Dagur - 09.07.1975, Síða 7
7
SMÁTT & STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
]>eim að vera kærkomið tæki-
færi að fræða landslýð um þessi
atriði og miklu fleiri, ekki til að
berja einn eða neinn heldur til
[>ess að veita haldgóða fræðslu
um einn veigamesta þáttinn í
atvinnulífi fslendinga fyrr og
síðar. Dagur er fús til þess að
birta fræðsluþætti um landbún-
aðarmál, enda má telja víst, að
nú sé áhugi vakinn til að lesa
þá. Lesendur vilja fræðast um
staðreyndir landbúnaðarmála
og geta svo dregið sínar álykt-
anir.
28 STIGA HITI
Á föstudaginn mældist 28 stiga
hiti í forsælu á Akureyri og
næstu dagar voru lieitir og
þurrir. Sláttur er hafinn mjög
víða í sveitunum sunnan Akur-
eyrar og einnig við innanverð-
an Eyjafjörð. Allmargir bændur
hafa þegar liirt fyrstu töðuna í
lilöður. Liklegt er, að ekki þurfi
nema 1,3—1,6 kg af henni í
hverja fóðureiningu, og vita
bændur hvers virði það er.
\
EINHVERJUM VERÐUR
UM AÐ KENNA
Á einhverju verða menn að
skeyta skapi sínu þegar verr
gengur en ætlað var. Ríkis-
stjórnin hefur sannarlega feng-
ið orð í eyra fyrir það, að lífs-
kjör almennings eru ekki eins
góð og áður. Það er nærtækara
og veitir meiri útrás en að
skamma þá, sem ekki vilja
haupa fiskirm okkar á toppverði
eða selja okkur olíu á nokkrum
sinnum hærra verði en áður.
Hraðbátur á kerru til
sölu. 20 hestafla vél.
Fyrir 5 manns. Góð kjör.
Uppl. í Höfn, Svalbarðs-
strönd.
Til sölu 5 vetra hestur.
Sími 3-21-19.
Lítil dráttarvél, notuð,
ásamt sláttuvél óskast
keypt.
Sími 1-14-61.
ÞÁ ER ÞAÐ STAURA-
NÓTIN
Og vegna þess að í þessum
þætti er jafnan vaðið úr einu
og í annað, verða óheppnir veiði
menn við Selá í Vopnafirði að
kenna einhverju um. Þegar svo
bar við, sem ætíð getur hent
við laxveiðiá, að einhver kemur
„með öngulinn í rassinum“, er
handhægt og jafnan til þess
ráðs gripið, að kenna óheppnina
stauranótinni í Vopnafirði —
þangað fari laxinm í stað þess
að ganga upp í ána. En ein-
hvern veginn hefur það þó tek-
ist að stórauka veiðina í Vopna-
fjarðaránum, þrátt fyrir um-
rædda nót, sem tekur víst ein-
hvern skatt af veiðinni, en þó
minni en margur ætlar, að því
er kunnugir telja.
SELURINN FÓR UPP
LAXASTIGANN
Það bar við fyrir skömmu, að
selur gekk Iengra upp í Selá í
Vopnafirði en venja hans er, en
við ósana er hann ekkert sjald-
gæfur. Hann fór alla leið frarn
hjá Hróaldsstöðum og þurfti
því að fara upp laxastigann.
Mun það einsdæmi, að laxastigi
hafi freistað sela á þennan hátt.
Einnig bar það til við Selá, að
minkur drap tíu punda lax og
dró hann nokkuð frá ánni, upp
brekku og gæddi sér á honum
þar- Má af því marka hve sterk
dýr minkar eru, þótt þeir séu
smávaxnir.
DULARFULLI KAPALLINN
Austfirskur togari festi nýlega
veiðarfæri sín út af Stokksnesi
og sleit við það kapal einn, er
ýmsum þótti grunsamlegur. Eft-
ir harðar cftirgrenslanir gaf
varnarliðið og utanríkisráðu-
neytið út yfirlýsingu um það,
að sæstrengur þessi væri hluti
af varnarkerfi landsins, eða
búnaði varnarliðsins á íslandi.
