Dagur - 11.02.1976, Blaðsíða 8
Akureyri, miðvikutlaginn 11. febrúar 1976
GU-TL)
TÍSKUHÁLS- B /fM - GULLSMÍÐIR ,V
KEÐJURNAR %jff J§ \ SIGTRYGGÚR'
NÝKOMNAR 1 & PÉTUR
* AKUREYRI
SMÁTT & STÓRT
Gestur E. Jónasson og Aðalsteinn Bergdal í hlutverkum sínum.
(Ljósmyndastofa Páls)
Barnaleikritið Rauðhetta verð-
ur frumsýnt í leikhúsi bæjarins
næstkomandi laugardag, 14.
febrúar. Er þetta fjórða verk-
efni Leikfélags Akureyrar á
þessu leikári.
Höfundurinn er Évgni
Schvarts, sem er sovéskur gyð-
ingur frá Leningrad, þekktur
höfundur af mörgum ævintýra-
leikjum sínum. Söguna af Rauð
hettu segir hann eins og allir
þekkja hana, en inn í hana flétt-
ast langt og viðburðaríkt ferða-
lag gegn um hættur skógarins.
Leikstjóri er Þórir Stein-
grímsson, leikmyndina hefur
Hallmundur Kristinsson gert og
leikarar eru fimmtán. Með
aðal hlutverkin fara: Ingibjörg
Aradóttir^ sem leikur Rauð-
hettu, Marinó Þorsteinsson leik-
ur úlfinn, Aðalsteinn Bergdal
leikur refinn og Saga Jónsdótt-
ir le'ikur hérann. En þessi þrjú
dýr koma mest við sögu í þessu
skemmtilega barnaleikriti, í
þeirri tvísýnu baráttu um það,
hvort Rauðhetta verður etin
eður ei.
Undirleik við söngva leik-
ritsins annars Gunnar Tryggva-
son.
Allir miðar eru seldir á sama
verði og ætti það að auka að-
sókn foreldranna. □
MINNIMJÓLK, MEIRA KJÖT
Á sl. ári tóku mjólkurbúin á
móti tæplega 111,5 millj. kg af
mjólk. Það var rétt um 4,4 millj.
kg minna en árið áður, en þá
87 þús. fonn
Loðnuaflinn síðastliðið laugar-
dagskvöld var rúmar 87 þúsund
lestir. Engin löndunarbið er
lengur á Austfjarðahöfnum.
Bræðsluskipið Norglobal liggur
á Reyðarfirði og hefur þegar
tekið á móti nokkur þúsund
tonnum af loðnu. Bræla hefur
verið á miðunum síðustu sólar-
hringa og því lítill loðnuafli. □
var innvegin mjólk um 115,9
millj. kg. Þessi mismunur gerir
rúmlega 4,3 millj. ltr. Ef miðað
er við meðalverðlagsgrundvall-
arverð fyrir sl. ár, urðu tekjur
bænda 206 millj. kr. lægri en
ef mjólkurmagnið hefði haldist
óbreytt frá árinu áður. Þennan
tekjumissi fær bændastéttin
sem heild að nokkru bætt upp
með hærri meðalvigt dilka á sl.
hausti miðað við haustið 1974.
Samtals var slátrað 871.755 dilk
um. Meðalvigtin reyndist vera
14,67 kg. Haustið 1974 var slátr-
að 828.090 dilkum. Meðalvigtin
þá var 14,21 kg. Mismunur ei"
460 g á dilk að meðaltali, þannig
að fyrir hærri meðalvigt feng-
ust 401 tonn í auknu magni af
dilkakjöti. Framleiðendur ættu
að -fá í sinn hlut um 158 millj.
kr. meiri tekjur en hefði meðal-
vigtin reynst óbreytt frá fyrra
ári. Á þessum sameiginlega
mjólkur- og dilkakjötsreikningi
hefur útkoman orðið sú, að
bændur hafa tapað 48 millj. kr.
Heildarslátrun sauðfjár á sl.
hausti reyndist vera 961.802 stk.
