Dagur


Dagur - 29.10.1975, Qupperneq 1

Dagur - 29.10.1975, Qupperneq 1
EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN LVIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 29. okt. 1975 — 44. tölubl. FILMUhúsið akureyri Fiskveiðideilan leyst Fyrir rúmri viku sendu skip- verjar á 119 fiskiskipum harð- orða yfirlýsingu um hið nýja fiskverð, sem gilda átti þrjá síðustu mánuði ársins. Kröfðust þeir lagfæringar og gáfu yfir- völdum vikufrest til að breyta fiskverðinu, sem samþykkt hafði þó verið í Verðlagsráði sjávarútvegsins með öllum at- kvæðum. Til þess að fylgja þess um kröfum fram sigldi svo flot- inn í höfn og lagðist við land- festar. Fiskiskipafloti iands- manna, að nokkrum togurum, síldarbátum og handfærabátum undanskildum, lá svo í höfn þar til samkomulag náðist síðustu mánudagsnótt. Samkomulagið á milli ríkis- valds og sjómanna felur það í sér, að fiskverðið verði tekið til endurskoðunar með tilliti til samsetningar aflans, og komi í Ijós að meðaltalshækkun verði minni en 3,5%, skuli greiða upp bót á stórufsa og milliufsa. Enn fremur, að uppbætur verði auknar á línufisk úr 60 aurum í 90 aura á kíló og hlutur fisk- kaupenda hækki að sama skapi, úr einni krónu í hálfa aðra krónu. Og enn var samþykkt, að endurskoðun færi fram á sjóðakerfi sjávarútvegsins. Með þessu eru sjómönnum tryggðar sömu kjarabætur og landverkafólki og fiskveiðar eru hafnar á ný. □ Sauðárkróki, 27. október. Nú er bjart veður og fagurt. Sauðfjár- slátrun lýkur á morgun, Lógað er • um 63 þúsund fjár hér á Sauðárkróki. Á Sauðárkróki var mikil og góð þátttaka í kvennafríinu á föstudaginn, hinn 24. október, þó hélt slátrun áfram þann dag, enda unnu sumar konurnar Hins vegar voru frystihúsin lokuð, ennfremur nokkrar versl anir. Konurnar höfðu opið hús að Bifröst og var þar fullt út úr dyrum. Þar fluttu ræður og ávörp: Guðbjörg Bjarman, Helga Kristjánsdóttir, Guðrún Ásgeirsdóttir, Jóhanna Jóns- dóttir, Hólmfríður Jónasdóttii' og Inga Jóhannesdóttir. Framsók n ar m e n n Framsóknarfélag Akureyrar heldui- fund í Hafnarstræti 90 á morgmi, fimmtudag, kl. 20.30. Þar verða m. a. kosnir fulltrúar á kjördæmisþingið, sem haldið verður á Akureyri 8. og 9. nóvember. Þá skýrir Sigurður Jóhannes- son frá hitaveitumálum bæjar- ins. Framsóknarfólk er beðið að mæta vel og stundvíslega. Sjá auglýsingu um fundinn á öðrum stað. Q NÝR SKÓLASTJÓRI Dalvík, 27. október. Þótt menn hafi eitthvað farið til rjúpna, hefur veiðin naumast verið teljandi. Við skólastjórastarfi Tónlist- arskólans á Dalvík tók í haust nýr skólastjóri, Kári Gestsson, sem undanfarin þrjú ár hefur En rúsínan í pylsuendanum var sú, að skipverjar á togurun- um hér á staðnum, buðu öllum til kaffidrykkju og önnuðust sjálfir framreiðsluna. Voru kon ur hinar ánægðustu með þetta. Fjöldi kvenna úr sveitinni komu til Sauðárkróks þennan dag og tóku þátt £ hátíðahöld- unum. Togararnir þrír liggja enn við hafnargarðinn, en verið er að ísa þá og munu þeir að því loknu halda á veiðar. Er það gleðiefni að þessi togaradeila er leyst, en samt verður eitthvert uppihald á fiskvinnu vegna stöðvunarinnar. G. O. Ilöggborinn á Syðra-Laugalandi. (Ljósm.: E. D.) Kristján Friðriksson. stundað nám við tónlistarhá- skóla í London. Faðir hans, Gestur Hjörleifsson, var þar áður skólastjóri en er nú kenn- ari við skólann, ásamt skóla- stjóranum. Nemendur eru um 80. Kennslugreinar eru: Barna- músik og í henni eru flestir, einnig er kennsla í orgel- og píanóleik, á blásturshljóðfæri og svo er kórskóli, einkum fyrir fullorðna. Slátrun lauk sl. fimmtijdag og lauk með dansleik frammi á Grund á föstudagskvöldið. Lóg- að var 12.513 fjár, þar af 11.066 dilkum, sem vigtuðu