Dagur - 19.03.1975, Blaðsíða 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Hornsteinar
atvinnulífsins
Starfsemi Kaupfélags Eyfirðinga er
margþætt. Það hefur mikinn versl-
unarrekstur, vinnslu og sölu sjávar-
vara og búvara, umboðssölu, þjón-
ustudeildir, verksmiðjurekstur, út-
gerð og fjölmörg útibú í bæ og
byggð. Heildarvelta félagsins síðasta
ár varð á sjötta milljarð og er KEA
skipað á bekk með stærstu fyrirtækj-
um landsins. Eastráðnir starfsmenn
þess eru á sjötta hundraðinu mörg
síðari árin, en félagsmenn um sex
þúsund. j
Eyfirskir bændur stofnuðu félagið
og mörkuðu stefnu þess í upphafi.
Það varð lyftistöng í héraðinu og
efldi Akureyri sem liöfuðstað Norð-
urlands og gerði hana ásamt sam-
vinnuverksmiðjunum hlutfallslega
mestan samvinnubæ, sem þekkist.. .
Á síðustu tímum óttast menn at-
vinnuleysi meira en flest annað.
Nokkra launaskerðingu þola margir
og á þá þolinmæði liefur reynt veru-
lega, en atvinnuleysi þola hvorki
heimilin né þjóðarbúið. Hundruð
verkalýðsfélög undir forystu Alþýðu
sambands íslands búa sig undir átök
á vinnumarkaðinum, ef tilraunir til
kjarasamninga, sem nú standa yfir,
bera ekki viðunandi árangur. Ef illa
fer í því efni og atvinnuvegir stöðv-
ast uin lengri eða skemmri tíma, er
vá fyrir dyrum. Ef atvinnuleysi af
svonefndri samdráttarstefnu stjórn-
valda verður staðreynd, sein óttast
er, er einnig vá fyrir dyrum. Þessi
tvöfaldi vandi gæti lagst á þjóðina
með ofurþunga og mætti þá segja,
að ógæfunni yrði allt að vopni.
Þar sem þróttmikil félög sam-
vinnumanna starfa, er síður hætt við
atvinnuleysi af völdum almennrar
samdráttarstefnu. Hér á Akureyri
hrynur atvinnulífið ekki í rúst á
meðan Kaupfélag Eyfirðinga og Sam
bandið lialda í horfinu með sitt 1200
manna starfslið, Slippstöðin með 200
iðnaðarmenn liefur verkefni og tog-
araútgerð bæjarins, sem enn er að
bæta við sig nýjum togara, leggur
afla á land. Þetta era stærstu fyrir-
tækin, fyrir utan sjálft bæjarfélagið,
en nær óteljandi önnur þörf og at-
vinnuskapandi þjónustu- og fram-
leiðslufyrirtæki hafa að sjálfsögðu
ómetanlega þýðingu, hvert á sínu
sviði og sem ein lieild. Á erfiðum
tímum er mest ástæða til að standa
traustan vörð um þessa hornsteina
atvinnu og velmegunar. □
Bjarni E. Guðleifsson veitir til-
raunastöð Rannsóknarstofnun-
ar landbúnaðarins forstöðu,
fyrst í Gróðrarstöðinni en nú á
Möðruvöllum í Hörgárdal. Blað
ið hitti tilraunastjórann nýlega
að máli og svaraði hann góð-
fúslega nokkrum spumingum
um hina norðlensku tilrauna-
stöð, sem nú er komin út í
sveit.
Rannsóknarstofnunin rekur
fleiri tilraunastöðvar?
Já, í öllum landsfjórðungum.
Fyrir Austurland á Skriðu-
klaustri, fyrir Norðurland á
Möðruvöllum, fyrh- Vesturland
á Reykhólum og fyrir Suður-
land á Sámsstöðum. Ennfremur
er svo fjárbú á Hesti í-Borgar-
firði og tilraunir eru á báðum
bændaskólunum á þeirra eigin
vegum.
I
Nú eruð þið fluttir frá Akur-
eyri til Möðruvalla?
