Dagur - 29.10.1975, Page 2
2
I H ■ t ■ B I
ííér á niyntíinrá, sem Fr. Vestm. tók í gæi', eru 12,5 metra iungir stálbitar, blauthúðaðir hjá
íyrirtækinu Sanðblástur .og málmhúBum si. á Akureyri. Bitar þessir eiga að fara í byggða-
iínuna og eru samtals 170 tonn. Biliinn á isynílinni er með 13 tonn af þessari vöru, og er að
leggja af stað vestur.
■ B ■ ■
I ■ ■ ■ I
,VAV,
”.V/
n •■_■_■_!
AA-samtökin á Akureyri héidu
kynningarfund í VarSborg á
laugardaginn. Þar voru all-
margir gestir að sunnan, auk
heimamanna, sem hefðu þurft
að vera miklu fleiri. Margir
menn tóku til máls og sögðu
frá reynslu sinni umbúðalaust,
hvernig þeir smám saman urðu
alkóhó’listar og hvernig :þeir á
ný urðu hamingjusamir menn
og fullgildir þegnar þjóðfélags-
ins.
Það þarf ætíð nokkra karl-
mennsku en einnig raunsæi og
auðmýkt til þess, fvrir drykkju
menn, að játa eigið áfengisböl
fyrir sjálfum sér og öðrum.
Fyrr en menn gera það, er lítil
batavon. Mönnum hefur ætíð
þótt etfitt áð viðurkenna, að
þeir kunni ékki með áfengi að
fara, þrjóskast jafnvél eftir að
hafa lagt heimilishamingjuna
og efnáhaginn í rúst.
Það lhefur orðið fjölda manns
örugg hjálp að kynnast' AA-
samtökunum og njóta þess
stuðnings, sem þau reyna að
veita öllum, sem þess óska. Við
þekkjum öll fleiri eða færri
áfengissjuklinga, sem hafa ver-
Lækkun ðfengjskaupsaldurs
Eins og kunnugt er var áfengis
kaupaaldur lækkáður í 18 ár í
Kanada fyrir nokkrum árum.
— Fáir gerðust til að mótmæla
enda töldu menn að áfengis-
neysla unglinga væri ærin fyrir
og betri væri lögleg drykkja en
ólögleg.
Reynslan hefur orðið hörmu-
leg og í ýmsum lögsagnarum-
dæmum er farið að ræða um að
hækka löglegan áfengiskaupa-
aldur á ný.
Olögleg drykkja hefur ekki
minnkað, aðeins færst til enn
yngri aldursflokka.
Ofdry.kkja meðal táninga hef-
ur færst mjög í aukana.
í Ontarióborg einni saman
jukust umferðarslys, þar sem
18 ára unglingar komú við sögu,
um 300% á einu ári og um
348% þar sem 19 ára unglingar
áttu hlut að máli.
Þess má og geta í þessu sam-
bandi að áfengislaganefndin
sænska (APU), sem starfaði
tæpan áratug og lauk störfum
í fyrra, mælir gegn lækkun lög-
aldurs til áfengiskaupa í áliti
sínu.
Áfengisvamaráð.
Norður-þingeyingar telja að
gera þurfi stórt átak til að efla
byggð í héraðinu. Þeir telja, að
í óefni horfi, ef stóriðja til út-
flutnings með innlent vatnsafl
sem orkugjafa er efld á suð-
vesturhorni landsins, en aðrir
landshlutar látnir sitja við hefð
bundna frumvinnslu eina.
Af þessu tilefni gerðu sýslu-
nefnd norður-þingeyinga svo-
hljóðandi ályktun:
„Sýslunefnd Norður-Þingeyj-
arsýslu ályktar vegna iramkom
inna hugmynda um byggingu
álverksmiðju á Norðurlandi.
Nefndin telur einboðið, að
mikið landrými Norður-Þing-
eyjarsýslu og vatnsafl eigi að
nýta, ef álverksmiðja verður
byggð á Norðurlandi. Bendir
nefndin á, að stutt yrði að flvtja
raforku frá væntanlegri Detti-
fossvirkjun í slíka verksmiðju,
er reist yrði á Melrakkasléttu.
