Dagur - 03.09.1975, Síða 1
• smc
EH EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN
AGUR
LVIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 3. sept. 1975 — 36. tölubl.
Mælingar sýna jarð-
liitamerki en djíipt
Lauslegar útvarpsfréttir um
möguleika á heitu vatni til
varmaveitu fyrir Akureyri hafa
aukið umtal og bjartsýni manna
á þessum slóðum. Blaðið sneri
sér af þessu tilefni til Orkustofn
unar og varð Þorsteinn Sæ-
mundsson fyrir svörum um mál
þetta. Honum sagðist efnislega
svo frá:
Mér heyrðist gæta ansi mikill
ar bjartsýni í kvöldfréttum út-
varpsins um þetta mál. Ákveðið
var í vor að gera dálítið víðtæk-
ar rannsóknir í Eyjafirðinum,
Fnjóskadal og Ljósavatnsskarði
og það var gert. Ein hitastíguls
hola var boruð í Ljósavatns-
skarði, en að öðru leyti fór rann
sóknin fram með viðnámsmæl-
ingum og eru það fyrst og
fremst þær, sem .byggt er á í
sambandi við frétt og þá talað
við Axel Björnsson, sem fyrir
mælingunum stóð. Mælingar
þessar sýndu nokkuð lágt við-
nám, djúpt niður, eða jarðhita-
merki á jarðhitasvæðinu þvert
SYRPA
Ríkisútgáfa námsbóka hóf fyrir
nokkrum árum útgáfuna Bók-
menntaúrval skólanna. í þess-
um flokki er komin út Syrpa
Halldórs Laxness, sem hann
hefur sjálfur valið, ritað for-
mála og orðaskýringar. Teikn-
ingar eru eftir Harald Guð-
bergsson. Bók þessi er 222 blað-
síður. í ráði ep*að gefa út hljóm
plötu af völdum köflum þessar-
ar bókar, sem höfundur læsi
sjálfur. □
yfir Eyj afj arðardalinn frá
Hrafnagili að Laugalandi og þar
í grennd. Einnig komu Reykir
í Fnjóskadal og Stórutjarnir vel
út í mælingum, en allt er þetta
jarðhitasvæði, sem aílir þekkja.
Nýjar umræður um boranir í
Eyjafirði byggjast fyrst og
fremst á því, að ný bortækni er
fyrir hendi .Nýi borinn, Jötunn,
getur borað allt niður á 3600
metra dýpi. Borun £ Eyjafirði
yrði aðeins tilraunaborun, því
engin vissa er um árangur.
Ákvörðun um borun liggur
ekki fyrir, sagði Þorsteinn Sæ-
mundsson að lokum og þakkar
blaðið upplýsingarnar. □
Eftir að asfaltgeymirinn á Oddeyrartanga komst upp og í notkun, hófst malbikun á Akureyri. Er nú
þegar búið að malbika aðalveginn norður undir Dvergastéin og sýnist það hafa gengið vel. Síðan
verða ýmsar götur bæjarins malbikaðar og verður Skógarlundur stærsta verkefnið. (Ljósm.: E. D.).
Malbikun hófst með fullum
krafti á Akureyri
í
síðustu viku lauk malbikun
úr Glerárhverfi norður að af-
leggjaranum niður að Blómstur
völlum, en það er hálfur fjórði
kilometer og verkið virtist hafa
gengið bæði fljótt og vel. En
malbikun á Akureyri hófst ekki
í sumar fyrr en lokið var að
smíða asfaltgeymi hjá Slipp-
stöðinni á Oddeyri og fá þangað
fyrsta farminn. Er tunnuflutn-
ingur þessar vöru vönandi al-
veg úr sögunni hér.
Næstu viðfangsefni í malbik-
uninni er Skógarlundur, sem er
á annan kilometer að lengd, þá
verður Víðilundur næstur, og
ennfremur Hjalteyrargata norð
ur að Slipp. Þar næst koma svo
Laufásgata og Gránufélagsgata,
neðan Hjalteyrargötu.
Jafnhliða þessari malbikun
gatnanna éða „þegar á milli“
verður malbikað fyrir einstakl-
inga og fyrirtæki eftir því sem
unnt er.
Segja má, að malbikunin hæf-
ist með fullum krafti á Akueyri
þegar hún loksins fór af stað.
fjárslálrunin hefst
ireyri 10. september
Besfi vegur
íslandi
n
liaídin
arsyning
Hlíðarbæ
Myndlistarsýning Helga Vil-
bergs verður opnuð í Hlíðarbæ,
félagsheimili Glæsibæjarhrepps
á morgun, fimmtudaginn 4.
september klukkan 8,30. Það
kvöld verður hún opin til kl. 10,
en á föstudag kl. 8—10 óg á
laugardag og sunnudag kl. 2—
10. Sýningunni lýkur á sunnu-
dagskvöld.
Sem fyrr er frá sagt, eru
myndirnar á sýningunni 37 tals
ins, þar af 5 teikningar, og allar
eru þær unnar á þessu og síð-
asta ári.
Helgi Vilberg hefur ekki áð-
ur haldið einkasýningu, en
hann var meðal þeirra fjögurra,
sem í fyrra héldu myndlistar-
sýningu í Myndsmiðjunni.
Helgi mun sýna fimm myndir
á vinabæjarsýningu í Álasundi
Samkvæmt umsögn Þórarins
Halldórssonar frysti- og slátur-
hússtjóra hjá KEA á Akureyri,
hefst sauðfjárslátrun á hádegi
10. september og verður þá
lógað fé frá Akureyri.
