Dagur - 09.07.1975, Side 1
EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN
FILMUhúsið akureyri
Leik- og söngflokkur
heimsóffu Grímseyinaa
Það bar til á sunnudaginn, að
Leikfélag Dalvíkur fór til
Grímseyjar og sýndi þar Hart í
bak undir leikstjórn Jóhanns
Ogmundssonar. Einnig fór
Karlakór Dalvíkur til eyjai'inn-
ar og söng þar undir stjórn
Gests Hjörleifssonar. Vitaskipið
Árvakur flutti hópana fram og
til baka. Þessari heimsókn var
hið' besta tekið í Grímsey. Á
staðnum er fullgert félagsheim-
ili- Grímseyingar létu þess get-
ið, að þessi heimsókn væri
alveg einstæð. Allir, sem vettl-
ingi geta valdið nutu leiks og
söngs og auk þess komu fiski-
SKUTTOGARI FYRIR
bátar, auk Grímseyinga, af
miðunum til að taka þátt í þess-
um ágæta mannfagnaði. □
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á fimmtudagsmorgun varð eld-
ur laus á Blómsturvöllum, en
þar á heima Kristján Helgi
Sveinsson, ásamt fjölskyldu
sinni. Brunnu þar gömul fjár-
hús og stafn hlöðunnar og lítils-
háttar af heyi-
Bílvelta varð í Vaðlaheiði
laust eftir hádegi á laugardag-
inn. Ekki urðu slys á fólki en
bíllinn skemmdist mikið. Síð-
degis í gær varð einnig bílvelta
á sama vegi, og urðu þar ekki
veruleg meiðsli á fólki. □
Skcinmtiferðaskipið Evropa kom til Akureyrar 5. júlí.
(Ljósm.: E. D.)
DAIVIKINGA
Dalvík, 8. júlí. Útgerðarfélag
Dalvíkinga h.f. hefur gert samn
ing við Slippstöðina h.f. á Akur
eyri um smíði á nær 500 tonna
skuttogara. Slippstöðin hefur
síðan samið við skipasmíðastöð
í Noregi, Flekkefjörð skip og
maskinfabrik, um að smíða
skrokk þessa togara, en hann
síðan dreginn til Akureyrar og
fullsmíðaður þar. Afgreiðslu-
tími er í október 1976. Samn-
ingsverð er 485 millj. króna,
auk fjármagnskostnaðar.
Miklar vonir eru á Dalvík
tengdar þessum togarakaup-
um. V. B.
Egilsstöðum, 7. júlí. Ekki hefur
komið dropi úr lofti síðasta
hálfan mánuðinn og því er
sprettan mun minni en ætla
mætti, eftir hlýindunum, sem
nú hafa verið um sinn.
Ferðafólk er síst fleira en á
sama tíma og í fyrra. Fólk er
sagt taka sumarleyfi sín í síðara
lagi í ár, m. a- vegna þess hve
fjallvegir eru seint færir á
þessu sumri. Við verðum ekki
mikið varir við ferðafólk ennþá.
Færeyjaferjan er nýjung í
í næsfa
Senn líður að því að neyðar-
bíllinn, sem Blaðamannafélag
íslands og Rauði krossinn hafa
KIRKJAN VARAR VIÐ
Á prestastefnu íslands í Skál-
holti voru samþykktar ýmsar
áiyktanir. Sú ályktunin, sem
vakið hefur athygli og umræð-
ur, öði'um fremui', er á þessa
safnað fyrir, komi til Akureyr-
ar, en hann er væntanlegur til
landsins í næsta mánuði og
verður væntanlega í umsjá
slökkviliðsins á Akureyri. Fram
kvæmdastjóri Rauða krossins
hér, Guðmundur Blöndal, sendi
söfnun sína og annarra hér
nyrðra suður í gæi', samtals 3,8
milljónir króna. □
ferðamálunum og fór ég til
Seyðisfjarðar á laugardaginn
þegar Smyrill kom þangað síð-
ast, til þess að sjá með eigin
augum þetta margumi-ædda far
þegaskip þeirra Færeyinganna,
sem er hið myndarlegasta. Og
það er forvitnilegt að sjá hvern-
ig þessu fyrirtæki vegnar, sem
tilraun. Með ferjunni komu í
þetta skipti 28 bílar, einkum
erlendir, og á annað hundrað
farþegar. Héðan fóru 16 bílar og
um 100 manns, og hefðu fleiri
farið ef kostur hefði verið á því.
En á farmiðasölunni er hið
mesta ófremdarástand og alveg
upp á reykvískan máta. Það
eru hvergi seldir farmiðar
nema hjá fei'ðaskrifstofunni
Úrval og þeir, sem hugsa sér að
fara með ferjunni verða að
panta farseðlana þar, senda síð-
an greiðslu og fá eftir það far-
miða til baka. Þeir þurfa að
hafa þetta allt undir sitjandan-
um í Reykjavík.
Atvinna er næg og byggingar
framkvæmdir eru talsvert mikl
ar, þó ekki eins miklar og í
fyrra og hófust að þessu sinni
seinna. En nú er þetta sem
óðast að komast í fullan gang.
Unnið er við rannsóknir á
væntanlegri Bessastaðaárvirkj -
un og gera það vinnuflokkar
frá Rafmagnsveitum ríkisins og
Orkustofnun. Þarna er unnið að
borun og jarðvegskönnun og
svo kortagerð. Ætlunin ei', að
(Framhald á blaðsíðu 5)
- nor
Norðlenska tímaritið Súlur, 9.
heftið, er komið út og er unnið
að dreifingu þess. Síðar á árinu
kemur svo 10. hefti tímai'itsins,
sem jafnframt er síðara hefti
fimmta árgangsins.
