Dagur - 16.10.1974, Qupperneq 1
Aflimi og flugvöllur-
inn Iiér á Sigiufirði
Siglufirði, 14. október. Hér í
Siglufirði sitja ó skólabekk 650
Siglfirðingar eða meira en fjórði
hver maður. f Barnaskólanum
eru 290 nemendur, skólastjóri
Jóhann Þorvaldsson, í Gagn-
fræðaskóla Siglufjarðar eru 160
nemendur, skólastjóri er Gunn-
ar Rafn Sigurbjörnsson. Jóhann
Jóhannsson lét af skólastjóra-
störfum eftir meira en 30 ára
starf. Tónlistarskólinn er með
■ 70 nemendur, skólastjóri Geir-
' harður Valtýsson. Iðnskólinn er
með 30 nemendur í fyrsta og
fjórða bekk, skólastjóri Jóhann
Þorvaldsson, og Vélskólinn,
fyrsta deild, hefur 14 nemendur,
forstöðumaður er Markús Krist-
jánsson.
Til Siglufjarðar barst 731
tonn fiskjar í septembermánuði,
sem er nokkru meira en sl. ár.
Aflinn fyrstu níu mánuðina
varð 5642 lestir, sem er 760 lest-
um meira en á sama tíma í
fyrra. Handfæraafli er mikið
minni en í fyrra. Fjórir bátar
stunda nú línuveiðar og er afli
sæmilegur. Afli togaranna er
tregur uin þessar mundir.
í sumar voru framleiddar 600
lestir af saltfiski hér í Siglul
firði. Er það mun meira en
í fyrra. 4300 pakkar fóru um
daginn í skip og á sá saltfiskur
að fara til ítalíu.
Lokið er við viðgerð á flug-
vellinum og voru bornir 500
rúmmetrar af möluðu efni í völl
inn. Völlurinn er 700 metrar.
Næstu daga verður tekin í
notkun ný farþegaafgreiðsla við
flugvöllinn, sem er til stórbóta
og öryggisauka. Símanúmer á
vellinum verður 71470. Flugvall
arstjóri er Steinar Jónasson.
Áætlunarflug til Siglufjarðar er
fjóra daga í viku, á þriðjudög-
um, fimmtudögum, laugardög-
um og sunnudögum. Flugfélagið
Vængir sér um flugið. J. Þ.
Sæljomö í reynsluför.
(Ljósm.: M. Ó. G.)
re
ÞAÐ bar helst til tíðinda um
helgina, að tveir drengir á tólf
ára aldri fóru í óvænta sjóferð.
Þeir brutu upp vélarhús á trillu
bátum í Sandgerðisbót á sunnu-
dagskvöldið og skemmdu þau
nokkuð. Einni trillunni stálu
þeir síðan. Á mánudagsmorgun
var trilla þessi bundin við
bryggju á Svalbarðseyri. Fóru
drengirnir þar í land, lögðu sig
útaf í hlöðu en tóku sér síðan
far til Akureyrar, landleiðina.
Brotist var inn í Borgarsöluna
um helgina en ekki er neins
saknað þar. Ennfremur var
brotist inn í Randíóvinnustofu
við Helgamagrastræti og þaðan
stolið þrjú þúsund krónum í
peningum og heyrnartæki, sem
mun álíka mikils virði.
Þar fyrir utan hefur verið
talsverð ölvun í bænum og
nokkrir minniháttar árekstrar.
(Samkvæmt viðtali við varð-
stióra á mánudagj
LAUGARDAGINN 12. október
afhenti Slippstöðin h.f. 150 lesta
stálfiskiskip til „Friðþjófs li.f.“
á Eskifirði. Skipið hlaut nafnið
„SÆLJÓN SU 104“.
