Dagur - 18.09.1974, Síða 1

Dagur - 18.09.1974, Síða 1
FILMUhúsið akureyri NORÐLENSKA tímaritið Súl- ur, fyrra hefti þessa árs, er komið út og verður sent til áskrifenda í þessari viku, en síðara heftið kemur út seint í haust. í hinu nýútkomna hefti, sem er það sjöunda í röðinni, eru gömul kvæði úr Eyjafirði eftir Aldísi Einarsdóttur, ævisögu- ágrip Árna Grímssonar, sem Kristján frá Djúpalæk bjó und- ir prentun, Jón Kr. Kristjáns- son ritar greinina Af minninga- blöðum, og' Eiður Guðmunds- son þriðja þátt sinn Slysfarir og skaðar. Þá er birtur síðari hluti greinar Olafs Pálssonar, Sést á blaði flokkurinn, og eins og í fyrri heftum er vikið að dul- rænum efnum í þættinum Furð- ui' og fyrirbæri. í þeim þætti og öðrum segja þessir menn frá: Kristinn Jónsson, fyrrum kennd ur við Kaupang, Egill Jóhanns- son, skipstjóri á Akureyri, Guð- mundur Jónatansson, fyrrum TEYGjUBYSSUR VARASAMAR LÖGREGLAN hefur haft af- skipti af nokkrum drengjum með teygjubyssur, þótt alvarleg slys hafi ekki orðið af þeim. Biður hún foreldra að vara börn sín við þessum leikföng- um, því alvarleg slys hafa stund um af þeim hlotist svo og rúðu- brot. Bifreiðaárekstur varð á Tryggvabraut á sunnudaginn og valt annar bíllinn. Fólk meidd- ist ekki. □ NÁMSKEiÐ IIM FISKiÐNAD FRAMKVÆMDASTJÓRAR og yerkstjórar frystihúsa á vegum Sambands íslenskra samvinnu- félaga ei'ndu til ráðstefnu á Hótel Húsavík dagana 9. og 10. september sl. Ráðstafnan var í formi námskeiðs og voru alls flutt átta erindi um ýmis atriði varðandi fiskiðnað. Kynntar voru vélar og tæki, og meðal efnis, sein erindi og umræður fjölluðu um, var hagkvæmni í framleiðslu og nýtingu, ákvæðis vinnukerfið, bókhald, mögu- leikar á vinnslu kolmunna og spærlings til manneldis o. fl. Um 70 manns sátu ráðstefnuna. bóndi á Litlahamri, Jónas Hail- dórson á Rifkelsstöðum, Ágúst Jónsson, byggingameistari, Jón Bjarnason í Hátúni og Sigurður Finnbogason í Hrísey. Jóhannes Óli Sæmundsson ritar greinina Örnefni á fiskimiðum, og er það fjórði þáttur og Erlingur Davíðs son ritar greinina Þjóðhátíðar- ár. Auk þessa er margt smá- vegis í bundnu og óbundnu máli. Hefti þetta er um 115 blað- síður í sama broti og áður. Fagrahlíð gefur Súlur út og rit- stjórar eru sem áður Jóhannes Óli Sæmundsson og Erlingur Davíðsson. □ Við athöfnina á Auðnuni. Stóri steinninn til vinstri. (Ljósm.: J. H.). MINMSYARÐI A AUÐNUM SÍÐASTLIÐINN sunnudag, 15. sept., efndu Svarfdælingar til móts á þeim stað, sem staðið hafði bærinn AUÐNIR í Fram- Svarfaðardal, en þar eyddi snjó flóð bænum og grandaði fólki og fénaði á föstudaginn langa 1953. Tuttugu tonna steini hefur verið komið fj’rir á staðnum og sett á hann áletruð plata. Um 60 manns voru viðstaddir til að minnast þessa hörmulega atburðar og voru þarna margir þeirra, sem störfuðu að upp- greftrinum úr fönninni þennan stórhríðardag (og nótt). Hrepp- stjórinn, Hjörtur E. Þórarins- son, minntist atburðarins, rakti þætti úr sögu staðarins og las upp úr ritgerð Steinunnar dótt- ur sinnar um Auðni og snjó- flóðið, en sá þáttur mun birtast sm a Síessu an UMFERÐARRÁÐ hefur sent frá sér yfirlit um umferðar- óhöpp og dauðaslys í umferð- inni 8 fyrstu mánuði þessa árs. Eignatjónið af völdum slysanna er þar talið yfir 4 milljarða króna. Síðan segir svo: Þá átta mánuði, sem af eru árinu, hafa orðið 4695 umferðar óhöpp, þar af 636 með meiðsl- um, þar sem 871 slasaðist og 11 létust. Sömu mánuði ársins 1973 voru skráð 4713 óhöpp, þar af 616 með meiðslum. Slys með meiðslum eru 21 fleiri, þótt færri óhöpp séu skráð á þessu ári. Þessa átta mánuði, sem af eru árinu létust 11 manns í um- ferðarslysum, en á síðasta ári 19 miðað við sömu mánuði. At þeim 871 vegfarenda, sem slasast hefur á þessu ári, voru 667 akandi og 204 