Dagur - 13.11.1974, Side 1
ODÝRA ISLENZKA
TANNKREMIÐ
r Á N\N K R E M
LVII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 13. nóv. 1974 — 49. tölublað
FILMUhúsid akureyri
Akureyri - Reykjavík
Frumvarp um að byggja veginn upp á 3-4 árum
með 1200 millj. kr. happdrættisskuldabréfum
LAGT er fram á Alþingi frum-
varp til laga um happdrættis-
lán ríkissjóðs, fyrir hönd Vega-
sjóðs, sem gerir ráð fyrir út-
gáfu happdrættisskuldabréfa að
fjárhæð 1200 milljónir króna.
Fjármunum þessum skal varið
til að kosta uppbyggingu Norð-
urvegar, milli Akureyrar og
Reykjavíkur. Skuldabréfin eru
verðtryggð, undanþegin fram-
talsskyldu, vextir og vinningar
skattfrjálsir. Ráðherra setur
reglugerð um framkvæmd út-
boðsins að fengnum tillögum frá
Seðlabanka íslands.
Frumvarp þetta fluttu Eyjólf
ur Konráð Jónsson o. fl. á síð-
asta þingi, en það fékk ekki
fullnaðarafgreiðslu þá vegna
þingrofsins.
Flutningsmenn nú eru: Eyj-
ólfur K. Jónsson, Ingvar Gísla-
son, Pálmi Jónsson, Páll Péturs
son, Halldór Blöndal, Stefán
Valgeirsson og Friðjón Þórðar-
son.
í greinargerð með frumvarp-
inu kemur fram að ráðgert er
að ljúka varanlegri gerð Norður
vegar á 3—4 árum. Þar er þess
og getið, að vegur þessi komi
ekki einungis norðlenskum
bvggðum að gagni, heldur einn-
ig Vesturlandi, Vestfjörðum og
Austfjörðum. í héruðum, sem
þessi vegur liggur um, búa um
35.000 manns eða 40% lands-
manna utan Reykjavíkur. Hann
er helsta landsamgönguleið
milli landshlutanna. □
Skíðahótelið í Hiíðarfjalli við Akureyri.
Ferðainálaráðstefna Fi órðmigssambands
Dagur
kemur út á laugardaginn. —
Ilúsavík, 11. nóvember. Laugar
daginn 9. nóvember var haldin
á Húsavík ráðstefna um ferða-
mál á vegum Fjórðungssam-
arsfofn
unarinnor á Húsavík
Húsavík, 11. nóvember. Hinn 8.
nóvember sl. tók formlega til
starfa á Húsavík útibú frá Haf-
rannsóknarstofnun íslands. Hef
ur það fengið góða aðstöðu á
efstu hæð í Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur. í því tilefni efndi
sjávarútvegsráðherra, Matthías
Bjarnason, til hófs á Hótel Húsa
vík. í ræðu sem ráðherrann
flutti í hófinu, þakkaði hann
bæjarstjórn Húsavíkur og
stjórn og framkvæmdastjóra
Fiskiðjusamlagsins fyrir góða
fyrirgreiðslu við að koma úti-
búinu upp og veita aðstöðu
fyrir það.
í ræðu, sem Jón Jónsson fiski
fræðingur, iorstjóri Hafrann-
sóknarstofnunar íslands, hélt í
hófi þessu, gat hann þess, að
Skjálfandaflói væri mikilvægur
uppeldisstaður fyrir þorsk.
Iiúsavík væri því mjög hentug-
MELKORKA SÝND
í LAUGARB0RG
LEIKFÉLAGIÐ Iðunn í Hrafna
gilshreppi hefur síðan í haust
æft sjónleikinn Melkorku eftir
Kristínu Sigfúsdóttur. Er þetta
sögulegt leikrit og hefur aldrei
áður verið sýnt allt á leiksviði.
Leikstjóri er Júlíus Oddsson frá
Akureyri.
Sjónleikurinn er í fimm þátt-
um og leikendur eru 17 talsins.
Með aðalhlutverkin, Melkorku
og Höskuld Dalakollsson, fara
frú Þuríður Sehiöt, Hólshúsum
og Stefán Aðalsteinsson, kenn-
ari í Hrafnagilsskóla.
Frumsýningin verður í Laug-
arborg á laugardaginn, 16.
nóvember, og hefst klukkan 9
síðdegis. Önnur sýning verður
kl. 2 á sunnudaginn. Q
ur staður fyrir útibú frá Haf-
rannsóknarstofnuninni.
Verkefni útibúsins verður, að
fylgjast með veiðum og stærð
fiskistofna fyrir Norðurlandi.
F orstöðumaður útibúsins er
Vilhjálmur Þorsteinsson, dýra-
fræðingur. Þ. J.
í Tímanum á sunnudaginn er
eftirfarandi grein:
„Undirbúningi byggðalínunn-
ar svonefndu, sem tengja á sam
an rafveitukerfi Norður- og
Suðurlands er nú lokið, að sögn
Egils Skúla Ingibergssonar for-
manns bygginganefndar bvggða
linunnar. Búið er að kaupa 1300
slaura, sem fengust með tiltöln-
lega góðum kjörum. Og útboðs-
lýsingar á efni og vinnu eru
tilbúnar. Næsta skrefið er, að
endanleg ákvörðun um fjár-
veitingu til iramkvæmda verði
tekin og telur byggingarnefnd
að þeir ráðamenn, sem málið
heyrir undir, geri það mjög
fljótlega.
— Hver dagur er dýrmætur,
ef takast á að ljúka tilskildum
hluta verksins . fyrir áramótin
1975—76, eins og áformað hefur
verið, sagði Egill Skúli Ingi-
bergsson.