Sæljón er 11. skipið í röð 150
rúmlesta fiskiskipa, sem Slipp-
stöðin h.f. hefur smíðað undan-
fárin ár í raðsmíði. Skipið er
útbúið til línu-, tog-, neta- og
nótaveiða og er togbúnaður
gerður fyrir skuttog. Aðalvél er
af gerðinni Caterpillar D-398TA
og tvær ljósavélar af gerðinni
Caternillar D 330-NA. Fiskleitar
tæki eru af gerðinni Simrad og
tvær radsjár af gerðinni Decca.
Talstöð er af gerðinni Sailor og
einnig má nefna að í skipinu er
örbylgjustöð, bylgjuleitartæki,
miðunarstöð, lóran, sjálfstýring,
símakerfi, útvarps og hátalara-
kerfi, segulband og sjónvarp.
í skipinu eru íbúðir fyrir 12
manns og eru þær bæði afurí
og framí.
Skipið reyndist vel í reynslu-
ferð og var ganghraði 13 sjó-
mílur.
Skipstjóri á „Sæljóni" er
Friðrik Rcsmundsson og 1. vél-
stjóri Bjarni Stefánsson.
Nú eru í smíði tvö síðustu
150 lesta fiskiskipin, sem fram-
leidd verða að sinni. Þau eru
byggð fyrir aðila á Ólafsvík og
Stykkishólmi og er áætlað að
afhenda þau seinni hluta vetrar.
Um þessar mundir er verið
að byrja á skuttogurum, sem
verða aðalverkefni stöðvarinnar
næstu tvö árin.
Framundan eru því næg verk
efni og skortur á vinnuafli,
einkum plötusmiðum. Q
NÆSTA mánudagsmynd Borg-
arbíós cr Hvísl og hróp, áhrifa-
mikil, snilldarvel leikin verð-
launamynd frá hendi sænska
snillingsins Ingimars Bergirtans,
sem hefur einnig samið hand-
ritið. Myndataka: Sven Nykvist.
Tónlist eftir Chopin og Bach.
Aðalhlutverk leika Harriet
Andersson, Kari Sylwan, Ingrid
Thulin og Liv Ullmann. Myndin
er með íslenskum texta, Q
FYRSTA BINGÓIÐ
og það heldur K. A., verður í
Sjálfstæðishúsinu 20. þ. m. Þar
eru margir góðir vinningar. —
Sjá nánar f auglýsingu á öðrum
BLAÐIÐ ræddi litla stund við
dr. Halldór Pálsson búnaðar-
málastjóra á mánudaginn og
spurði hann um ástand og horf-
ur í landbúnaðarmálum, núna
á haustdögum. Búnaðarmála-
stjóri sagði þá meðal annars,
efnislega:
Þetta ár sýnist verða gott bú-
skaparár. En Austurland og
Norðausturland, allt til Eyja-
fjarðar er þó verr sett en aðrir
landshlutar, vegna erfiðrar hey-
skapartíðar í sumar.
Þegar á heildina er litið er
heyforði bænda eftir sumarið
sæmilegur, þótt hann sé allvíða
minni en í fyrra, en þá var
mikið heyskaparár.
Kal í túnum á Suður- og
Vesturlandi sunnanverðu dró
verulega úr uppskeru. En kalið
var þó ekki verra en það, að
það gréri að mestu í sumar.
Heyin eru mjög vel verkuð
sunnanlands og vestan og einn-
7.. Jin
segir dr. Ilalldór Pálsson bímaðarmálastjóri
ig á Norðurlandi vestanverðu,
allt austur fyrir Eyjafjörð.
Vegna hagstæðrar veðráttu á
öllu þessu landsvæði þornaði
ia var
eitthvað léttara en í fyrrahaust,
en sauðfjárslátrunin stendur
enn yfir. Á sumum stöðum á
Snæfellsnesi og raunar víðar
virðist féð þó vera vænna, þótt
hitt sé algengara, að því er
fregnir herma. Ymsir bændur
hér á Suðvesturlandi tala um
kílói minni meðalvigt nú en í
fyrrahaust. Trúað gæti ég að
hcildarmunurinn yrði svona
hálft kíló yfir landið allt.
