Dagur - 16.11.1974, Blaðsíða 3

Dagur - 16.11.1974, Blaðsíða 3
3 Fæst í kaupfélaginu wHúsnæðim Tæknifræðingur óskar eftir 2ja—3ja Iierbergja íbúð frá næstu áramót- um. Þrennt í heimili. Uppl. í símuin 1-14-07 og 2-35-14. Eldri kona óskar eftir lítilli íbúð eða lierbergi til leigu. Uppl. í síma 2-38-94. Fundið SVÍN hefur fundist. Uppl. hjá Jóni V. Árna- syni Lækjagötu 11, Akureyri. wSala ' Vönduð harmonikka (Axelcure) til sölu. Til sýnis hjá Pálma í Tónabúðinni á Akur- eyri. Baldur Baldvinsson, Hnjúki. Til sölu Suzuki vélhjól, vel með farið árg. 1973 ekið rúma 5.000 km. Uppl. í síma 2-33-33. r NORÐURL RÆKTUNARFÉLAG Norður- lands var stofnað 1903 og er það því komið á áttræðisaldur. Tilgangur þess var í upphafi og er enn, að styðja alls konar til- raunir og framfarir í landbún- aði á Norðurlandi og útbreiða meðal almennings þekkingu á öllu því, er að landbúnaði lýtur og líkindi eru til að geti komið að gagni. Lengi framan af var félagið opið einstaklingum en 1952 var lögum þess breytt á þann veg, að aðalfélagar frá þeim tíma eru búnaðarsambönd in í Norðlendingafjórðungi. Skyldi félagið starfá sem tengi- liður milli búnaðarsamband- anna. Árið 1965 stofnsetti Rækt unarfélagið rannsóknarstofu, sem það hefur rekið síðan Á rannsóknarstofunni hefur verið unnið að þjónustu fyrir bændur á Norðurlandi; efnagreind mold úr túnum og rannsökuð gæði töðunnar. Leiðbeiningar út frá þessum efnagreiningum, bæði um áburðarnotkun og fóðrun, eru síðan sendar bændum. Þessi efnagreiningaþj ónusta við bændur er unnin í nánu sam- starfi við búnaðarsamböndin og ráðunauta þess. Hafa á þann hátt skapast tengsl hjá leiðbein ingaþj ónustunni hér á Norður- landi. Er það í samræmi við til- gang Ræktunarfélagsins. Aðalfundur Ræktunarfélags- ins er haldinn árlega. Á aðal- fundi eiga fulltrúarétt allir bún- aðarþingsfulltrúar í Norðlend- ingafjórðungi og auk þess er einn fulltrúi frá hverju búnaðar sambandi kosinn á aðalfundi þess. Venja er orðin að bjóða sérstaklega á þessa fundi öllum ráðunautum fjórðungsins og þeim formönnum búnaðarsam- bandanna sem ek-ki erú full- trúar. Aðalfundirnir eru, auk þess að vera æðsta vald í mál- efnum félagsins, einkar vel til þess fallnir að auka tengsl á milli búnaðarsambandanna. Á fyrstu árum Ræktunarfélagsins, var aðalfundur 'þess haldinn til skiptis í hinum ýmsu héruðum fjórðungsins, en nú um alllangt árabil hafa þeir. verið haldnir á Akureyri. Á liðnu hausti ákvað stjórn félagsins að breyta út af þessari venju og hefja upp aftur gamlan sið og halda fund i öðru héraði. Varð Húnavatnssýsla fyrir valinu og aðalfundurinn haldinn í Húnavallaskóla við Svínavatn 6. sept. sl. Fulltrúar fjölmenntu á fundinn og tókst þessi nýbreytni með ágætum. Á aðalfundinum voru lagðar fram skýrslur starfsmanna fé- lagsins, þeirra Jóhannesar Sig- valdasonar og Þórarins Lárus- sonar. í skýrslunum kom fram að efnagreind höfðu verið 1775 jarðvegssýni og 1200 heysýni fyrir bændur á starfsárinu 1973—74. Voru jarðvegssýnin frá 204 bændum en heysýnin frá 365 bændum. Búið er nú að taka jarðvegssýni úr túnum flestra bænda á Norðurlandi nema V.-Hún. og N.-Þing., en þar eru nokkrir hreppar eftir enn. Þá var á fundinum að venju gengið frá fjárhagsáætl- un fyrir næsta ár og eru niður- stöðutölur hennar 5,6 milljónir, hvar af er reiknað með að 1,7 millj. fáist fyrir efnagreiningar, 1,5 millj. er beinn styrkur frá búnaðarsamböndunum en af- gangurinn er úr ríkiskassanum. Frá áramótum 1973—74 urðu Jóhannes Sigvaldason og Þór- arinn Lárusson ráðunautar fé- lagsins og komust þannig á sömu launakjör hjá ríkinu og' aðrir héraðsráðunautar. Var það mikill fjárhagsléttir fyrir Venja er að hafa fyrirlestur um eitthvert efni búskap tengt á aðalfundum Ræktunarfélags- ins. Að þessu sinni hélt Magnús B. Jónsson, skólastjóri á Hvann eyri, erindi um nautgriparækt. Fjallaði erindið um nýskipan kynbóta í nautgriparækt hér- lendis. Var erindið hið athyglis- verðasta. Nokkrar umræður urðu á fundinum um leiðbeiningar meðal bænda og þá einkum og sér í lagi fyrirkomulag bænda- námskeiða sem áætlað er að reyna að endurvekja. Ýmis önnur mál voru og rædd. Kvenfélagið í Torfalækjar- hreppi sá um veitingar á fund- inum og eiga þær konur úr félaginu, er að þeim stóðu, miklar þakkir skildar fyrir góð- an mat og framreiðslu hans. í stjórn Ræktunarfélags Norð urlands eru: Egill Bjarnason, ráðunautur, formaður, Helgi Jónasson, Grænavatni, ritari og Bjarni Guðleifsson, tilrauna- stjóri, meðstjórnandi. |) (Fréttatilkynning) Sjálfvirki ofnkraninn Ný gerö ■ öruggur ■ einfaldur • smekklegur Kraninn með innbyggt.þermóstat er hvíldarlaust á verði um þægindi heimilisins, nótt og dag afstýrir hann óþarfa eyðslu og gætir þess, aö hitinn sé jafn og eðlilegur, þvf aö hann stillir sig sjálfur án afláts eftir ; hitastigi loftsins í herber-ginu. Fyrir tilstilli hans þurfið þér aldrei aö kvíöa óvæntri upphæö á reikningnum, né þjást ti! skiptis af óviðráðanlegum hita og kulda í eigin i ibúö, af þvi að gleymdist aö stilla krana eða engjnn vai, til aö vaka yfir honum. - KAUFÉLAG EYFIRÐINGA BYGGINGAVÖRUDELD AKUREYRI <

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.