Dagur - 29.10.1975, Page 1
EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN
LVIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 29. okt. 1975 — 44. tölubl.
FILMUhúsið akureyri
Fiskveiðideilan leyst
Fyrir rúmri viku sendu skip-
verjar á 119 fiskiskipum harð-
orða yfirlýsingu um hið nýja
fiskverð, sem gilda átti þrjá
síðustu mánuði ársins. Kröfðust
þeir lagfæringar og gáfu yfir-
völdum vikufrest til að breyta
fiskverðinu, sem samþykkt
hafði þó verið í Verðlagsráði
sjávarútvegsins með öllum at-
kvæðum. Til þess að fylgja þess
um kröfum fram sigldi svo flot-
inn í höfn og lagðist við land-
festar. Fiskiskipafloti iands-
manna, að nokkrum togurum,
síldarbátum og handfærabátum
undanskildum, lá svo í höfn þar
til samkomulag náðist síðustu
mánudagsnótt.
Samkomulagið á milli ríkis-
valds og sjómanna felur það í
sér, að fiskverðið verði tekið til
endurskoðunar með tilliti til
samsetningar aflans, og komi í
Ijós að meðaltalshækkun verði
minni en 3,5%, skuli greiða upp
bót á stórufsa og milliufsa. Enn
fremur, að uppbætur verði
auknar á línufisk úr 60 aurum
í 90 aura á kíló og hlutur fisk-
kaupenda hækki að sama skapi,
úr einni krónu í hálfa aðra
krónu. Og enn var samþykkt,
að endurskoðun færi fram á
sjóðakerfi sjávarútvegsins.
Með þessu eru sjómönnum
tryggðar sömu kjarabætur og
landverkafólki og fiskveiðar
eru hafnar á ný. □
Sauðárkróki, 27. október. Nú er
bjart veður og fagurt. Sauðfjár-
slátrun lýkur á morgun, Lógað
er • um 63 þúsund fjár hér á
Sauðárkróki.
Á Sauðárkróki var mikil og
góð þátttaka í kvennafríinu á
föstudaginn, hinn 24. október,
þó hélt slátrun áfram þann dag,
enda unnu sumar konurnar
Hins vegar voru frystihúsin
lokuð, ennfremur nokkrar versl
anir. Konurnar höfðu opið hús
að Bifröst og var þar fullt út úr
dyrum. Þar fluttu ræður og
ávörp: Guðbjörg Bjarman,
Helga Kristjánsdóttir, Guðrún
Ásgeirsdóttir, Jóhanna Jóns-
dóttir, Hólmfríður Jónasdóttii'
og Inga Jóhannesdóttir.
Framsók n ar m e n n
Framsóknarfélag Akureyrar
heldui- fund í Hafnarstræti 90
á morgmi, fimmtudag, kl. 20.30.
Þar verða m. a. kosnir fulltrúar
á kjördæmisþingið, sem haldið
verður á Akureyri 8. og 9.
nóvember.
Þá skýrir Sigurður Jóhannes-
son frá hitaveitumálum bæjar-
ins.
Framsóknarfólk er beðið að
mæta vel og stundvíslega.
Sjá auglýsingu um fundinn á
öðrum stað. Q
NÝR SKÓLASTJÓRI
Dalvík, 27. október. Þótt menn
hafi eitthvað farið til rjúpna,
hefur veiðin naumast verið
teljandi.
Við skólastjórastarfi Tónlist-
arskólans á Dalvík tók í haust
nýr skólastjóri, Kári Gestsson,
sem undanfarin þrjú ár hefur
En rúsínan í pylsuendanum
var sú, að skipverjar á togurun-
um hér á staðnum, buðu öllum
til kaffidrykkju og önnuðust
sjálfir framreiðsluna. Voru kon
ur hinar ánægðustu með þetta.
Fjöldi kvenna úr sveitinni
komu til Sauðárkróks þennan
dag og tóku þátt £ hátíðahöld-
unum.
Togararnir þrír liggja enn við
hafnargarðinn, en verið er að
ísa þá og munu þeir að því
loknu halda á veiðar. Er það
gleðiefni að þessi togaradeila er
leyst, en samt verður eitthvert
uppihald á fiskvinnu vegna
stöðvunarinnar.
G. O.
Ilöggborinn á Syðra-Laugalandi.
(Ljósm.: E. D.)
Kristján Friðriksson.
stundað nám við tónlistarhá-
skóla í London. Faðir hans,
Gestur Hjörleifsson, var þar
áður skólastjóri en er nú kenn-
ari við skólann, ásamt skóla-
stjóranum. Nemendur eru um
80. Kennslugreinar eru: Barna-
músik og í henni eru flestir,
einnig er kennsla í orgel- og
píanóleik, á blásturshljóðfæri
og svo er kórskóli, einkum fyrir
fullorðna.
