Dagur - 19.12.1975, Page 1
LVIII. árg. — Akureyri, föstudaginn 19. des. 1975 — 55. tölublað
Mikið bvggt á Húsavík
Blaðið hafði á miðvikudaginn
samband við Hauk Harðarson
bæjarstjóra á Húsavík til þess
að leita frétta af framkvæmd-
um á vegum bæjarins. Bæjar-
stjórinn sagþi:
1 Lokið er við fyrsta áfanga
dagheimilis á Húsavík fyrir 60
börn og er það á Grænavelli,
og á þeim sama velli stendur
núverandi dagheimili. Búið er
að steypa upp neðri hæð gagn-
fræðaskólabyggingar og verður
því verki fram haldið ó næsta
ári, eftir því sem efni og ástæð-
ur leyfa.
Olíumöl var sett á meira en
einn kílómeter í götum bæjar-
ins og kantsteinar steyptir þar.
Malbik var blandað á staðnum,
alls 5700 tonn og stærri hluti
þess er eftir og verður notaður
næsta sumar. Hluta af þessari
olíumöl eiga þó mývetningar og
nota hana næsta sumar. Nýrri
götur eru allar búnar undir
varanlegt slitlag og þess vegna
getum við haldið þessu verki
áfram næsta sumar.
Búið er að ganga frá samn-
ingum um eignaraðild Flug-
leiða í hótelinu á Húsavík og
hefur áður verið sagt frá því,
í sambandi við ferðamálin.
Unnið er að áhaldahúsbygg-
Holan víkkuð til að
geta flutt 60-80 seld,
Nú eru starfsmenn við jarðbor-
inn Jötunn í jólaleyfi. En áður
en þeir fóru var borinn kom-
inn niður í nær 1300 metra.
Orðsending
frá RARIK
Rafmagnsveitur ríkisins beina
þeirri ósk til viðskiptavina
sinna, að þeir reyni að tak-
marka rafmagnsnotkun sína á
mesta ólagstíma hátíðisdagana,
sem í hönd fara, þ. e. á aðfanga-
dag kl. 16.00—19.00 og á sama
tíma á gamlárskvöld.
Tafir hafa orðið á afhendingu
rofabúnaðar og hafa því spenna
stækkanir ekki getað átt sér
stað í aðveitustöðinni á Akur-
eyri og við Laxárvirkjun.
Hætta er á, &ð verði notendur
ekki við þessari ósk okkar, að
spennarnir eyðileggist með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Gleðileg jól.
Rafmagnsveitur ríkisins.
lllllllllllliSSII5Blllllil!llflIll!ll
Vatnið er 30 lítrar á sekúndu
og 90 gráðu heitt. Gefur þetta
góðar vónir um framhaldið.
Eftir áramótin verður að því
unnið, að víkka borholuna og
bora lengra niður. Víkkunin
miðast við það, að hún geti
skilað 60—80 lítrum á sekúndu
ef meira vatn finnst þarna eða
unnt er að ná því með dælingu.
Fyrirhugað er svo að bora
næstu holu 700 metrum sunnar,
undir brekkunum, syðst í landi
Syðra-Laugalands.
Akureyringar eru þegar farn-
ir að reikna með hitaveitu ög
bendir allt til þess nú, að svo
geti orðið, jafnvel þótt ekki fáist
nægjanlegt heitt vatn,eða hátt
á 3. hundrað lítar á sekúndu,
sem nægði til að hita upp öll
hús á Akureyri. Allt skýrist
þetta á næstu mánuðum. □
ingu á vegum bæjarins og er
verið að ganga frá henni að
innan og hefst þar rörasteypa í
vetur. Hús þetta stendur á
Höfða, þar sem gamla áhalda-
hús bæjarins er.
Atvinna hefur verið góð á
Húsavík. En því er ekki að
leyna, að verulega hefur dregið
úr fiskafla þetta ár, svo nemur
um 30 af hundraði hjá heima-
bátum. Fiskverkun hefur þó
ekki dregist saman sem þessu
nemur, vegna þess að fenginn
hefur verið togarafiskur til
verkunar.
Sjómenn telja togara dálítið
nærgöngula og telja veiðar
þeirra jafnvel eiga þátt í minnk
andi bátaafla húsvíkinga.
Snjór er lítill og gott bílfæri.
Unnið var við lagfæringar á tog
brautum og finnast munu þeir,
sem óska þess að fá meiri snjó
til að geta notað skíðin sín.
Búið er að koma upp húsi við
báðar togbrautirnar og önnur
er þegar lýst, sagði bæjarstjóri
að lokum. Q
Gestur E. Jónasson og Sigurveig Jónsdóttir í hlutverkum sínum.
