Dagur - 29.10.1975, Síða 2

Dagur - 29.10.1975, Síða 2
2 I H ■ t ■ B I ííér á niyntíinrá, sem Fr. Vestm. tók í gæi', eru 12,5 metra iungir stálbitar, blauthúðaðir hjá íyrirtækinu Sanðblástur .og málmhúBum si. á Akureyri. Bitar þessir eiga að fara í byggða- iínuna og eru samtals 170 tonn. Biliinn á isynílinni er með 13 tonn af þessari vöru, og er að leggja af stað vestur. ■ B ■ ■ I ■ ■ ■ I ,VAV, ”.V/ n •■_■_■_! AA-samtökin á Akureyri héidu kynningarfund í VarSborg á laugardaginn. Þar voru all- margir gestir að sunnan, auk heimamanna, sem hefðu þurft að vera miklu fleiri. Margir menn tóku til máls og sögðu frá reynslu sinni umbúðalaust, hvernig þeir smám saman urðu alkóhó’listar og hvernig :þeir á ný urðu hamingjusamir menn og fullgildir þegnar þjóðfélags- ins. Það þarf ætíð nokkra karl- mennsku en einnig raunsæi og auðmýkt til þess, fvrir drykkju menn, að játa eigið áfengisböl fyrir sjálfum sér og öðrum. Fyrr en menn gera það, er lítil batavon. Mönnum hefur ætíð þótt etfitt áð viðurkenna, að þeir kunni ékki með áfengi að fara, þrjóskast jafnvél eftir að hafa lagt heimilishamingjuna og efnáhaginn í rúst. Það lhefur orðið fjölda manns örugg hjálp að kynnast' AA- samtökunum og njóta þess stuðnings, sem þau reyna að veita öllum, sem þess óska. Við þekkjum öll fleiri eða færri áfengissjuklinga, sem hafa ver- Lækkun ðfengjskaupsaldurs Eins og kunnugt er var áfengis kaupaaldur lækkáður í 18 ár í Kanada fyrir nokkrum árum. — Fáir gerðust til að mótmæla enda töldu menn að áfengis- neysla unglinga væri ærin fyrir og betri væri lögleg drykkja en ólögleg. Reynslan hefur orðið hörmu- leg og í ýmsum lögsagnarum- dæmum er farið að ræða um að hækka löglegan áfengiskaupa- aldur á ný. Olögleg drykkja hefur ekki minnkað, aðeins færst til enn yngri aldursflokka. Ofdry.kkja meðal táninga hef- ur færst mjög í aukana. í Ontarióborg einni saman jukust umferðarslys, þar sem 18 ára unglingar komú við sögu, um 300% á einu ári og um 348% þar sem 19 ára unglingar áttu hlut að máli. Þess má og geta í þessu sam- bandi að áfengislaganefndin sænska (APU), sem starfaði tæpan áratug og lauk störfum í fyrra, mælir gegn lækkun lög- aldurs til áfengiskaupa í áliti sínu. Áfengisvamaráð. Norður-þingeyingar telja að gera þurfi stórt átak til að efla byggð í héraðinu. Þeir telja, að í óefni horfi, ef stóriðja til út- flutnings með innlent vatnsafl sem orkugjafa er efld á suð- vesturhorni landsins, en aðrir landshlutar látnir sitja við hefð bundna frumvinnslu eina. Af þessu tilefni gerðu sýslu- nefnd norður-þingeyinga svo- hljóðandi ályktun: „Sýslunefnd Norður-Þingeyj- arsýslu ályktar vegna iramkom inna hugmynda um byggingu álverksmiðju á Norðurlandi. Nefndin telur einboðið, að mikið landrými Norður-Þing- eyjarsýslu og vatnsafl eigi að nýta, ef álverksmiðja verður byggð á Norðurlandi. Bendir nefndin á, að stutt yrði að flvtja raforku frá væntanlegri Detti- fossvirkjun í slíka verksmiðju, er reist yrði á Melrakkasléttu. Sérstaklega bendir nefndin á, hversu auðveldara yrði að leysa mengunarvandamál þar en annars staðar.