í sumar var 1.7—1.8 milljón
fjár á fjalli. Tvílembingar urðu
með allra flesta móti, enda féð
yfirleitt ágætlega fóðrað í fyrra
vetur. Lömbin voru ágætlega
væn um rúning á Suðurlandi og
bændur áttu von á vænum dilk-
um í haust. En dilkarnir voru
smáir í haust og vita menn
ógjörla hvað veldur. En líkleg
örsök er sú, að grös hafi trénað
venju fyrr að þessu sinni og því
orðið tormeltari og ekki eins
ii var el!d
auðug af eggjahvítu. En dilk-
arnir flokkast vel þótt þeir séu
fremur léttir.
Fé mun ekki fjölga verulega.
Mörgum finnst þegar of mikið
í högum, aðra vantar húsakost.
Enn má nefna, að bændur eru
uggandi yfir stórhækkun áburð
arverðs. En veruleg fjölgun fjár
krefst aukinnar beitar á ræktað
land.
Nautgripabúskapurinn hefur
gengið vel á árinu, sérstaklega
mjólkurframleiðslan. Mikið er
um nautaeldi til slátrunar, en
verðfall hefur orðið á þeirri
vöru erlendis. Innanlands vant-
aði þessa vöru tilfinnanlega á
markað fyrir fáum árum. Nú er
sá markaður fullnýttur og kjöt-
fjall hefur myndast í Evrópu.
Þessi grein nautgriparæktar-
innar er að heita má ný hér á
landi og bændur hafa ekki náð
föstum tökum á framleiðslunni,
ncma stöku menn. Á markaðinn
koma skepnur, sem hvorki eru
(Framhald á blaðsíðu 2)
SMIÐAÐ I AROSUM OG HLAUT NAFNID TYR
HINN 10. október var hinu nýja
varðskipi Landhelgisgæslunnar
lileypt af stokkunum í Árósum.
Hlaut það nafnið Týr og gaf frú
Dóra Guðbjartsdóttir, kona
Olafs Jóhannessonar dómsmála-
ráðherra, því nafn við hátíðlega
athöfn. Meðal annars lék hljóm-
sveit íslenska þjóðsönginn, er
varðskipið rann í sjóinn við
fögnuð viðstaddra.
Týr er 600 tonna stálskip og
samkvæmt samningi á skipið að
kosta 30 milljónir danskra
króna. Um 250 manns hafa unn-
ið að smíðinni og er talið, að
smíði skipsins ljúki í febrúar á
næsta ári. Q
Dr. Halldór Pálsson.
heyið eftir hendinni og grasið
varð því ekki úr sér sprottið að
þessu sinni. Efnagreiningar
liggja þó ekki fyrir á heyinu frá
í sumar, en fréttir hafa borist
af því suðvestanlands, að of lítið
kunni að vera af steinefnum í
töðunni.
Meðalfall dilka mun verða
Eldfjallasföðin formlega opnuð
VILHJÁLMUR Hjálmarsson
menntamálaráðherra opnaði
formlega Norrænu eldfjallastöð
ina með viðhöfn í Norræna hús-
inu hinn 12. október sl. Stjórnar
formaðurinn, prófessor Arne
Nýgaard, flutti ávarp við það
tækifæri. Eldfjallastöðinni voru
settar reglur 1973. Hlutverk
hennar eru rannsóknir á eld-
fjöllum og að veita ungum jarð-
fræðingum menntun og tæki-
færi til starfa á sviði eldfjalla-
rannsókna. Til húsa er hún í
Jarðfræðideild Háskólans.
Norðurlandaráð kostar rekst-
ur stöðvarinnar á sama hátt og
önnur sameiginleg verkefni.
Forstöðumaður stöðvarinnar
er Guðmundur Sigvaldason. Q