Sérstaklega bendir nefndin á,
hversu auðveldara yrði að leysa
mengunarvandamál þar en
annars staðar.“ □
Oteendinpr sjéroarps í liium
Sú ákvörðun sjónvarpsyfir-
valda, að senda aðsent efni út
í litum, hefur vakið mikla eftir-
tekt. Þeir, sem litasjónvörp
eiga, njóta því verulegra for-
réttinda nú, þar sem afnota-
gjald er hið sama, fyrst um
sinn. Fregnir herma, að nú sé
ös í litasjónvarps-verslunum og
birgðir á þrotum. Líklegt er, að
með þessari ákvörðún sjón-
varps, hefjist mikill innflutn-
ingur litasjónvarpstækja, sem
er dýr vara. Litasjónvarp kost-
ar nú 160—380 þúsund krónur,
og viðgerðaþjónusta mun tæp-
ast fyrir hendi ennþá. Giskað
hefur verið á, að ef landsmenn
skipta yfir í litasjónvarp, muni
það kosta neytendur um 5
milljarða króna.
ið orðnir mjög óhamingjusamir,
en eru nú sem nýir menn. Og
það er einmitt þessi staðreynd,
sem gefur mönnum vonir og
fullan rétt til að benda á leið
AA-manna til bjargar. Þeir,
sem einu sinni eru orðnir
alkóhólistar, verða það ætíð,
segja samtökin, en munurinn
er sá að vera virkur eða óvirk-
ur. Drykkjumaðurinn verður
fyrst og fremst sjálfur að leggja
sig fram, vera hreinskilinn við
sjálfan sig og takast á við vand-
ann með viljakrafti sínum. En
það sem oft skiptir sköpum, er
að njóta styrks annarra manna,
sem skilja vandamálið af eigin
raun og vilja aðstoða, í stað
þess að standa einir.
Um leið og sá er þetta ritar
þakkar kynningarfundinn eru
fluttar árnaðaróskir til AA-
manna. Megi þeir vinna sem
flest björgunarstörf. Og þeim,
sem veikir eru fyrir áfenginu,
er um leið bent á að kynna sér
úrræði AA-samtakanna. □
OPID BRÉF VARÐANDI
SVEIN Á KRÓKNUM
Maður er nefndur Sveinn Guð-
mundsson. Hann á heima á
Króknum, er á miðjum aldri
eða vel það. Sveinn þessi hefur
með höndum ýmis trúnaðar-
storf þar undir Nöfunum. Lengi
hefur hann verið deildarstjóri
hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og
kjötmatsmaður í áratugi. Hann
er í hestamannafélögum, er
reiðmaður góður og á besta
graðhest á landinu. Hann er í
stjórn dýí'averndunarfélags og
var um skeið brunaliðsstjóri en
hætti því. stai'fi af dularfullum
ástæðum. Fleira hefur Sveinn
verið kenndur við. Hann hreins
aði Eyvindarstaðaheiði af ólög-
legum graðhestum sumarið
1960.
Þegar á allt er litið er þessi
maður að gagni og hefur þó
annmarka nokkra. Hann er
skapmikill og gengur illa að
ráða við þann galda fola sem
skaplyndi hans er og verður
stundum slys á tungunni.
Það var sunnudaginn 8. júní
síðastliðisn, kl. 11 fyrir hádegi,
að Sveinn Guðmundsson sagði,
að ég vferi „eins og geltandi
hundur fyrir Gísla í Holti.“
Setning þessi var sögð á plan-
inu við Ábæ í suðurjaðri Sauð-
árkróksbæjar.
Maðurinn er æðsta skepna
jarðarinnar, en hundar eru
einni eða tveimur tröppum
neðar í lífsstiganum. Hundar
hafa þó ýmsa eiginleika, sem
menn hafa ekki. Þeir skynja
slæðing og láta þá vita. Einn
eiginleika hafa hundar, sem við
Sveinn höfum ekki, en mættum
vera glaðir yfir að eiga. Það er
trygglyndi.
Vanmáttur hunda á móti
mannskepnum er þó mikill.
