
á vegum íþróttafélagins Leift-
urs. Þar kepptu stúlkur 10—12
ára í 25 metra bringusundi. í
yngri hópnum sigraði Sigríður
Jónsdóttir á 21,9 sek., en í þeim
eldri sigraði Jónína Júlíusdóttir
á 20,2 sek. Þá kepptu drengir í
50 metra bringusundi í 3 flokk-
um, 10—12 ára, 12—14 og 14—
16. f yngsta flokki sigraði Snorri
Olgeirsson á 54,7 sek., í öðrum
flokki Sæmundur B. Jónsson á
48,8 sek. og í þriðja flokki Kol-
beinn Ágústsson á 41,2 sek.
Báða dagana var kaffisala í
Tjarnarborg til ágóða fyrir
byggingu sjúkrahúss Ólafsfjarð-
ar. Fyrri hátíðisdaginn var sól-
skin og besta veður, en 17. júní
var þoka með norðankalda og
súld öðru hverju. Óhætt mun
að fullyrða að flestir hátíðar-
gestir hafi notið hátíðarhald-
ánna í ríkum mæli, enda voru
þau með glæsibrag og öllum til
sóma. B. S.
HESTAMENN!
HNAKKAR - REIÐSTÍGVÉL
HJÁLMAR - HRINGAMÉL
og ótal margt fleira fyrir hestamenn.
ÍBÚÐIN HF.
Rýmingarsala
RÝMINGARSALA stendur yfir J^essa viku á
margskonar efnum. — Mikil verðlækkun.
VERZLUNIN RÚN
NÝ VERZLUN!
ÍBÚÐIN HF.
GÓLFTEPPI - GÓLFDÚKAR
VEGGFÓÐUR
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
VEGGDÚKUR
ALLT FRÁ LITAVER.
ÍBÚÐIN HF.
Strandgötu 13 B. — Opið alla virka daga.
INGVAR INGVARSSON.
Til sölu
Foklieldar íbúðir í raðhúsi sem er í byggingu við
Einholt.
Upplýsingar gefur MARINÓ JÓNSSON í síma
2-13-47 eftir kl. 7 á kvöldin.
HÚSBYGGIR S.F.
PRENTSMIÐJAN VERÐUR LOKUÐ
allan júlímánuð vegna sumarleyfis
starfsfólks.
PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR
HAFNARSTRÆTI 67. - AKUREYRI.
ATVINNA!
Laghentur og reglusamur maður getur fengið at-
vinnu á næturvakt í prjónadeild verksmiðjunn-
ar. Ráðningartími frá 12. ágúst næstkomandi.
GÓÐ LAUN.
Upplýsingar hjá verksmiðjustjóra, sími 2-19-00.
FATAVERKSMIÐJAN HEKLA
AKUREYRI.
KOPRAL „LAN0LIN“ SHAMPO
KOPRAL „EGGJA“ SHAMPO
KOPRAL „SÁPU“ SHAMPO
POPRAL „ÖL“ SHAMPO
KJÖRBtTDIR