Áætluð tala sauðfjár, sem lóg
að verður í sláturhúsi félagsins
á Akureyri er 39.600. Á Greni-
vík hefst slátrun 18. september
og verður lógað þar 6.400 fjár
og á Dalvík rúmlega 13.000
fjár. Samtals eru þetta 59 þús-
und fjár eða mun fleira en sll»ár.
Sæmilega horfir um vinnu-
kraft í sláturhúsinu, en þó vant
ar alltaf þetta vana og eftirsótta
fólk, svo sem fláningsmenn og
annað uppistöðufólk,
mikið veltur á.
sem svo
Þá sagði sláturhússtjórinn, að
enn væri nóg til af kindakjöti,
sem endast myndi fram f slátur
tíð, bæði hryggir af fyrsta verð
flokki og skrokka í öðrum verð-
flokki.
Af nautakjöti eru nægar
birgðir. Útsala á því er hafin
hér, sem á öðrum stöðum og
mun standa í hálfan mánuð.
Nokkur sala í þessu kjöti varð
strax nú í dag. Kjötið er selt í
sláturhúsinu og eins í verslun-
um, ef fólkið óskar þess fremur.
í haust verður æði mikil
nautgripaslátrun, og er þó búið
að lóga á fjórða hundrað núna
fyrir sauðfjárslátrunina, en
meira verður þó lógað af þeim
síðar í haust. □
Gunnarsstöðum 1. september.
Menn eru að fiska, en um afla-
brögðin er það að segja, að
ýmsir eru orðnir vel efnaðir af
fiski, þótt þeir aldrei hafi séð
fisk á ævi sinni, ef marka má
þeirra eigin aflafréttir.
Heyskap er lokið og slátur-
tíð hefst væntanlega um miðj-
an mánuðinn. Framundan eru
göngur og réttir og aðrar haust-
annir. Nú er efst í huga manna
fjórðungsþingið á Raufarhöfn,
sem hófst í dag og stendur í
tvo daga.
Geta má þess, sem vel tekst
og á það við um einn þátt vega-
gerðar. Leirborinn var vegur-
inn á milli Kollavíkur og Sval-
barðs, sem er nýr 8—10 km
langur. Tókst það svo vel, að
við teljum þetta besta veginn
á íslandi. Gísli Gunnarsson hjá
Vegagerðinni stjórnaði þessu.
órðungs
Helgi Vilberg.
Fjórðúngsþing Norðlendinga
var sett á Hnitbjörgum á Rauf-
arröfn klukkan 16.00 á mánu-
daginn og gerði það fórmaður
samtakanna, Brynjólfur Svein-
bergsson á Hvammstanga. Þing
forsetar voru kjörnir þeir Sig-
urður Jónsson á Efralóni og
Björn Guðmundsson, Lóni. Rit-
arar Pálmi Olafsson, Þórshöfn
og Angantýr Einarsson á Rauf-
arhöfn.
Framsöguerindi flutti Reynir
Karlsson, æskulýðsfulltrúi, um
æskulýðskönnun á Norðurlandi
og um byggðaþróunaráætlun
fyrir Norður-Þingeyjarsýslu
flutti erindi Guðmundur Ósk-
arsson, verkfræðingur.
Að kveldi mánudags var þing
fulltrúum haldin mikil veisla,
sem Þórshafnar- og Raufarhafn
arhreppar efndu til og fór hún
einnig fram í félagsheimilinu
Hnitbjörgum.___Þar voru fjöl-
mörg skemmtiatriði en veislu-
stjóri var oddvitinn á Raufar-
höfn, Björn Hólmsteinsson, en
skemmtiatriðin, sem voru mörg
og góð, kynnti Heimir Ingimars
son, sveitarstjóri, Raufarhöfn.
í kvöldfagnaði þessum var Norð
ur-Þingeyjarsýsla mjög í sviðs-
ljósinu og töluðu um hana Ang
antýr Einarsson, Raufarhöfn,
Óli Halldórsson á Gunnarsstöð-
um og Björn Haraldsson í Aust
urgörðum og síðan tóku við
skemmtiatriðin, eitt af öðru.
Meðal skemmtiatriðanna var
söngur Margrétar Bóasdóttur,
prestsfrúar, og vakti söngur
hennar mikla hrifningu, henni
til aðstoðar var Soffía Guð-
mundsdóttir frá Akureyi’i. Þá
greip harmonikkuna roskinn
bóndi, Jóhann Jósefsson frá
Ormalóni, og þótti það hin besta
skemmtun.
Árdegis á þriðjudag hófst
fundur að nýju og voru þá þing
fulltrúar kynntir, en það gerði
Sigtryggur Þorláksson á Sval-
barði, og reyndust fulltrúar 62
og að auki fjölmargir gestir. Síð
an flutti formaður skýrslu
stjórnarinnar og að því loknu
flutti Áskell Einarsson, fram-
kvæmdastjóri ræðu.
Síðar í dag flytja framsögu-
erindi Lárus Jónsson um Norð
urlandsvirkjun, Árni Jónsson
flytur erindi urh landbúnað og
byggðaþróun, dr. Kjartan Jó-
hannsson um stöðu heilbrigðis-
mála og Sigurður Guðmunds-
son ræðir um byggðavanda
Norðurlandskjördæmis vestra.