Ekki geta þeir metið kjöt eins
og Sveinn gerir, nema þá eftir
sínum smekk og ekki geta þeir
kveikt á kertum í kirkjunni
eins og ég geri.
fimm hefti
ÓKEYPIS
Samvinnan hefur löngum verið með ódýrustu blöðum,
og er svo enn.
Árgangurinn kostar aðeins 1500 krónur.
Samvinnan kemur nú út tíu sinnum á ári,' og er hvert
hefti minnst 28 blaðsíður.
Árgangurinn er því um 300 síður að stærð.
Samvinnan er vönduð að aliri ytri gerð; hún er prentuð
á góðan pappír, með litprentaðri forsíðu — og flytur
fjölbreytt efni við allra hæfi.
Nýir áskrifendur Samvinnunnar fá hálfan árgang, fimm
hefti, ÓKEYPIS um leið og þeir gerast áskrifendur.
^Samvinnan
-----------------------------------------------------
UndirritaSur óskar að gerast áskrifandi að Samvinnunni
Nafn
Heimili
SAMVINNAN
Suðurlandsbraut 32
Reykjavík
En þó að Sveinn Guðmunds-
son sé í dýraverndunarfélaginu
er mikið öryggisleysi í ríki
hunda. Nú eru háværar kröfur
um það á Krókunm, að tíkin
hans Ármanns verði send yfir
landamærin af því hún geltir
á torginu um messutímann.
Ekki þarf ég að láta dæma
Svein Guðmundsson , i fyrir
nefnd meiðyrði, því þau erp
ómerk af sjálfu sér.lEn,slys á
tungunni er stundum hægt að
bæta með fjármunum, og nú
geri ég þá kröfu, að Sveinn
greiði mér fimmtíu þúsund
krónur í miskabætur og verði
greiðslan innt af hendi fyrir ára
mót næstkomandi, því fé þetta
á að ganga upp í skuld í kaup-
félaginu.
Sveinsstöðum, 21. okt. 1975.
Bjöm Egilsson.
BOGI NÍLSSON
SÝSLUMAÐUR
Forseti íslands hefur, að tillögu
dómsmálaráðherra, skipað Boga
Nilsson, aðalfulltrúa við bæjar-
fógetaembættið á Akureyri,
sýslumann í Suður-Múlasýslu
og bæjarfógeta á Eskifirði frá
1. janúar 1976 að telja.
Aðrir umsækjendur um
embættið voru: Ingvar Björns-
son bæjarlögmaður í Flafnar-
firði, Jón P. Emils fulltrúi yfir-
borgarfógeta í Reykjavík, Sig-
urður Hallur Stefánsson héraðs
dómari í Keflavík og Þorsteinn
Skúlason fulltrúi yfirborgar-
fógeta í Reykjavík. □
Selurinn éfur
ógrynni af fiski
Fiskifræðingar telja, að hér við
land éti selurinn þúsundir
tonna af fiski á ári hverju.
Rannsóknir á selastofninum
haía ekki verið miklar, en
verða nú auknar á vegum Rann
sóknarstofnunai' fiskiðnaðarins
og Hafrannsóknarstofnunar.
Samband er á milli selastofns-
ins og hringorms í fiski. Talið
er, að hér við land séu 30—35
þúsund landselir og 2—3 þús-
und útselir. Selir éta dag'lega
10% af eigin þyngd, mest fisk.
Að sögn Sólmundar Einars-
sonar fiskifræðings er sela-
stofninn ekki fullnýttur. Árlega
eru drepnh' um 10 þúsund
kópar, einkum landselskópar.
Jólamerki
Kvenfélagið Framtíðin á Akur-
eyri hefir um áratuga skeið
gefið út jólamerki og rennur
ágóði af útgáfunni til elliheimila
Akureyrarbæj ar.
í tilefni kvennaársins hefir
félagið nú mynd af hinum
þekkta kvenskörungi, frú Aðal-
bjöi'gu Sigurðardóttur, sem
hélgaði líf sitt menntun og
mannúðarmálum hér á landi.
Ekki þarf að rekja þátt frú Aðal
bjargar í málefnum kvenna, svo
þekkt var hún öllum núlifandi
íslendingum.
Merkið er gefið út í tveimur
stærðum og selt á Pósthúsinu
og hjá kvenfélagskonum á
Akureyri. □