“ □ Oteendinpr sjéroarps í liium Sú ákvörðun sjónvarpsyfir- valda, að senda aðsent efni út í litum, hefur vakið mikla eftir- tekt. Þeir, sem litasjónvörp eiga, njóta því verulegra for- réttinda nú, þar sem afnota- gjald er hið sama, fyrst um sinn. Fregnir herma, að nú sé ös í litasjónvarps-verslunum og birgðir á þrotum. Líklegt er, að með þessari ákvörðún sjón- varps, hefjist mikill innflutn- ingur litasjónvarpstækja, sem er dýr vara. Litasjónvarp kost- ar nú 160—380 þúsund krónur, og viðgerðaþjónusta mun tæp- ast fyrir hendi ennþá. Giskað hefur verið á, að ef landsmenn skipta yfir í litasjónvarp, muni það kosta neytendur um 5 milljarða króna. ið orðnir mjög óhamingjusamir, en eru nú sem nýir menn. Og það er einmitt þessi staðreynd, sem gefur mönnum vonir og fullan rétt til að benda á leið AA-manna til bjargar. Þeir, sem einu sinni eru orðnir alkóhólistar, verða það ætíð, segja samtökin, en munurinn er sá að vera virkur eða óvirk- ur. Drykkjumaðurinn verður fyrst og fremst sjálfur að leggja sig fram, vera hreinskilinn við sjálfan sig og takast á við vand- ann með viljakrafti sínum. En það sem oft skiptir sköpum, er að njóta styrks annarra manna, sem skilja vandamálið af eigin raun og vilja aðstoða, í stað þess að standa einir. Um leið og sá er þetta ritar þakkar kynningarfundinn eru fluttar árnaðaróskir til AA- manna. Megi þeir vinna sem flest björgunarstörf. Og þeim, sem veikir eru fyrir áfenginu, er um leið bent á að kynna sér úrræði AA-samtakanna. □ OPID BRÉF VARÐANDI SVEIN Á KRÓKNUM Maður er nefndur Sveinn Guð- mundsson. Hann á heima á Króknum, er á miðjum aldri eða vel það. Sveinn þessi hefur með höndum ýmis trúnaðar- storf þar undir Nöfunum. Lengi hefur hann verið deildarstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og kjötmatsmaður í áratugi. Hann er í hestamannafélögum, er reiðmaður góður og á besta graðhest á landinu. Hann er í stjórn dýí'averndunarfélags og var um skeið brunaliðsstjóri en hætti því. stai'fi af dularfullum ástæðum. Fleira hefur Sveinn verið kenndur við. Hann hreins aði Eyvindarstaðaheiði af ólög- legum graðhestum sumarið 1960. Þegar á allt er litið er þessi maður að gagni og hefur þó annmarka nokkra. Hann er skapmikill og gengur illa að ráða við þann galda fola sem skaplyndi hans er og verður stundum slys á tungunni. Það var sunnudaginn 8. júní síðastliðisn, kl. 11 fyrir hádegi, að Sveinn Guðmundsson sagði, að ég vferi „eins og geltandi hundur fyrir Gísla í Holti.“ Setning þessi var sögð á plan- inu við Ábæ í suðurjaðri Sauð- árkróksbæjar. Maðurinn er æðsta skepna jarðarinnar, en hundar eru einni eða tveimur tröppum neðar í lífsstiganum. Hundar hafa þó ýmsa eiginleika, sem menn hafa ekki. Þeir skynja slæðing og láta þá vita. Einn eiginleika hafa hundar, sem við Sveinn höfum ekki, en mættum vera glaðir yfir að eiga. Það er trygglyndi. Vanmáttur hunda á móti mannskepnum er þó mikill. Ekki geta þeir metið kjöt eins og Sveinn gerir, nema þá eftir sínum smekk og ekki geta