DÓMUR í MÁLI
„VARINS LANDS“
Á föstudaginn féll borgardómur
í máli tveggja þeirra manna,
sem forsvarsmenn „Varins
Iands“ höfðuðu gegn ýmsum
vegna skrifa og meiðyrða. Urn-
mælin voru dæmd dauð og
ómerk og stefndu sýknaðir af
bótakröfum. Hrafn Bragason
borgardómari kvað upp dóm-
inn.
JÖKULSÁRVIRKJUN?
Um það bil tuttugu manna hóp-
ur manna niun nú vera við
ýmiskonar athuganir við Jök-
ulsá á Fjöllum og talið, að hann
verði þar fyrst um sinn. Hún-
vetningar tóku áætlun um
Blönduvirkjun dauflega og auk
þess eru undirbúningsrannsókn
ir þar skammt á veg komnar.
Hins vegar liefur Jökulsárvirkj-
un verið tilbúin til útboðs um
nokkurn tíma, en svo virtist um
skeið, að iðnaðarráðherra hefði
gleymt henni! Fregnir herma,
að nú sé áætlað að virkja Jök-
ulsá í þrem áföngum og Norsk
Hydro gangi ríkt eftir því að
niðurstaða fáist við þeirri mála-
leitan, að setja hér upp verk-
smiðju með aðgangi að nægri
raforku. Þessar fregnir eru
óstaðfestar, en einhyer lireyfing
í þessa átt er þó sýnileg.
Hðsoæði óskasf
1—2 herbergi eða h'til íbúð óskast til leigu strax.
Góð leiga.
Upplýsingar gefnar á Ljósmyndastofu Páls,
sími 2-34-64.
Sah
MÓTATIMBUR til
sölu 200—300 metrar.
Axel Jóhannesson,
Ægisgötu 15.
Heyhleðsluvagn, Fella,
til sölu.
Sími 2-24-62.
Til sölu jeppahús,
jeppamótor, lítill vöru-
bíll óskráður, ýmiskonar
varahlutir í Opelbíla
árg. 1955 og fl.
Sími 2-39-10.
Til sölu mótor úr Volks-
wagen 1300 árg. 1966.
Þarfnast viðgerðar.
Sími 2-24-69.
Glæsilegt mótorhjól
HONDA CB-450
í sérflokki árg. 1974.
Sigurður Geirsson.
sími 2-35-76 milli kl.
20-22.
Til sölu Fharmal Cub
traktor með sláttuvél.
Uppl. í síma 2-19-17.
Vel með farið Philips
karlmannsreiðhjól til
sölu.
Uppl. í síma 2-11-50.
50 W magnari (Sanzui)
til sölu.
Sími 1-11-39 á kvöldin.
Góð barnakerra til sölu.
Verð kr. 7.000,00.
Uppl. í Byggðaveg 97
að norðan.
MJÓLKURVÖRUR 1
G-VORUR
KÓKÓ-MJÓLK
KAFFI-RJÓMI
Arna rneshreppsbúa r
fyrr og nú
Fjölmennið á sumardansleikinn í FreyjuLundi
laugardaginn 12. júli kl. 22.
TRIO R. S. sér um fjörið.
NEFNDIN.
MÖL OG SANDUR
Sími 2-12-55, þrjár línur. Skrifstofan: Sími 2-14-76.
Pósthólf 618 — Akureyri.
Steinsteypa:
Frá steypustöð. Öll efni vigtuð og hrærð í þvingunarbland-
ara, sem er fullkomnasti blöndunarmátinn í dag.
Einnig:
Harpaðan sand, 2 gerðir.
Harpaða möl, 3 gerðir.
Harpaðan salla.
Uppfyllingarefni, fínt og gróft.
Steinrör, fyrir gúmmíhringi, frá
10-120 cm.
Brunnar, keilur og fittings.
Leigjum:
Krana.
Loftpressur.
Hjólaskóflur.
Gröfur, Bröyt x2b.
Lyftara.
Víbratora.
Önnumst jarðvegaskipti í grunnum og bílastæðum og út-
vegum uppfyllingarefni og unnið efni á byggingarstað.
BSOW*