Það er 54.289 fleira en áfið
óður. Kindakjötið, sem kom-á
markað í haust, var 1.214 smá-
lestum meira en árið 1974.
(Upplýsingaþjónusta
landbúnaðarins)
ÞRJÚ STÓRMÁL
Margir ætla, að rógskrifin um
dómsmálaráðherra séu til þess
skipulögð að sprengja stjórnina.
Þótt eílaust megi margt að nú-
verandi stjórn finna, ber á hitt
að líta hver verkefni hennar og
Alþingis eru um þessar mundir
og hverjar afleiðingar það hefði,
ef stjórnarsamstarfið rofnaði.
Verkefnin, sem eru öll brenn-
andi eru þau þrjú lielst, að
leysa landhelgisdeiluna eða
berjast til sigurs í lienni, að
leysa kjaradeiluna, að svo
miklu leyti sem liún kemur til
kasta stjórnvalda og glírna við
hinn geigvænlega efnahags-
vanda þjóðarinnar. Með stjórn-
arsliturn og e. t. v. kosningum
væri öllum þessum ínálum
stefnt í voða um verulegan
tíma.
TVÖFELDNIN
TAKMARKALAUS
Tvöfeldni breta á sér engin tak-
mörk. Þeir reyna með hervaldi
að brjóta niður 209 mílna stefn-
una á íslandsmiðum, en styðja
sömu stefnu ákaft innan At-
lantshafsbandalagsins og einnig
á Hafréttarráðstefnu S. þ. Þeir
segjast reiðubúnir, hvenær sem
er og hvar sem er, að semja við
íslendinga um fiskveiðarnar, en
varla líður sá dagur, að þeir
ekki hóti því að senda herskip
sín inn fyrir 200 mílna mörkin,
ef varðskip „áreiti“ veiðiþjóf-
ana og sannarlega hafa þeir gert
alvöru úr hótun sinni.
ÞEIRRA STEFNA I
FYRIRFANNST EKKI
Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn
Akureyrar verða órólegir þegar
minnst er á fjárhagsáætlun
bæjarsjpðs og skrifa um liana
langhunda. Þeir segja, að stefna
bæjarstjórnar á síðasta ári hafi
vel tekist í höfuðdráttum •og
stefna sjálfstæðismanna hafi
sannað ágæti sitt. Mönnum
verður á að spyrja, hver stefna
sjálfstæðismanna hafi verið?
Svarið er mjög einfalt: Ilún fyr-
irfannst engin. Þegar fjárliags-
áætlun bæjarsjóðs fyrir árið
1975 var gerð, voru bæjarfull-
trúar sjálfstæðismanna ýmist
með eða á móti og við endan-
i er i
Fosshóli, 9. febrúar. Héraðs-
glíma HSÞ 1975 var glímd í
Skjólbrekku 8. febrúar sl. Kepp
endur voru fimm. Sigurvegari
varð Ingi Ingvason, hlaut fjóra
vinninga. Næstur varð Kristján
Ingvason, hlaut þrjá vinninga
og Björn Ingvason tvo vinninga.
En þessir eru allir í Ungmenna-
félaginu Mývetningi. Hjörleifur
Sigurðsson frá sama félagi
hlaut hálfan vinning ig Baldvin
Baldvinsson frá Ungmenna-
félaginu Gaman og alvöru í
Kinn hlaut einnig hálfan vinn-
ing.
Héraðsglíman var stigakeppni
á milli félaga í fyrsta sinn og
hlaut Ungmennafélagið Mývetn
ingur skjöld þann, er Sniðill h.f.
í Mývatnssveit gaf til keppn-
innar.
Vaxandi áhugi er á glímu í
héraðinu og væntanlegur er
glímukennari, Ingvi Guðmunds
son frá ungmennafélaginu Vík-
verja í Reykjavík. Glíma er nú
æfð á tveim stöðum í héraðinu,
í Mý”atnssveit og Hafralækjar-
skóla. Áformað er að taka glímu
kennslu upp í a. m. k. þrem
skólum héraðsins.