þeir kveikt á kertum í kirkjunni eins og ég geri. fimm hefti ÓKEYPIS Samvinnan hefur löngum verið með ódýrustu blöðum, og er svo enn. Árgangurinn kostar aðeins 1500 krónur. Samvinnan kemur nú út tíu sinnum á ári,' og er hvert hefti minnst 28 blaðsíður. Árgangurinn er því um 300 síður að stærð. Samvinnan er vönduð að aliri ytri gerð; hún er prentuð á góðan pappír, með litprentaðri forsíðu — og flytur fjölbreytt efni við allra hæfi. Nýir áskrifendur Samvinnunnar fá hálfan árgang, fimm hefti, ÓKEYPIS um leið og þeir gerast áskrifendur. ^Samvinnan ----------------------------------------------------- UndirritaSur óskar að gerast áskrifandi að Samvinnunni Nafn Heimili SAMVINNAN Suðurlandsbraut 32 Reykjavík En þó að Sveinn Guðmunds- son sé í dýraverndunarfélaginu er mikið öryggisleysi í ríki hunda. Nú eru háværar kröfur um það á Krókunm, að tíkin hans Ármanns verði send yfir landamærin af því hún geltir á torginu um messutímann. Ekki þarf ég að láta dæma Svein Guðmundsson , i fyrir nefnd meiðyrði, því þau erp ómerk af sjálfu sér.lEn,slys á tungunni er stundum hægt að bæta með fjármunum, og nú geri ég þá kröfu, að Sveinn greiði mér fimmtíu þúsund krónur í miskabætur og verði greiðslan innt af hendi fyrir ára mót næstkomandi, því fé þetta á að ganga upp í skuld í kaup- félaginu. Sveinsstöðum, 21. okt. 1975. Bjöm Egilsson. BOGI NÍLSSON SÝSLUMAÐUR Forseti íslands hefur, að tillögu dómsmálaráðherra, skipað Boga Nilsson, aðalfulltrúa við bæjar- fógetaembættið á Akureyri, sýslumann í Suður-Múlasýslu og bæjarfógeta á Eskifirði frá 1. janúar 1976 að telja. Aðrir umsækjendur um embættið voru: Ingvar Björns- son bæjarlögmaður í Flafnar- firði, Jón P. Emils fulltrúi yfir- borgarfógeta í Reykjavík, Sig- urður Hallur Stefánsson héraðs dómari í Keflavík og Þorsteinn Skúlason fulltrúi yfirborgar- fógeta í Reykjavík. □ Selurinn éfur ógrynni af fiski Fiskifræðingar telja, að hér við land éti selurinn þúsundir tonna af fiski á ári hverju. Rannsóknir á selastofninum haía ekki verið miklar, en verða nú auknar á vegum Rann sóknarstofnunai' fiskiðnaðarins og Hafrannsóknarstofnunar. Samband er á milli selastofns- ins og hringorms í fiski. Talið er, að hér við land séu 30—35 þúsund landselir og 2—3 þús- und útselir. Selir éta dag'lega 10% af eigin þyngd, mest fisk. Að sögn Sólmundar Einars- sonar fiskifræðings er sela- stofninn ekki fullnýttur. Árlega eru drepnh' um 10 þúsund kópar, einkum landselskópar. Jólamerki Kvenfélagið Framtíðin á Akur- eyri hefir um áratuga skeið gefið út jólamerki og rennur ágóði af útgáfunni til elliheimila Akureyrarbæj ar. í tilefni kvennaársins hefir félagið nú mynd af hinum þekkta kvenskörungi, frú Aðal- bjöi'gu Sigurðardóttur, sem hélgaði líf sitt menntun og mannúðarmálum hér á landi. Ekki þarf að rekja þátt frú Aðal bjargar í málefnum kvenna, svo þekkt var hún öllum núlifandi íslendingum. Merkið er gefið út í tveimur stærðum og selt á Pósthúsinu og hjá kvenfélagskonum á Akureyri. □

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.