Við fluttum á síðasta ári. Það
var fyrirsjáanlegt, að hér þurfti
að leggja í fjárfrekar frám-
kvæmdir til að halda tilrauna-
starfseminni áfram og þótti
ekki ráðlegt að gera þáð hér í
þéttbýlinu. Ríkið á hins vegar
Möðruvelli og það varð að ráði,
að flytja tilraunastarfsemina
þangað, á hálflenduna, þar sem
áður bjó Eggert Davíðsson, en
á hinni hálflendunni býr séra
Þórhalluf Höskuldsson sóknar-
. prestur.. Á Möðruvöllum er
unnt að byggja upp veglegá til-
raunastöð, því landrými er þar
mikið og staðurinn er að ýmsu
leyti góður. Ráðsmaður á til-
raunastöðinni á Möðruvöllum
er Björn Pálsson.
Verður um breytingar að
ræða í tilraununum?
Það er ætlunin. Það hefur
verið of mikið um það að ræða
í tilraunastarfseminni hér á
landi, að tilraunaflokkum hefur
verið skipt og þeir einangraðir
um of. Til dæmis hefur bútækni
verið rannsökuð á einum stað,
heyverkun sér, jarðrækt sér og
búfjárrækt sér. Núverandi
stefna beinist nú meira að því,
að tengja þetta meira saman á
hverjum stað. Fylgjast þarf
með framleiðslunni frá grunni
og þar kemur jarðræktin fyrst,
þá áburðarnotkun og heyverk-
un, fóðrun og framleiðsla bú-
varanna, þar til hún kemur á
borð neytendanna. En allir eru
þættir þessir samtengdir í bú-
skapnum. Tilraunir í nautgripa
rækt og sauðfjárrækt verða
aðal viðfangsefnin, fyrir utan
jarðræktina sjálfa.
Hvaða bústofn liafið þið nú?
Við erum með 36 kýr og 170
fjár. Ætlunin er að hafa 50 kýr
og 200 fjár. En til þess vantar
okkur aðstöðu, meðal annars til
þess að geta nýtt sama búpen-
ing til margskonar tilrauna í
senn.
Hvaða aðstöðu vantar eink-
um?
Okkur vantar sérstakt til-
raunafjós fyrir 50 kýr, sem
áætlað var að byggja á þessu
ári, en verður líklega frestað að
sinni. En sérstakt tilraunafjós í
nautgriparækt hefur ekki verið
byggt hér á landi ennþá. Þær
tilraunir á þessu sviði, sem gerð
ar hafa verið. hafa farið fram í
Bjarni E. Guðleifsson, lilraimasljóri,
svarar nokkrum spurningum Dags
venjulegum framleiðslufjósum.
í tengslum við þetta reiknum
við með kálfafjósi, þar sem
fram fær,u tilraunir með upp-
eldi á kvígum og svo kálfum til
kjötframleiðslu, þar með holda-
gripum. En auk þess vantar
okkur aðstöðu til að gera sauð-
fjártilraunir. Á Möðruvöllum
eru að vísu nýleg fjárhús og
má breyta þeim í tilraunafjár-
hús, sem henta okkur, einkum
Bjarni E. Guðleifsson,
tilraunastjóri.
vegna þess hve stór þau eru,
taka um 400 fjár, en við reikn-
um með að hafa um 200 fjár.
En sú aðstaða, sem ekki hvað
síst vantar, eru íbúðarhús fyrir
starfsfólk og mötuneyti. Reikna
má með, að þegar allt er komið
í fullan gang, eins og maður
segir, vinni þarna um tíu
manns, þar af tveir sérfræðing-
ar, annar í jarðrækt en hinn í
búfjárrækt. Sérfræðingar Rann
sóknarstofnunar landbúnaðar-
ins, sem skipuleggja tilraunirn-
ar, eru búsettir syðra og vinna
einkum á Keldnaholti. Þeir
heimsækja tilraunastöðvarnar
úti á landi öðru hverju, stund-
um alls ekki. Þetta finnst mér
ótækt skipulag. Sérfræðingarn-
ir eiga að vera þar, sem tilraun-
irnar eru framkvæmdai' og
vinna við þær. Við stefnum að
því að fá tvo sérfræðinga og tel
ég mikils vert að svo verði.
Verður þá hægt að nýta bú-
féð betur, sem tilraunabúfé?
Já, miklu betur-en unnt hefur
verið á tilraunabúunum hingað
til. Það sauðfé skiptir þúsund-
um, sem er á öllum tih'auna-
stöðvunum og bændaskólunum.