Þann 21. febrúar fer fram
bikarglíma Glímusambands á
Húsavík. Er það í fyrsta sinn,
sem meiriháttar mót þess sam-
bands fer fram utan höfuð-
borgarsvæðisins. A. P.
Á laugardaginn var vinningurinn í sjónvarpsbingói KA — Austin
Mini árgerð 1976 — afhentur. Vinningshafar urðu tveir, Elva Kára-
dóttir og Þórir Valur Lárusson. Myndin er tekin við afhendinguna
og má þar sjá talið frá vinstri Kára Árnason föður Elvu, þá Elvu,
næstur er Sigbjörn Gunnarsson fulltrúi KA og loks Þórir Valur.
(Ljósm.: jeg)
lega afgreiðslu voru þeir svo
aumir, að þeir sátu með hendur
í skauti og greiddu ekki at-
kvæði. Svo koma kokhraustir
menn með leiða samvisku og
segja, að þeirra stefna hafi vel
tekist!
MÖRG HLUTVERK
Vikublöð í hinum ýmsu lands-
ldutum hafa margþætt hlut-
verk. Þau eru málgögn sinna
byggða, bæði í sókn og vörn,
umræðuvettvangur innávið,
miðlarar frétta og auglýsinga,
liafa á hendi fyrirgreiðslur á
mörgum sviðum mannlegra
samskipta og eru baráttutæki
þjóðfélagslegra skoðana. Þessi
hlutverk rækja blöðin á nokkuð
mismunandi liátt, m. a. vegna
þess, að þau eru öll gefin út í
tengslum við ákveðna stjórn-
málaflokka eða gefin út af
þeim, og sum þeirra eýða miklu
rúmi í pólitískan áróður, annað
livort persónubundinn eða
flokksbundinn, en önnur láta
hið ahnenna þjónustusvið skipa
efsta sæti. í því efni veldur sá
er á heldur.
BLAÐAÚTGÁFA ER ERFIÐ
Útgáfa vikublaða hefur jafnan
verið erfið og bjartsýnin oft
orðið að víkja fyrir fjárhags-
legum staðreyndum á þann
veg, að skuldir hamla reglu-
legri útgáfu eða stöðva hana.
Þess vegna eru fá vikublöð út
gefin hér á landi. Hins vegar
eru þau blöð mörg, sem talin
eru vikublöð og koma þá aðeins
út, að auglýsingar hafi safnast
í blaðið, eða kosningar nálgist.
Þessi blöð eiga auðvitað fullan
rétt á sér, en geta litla almenna
þjónustu vcitt.
(Framhald á blaðsíðu 5)
FRÁ LÖGREGLUNM
Á AKUREYRI
Árni Magnússon varðstjóri
sagði blaðinu eftirfarandi á
mánudaginn:
Þrjú innbrot voru framin um
síðustu helgi á Akureyri: í
Kornvöruhús KEA, Ferðanesti
og Veganesti. Seytján þúsund
krónum var stolið í Veganesti,
eitt þúsund í Kornvöruhúsinu
og fimm eða sex þúsundum í
Ferðanesti. í síðustu viku var
brotist inn í Frystihús KEA.
Tvö innbrotanna eru þegar upp
lýst. Var unglingur að verki á
öðrum staðnum en tveir á hin-
um.
Drengur, sem var að leika sér
á ísjaka sá þann kost vænstan
að synda til lands, er jakinn
barst frá landi, og tókst það.
Umferð hefur gengið vel síð-
ustu daga, og lítið sem ekkert
af umferðaróhöppum. □
Fyrir börnin
í Laxagötu 5 hefst ný sögustund
fyrir börn laugardaginn 14.
febrúar, kl. 14.00. Þar verða
sagðar sögur, myndasögur, sýnd
ar skuggamyndir, kvikmyndir,
sungið og leikið á hljóðfæri. Öll
börn á barnaskólaaldri og yngri
börn í fylgd með þeim velkomin
Jón Hj. Jónsson.