Dagur - 18.09.1974, Side 1
FILMUhúsið akureyri
NORÐLENSKA tímaritið Súl-
ur, fyrra hefti þessa árs, er
komið út og verður sent til
áskrifenda í þessari viku, en
síðara heftið kemur út seint í
haust.
í hinu nýútkomna hefti, sem
er það sjöunda í röðinni, eru
gömul kvæði úr Eyjafirði eftir
Aldísi Einarsdóttur, ævisögu-
ágrip Árna Grímssonar, sem
Kristján frá Djúpalæk bjó und-
ir prentun, Jón Kr. Kristjáns-
son ritar greinina Af minninga-
blöðum, og' Eiður Guðmunds-
son þriðja þátt sinn Slysfarir og
skaðar. Þá er birtur síðari hluti
greinar Olafs Pálssonar, Sést á
blaði flokkurinn, og eins og í
fyrri heftum er vikið að dul-
rænum efnum í þættinum Furð-
ui' og fyrirbæri. í þeim þætti
og öðrum segja þessir menn frá:
Kristinn Jónsson, fyrrum kennd
ur við Kaupang, Egill Jóhanns-
son, skipstjóri á Akureyri, Guð-
mundur Jónatansson, fyrrum
TEYGjUBYSSUR
VARASAMAR
LÖGREGLAN hefur haft af-
skipti af nokkrum drengjum
með teygjubyssur, þótt alvarleg
slys hafi ekki orðið af þeim.
Biður hún foreldra að vara
börn sín við þessum leikföng-
um, því alvarleg slys hafa stund
um af þeim hlotist svo og rúðu-
brot.
Bifreiðaárekstur varð á
Tryggvabraut á sunnudaginn og
valt annar bíllinn. Fólk meidd-
ist ekki. □
NÁMSKEiÐ IIM
FISKiÐNAD
FRAMKVÆMDASTJÓRAR og
yerkstjórar frystihúsa á vegum
Sambands íslenskra samvinnu-
félaga ei'ndu til ráðstefnu á
Hótel Húsavík dagana 9. og 10.
september sl. Ráðstafnan var í
formi námskeiðs og voru alls
flutt átta erindi um ýmis atriði
varðandi fiskiðnað. Kynntar
voru vélar og tæki, og meðal
efnis, sein erindi og umræður
fjölluðu um, var hagkvæmni í
framleiðslu og nýtingu, ákvæðis
vinnukerfið, bókhald, mögu-
leikar á vinnslu kolmunna og
spærlings til manneldis o. fl.
Um 70 manns sátu ráðstefnuna.
bóndi á Litlahamri, Jónas Hail-
dórson á Rifkelsstöðum, Ágúst
Jónsson, byggingameistari, Jón
Bjarnason í Hátúni og Sigurður
Finnbogason í Hrísey. Jóhannes
Óli Sæmundsson ritar greinina
Örnefni á fiskimiðum, og er það
fjórði þáttur og Erlingur Davíðs
son ritar greinina Þjóðhátíðar-
ár. Auk þessa er margt smá-
vegis í bundnu og óbundnu
máli.
Hefti þetta er um 115 blað-
síður í sama broti og áður.
Fagrahlíð gefur Súlur út og rit-
stjórar eru sem áður Jóhannes
Óli Sæmundsson og Erlingur
Davíðsson. □
Við athöfnina á Auðnuni. Stóri steinninn til vinstri.
(Ljósm.: J. H.).
MINMSYARÐI A AUÐNUM
SÍÐASTLIÐINN sunnudag, 15.
sept., efndu Svarfdælingar til
móts á þeim stað, sem staðið
hafði bærinn AUÐNIR í Fram-
Svarfaðardal, en þar eyddi snjó
flóð bænum og grandaði fólki
og fénaði á föstudaginn langa
1953. Tuttugu tonna steini hefur
verið komið fj’rir á staðnum og
sett á hann áletruð plata.
Um 60 manns voru viðstaddir
til að minnast þessa hörmulega
atburðar og voru þarna margir
þeirra, sem störfuðu að upp-
greftrinum úr fönninni þennan
stórhríðardag (og nótt). Hrepp-
stjórinn, Hjörtur E. Þórarins-
son, minntist atburðarins, rakti
þætti úr sögu staðarins og las
upp úr ritgerð Steinunnar dótt-
ur sinnar um Auðni og snjó-
flóðið, en sá þáttur mun birtast
sm a Síessu an
UMFERÐARRÁÐ hefur sent
frá sér yfirlit um umferðar-
óhöpp og dauðaslys í umferð-
inni 8 fyrstu mánuði þessa árs.
Eignatjónið af völdum slysanna
er þar talið yfir 4 milljarða
króna. Síðan segir svo:
Þá átta mánuði, sem af eru
árinu, hafa orðið 4695 umferðar
óhöpp, þar af 636 með meiðsl-
um, þar sem 871 slasaðist og 11
létust. Sömu mánuði ársins 1973
voru skráð 4713 óhöpp, þar af
616 með meiðslum. Slys með
meiðslum eru 21 fleiri, þótt
færri óhöpp séu skráð á þessu
ári. Þessa átta mánuði, sem af
eru árinu létust 11 manns í um-
ferðarslysum, en á síðasta ári 19
miðað við sömu mánuði.