án nýrna- mörs til jafnaðar 14,446 kg, sem er 651 grammi meiri meðalvigt en £ fyrrahaust. Þyngsta dilk- inn átti Jónmundur Zophonías- son á Hrappsstöðum, 29,7 kg. Björgvin kom hér inn á föstu daginn og hafði þá verið úti tæpa viku. Kom hann með 55 tonn af fiski. Aðrir bátar hafa verið eitthvað lítið á sjó, en margir fóru út í morgun og Björgvin er að fara. V. B. Borun hafin á Laugalandi fyrir hitaveitu Akureyrar Hitaveita Akureyrar er mjög á dagskrá og hefur verið það und- anfarna mánuði. Athugaðir hafa verið möguleikar á að nota jarðhitann á Hveravöllum eða í Námaskarði. En með nýja olíubornum, sem keyptur var hingað til lands og getur borað niður á allt að 3600 metra dýpi, þótti ráðlegt að freista þess að fá heitt vatn nær notkunarstað og hafa rannsóknir farið fram í nágrenni bæjarins og í Fnjóska dal af þessu tilefni. Tvö líkleg jarðhitasvæði eru Syðra-Lauga- land í Eyjafirði og Reykir í Fnjóskadal. Að Syðra-Laugalandi var byrjað að bora með höggbor fyrir fáum dögum og var bor- inn settur niður á túninu vest- an við Húsmæðraskólann. Með þessum bor er áætlað að bora 30—40 metra djúpa holu, 22 þumlunga víða. Síðan á að flytja hinn mikla og áðurnefnda bor, sem £ sumar leitaði vatns við Þorlákshöfn, norður og á hann að taka við þar sem högg- borinn hættir. Samningum um stóra borinn við ríki og Orku- stofnun er ekki að fullu lokið, en líklegt að þeim verði hraðað. Sérfræðingar Orkustofnunar hafa hvatt til borunar á þessum stað og því eru verúlegar vonir bundnar við framkvæmd þessa, sem er mjög dýr. Vegalengdin á milli Akureyrar og Syðra- Laugalands er 14—15 km. Ekki sakar að geta þess, að Kristín Kristjánsson, vestur- íslensk kona, gædd kunnum dul rænum hæfileikum, lét svo um- mælt er hún dvaldi á Syðra- Laugalandi fyrir nokkrum ár- um, að á þeim stað væri mikið heitt vatn í jörðu. En ekki var á þeim tíma farið að tala um jarðhita þar sem hitagjafa fyrir Akureyri. □ Kvennafrídagurinn Hsfkeðjan”, erindi Krisfjáns Friðrikssonar Kristján Friðriksson iðnrekandi £ Reykjavík heldur fundi á Raufarhöfn og Þórshöfn á mið- vikudag og fimmtudag og flyt- ur þar erindi sitt „Hagkeðjuna", en það fjallar um nýskipan í atvinnumálum, einkum í sjávar útvegsmálum og iðnaðarmál- um. Á Akureyri flytur Kristján þetta erindi á Hótel KEA sunnu daginn 2. nóvember kl. 3 e. h. til skýringar erindinu notar ræðumaður 15 spjöld með línu- ritum og uppdráttum. Að erindi loknu hefjast svo fyrirspurnir og umræður, og er þess vænst, að sem flestir áhugamenn um efnahagslíf landsmanna mæti og taki þátt í fundarstörfum. Kristján Friðriksson hefur þegar flutt erindi sitt, „Hag- keðjuna" á allmörgum stöðum og hefur það hvarvetna vakið mikla athygli, og á sumum stöð um hafa verið gerðar samþykkt ir um áskorun til stjórnvalda, um að taka tillögurnar til sér- stakrar athugunar í sambandi við efnahagsmálin. □ Fregnir herma, að víða um land hafi kvennafrídeginum verið fagnað, ekki aðeins af konum, heldur einnig af körlum. Sam- staða kvenna hefur ekki aðeins vakið athygli innanlands, held- ur einnig meðal annarra þjóða. í Reykjavík var gífurlegt fjöl- menni á útifundi.- Á Akureyri höfðu konur opið hús í Sjálf- stæðishúsinu og mættu þar hátt á annað þúsund konur, sem undu sér við fjölbreytta dag- skrá, er undirbúningsnefnd hafði skipulagt. Kvennafrídagurinn var ekki aðeins frídagur, heldur einnig baráttudagur fyrir launajafn- rétti. Má ætla, að hin mikla samstaða kvenna á kvennafrí- deginum kunni að valda þátta- skilum, ef vel er á málum hald- ið í framhaldi af þessari öflugu kynningu. Kvennafrídagurinn á Akureyri var með glæsibrag og konum til mikils sóma. □

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.