Slátrun lauk sl. fimmtijdag
og lauk með dansleik frammi á
Grund á föstudagskvöldið. Lóg-
að var 12.513 fjár, þar af 11.066
dilkum, sem vigtuðu án nýrna-
mörs til jafnaðar 14,446 kg, sem
er 651 grammi meiri meðalvigt
en £ fyrrahaust. Þyngsta dilk-
inn átti Jónmundur Zophonías-
son á Hrappsstöðum, 29,7 kg.
Björgvin kom hér inn á föstu
daginn og hafði þá verið úti
tæpa viku. Kom hann með 55
tonn af fiski. Aðrir bátar hafa
verið eitthvað lítið á sjó, en
margir fóru út í morgun og
Björgvin er að fara. V. B.
Borun hafin á
Laugalandi fyrir
hitaveitu Akureyrar
Hitaveita Akureyrar er mjög á
dagskrá og hefur verið það und-
anfarna mánuði. Athugaðir
hafa verið möguleikar á að nota
jarðhitann á Hveravöllum eða
í Námaskarði. En með nýja
olíubornum, sem keyptur var
hingað til lands og getur borað
niður á allt að 3600 metra dýpi,
þótti ráðlegt að freista þess að
fá heitt vatn nær notkunarstað
og hafa rannsóknir farið fram í
nágrenni bæjarins og í Fnjóska
dal af þessu tilefni. Tvö líkleg
jarðhitasvæði eru Syðra-Lauga-
land í Eyjafirði og Reykir í
Fnjóskadal.
Að Syðra-Laugalandi var
byrjað að bora með höggbor
fyrir fáum dögum og var bor-
inn settur niður á túninu vest-
an við Húsmæðraskólann. Með
þessum bor er áætlað að bora
30—40 metra djúpa holu, 22
þumlunga víða. Síðan á að
flytja hinn mikla og áðurnefnda
bor, sem £ sumar leitaði vatns
við Þorlákshöfn, norður og á
hann að taka við þar sem högg-
borinn hættir. Samningum um
stóra borinn við ríki og Orku-
stofnun er ekki að fullu lokið,
en líklegt að þeim verði hraðað.
Sérfræðingar Orkustofnunar
hafa hvatt til borunar á þessum
stað og því eru verúlegar vonir
bundnar við framkvæmd þessa,
sem er mjög dýr. Vegalengdin
á milli Akureyrar og Syðra-
Laugalands er 14—15 km.
Ekki sakar að geta þess, að
Kristín Kristjánsson, vestur-
íslensk kona, gædd kunnum dul
rænum hæfileikum, lét svo um-
mælt er hún dvaldi á Syðra-
Laugalandi fyrir nokkrum ár-
um, að á þeim stað væri mikið
heitt vatn í jörðu. En ekki var
á þeim tíma farið að tala um
jarðhita þar sem hitagjafa fyrir
Akureyri. □
Kvennafrídagurinn
Hsfkeðjan”, erindi Krisfjáns Friðrikssonar
Kristján Friðriksson iðnrekandi
£ Reykjavík heldur fundi á
Raufarhöfn og Þórshöfn á mið-
vikudag og fimmtudag og flyt-
ur þar erindi sitt „Hagkeðjuna",
en það fjallar um nýskipan í
atvinnumálum, einkum í sjávar
útvegsmálum og iðnaðarmál-
um.
Á Akureyri flytur Kristján
þetta erindi á Hótel KEA sunnu
daginn 2. nóvember kl. 3 e. h.
til skýringar erindinu notar
ræðumaður 15 spjöld með línu-
ritum og uppdráttum. Að erindi
loknu hefjast svo fyrirspurnir
og umræður, og er þess vænst,
að sem flestir áhugamenn um
efnahagslíf landsmanna mæti
og taki þátt í fundarstörfum.
Kristján Friðriksson hefur
þegar flutt erindi sitt, „Hag-
keðjuna" á allmörgum stöðum
og hefur það hvarvetna vakið
mikla athygli, og á sumum stöð
um hafa verið gerðar samþykkt
ir um áskorun til stjórnvalda,
um að taka tillögurnar til sér-
stakrar athugunar í sambandi
við efnahagsmálin. □
Fregnir herma, að víða um land
hafi kvennafrídeginum verið
fagnað, ekki aðeins af konum,
heldur einnig af körlum. Sam-
staða kvenna hefur ekki aðeins
vakið athygli innanlands, held-
ur einnig meðal annarra þjóða.
í Reykjavík var gífurlegt fjöl-
menni á útifundi.- Á Akureyri
höfðu konur opið hús í Sjálf-
stæðishúsinu og mættu þar hátt
á annað þúsund konur, sem
undu sér við fjölbreytta dag-
skrá, er undirbúningsnefnd
hafði skipulagt.
Kvennafrídagurinn var ekki
aðeins frídagur, heldur einnig
baráttudagur fyrir launajafn-
rétti. Má ætla, að hin mikla
samstaða kvenna á kvennafrí-
deginum kunni að valda þátta-
skilum, ef vel er á málum hald-
ið í framhaldi af þessari öflugu
kynningu. Kvennafrídagurinn
á Akureyri var með glæsibrag
og konum til mikils sóma. □