En það er hægt að nota sama
féð í afkvæmarannsóknir og
fóðurtilraunir og það munum
við reyna að gera á Möðruvöll-
um. Við höfum allan búpening-
inn í tilraunum og sömu grip-
ina í fleiri en einni rannsókn,
sem er miklu hagkvæmara.
Hvaða rannsóknir eru í gangi
núna?
Enn erum við í raun og veru
að koma okkur fyrir á staðnum,
bæði í haust og vetur og er þó
margt ógert af því sem gera
þarf, bæði breytingar og lag-
færingar. Nú eru þarna
afkvæmarannsóknir á fyrsta
kálfs kvígum. Það eru afkvæma
hópar valinna nauta, sem áður
voru framkvæmdar á Lundi við
Akureyri, en þar mun sú starf-
semi leggjast niður. Afkvæma-
rannsóknum á stöðvum verður
hætt, en í þess stað verða þær
'gerðar samkvæmt skýrsluhaldi
úti á meðal bændanna sjálfra.
Snnfremur erum við með fóður
tilraunir hjá þessum kvíguhóp-
um. Beinast þær einkum að því
að finna getu þeirra til að nýta
heyfóðrið eingöngu. Hjá sauð-
fé erum við með samanburðar-
tilraunir í fóðrun, þar sem hey-
flokkurinn fær ekki korn af
kjarnfóðri, en hinn hey og
kjarnfóður. Það er helst á vor-
in, sem alger heyfóðrun getur
verið takmarkandi þegar tví-
lembur eiga í hlut. En vel hey-
aldar ær kunna að þola að
mjólka af sér holdin eftir burð.
En jarðræktartilraunirnar?
Þær hafa verið í Gróðrarstöð-
inni, en smátt og smátt verða
þær fluttar að Möðruvöllum, en
það er ekki hægt að flytja þær
á einu ári. í sambandi við jarð-
ræktina, vona ég að geta notað
eitthvað af gripunum við beitar
tilraunh' í sumar, bæði á tún
en fyrst og fremst á grænfóður-
land. Við höfum verið með
grænfóðurtilraunir í samvinnu
við Bændaskólann á Hólum.
Það er ekki nóg að slá græn-
fóðurtilraunir og vigta upp-
skeruna, heldur þarf að rann-
saka hvernig skepnur nýta það,
með því að taka það sjálfar á
vaxtarstaðnum. í jarðrækt eru
næstum óþrotleg tilraunaverk-
efni. En e. t. v. er sú spuming
nú mest brennandi, hvernig við
getum hagnýtt sem best hið
heimafengna fóður til fram-
leiðslu kjöts og mjólkur, til þess
að komast hjá að kaupa erlent
kjarnfóður í því mikla magni,
sem gert hefur verið.
Nautastöðin í Hrísey?
Henni er ég ekki vel kunnug-
ur, en það mál mun á réttri
leið, hvað snertir nauðsynlegar
byggingar og annan undirbún-
ing. Meginatriði nautastöðvar í
Hrísey, er að fá sæði úr erlend-
um holdanautum til holdanauta
kjötsframleiðslu. En áhugi á
því máli hefur verið mikill og
vakandi hjá bændastéttinni
mörg undanfarin ár. Sennilegt
er, að tilraunastöð okkar muni
síðar fá það verkefni að rann-
saka ýmsa þætti í fóðrun á
holdanautablendingunum.
Að lokum, Bjarni?
Það eru margir aðilar, sem
starfa saman að hinum ýmsu
þáttum leiðbeininga- og rann-
sóknarstarfs. Má þar nefna
Rannsóknarstofu Norðurlands,
búnaðarsamböndin á Norður-
landi og ráðunauta þess, Nátt-
úrugripasafnið, Bændaskólann
á Hólum og tilraunastöðina á
Möðruvöllum. Forstöðumenn
allra þessara aðila vinna vel
saman og er það mikils virði.
Að síðustu tel ég, að áherslu
beri að leggja á tilraunir í græn
fóðurrækt og nýtingu þess,
einnig áhrif beitar og sláttutíma
á túngrösin. Þá hef ég alltaf
áhuga á kalrannsóknum, þótt
ég hafi ekki getað sinnt þeim
sem skyldi. Stöðin er nú vel
staðsett fyrir þær rannsóknir.