gangandi. Akandi vegfarendur skiptast þannig: 307 ökumenn, 296 far- þegar og 64 hljóreiðamenn. Þeir 871, sem slasast hafa skiptast þannig milli aldurs- hópa: 0—6 ára: 57, 7—14 ára: 141, 15—17 ára: 128, 18—20 ára: 131, 21—24 ára: 89, 25—64 ára: 286 og 65 ára og eldri: 39. Árið 1973 urðu flest slys með meiðslum í ágúst og september eða 109 slys í ágúst og 111 í september. Þrátt fyrir fjölda umferðarslysa síðustu daga ágústmánaðar eru slys með meiðslum ekki fleiri í ágúst- mánuði í ár en i fyrra. Aukning slysa með meiðslum fyrstu átta mánuði ársins er 3.2%. Hafa ber í huga þá miklu umferðaraukn- ingu, sem orðið hefur á þessu tímabili. Tölur um fjölda umferðar- slysa einungis með eignartjóni verður að taka með fyrirvara, þar sem nokkuð mörg umferðar óhöpp eru tilkynnt beint til tryggingarfélaganna. □ í 8. hefti Súlna, sem kemur út í haust. Helgi Símonarson á Þverá, sem verið hafði kennari á Auðnum fyrir nálega fimm áratugum, minntist hjónanna þar í ræðu er hann flutti næst á eftir Hirti. Friðbjörn Zóphon- íasson stjórnaði samkomunni. Ungmennafélagið Atli bauð gest um upp á veitingar í ungmenna félagshúsinu Höfða, er stendur í Auðnalandi, en félagið og hrepp stjórinn höfðu forgöngu um samkomuna og minnisvarðann. Svarfdælingar hafa reist fleiri minnismerki í sveit sinni, svo sem um Duggu-Eyvind og Þor- stein svörfuð, landnámsmann. SAMHJÁLP, félag sykursjúkra á Akureyri, barst þann 20. ágúst sl. að gjöf 100.000,00 krón- ur frá frú Hrefnu Guðmunds- dóttur, Þórunnarstræti 128, ekkju Bernharðs Stefánssonar, alþingismanns. Oskar gefandi þess, að fénu verði varið til hags bóta fyrir félagsmenn á þann hátt, sem stjórnin telur henta. Stjórn félagsins flytur frú Hrelnu Guðmundsdóttur inni- legar þakkir fyrir þessa höfðing legu gjöf og þann velvildarhug til félagsins, sem hún sýnir með henni. (Fréttatilkynning) 4 VeriÖ cr að „tankvæða“ sveitirnar við Eyjafjörð, eins og það X er nefnt og hér eru tveir mjólkurflutningabílar á ferðinni. X (Ljósm.: E. D.) w í TILEFNI af nýliðnum degi dýranna, er ákveðið að endur- vekja Dýraverndunarfélag Ak- ureyrar, en starf þess hefir legið niðri um nokkurt skeið. Boðað er til fundar í þessu skyni að Hótel KEA n. k. sunnudag 22. sept. kl. 4 e. h. í neðri sal húss- ins og verður þar og á boðstól- um síðdegiskaffið. Allir dýravinir og þeir sem áhuga hafa á dýravernd eru hvattir til að koma á þennan fund og gerast þátttakendur í félaginu. Vegleg gjöf. Kona í bænum, er eigi vill láta sín getið, hefir fært Dýra- verndunarfélagi Akureyrar stóra og veglega minningargjöf um mann sinn. Eru það eitt hundrað þúsund krónur. Hér með flyt ég gefandanum innilegustu þakkir og bið Guð að blessa minningu eiginmanns hennar. P. S. Dalvík, 16. september. Sauðfjár slátrun hófst hér í morgun og Verður 12.500 fjár lógað í haust. Tekið er á móti 550 fjár á dag. Við sláturhús KEA á Dalvík vinna 56 manns. í fyrramálið verða send flug- leiðis til Belgíu 15 tonn af nýj- um fiski. mest kola, til reynslu, og er það frystihús KEA hér á Dalvík, sem sendir þessa vöru á belgíska markaðinn, og er það nýjung. Aflabrögðin hafa ekki verið nægilega góð undanfarið, en þó e'r stöðug vinna í hraðfrystihús- inu og næg vinna fyrir alla hér í Dalvíkurkaupstað. Björgvin landar 70—80 tonnum fiskjar í dag og Baldur landar á mið- vikudaginn. Með hagræðingu á djúpdæl- ingu heita vatnsins á Hamri, þar sem hitaveita Dalvíkur á upptök sín, hefur vatnsmagnið aukist um þrjá lítra á sekúndu, og er það góð viðbót. Verið er að breyta gömlu síldarverksmiðjunni í beinaverk smiðju og hefst vinnsla væntan- lega eftir tvær til þrjár vikur. Göngur eru um næstu helgi og ve'rður réttað í Tungurétt á sunnudaginn. V. B. r SULUR komnar út

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.