Dagur - 11.02.1976, Page 8

Dagur - 11.02.1976, Page 8
Akureyri, miðvikutlaginn 11. febrúar 1976 GU-TL) TÍSKUHÁLS- B /fM - GULLSMÍÐIR ,V KEÐJURNAR %jff J§ \ SIGTRYGGÚR' NÝKOMNAR 1 & PÉTUR * AKUREYRI SMÁTT & STÓRT Gestur E. Jónasson og Aðalsteinn Bergdal í hlutverkum sínum. (Ljósmyndastofa Páls) Barnaleikritið Rauðhetta verð- ur frumsýnt í leikhúsi bæjarins næstkomandi laugardag, 14. febrúar. Er þetta fjórða verk- efni Leikfélags Akureyrar á þessu leikári. Höfundurinn er Évgni Schvarts, sem er sovéskur gyð- ingur frá Leningrad, þekktur höfundur af mörgum ævintýra- leikjum sínum. Söguna af Rauð hettu segir hann eins og allir þekkja hana, en inn í hana flétt- ast langt og viðburðaríkt ferða- lag gegn um hættur skógarins. Leikstjóri er Þórir Stein- grímsson, leikmyndina hefur Hallmundur Kristinsson gert og leikarar eru fimmtán. Með aðal hlutverkin fara: Ingibjörg Aradóttir^ sem leikur Rauð- hettu, Marinó Þorsteinsson leik- ur úlfinn, Aðalsteinn Bergdal leikur refinn og Saga Jónsdótt- ir le'ikur hérann. En þessi þrjú dýr koma mest við sögu í þessu skemmtilega barnaleikriti, í þeirri tvísýnu baráttu um það, hvort Rauðhetta verður etin eður ei. Undirleik við söngva leik- ritsins annars Gunnar Tryggva- son. Allir miðar eru seldir á sama verði og ætti það að auka að- sókn foreldranna. □ MINNIMJÓLK, MEIRA KJÖT Á sl. ári tóku mjólkurbúin á móti tæplega 111,5 millj. kg af mjólk. Það var rétt um 4,4 millj. kg minna en árið áður, en þá 87 þús. fonn Loðnuaflinn síðastliðið laugar- dagskvöld var rúmar 87 þúsund lestir. Engin löndunarbið er lengur á Austfjarðahöfnum. Bræðsluskipið Norglobal liggur á Reyðarfirði og hefur þegar tekið á móti nokkur þúsund tonnum af loðnu. Bræla hefur verið á miðunum síðustu sólar- hringa og því lítill loðnuafli. □ var innvegin mjólk um 115,9 millj. kg. Þessi mismunur gerir rúmlega 4,3 millj. ltr. Ef miðað er við meðalverðlagsgrundvall- arverð fyrir sl. ár, urðu tekjur bænda 206 millj. kr. lægri en ef mjólkurmagnið hefði haldist óbreytt frá árinu áður. Þennan tekjumissi fær bændastéttin sem heild að nokkru bætt upp með hærri meðalvigt dilka á sl. hausti miðað við haustið 1974. Samtals var slátrað 871.755 dilk um. Meðalvigtin reyndist vera 14,67 kg. Haustið 1974 var slátr- að 828.090 dilkum. Meðalvigtin þá var 14,21 kg. Mismunur ei" 460 g á dilk að meðaltali, þannig að fyrir hærri meðalvigt feng- ust 401 tonn í auknu magni af dilkakjöti. Framleiðendur ættu að -fá í sinn hlut um 158 millj. kr. meiri tekjur en hefði meðal- vigtin reynst óbreytt frá fyrra ári. Á þessum sameiginlega mjólkur- og dilkakjötsreikningi hefur útkoman orðið sú, að bændur hafa tapað 48 millj. kr. Heildarslátrun sauðfjár á sl. hausti reyndist vera 961.802 stk. Það er 54.289 fleira en áfið óður. Kindakjötið, sem kom-á markað í haust, var 1.214 smá- lestum meira en árið 1974. (Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins) ÞRJÚ STÓRMÁL Margir ætla, að rógskrifin um dómsmálaráðherra séu til þess skipulögð að sprengja stjórnina. Þótt eílaust megi margt að nú- verandi stjórn finna, ber á hitt að líta hver verkefni hennar og Alþingis eru um þessar mundir og hverjar afleiðingar það hefði, ef stjórnarsamstarfið rofnaði. Verkefnin, sem eru öll brenn- andi eru þau þrjú lielst, að leysa landhelgisdeiluna eða berjast til sigurs í lienni, að leysa kjaradeiluna, að svo miklu leyti sem liún kemur til kasta stjórnvalda og glírna við hinn geigvænlega efnahags- vanda þjóðarinnar. Með stjórn- arsliturn og e. t. v. kosningum væri öllum þessum ínálum stefnt í voða um verulegan tíma. TVÖFELDNIN TAKMARKALAUS Tvöfeldni breta á sér engin tak- mörk. Þeir reyna með hervaldi að brjóta niður 209 mílna stefn- una á íslandsmiðum, en styðja sömu stefnu ákaft innan At- lantshafsbandalagsins og einnig á Hafréttarráðstefnu S. þ. Þeir segjast reiðubúnir, hvenær sem er og hvar sem er, að semja við íslendinga um fiskveiðarnar, en varla líður sá dagur, að þeir ekki hóti því að senda herskip sín inn fyrir 200 mílna mörkin, ef varðskip „áreiti“ veiðiþjóf- ana og sannarlega hafa þeir gert alvöru úr hótun sinni. ÞEIRRA STEFNA I FYRIRFANNST EKKI Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Akureyrar verða órólegir þegar