Vísindasjóður hefur veitt okkur
Herði Kristinssyni á Náttúru-
gripasafninu fé til rannsókna á
kalsveppum, sem við fundum
og geta átt einhvern þátt í svo-
kölluðum kalskemmdum á tún-
um. Þessir. sveppir höfðu ekki
fundist hér áður, svo sannað
væri. Þetta eru einskonar
myglusveppir, sem eiga veru-
legan þátt í gróðurskemmdum
erlendis. Eftir langvarandi
snjóalög eins og nú, ættu þessir
sveppir ekki að leyna sér þegar
snjóa leysir, segir Bjarni E.
Guðleifsson tilraunastjóri að
lokum og þakkar blaðið svör
hans. E. D.
Ýmisleöt ~
Bókin HÚNAÞING er
til afgreiðslu lijá Bjama
Jónssyni úrsmið c/o Jón
Bjarnason Hafnarstræti
94, Akureyri.
Þeir félagar í Ung-
mennafélaginu Dags-
brún og kvenfélaginu
Gleym-mér-ey, sem ætla
að taka þátt í hnýtinga-
námskeiði, láti skrá sig í
síma 2-19-27 fyrir sunnu
dagskvöld 23. mars.
f Skemmtanir
SPILAKVÖLD 2 verð-
ur lialdið í Hlíðarbæ
(Félagsheimili Glæsi-
hæjarlirepps) laugar-
daginn 22. marz, og hefst
kl. 20,30.
ATH. Ágóðanum verð-
ur varið til kaupa á
píanói fyrir Hlíðarbæ.
Nefndin.
Lögfræði og fast-
eignaskrifstofan
Ráðhústorgi 1,
sími 2-22-60.
TIL SÖLU:
Stór íbtið í Helgamagra-
stræti.
Raðhús tilbúið undir
tréverk.
3ja herbergja íbúð við
Skarðshlíð.
4ra herbergja íbúð við
Þórunnarstræti.
5 herbergja íbúð við
Aðalstræti.
2ja herbergja íbúð við
Aðalstræti.
2ja herbergja íbtið við
Gránufélagsgötu.
Raðhiis, ekki fullfrá-
gengið.
STEINDÓR
GUNNARSSON,
lögfræðingur.
5
Umf. LJÚTUR sextíu ára
Fréttabréf úr Laxárdal. Ung-
mennafélagið Ljótur varð sex-
tugt 28. febrúar og var þess
minnst með samsæti að kvöldi
afmælisdagsins. Þar voru flestir
íbúar dalsins saman komnir og
einnig var boðið gömlum félög-
um, búsettum utansveitar, eftir
því sem til náðist og varð hófið
vel sótt. Samkoman hófst með
borðhaldi og var rausnarlega
fram borið. Yfir borðum var
söngur og ræðuhöld, síðan var
spilað og að lokum dansað fram
undir morgun, og skemmtu
allir sér vel.
Góðar gjafir bárust félaginu.
Frú Halla Jónsdóttir á Þverá
gaf 10 þúsund krónui' og Kven-
félag Laxdæla 10 þúsund kr.
Sex af stofnendum félagsins
eru enn á lífi, en því miður gat
enginn þeirra mætt í afmælinu.
Á öðru starfsári sínu hóf fé-
(Framhald af blaðsíðu 8)
sem hafa mjög rýmað á síðasta
og þessu ári. Kröfumar miðast
við þann kaupmátt launa, er
samið var um fyrir einu ári, og
því marki vill Alþýðusamband
Islands ná í áföngum. Má segja,
að enn hafi baráttan farið hóf-
samlega fram og kröfurnar ekki
hærri en búast mátti við, enda
naumast grundvöllur fjrrir veru
legum kauphækkunum í þeirri
lægð viðskiptakjara erlendis og
efnaliagsmála, sem þjóðin nú
býr við. Hin mikla atvinna um
land allt skiptir auðvitað mestu
máli og munu aðilar vinnumark
aðarins sammála um það, að
framhald fullrar atvinnu eigi að
setja öðru ofar í efnahagsmál-
um og kaupgjaldsaðgerðmn.