At þeim 871 vegfarenda, sem
slasast hefur á þessu ári, voru
667 akandi og 204 gangandi.
Akandi vegfarendur skiptast
þannig: 307 ökumenn, 296 far-
þegar og 64 hljóreiðamenn.
Þeir 871, sem slasast hafa
skiptast þannig milli aldurs-
hópa: 0—6 ára: 57, 7—14 ára:
141, 15—17 ára: 128, 18—20 ára:
131, 21—24 ára: 89, 25—64 ára:
286 og 65 ára og eldri: 39.
Árið 1973 urðu flest slys með
meiðslum í ágúst og september
eða 109 slys í ágúst og 111 í
september. Þrátt fyrir fjölda
umferðarslysa síðustu daga
ágústmánaðar eru slys með
meiðslum ekki fleiri í ágúst-
mánuði í ár en i fyrra. Aukning
slysa með meiðslum fyrstu átta
mánuði ársins er 3.2%. Hafa ber
í huga þá miklu umferðaraukn-
ingu, sem orðið hefur á þessu
tímabili.
Tölur um fjölda umferðar-
slysa einungis með eignartjóni
verður að taka með fyrirvara,
þar sem nokkuð mörg umferðar
óhöpp eru tilkynnt beint til
tryggingarfélaganna. □
í 8. hefti Súlna, sem kemur út í
haust. Helgi Símonarson á
Þverá, sem verið hafði kennari
á Auðnum fyrir nálega fimm
áratugum, minntist hjónanna
þar í ræðu er hann flutti næst
á eftir Hirti. Friðbjörn Zóphon-
íasson stjórnaði samkomunni.
Ungmennafélagið Atli bauð gest
um upp á veitingar í ungmenna
félagshúsinu Höfða, er stendur í
Auðnalandi, en félagið og hrepp
stjórinn höfðu forgöngu um
samkomuna og minnisvarðann.
Svarfdælingar hafa reist fleiri
minnismerki í sveit sinni, svo
sem um Duggu-Eyvind og Þor-
stein svörfuð, landnámsmann.
SAMHJÁLP, félag sykursjúkra
á Akureyri, barst þann 20.
ágúst sl. að gjöf 100.000,00 krón-
ur frá frú Hrefnu Guðmunds-
dóttur, Þórunnarstræti 128,
ekkju Bernharðs Stefánssonar,
alþingismanns. Oskar gefandi
þess, að fénu verði varið til hags
bóta fyrir félagsmenn á þann
hátt, sem stjórnin telur henta.
Stjórn félagsins flytur frú
Hrelnu Guðmundsdóttur inni-
legar þakkir fyrir þessa höfðing
legu gjöf og þann velvildarhug
til félagsins, sem hún sýnir með
henni.
(Fréttatilkynning)
4 VeriÖ cr að „tankvæða“ sveitirnar við Eyjafjörð, eins og það
X er nefnt og hér eru tveir mjólkurflutningabílar á ferðinni.
X (Ljósm.: E. D.)
w
í TILEFNI af nýliðnum degi
dýranna, er ákveðið að endur-
vekja Dýraverndunarfélag Ak-
ureyrar, en starf þess hefir legið
niðri um nokkurt skeið. Boðað
er til fundar í þessu skyni að
Hótel KEA n. k. sunnudag 22.
sept. kl. 4 e. h. í neðri sal húss-
ins og verður þar og á boðstól-
um síðdegiskaffið.
Allir dýravinir og þeir sem
áhuga hafa á dýravernd eru
hvattir til að koma á þennan
fund og gerast þátttakendur í
félaginu.
Vegleg gjöf.
Kona í bænum, er eigi vill
láta sín getið, hefir fært Dýra-
verndunarfélagi Akureyrar
stóra og veglega minningargjöf
um mann sinn. Eru það eitt
hundrað þúsund krónur.
Hér með flyt ég gefandanum
innilegustu þakkir og bið Guð
að blessa minningu eiginmanns
hennar.
P. S.
Dalvík, 16. september. Sauðfjár
slátrun hófst hér í morgun og
Verður 12.500 fjár lógað í haust.
Tekið er á móti 550 fjár á dag.
Við sláturhús KEA á Dalvík
vinna 56 manns.
í fyrramálið verða send flug-
leiðis til Belgíu 15 tonn af nýj-
um fiski. mest kola, til reynslu,
og er það frystihús KEA hér á
Dalvík, sem sendir þessa vöru á
belgíska markaðinn, og er það
nýjung.
Aflabrögðin hafa ekki verið
nægilega góð undanfarið, en þó
e'r stöðug vinna í hraðfrystihús-
inu og næg vinna fyrir alla hér
í Dalvíkurkaupstað. Björgvin
landar 70—80 tonnum fiskjar í
dag og Baldur landar á mið-
vikudaginn.
Með hagræðingu á djúpdæl-
ingu heita vatnsins á Hamri,
þar sem hitaveita Dalvíkur á
upptök sín, hefur vatnsmagnið
aukist um þrjá lítra á sekúndu,
og er það góð viðbót.
Verið er að breyta gömlu
síldarverksmiðjunni í beinaverk
smiðju og hefst vinnsla væntan-
lega eftir tvær til þrjár vikur.
Göngur eru um næstu helgi
og ve'rður réttað í Tungurétt á
sunnudaginn. V. B.
r
SULUR komnar út