í þetta nýja hefti af Súlum
ritar Jóhannes Óli Sæmunds-
son um skaðaveðrið mikla 20.
september árið 1900 og einkum
þann atbui’ð er nýsmíðað íbúð-
ai'hús á Rauðuvík á Árskógs-
strönd fauk og varð þar mann-
skaði. Hann ritar einnig grein-
ina Bannhelgir staðir og Dýra-
sögui'. Greinár eru eftir Svein-
björn Jóhannsson á Dalvík, Jó-
hannes Sigvaldason, Jónas Hall
dórsson, Randver Jóhannesson,
Hólmstein Helgason, Valdimar
Kristjánsson, Fi’iðrik Hallgríms
son, Sigurð Draumland, Helga
Daníelsson, Glúm Hólmgeirs-
son, Árna J. Haraldsson, Árna
Jóhannesson, Sigfús Hallgríms-
son, Kristin Jónsson, Jón Kr.
Guðmundsson og Erling Davíðs
son, sem annast ritstjórn ásamt
Jóhannesi Óla Sæmundssyni út
gefanda.
Margt fleira er í ritinu og er
það venju fremur fjölbreytt að
efni og um 140 blaðsíður að
stærð, pi'entað í Prentsmiðju
Akranesi 11—13« jálí
leið:
a) Prestastefna íslands 1975
varar við dultrúarfyrirbrigðum
af ýmsu tagi, sem á síðari tím-
um haía breiðst út meðal þjóð-
arinnar og hvetur söfnuði. lands
ins til þess að vera vel á verði
gagnvart þess kyns áróðri.
Kristin kirkja byggir boðun
sína og líf á Jesú Kristi einum,
eins og honnm er borið vitni í
Nýja testamentinu og brýnir
fyrir öllum að láta ekki bifast
af þeim grundvelli.
b) Px-estastefna beinir þeim
tilmælum til biskups, að afstaða
kirkjunnar til þessara mála
vei'ði formlega telcin til ýtar-
legrar umræðu á prestaráð-
stefnu sem fyrst. □
Akureyrartogararnir
Harðbakur gamli landaði sl.
fimmtudag 40 tonnum.
Sólbakur landaði 62 tonnum
á mánudaginn.
Harðbakur nýi landar á
morgun.
Hinir þrír eru á veiðum. □
Lanclsmót Ungmennafélags ís-
lands verður haldið á Akranesi
dagana 11.—13. júlí og mun
undirbúningi mótsins senn lok-
ið- Síðasta landsmót þessai'a
samtaka var haldið á Sauðár-
króki 1971. Ungmennafélag ís-
lands var stofnað 1907 og fyrsta
HVER FANN
MYNDAVÉLINA
Síðastliðinn laugardag tapaði
vestui'-íslenskur ferðamaðui',
Jón Marteinsson, ómerktri
myndavél sinni á leiðinni frá
Stærra-Ái'skógi til Dalvíkur —
Kodak „instamatic" í svartri
tösku. í töskunni voru þrjár lit-
filmur, ein átekin. Næsti veg-
farandi hefur eflaust fundið
myndavélina og er heitið á
hann að skila henni til lögi'egl-
unnar á Dalvík eða Akui'eyri,
gegn fundai'launum. □
r
landsmót þess var haldið tveim
árum síðar.
F'ramkvæmdastjóri UMFÍ er
Sigurður Geirdal, í'öskur áhuga
maður og kunnur innan hreyf-
ingarinnar og utan. Hann telur,
Sigurður Geirdal,
franxkvæmdastjóri.
að þátttakendur íþrótta á þessu
landsmóti ungmennafélaganna
verði um 3000 talsins, að með-
töldu starfsfólki, og búist er
við, að um 20 þúsund manns
komi á mótsstað þessa daga, en
það er að sjálfsögðu aðeins
ágiskun, þó miðuð við aðsókn
fyrri landsmóta.
Af keppnisgreinum á lands-
mótum UMFÍ mó nefna starfs-
íþróttirnar, sem setja munu
Þingmenn Framsóknarflokks-
ins í Norðurlandskjördæmi
eystra, Ingvar Gíslason, Stefán
Valgeirsson og Ingi Tx-yggva-
son, boða til funda í kjördæm-
inu sem hér segir (aði'ir fundir
auglýstir síðar):
Svalbarðsströnd fimmtudag-
inn 10. júlí. Sólgarður föstudag-
svip á þetta mót, en annars
verðui' keppt í öllum helstu
íþróttagreinum, sem að ein-
hverju max'ki eru stundaðar
innaix félaga UMFÍ.
Héraðssamböndin innan
UMFÍ eru 17 talsins og þess
utan eiga sjö félög beina aðild
að UMFÍ.
Það er lítill vafi á því, að um
landsmótshelgina liggja leiðir
margra til Akraness. □
inn 11. júlí. Fi-eyvangur sunnu-
daginn 13. júlí. Dalvík þriðju-
daginn 15. júlí. Olafsfjörður
miðvikudaginn 16. júlí. Húsa-
vík föstudaginn 18. júlí. Breiða-
mýri laugardaginn 19- júlí.
Fundirnir hefjast allir kl. 9
eftir hádegi. □
S tj ó rii mála fiui d i r