AUÐVELT VERÐUR
AÐ SVÍKJA
Það hlýtur að hafa verið erfitt
fyrir raforkuráðherra Iandsins,
bankastjóra Seðlabankans og
Morgunblaðið, að lofa ákvörð-
unartöku um Blönduvirkjun á
þessu ári. Þeir erfiðleikar stafa
að því, samkvæmt ummælum
orkumálastjóra, Jakobs Björns-
sonar á sama tíma, að enn vant-
ar tveggja til þriggja ára rann-
sóknir við Blöndu, sem kosta
munu, að hans áliti, 60 milljónir
Bifreidir
Saab 96 eða Peugeot 404
óskast. — Aðeins vel með
farinn híll af árgerð
1972 eða yngri kemur til
greina. — Uppl. gefur
Ásgrímur í síma 22143
milli kl. 7 og 8 e. h.
Til sölu Volkswagen ‘63
í góðu ásigkomulagi.
Vél keyrð 40 þúsund.
Uppl. gefur Eggert í
síma 11498.
TIL SÖLU:
Comet árg. ’74.
Cortína árg. ’74.
Volvo árg. ’73.
Saab 95 árg. ’73.
Úrval annarra bíla.
Látið skrá bílinn
hjá okkur.
Tökum bíla í sýningar-
sal.
BÍLASALINN,
Tryggvabraut 12,
sími 1-11-19.
lagið að safna fé til samkomu-
húsbyggingar, því samkomuhús
hafði ekki verið í Laxárdal.
Unnið var við heyskap þannig,
að bændur gerðu tilboð í vinn-
una, allir voru skyldugir að
vinna eða greiða; þá upphæð,
sem boðin var. Fyrstu árin var
unnið í 10 tíma en síðan styttra.
Heyskapardagarnir voru einnig
skemmtidagar, því þá voru ekki
samkomur um hverja helgi. Þá
voru einnig hlutaveltur og
fleira var gert til fjáröflunar.
Félagið byggði svo samkomu-
húsið 1933—1934, alveg af eigin
aflafé og var það vígt á 20 ára
afmæli félagsins 1935. Að vísu
var ýmistegt eftir, en unnið var
að fullnaðarfrágangi næstu ár-
in. Fyrsti formaður var William
Pálsson á Halldórsstöðum, en
núverandi formaður er Jón
króna, en fjárveitingin á þessu
ári er 5 milljónir. En hversu
erfitt, sem loforðið er, verður
auðvelt að svíkja það, þegar
innt verður eftir efndum. Þá
mun orkumálaráðherra hefja
upp raust sína, mæla spámann-
lega að vanda og kveða upp
þann Salomonsdóm, að því mið-
ur séu ramisóknir of skannnt á
veg komnar til ákvörðunartöku.
Hins vegar séu fleiri fallvötn
álitleg og verði þau nú rann-
sökuð og unnið að því með
festu og öryggi, að hraða undir-
búningi virkjunarframkvæmda.
AÐ LEYNA VANDANUM
Síðasti íslendingur hefur það
eftir bæjarfulltrúum sínum, að
þeir hafi setið hjá við loka-
afgreiðslu fjárhagsáætlunar Ak
ureyrarkaupstaðar fyrir árið
1975, vegna þess að meirihlut-
inn hafi viljað leyna vanda
bæjarsjóðs Akureyrar fyrir
borgurunum. Hið sanna er, að
frá erfiðleikum bæjarsjóðs hef-
ur oft verið sagt í Degi og aðrir
fjölmiðlar ha afbaft hið sama
eftir bæjarstjóra.
SKUTU SÉR UNDAN
VANDANUM
Tillögur bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins við lofaafgreiðsl
una, báru það með sér, að þeir
vildu ekki viðurkenna vandann
og voru á móti öllum tillögum,
sem gerðar voru til að mæta
honum. Fyrir lágu upplýsingar
um takmarkaða fyrirgreiðslu
lánastofnana. Þess vegna varð
að draga úr útgjöldum svo sem
framast var unnt og það var
gert. Eins og vant er, vildu sjálf
stæðismenn skjóta sér undan
þessum vanda og því sátu þeir
hjá og þykir engum stórmann-
legt.
Atvinna
Tek að niér að GÆTA
BARNA heilan eða
liálfan daginn.
Uppl. í síma 21269.
Tvær ungar stúlkur óska
eftir VINNU.
Uppl. í síma 1 10 67.
Kona óskast til að gæta
8 mánaða harns frá kl.