(Ljósmyndastofa Páls)
Næstu sýningar hjá Leikfélagi
Akureyrar verða 3. og 4. janúar
aukasýningar á Kristnihald
undir Jökli eftir Halldór Lax-
ness í leikgerð Sveins Einars-
sonar sem hann hefur gert í
samvinnu við höfundinn. L. A.
hefur nú sýnt þessa sýningu 21.
sinni fyrir fullu húsi, sem þýðir
að yfir helmingur Akureyrar-
búa hafi komið í leikhúsið, en
engu að síður er mikil eftir-
spurn ennþá og Gísli Halldórs-
son, sem fer með eitt af aðal-
hlutverkunum, sr. Jón Prímus,
var ekki ráðinn nema til jóla,
en því hefur tekist að breyta
svo að fært verður að hafa
a. m. k. þessar tvær sýningar
eftir nýár. Gísli vinnur jafn-
framt að uppsetningu á Gler-
dýrum Henessie Williams, sem
verður fullbúin fljótlega upp úr
áramótum. Einnig er Rauðhetta
eftir Evgení Svarts á leiðinni,
en henni mun seinka eitthvað
frá því sem áætlað var vegna
þess hve Kristnihaldið hefur
tekið mikið rúm í leikhúsinu.
Leikfélagið biður börnin, sem
eru þess tryggustu aðdáendur,
mikillar velvirðingar á því.
(Fréttatilkynning)
Jólamynd
Menn eru hér ðllfaf é finna kindur
Gunnarsstöðum í Þistilfirði, 17.
desember. Hér er rólegt, vegir
vel færir og snjór-lítill en tals-
verð svellalög. Ekki er róið að
marki á Þórshöfn, kannski einn
bátur og frystihúsið lokað fram
yfir jólii^.
Menn eru að finna kindur og
eru þær allar vel á sig komnar.
Einkum hafa þær fundist í
Tunguselsheiði, einnig á Mið-
fjaiðarheiði, allt austur að Há-
göngum.
Kristján Ásgeirsson á Þórs-
höfn er manna duglegastur að
finna kindur, eins og oft áður.
Hann er bókstaflega alltaf að
finna kindur, síðast í gær fann
hann fjórar og skaut eina tófu
í ferðinni, enda maðurinn byssu
vanur.
Bændur af tveim bæjum
fundu nýlega 12 kindur, sem
ekki höfðu komið að í haust, í
Fagranesi, sem er norðan við
Gunnólfsvíkurfjall.
Rafmagns- og símatruflanir
hafa orðið nokkrar, en menn
eru nú ekki að kippa sér upp
við smámuni hér austurfrá og
ætla ekki að láta það hafa áhrif
á undirbúning jólanna og jóla-
gleðina, að óttast raforkuskort,
hvað sem verður. O. II.
Jólamynd Borgarbíós verður
Mannaveiðar, eftir samnefndri
bók, sem út kom í fyrra, og er
kvikmyndin frumsýnd hér.
Aðalhlutverkið leikur Clint
Eastwood og er hann jafnframt
leikstjóri. Aðrir leikstjórar, sem
til var leitað, vildu ekki vinna
það til að hætta lífi sínu við
myndatökuna í lóðréttum norð-
urhlíðum Eiger-tindsins í Sviss.
Þetta er í annað skiptið, sem
Borgarbíó er svo heppið að geta
frumsýnt jólamynd sína. □
JOLASAMSONGUR
Akureyrartogarar
Verslanir eru opnar til kl. 18 á
niorgun, laugardag, og til kl.
24 á Þorláksdag.
lllflllllllllllli5EfiiBI!!!llll!IIIgi!l
Kirkjukór Akureyrarkirkju,
Söngfélagið Gígjan og félagar
úr karlakórnum Geysi halda
jólasamsöng í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 28. des. kl. 21. Þar
syngja kórarnir hvor um sig og
einnig sameiginlega. Einsöng og
tvísöng syngja Gunnfríður
Hrciðarsdóttir, Kristjón Jó-
hannsson og Sigurður Svan-
bergssón. Stjórnandi er Jakob
Tryggvason en undirleik ann-
ast Tomas Jacksson, kennari
við Tónlistarskólann. Á söng-
skránni eru nær eingöngu jóla-
sálmar og jólalög. Aðgangur að
samsöngnum er ókeypis.
( Fréttatilky nning )
Kaldbakur landaði 15. desem-
ber 86 tonnum. Skiptaverð 3.313
milljónir króna.
Svalbakur landaði í fyrradag
ca. 100 tonnum.
Ilarðbakur gamli landaði 28
tonnum 16. des. Skiptaverð 909
þúsund krónur.
Sléttbakur landaði 5. des. 104
tonnum. Skiptaverð 3.840 millj.
krónur. Hann er væntanlegur
með afla í dag, föstudag.
Sólbakur landaði 10. desem-
ber 65 tonnum. Skiptaverð 2.265
milljónir króna.
Ilarðbakur nýi landaði 8. des.
102 tonnum. Skiptaverð 4 millj.
króna. Hann landar hér væntan
lega á sunnudaginn.
Harðbakur gamli verður
eini togarinn, sem í heimahöfn
verður um jólin, en hinir verða
allir á veiðum. □
Dagur óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla!