Dagur - 31.07.1974, Blaðsíða 2

Dagur - 31.07.1974, Blaðsíða 2
 2 HRAÐBRAUTAR- FRAMKVÆMDIR? Það mun hafa léttst brúnin á mörgum, þegar framkvæmdir hófust við svokallaða hraðbraut, norður frá Akureyri, á áliðnu sumri. En sennilega hefur hún heldur verið að þyngjast aftur, eftir því sem á hefur liðið. Og FRÁ LÖGREGLUNNI BROTIN var rúða í sýningar- glugga verslunar hjá Jóni Eð- varð rakarameistara í Strand- götu 6, aðfararnótt sl. miðviku- dags. Farið var inn í vgrslunina og dýrmætri myndavél stolið. Myndavélin fannst síðar undir bát þar í nágrenni og einnig hafðist upp á innbrotsþjónum, sem meðgekk verknað sinn. Var það ungur maður undir áhrif- um áfengis. Á laugardagsnóttina var rúða brotin í afgreiðslu Drangs og í gærmorgun var lögreglunni til- kynnt um enn eitt rúðubrot á Krókeyrarstöð. Þar hafði öku- maður sýnilega verið að aka umhverfis stöðina og ekki gæti- lega. Tvö síðarnefndu rúðubrot- in eru óupplýst ennþá. Frá því á þriðjudaginn var til mánudags höfðu fimm menn verið teknir grunaðir um ölvun við akstur. (Samkvæmt viðtali við lög- regluvarðstofuna á Akureyri á mánudag). - ÞJÓÐHÁTÍÐIN (Framhald af blaðsíðu 1) hías Jóhannessen. Forseti ís- lands, dr. Kristján Eldjárn, flutti hátíðarræðu, Halldór Lax- ness flutti ávarp í minningu bókmenntanna og Tómas Guð- mundsson flutti frumsamið há- tíðarljóð sitt. Erlendir fulltrúar fluttu ávörp og síðan ágætar gjafir. Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, flutti ávarp. Olafur Jóhannes- son forsætisráðherra sleit þjóð- hátíð á Þingvöllum með ræðu. Lögreglumenn, 150 að tölu, voru að störfum á vegunum við Þingvöll. Níu þúsund bílar komu á Þingvöll á sunnudag- inn og voru þá þangað komnir þrjú þúsund bílar, eða samtals tólf þúsund bílar. Utvarpað var og sjónvarpað jafnóðum frá hátíðarhöldunum á sunnudaginn, og fylgdist þjóð- in því með þessari einstæðu og ágætu hátíð. □ wAtvinna Óska eftir konu til barnfóstrustarfa. Uppl. í síma 2-18-45. Fæst í kaupfélaginu eftir framkvæmdahraðanum að dæma, lítur út fyrir, að nálægir staðir svo sem Dalvík, Olafs- fjöldur eða Húsavík, verði að lifa alllengi í veikri von, hvað þá að hraðbraut til höfuðborg- arinnar verði að veruleika. Þetta skal þó ekki frekar rætt hér, þó ástæða væri til, en aug- ljóst er, að eigi þessum málum verulega að miða, þarf til að koma stórum burðameiri tækja- kostur og hnitmiðaðri vinnu- brögð. Á þessu stigi væri, aftur á móti, gaman að fá upplýst, hvenær þessi torfærukafli frá Lónsbrú að Blómsturvalla- afleggjara, verður gerður ak- fær, og hvernig á því stendur að svo lengi hefur dregist að yfir- keyra hann með fínni ofaní- burði? í öðru lagi: Hvers vegna er vegurinn inn frá Lónsbrú ekki heflaður við og við? Það virðist engin afsökun, þó eitthvað sé verið að gaufa þar utan vegar, að vegurinn sjálfur sé illakandi. Er ekki full ástæða til að leiða vegfarendur í allan sannleika, í þessum efnum? Dagl. vegfarandi. SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ. Vegna greinar um hrakfarir Vestur-íslendinga í Sjálfstæðis- húsinu á Akureyri, sem birtist í síðasta Degi, eru hér tvær spurningar: 1. Hvað má selja mörgum gestum inn í Sjálfstæðishúsið? (Ef forstjóri hússins getur ekki upplýst það, þá hefur kannski bæjarfógeti einhverja hugmynd um það og getur upplýst málið). 