minnst er á fjárhagsáætlun bæjarsjpðs og skrifa um liana langhunda. Þeir segja, að stefna bæjarstjórnar á síðasta ári hafi vel tekist í höfuðdráttum •og stefna sjálfstæðismanna hafi sannað ágæti sitt. Mönnum verður á að spyrja, hver stefna sjálfstæðismanna hafi verið? Svarið er mjög einfalt: Ilún fyr- irfannst engin. Þegar fjárliags- áætlun bæjarsjóðs fyrir árið 1975 var gerð, voru bæjarfull- trúar sjálfstæðismanna ýmist með eða á móti og við endan- i er i Fosshóli, 9. febrúar. Héraðs- glíma HSÞ 1975 var glímd í Skjólbrekku 8. febrúar sl. Kepp endur voru fimm. Sigurvegari varð Ingi Ingvason, hlaut fjóra vinninga. Næstur varð Kristján Ingvason, hlaut þrjá vinninga og Björn Ingvason tvo vinninga. En þessir eru allir í Ungmenna- félaginu Mývetningi. Hjörleifur Sigurðsson frá sama félagi hlaut hálfan vinning ig Baldvin Baldvinsson frá Ungmenna- félaginu Gaman og alvöru í Kinn hlaut einnig hálfan vinn- ing. Héraðsglíman var stigakeppni á milli félaga í fyrsta sinn og hlaut Ungmennafélagið Mývetn ingur skjöld þann, er Sniðill h.f. í Mývatnssveit gaf til keppn- innar. Vaxandi áhugi er á glímu í héraðinu og væntanlegur er glímukennari, Ingvi Guðmunds son frá ungmennafélaginu Vík- verja í Reykjavík. Glíma er nú æfð á tveim stöðum í héraðinu, í Mý”atnssveit og Hafralækjar- skóla. Áformað er að taka glímu kennslu upp í a. m. k. þrem skólum héraðsins. Þann 21. febrúar fer fram bikarglíma Glímusambands á Húsavík. Er það í fyrsta sinn, sem meiriháttar mót þess sam- bands fer fram utan höfuð- borgarsvæðisins. A. P. Á laugardaginn var vinningurinn í sjónvarpsbingói KA — Austin Mini árgerð 1976 — afhentur. Vinningshafar urðu tveir, Elva Kára- dóttir og Þórir Valur Lárusson. Myndin er tekin við afhendinguna og má þar sjá talið frá vinstri Kára Árnason föður Elvu, þá Elvu, næstur er Sigbjörn Gunnarsson fulltrúi KA og loks Þórir Valur. (Ljósm.: jeg) lega afgreiðslu voru þeir svo aumir, að þeir sátu með hendur í skauti og greiddu ekki at- kvæði. Svo koma kokhraustir menn með leiða samvisku og segja, að þeirra stefna hafi vel tekist! MÖRG HLUTVERK Vikublöð í hinum ýmsu lands- ldutum hafa margþætt hlut- verk. Þau eru málgögn sinna byggða, bæði í sókn og vörn, umræðuvettvangur innávið, miðlarar frétta og auglýsinga, liafa á hendi fyrirgreiðslur á mörgum sviðum mannlegra samskipta og eru baráttutæki þjóðfélagslegra skoðana. Þessi hlutverk rækja blöðin á nokkuð mismunandi liátt, m. a. vegna þess, að þau eru öll gefin út í tengslum við ákveðna stjórn- málaflokka eða gefin út af þeim, og sum þeirra eýða miklu rúmi í pólitískan áróður, annað livort persónubundinn eða flokksbundinn, en önnur láta hið ahnenna þjónustusvið skipa efsta sæti. í því efni veldur sá er á heldur. BLAÐAÚTGÁFA ER ERFIÐ Útgáfa vikublaða hefur jafnan verið erfið og bjartsýnin oft orðið að víkja fyrir fjárhags- legum staðreyndum á þann veg, að skuldir hamla reglu- legri útgáfu eða stöðva hana. Þess vegna eru fá vikublöð út gefin hér á landi. Hins vegar eru þau blöð mörg, sem talin eru vikublöð og koma þá aðeins út, að auglýsingar hafi safnast í blaðið, eða kosningar nálgist. Þessi blöð eiga auðvitað fullan rétt á sér, en geta litla almenna þjónustu vcitt. (Framhald á blaðsíðu 5) FRÁ LÖGREGLUNM Á AKUREYRI Árni Magnússon varðstjóri sagði blaðinu eftirfarandi á mánudaginn: Þrjú innbrot voru framin um síðustu helgi á Akureyri: í Kornvöruhús KEA, Ferðanesti og Veganesti. Seytján þúsund krónum var stolið í Veganesti, eitt þúsund í Kornvöruhúsinu og fimm eða sex þúsundum í Ferðanesti. í síðustu viku var brotist inn í Frystihús KEA. Tvö innbrotanna eru þegar upp lýst. Var unglingur að verki á öðrum staðnum en tveir á hin- um. Drengur, sem var að leika sér á ísjaka sá þann kost vænstan að synda til lands, er jakinn barst frá landi, og tókst það. Umferð hefur gengið vel síð- ustu daga, og lítið sem ekkert af umferðaróhöppum. □ Fyrir börnin í Laxagötu 5 hefst ný sögustund fyrir börn laugardaginn 14. febrúar, kl. 14.00. Þar verða sagðar sögur, myndasögur, sýnd ar skuggamyndir, kvikmyndir, sungið og leikið á hljóðfæri. Öll börn á barnaskólaaldri og yngri börn í fylgd með þeim velkomin Jón Hj. Jónsson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.