1—7 á daginn, helst á
Oddeyrinni. — Uppl. í
síma 22864 frá kl. 7-9
e. h.
Húsnæði
Óskum eftir að taka
ÍBÚÐ Á LEIGU sem
fyrst. — Uppl. í sínia
22864 frá kl. 7-9 e. h.
Tvær ungar stúlkur óska
eftir 2—3 herbergja
íbúð. Fyrirframgreiðla
ef óskað er.
Uppl. í síma 11067.
Ungan og reglusaman
mann vantar
HERBERGI.
Lítil þriggja herbergja
ÍBÚÐ til sölu á Eyrinni.
Sími 2-14-09.
Tapaö
Þrílitur
KETTLINGUR,
hvítur með hrúnum og
svörtum deplum, tapað-
ist frá Vanabyggð 8 á
sunnudagskvöldið.
Finnandi vinsamlegast
liafi samband við síma
2-24-35.
Tapast hefur pakki með
fjóram kaffidúkum.
Skilvís finnandi hafi
samhand í síina 2-25-89.
Kaua
VIL KAUPA
þokkalegan skúr. Þarf
að vera færanlegur.
Upplýsingar í síma
23810, kl. 7-9, á kvöldin.
Vil kaupa gamla eins
manns SVEFNBEKKI
með skúffu.
Uppl. í síma 21409.
Til sölu nýlegur
Evenrude SNJÓSLEÐI,
30 lia., með bakkgír.
Uppl. í síma 2-28-40.
Nýlegur Rex-Rotary
1050 FJÖLRITARI
til sölu, sjálfvirkur.
Einnig góð
RAFMAGNSRITVÉL
Uppl. í sírna 2-17-70
á kvöldin.
Til sölu er 5 vetra
HRYSSA, einnig á sama
stað vatnabátur. Uppl.
í símum 61212 á daginn
og 61266 eftir kl. 7
á kvöldin.
Notaður BARNAVAGN
til sölu.
Uppl. á kvöldin í
Grænugötu 10 (kjallara)
.Jónasson á Þveráí ' G. Tr. G.
SMÁTT & STÓRT
Uppl. í síma 1-10-55
frá kl. 4—7 e. h.
STÚLKUR:
Agnes Sverrisdóttir, Grundar-
gerði 8 c
Anna Óðinsdóttir, Lerkilundi 7
Birna Dúadóttir, Eyrarlands-
vegi 29
Bryndís Viðarsdóttir, Hafnar-
stræti 29
Eygló Svanhvít Tryggvadóttir,
Eyrarvegi 8
Freydís Ágústa Halldórsdóttir,
Langholti 8
Guðrún Bjarney Leifsdóttir,
Goðabyggð 17 .
Guðrún Hulda Sigtryggsdóttir,
Víðimýri 9
Halla Björk Ragnarsdóttir,
Hafnarsti'æti 29
Heiðbjört Ósk Ásmundsdóttir,
Strandgötu 29
Heiðrún Steindórsdótth-, Víði-
lundi 6 b
Helga María Sigurðardóttir,
Möðruvallastræti 5
Hugrún Marta Magnúsdóttir,
Þórunnarstræti 133
Inga Elísabet Garðarsdóttir,
Langholti 28
Ingibjörg Ingadóttir, Skarðs-
hlíð 18 a
Kristín Þórarinsdóttir, Víði-
lundi 6 i
Linda Ellen Tómasdóttir,
Skarðshlíð 7
Rósa Álfheiður Bragadóttir,
Suðurbyggð 25
Sigurbjörg Ingvadóttir, Greni-
völlum 14
Sigurlína Þórisdóttir, Strand-
götu 13
Soffía Ófeigsdóttir, Helgamágra
stræti 32
Valgerður Hjartardóttir, Eyrar-
landsvegi 25 .