2. Sagt er að fólki sé hleypt inn í Sjálfstæðishúsið án að- göngumiða. Fær Sjálfstæðishús ið það fé eða rennur það til starfsfólks? Bæjarbúi. SMÁTT & STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8) ar Thoroddsen. Alþýðubanda- lagsmennirnir skiptu þá um og kusu Gylfa með Framsóknar- mönnum og er hann því forseti Sameinaðs þings. GÓÐ VENJA BROTIN Sú venja hefur víða skapast á þjóðþingum, að stjórn og stjórn arandstaða skipta með sér for- setum og þykir það gefast vel. Svo er það einnig á Alþingi ís- lendinga. Sjálfstæðisflokkurinn skarst þó úr leik að þessu sinni og hafnaði óskum um samkomu lág. Niðurstaðan er því sú, að Sjálfstæðisflokkurinn tekur ekki þátt í stjórn Alþingis, sem nú situr. En þessar kosningar henda ennfremur til þess, að nokkur samstaða hafi myndast milli þeirra fjögurra flokka, sem stóðu að kjöri formanns Alþýðuflokksins, sem er að vísu fámennur flokkur á Alþingi, en hefur sérstöðu þar. MARGIR NÝIR ÞINGMENN Á þingi því er nú situr, eru 15 nýir alþingismenn og hefur eng inn þeirra átt þar sæti áður sem aðalmaður, en nokkrir mætt þar sem varamenn. í þingliði Fram- sóknarflokksins eru nú 7 nýir menn og er það mikil endur- nýjun, þar sem þingmenn flokksins eru 17 talsins. Af hin- um nýju þingmönnum eru 4 bændur og einn hústjóri, allir þekktir að miklum störfum í félagsmálum og hafa helgað at- vinnuvegunum starfskrafta sína. Þá er það ekki síður at- hyglisvert, að nýir menn skipa nú fyrsta varaþingmannssætið í öllum kjördæmum landsins hjá Framsóknarflokknum. Verður því ekki annað sagt, en að mikil endurnýjun hafi átt sér stað. Veiðimenn Veiðileyfi í Dalsá á Flateyjardal og Flateyjar- dalsheiði fást hjá Tryggva Stefánssyni Hallgils- stöðum. VEIÐIFÉLAG DALSÁR Frá Krisfneshæli Staða yfirþvottakonu er laus til umsóknar. Laun samkv. 15. lannafiokki ríkisstar.fsmanna. Staðan veitist frá og með 15. sept. n. k. Upplýsingar gefur skrifstofa Kristneshælis, sími 2-23-04. Umsóknir sendist skrifstofu Krist- neshælis fyrir 31. ágúst n. k. FORSTÖÐUMAÐUR. Einbýlishús Til sölu er gott einhýlishús við Fjólugötu. Þrjú herhergi, eldluis með nýrri innréttingu, góður kjallari, fallegur trjágarður. FASTEIGNASALAN H.F. Hafnarstr. 101. Opið milli kl. 5—7. Sími 2-18-78. Moíatimbur Mólakrossviður Steypustyrktarstál BYGGINGAVÖRUDEILD GLERÁRGÖTU 36. - SÍMI 2-14-00. Nýjar vörur, svo sem: Reykelsi, reykilsisker, hálsfestar margar gerðir, plattar undir heit föt úr hasti og bambus, bast- töskur og innkaupanet. FYRTR VERZLUNARMANNAHELGINA: Myndavélar, filniur, flashkubhar. Vorum að fá kvikmyndasýningarvélar. PEDROmyndir HAFNARSTRÆTI 98 (Hótel Akureyri). SÍMI 1-15-20. í FERÐALAGIÐ! NÝKOMIÐ: Útlent konfekt í kössum, pökkum og dósum: ANTON BÉRG JAMESONS PASCALL M ACKINT OSH’S Franskar kartöflur í dósum og pokum. Kartöfluflögur, margar tegundir. Saltaðar hnetur. Utlendur lakkrís. <S> NESTIN Veganesti — Krókeyrarstöð — Tryggvabraut 14 FASTEIGNASALAN RÁÐHÚSTORGI 1. - SÍMI 2-22-60. Höfum kaupendur að rúmgóðri 3ja herbergja íbúð. TIL SÖLU: Raðhús á besta stað á brekkunni. Nýstandsett eldri húseign á eyrinni. Höfum kaupendur að ýmsum stærðum og geyð- ura íbúða. FASTEIGNASALAN RÁÐHÚSTORGI 1. - SÍMI 2-22-60. HEIMASÍMI: 1-17-85. (Sami inngangur og Norðlenzk Trygging h.f.) Steindór Gunnarsson lögfræðingur. ATH.: Skrifstofan er opin allan daginn. Tilboð óskast í fclkhelda íhúð í raðhúsi. Ibúðin er 117 m2 auk kjallara sem er ca. 40 m2. Upplýsingar í síma 1-17-89 milli kl. 7 og 8 næstu kvöld.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.