Það ríður á að hraða endan-
legri ákvörðun um fjármálin ef
línan á að koma að einhverju
bands Norðlendinga. Ráðstefn-
an var haldin á Hótel Húsavík
og sátu hana 64 manns. Undir-
búning annaðist Áskell Einars-
son, framkvæmdastjóri Fjórð-
ungssambandsins.
Ráðstefnu þessa setti Jón
Illugascn, oddviti Skútustaða-
hrepps, formaður ferðamála-
nefndar Fjórðungssambandsins.
Fundarstjóri var Guðmundur
Bjarnason, forseti bæjarstjórn-
ar Húsavíkur. Framsöguerindi
fluttu: Lúðvík Hjálmtýsson,
framkvæmdastjóri, Vilhjálmur
Lúðvíksson, verkfræðingur,
Ragnar Ragnarsson, hótelstjóri,
Leopold Jóhannesson, veitinga-
maður og Tómas Zöega, ferða-
skrifstofustjóri.
Stuttar greinargerðir um
ferðamál í einstökum héruðum
á Norðurlandi fluttu: Björn
Friðfinnsson um Húsavík og
Þingeyjarsýslur, Hermann Sig-
tryggsson um Eyjafjörð og Ak-
ureyri og Guðrún Ásgeirsdóttir
um Skagafjarðarbyggðir.
Fram kom tillaga til ferða-
málanefndar Fjórðungssam-
Dalvík, 12. nóvember. Þegar
togarinn Baldur, eign Utgerðar
félags Aðalsteins Loftssonar,
kom sl. mánudagsnótt með 170
—180 tonn af fiski til Dalvíkur,
tók liann niðri £ höfninni. Var
sjór ókyrr en þó ekki neitt óláta
bandsins um, að gefin verði út
ferðabæklingur fyrir allt Norð-
urland. Ennfremur kom fram
illaga um, að í Fcrðamannaráði
íslands, sem skipað er 9 mönn-
um, eingöngu Reykvíkingum,
verði a m. k. 3 Norðlendingar.
Talið er eðlileg, að fjórðung-
arnir hafi menn í ráðinu. Þ. J.
veður. Togarinn sigldi til Akur-
eyrar. Þangað voru menn og
sendir til uppskipunar og afl-
anum svo ekið á bílum til Dal-
víkur. Ekki er togarinn talinn
skemmdur. En auðséð er, að
auka þarf dýpi hafnarinnar á
Dalvík.
Togarinn flúði inn fil Akureyrar
Nú er örlítið snjóföl á Dal-
vík og í sveitum hér í kring,
en sæmilegt veður
Karlakór Dalvíkur æfir af
kappi, undir stjórn Gests Hjör-
leifssonar söngstjóra síns. Mun
hann síðar láta til sín heyra.
V. B.
Akureyrartogararnir
gagni síðari hluta vetrar 1975—
76, en þegar er afgreiðslufrestur
orðinn býsna langur á ýmsu
efni til framkvæmdanna Áætlað
er, að lagningu línu frá Anda-
kílsvirkjun í Borgarfirði að Lax
árvatnsvirkjun við Blönduós
verði lokið fyrir áramótin 1975
—76, en hún verður 150 km að
lengd. Þessi lína verður rekin á
66000 volta spennu til að byrja
með, en það leyfir flutning á
orku, sem nemur 4—6 Mega-
wöttum, til Norðurlands.
Áætlað er að línan verði full-
gerð haustið 1976 og nái frá
Andakíl í Varðahlíð. Eftir það
verður spennan 132 þúsund volt
og flutningsgetan vex upp í um
16 Megawött.
Samkvæmt athugunum getur
þessi nýja lína sparað í diesel-
keyrslu fram undir áramót 1978
frá 75 milljónum kwh, ef allan
tímann væri keyrt á 66 kíló-
vatta spennu, en verði hún
hækkuð í 132 kílóvolt, sem er
stefnan og línan er búin til fyr-
ir, þá væri hugsanlegur orku-
vinnslusparnaður með diesel-
vélum 120—130 milljón kwh.
Byggingarnefnd byggðalín-
unnar hefur lagt gögn sín fyrir
fjárveitingavaldið, en ráðamenn
eru nú að kynna sér málin áður
en endanleg afstaða verður tek-
in.“
Norðlendingar munu fylgjast
vel með þessu máli. Q
Sauðárkróki, 11. nóvember. Á
Sauðárkróki eru hafnar fram-
kvæmdir á fjórtán íbúða fjöl-
býlishúsi. Það er Sauðárkróks-
bær, -sem byggir þessar íbúðir,
samkvæmt lögum um byggingu
þúsund leiguíbúða með sér-
stakri fyrirgreiðslu hins opin-
bera. Samið hefur verið við
byggingafélagið Hlyn á Sauðár-
króki um þessar framkvæmdir.
Ráðgert er að steypa grunninn
FRÁ skrifstofu Útgerðarfélags
Akureyringa h.f.
Harðbakur landaði 82 tonnum
7. nóvember.
Sólbakur landar um 90 tonn-
um í dag.
Svalbakur landaði 130 tonn-
um 4 nóvember.
Sléttbakur landaði um 120
tonnum í gær. Q
í haust en halda síðan áfram
að vori.
í sumar var hafin bygging á
heimavist við gagnfræðaskólann
og er búið að steypa jarðhæð-
ina. Einnig eru miklar fbúða-
byggingar á Sauðárkróki og
byrjað á allt að 25 íbúðum á
þessu ári, og eru þær misjafn-
lega langt komnar Meginhluti
hinna nýju íbúða er á Sauðár-
hæðum. G. Ó.
búðsrhveríi á Sauðárhæðum