i\
Aðalgeir Sigurðsson, Aðal- 1
. stræti 40
Bjarni Hallgrímsson, Áshlíð 6 i
Finnbogi Alfreð Baldvinsson,
Kotárgerði 20
Guðmundur Gunnarsson,
Norðurgötu 41 a
Gunnar Víðir Gíslason, Hamra-
gerði 18
Gunnar Gunnarsson, Hamars-
stíg 3
Gunnar Jónsson, Skarðshlíð 6 b
Gunnar Rúnar Matthíasson,
Þórunnarstræti 117
Hallgrímur- Júlíusson, Eiðsvalla
götu- 20
Jóhann Hólm Ólafsson, Suður-
byggð 9 i
Jón Hámundur Marinósson, i
Norðurgötu 13 i
Jónas Magnús Ragnarsson, ,
Dalsgerði 2 f i
Karl Heiðar Sigurðsson,
Norðurgötu 10 \
Kristján Óskarsson, Kotár- \
gerði 2
Logi Jónsson, Byggðavegi 113 i
Magnús Albert Einarsson, 1
Austurbyggð 5
Ólafur Grétarsson, Lerki-
lundi 15
Rúnar Steingrímsson, Greni-
völlum 14 \
Rögnvaldur Örn Snorrason, i
Goðabyggð 12 j\
Sigmundur Rúnarsson, Espi- jl
lundi 14 ji
Stefán Heimir Stefánsson,
Spítalavegi 1.
Þorgeir Jóhannesson, Bjarma- 1
stíg 8 j
F ermingarbörn
í AKUREYRARKIRKJU Á PÁLMASUNNUDAG
23. MARS KLUKKAN 10.30 FYRIR HÁDEGI.
DRENGIR:
I AKUREYRARKIRKJU Á PÁLMASUNNUDAG
23. MARS KLUKKAN 1.30 EFTIR HÁDEGI.
DRENGIR:
Einar Eyland, Víðimýri 8
Hallur Jónas Stefánsson, Skipa-
götu 4
Ir.gimar Árnason, Eyrarlands-
vegi 28 "
Jóhannes Steingrímsson, Lang-
holti 26 : ti(, .. '
Júlíus Jónsson, Norðui'byggð lc
Páll Pálsson, Skai'ðshlíð 38 c
Sigmar Knútsson, Áshlíð 9
Sumarliði Már Kjartansson,
Viðarholti
Sæmundur Melstað, Bjarma-
stíg 2
Viðar Örn Eðvarðsson, Byggða-
vegi 148
STÚLKUR:
Ester Guðbjörnsdóttir,
Áshlíð 11
Guðbjörg Huld Grétarsdóttii',
Lönguhlíð 1 f
Guðrún Valdís Eyvindsdóttii’,
Hömrum I
Gunnhildur Harpa Gunnai's-
dóttir, Brekkugötu 43
Gyða Jóna Gunnarsdóttir,
Espilundi 1
Hanna Bjöi'k Ragnarsdóttir,
Skarðshlíð 28 f
Ingibjörg Stella Bjaniadóttir, \
Ránargötu 7 j i
Ingibjörg Bi'agadóttir, Stór- i
holti 6 (\
Katrín Elva Ingvadóttir, 1
Löngumýri 22 jl
Kim Birgit Soring, , jí
Víðilundi 18 f :)
Klara Sólveig Siguróladóttir, \
Víðilundi 18 f 1
Laufey Birkisdóttir, Beyki- 1
lundi 5
Laufey Sigríður Guðjónsdóttir,
Skarðshlíð 24 g i
Lái'a Hólm Tryggvadóttir, ji
Ki'inglumýri 29 |i
Margrét Bjarman, Skarðs- j i
hlíð 8 a
Ólöf Eðvarðsdóttir, Stórholti 5
Rannveig Kristinsdóttir, Lerki-
lundi 14
Sigrún Gunnarsdóttir, Lækjar-
götu 22 a ji
Sigurhanna Sigmarsdóttii’, ji
Byggðavegi 147 jl
Sólveig Bjarnadóttii', Grænu- i
mýri 17 \ I
Sólveig Jóhannsdóttir, Ránar- •
götu 9
Valgerður Petra Hreiðarsdóttir,
Bjaxrnastíg 4
Þórunn Sigríður Gunnsteins-
dóttir, Gilsbakkavegi 1 a
TAKIÐ EFTIR:
Eins og undanfarin ár hjóðum við
margar fallegar gerðir af fermingar-
skeytum. Afgreiðsla fenningardagana
kl. 10 f. h. til kl. 5 e. li. í VÉLA- og
RAFTÆKJASÖLUNNI, Glerárgötu 6.
Upplýsingasími: 2-28-67. Allur ágóði
af sölu skeytanna rennur til sumarhúð-
anna að Hólavatni.
KFUxM og KFUK J