Dagur - 31.03.1976, Page 1

Dagur - 31.03.1976, Page 1
Árangur af borun við Reykjabr. Blönduóshreppur eignaðist fyr- ir nokkru hitaréttindi á Reykj- um við Reykjabraut, nálsegt Húnavallaskóla, að níu tíundu á móti Torfalækjarhreppi. Bor- aðar voru þar áður tvær holur, sem ekki gáfu mikinn árapgur. Nú er verið að bora á þessum stað með nýjum jarðbor Orku- stofnunar og í gær var komið á u. þ. b. 900 metra dýpi og komu þá upp 12 sekl. af 75 gráðu heitu vatni, samkvæmt fyrstu lauslegu athugun. Blönduós er talinn þurfa rúmlega þetta magn tvöfalt fyrir hitaveitu sína og ræða menn um, að með dælingu megi ef til vill ná því vatnsmagni upp, án meiri bor- unar, eða ef ekki fæst meira við dýpri borun. □ Dagvistunarmál Nýlega ákvað áhugamannahóp- kanna þörf á dagvistunarstofn- ur, í samráði við Félagsmála- stofnun Akureyrarbæjar, að Þórsstúlkurnar urðu r Islandsmeistarar Um fyrri helgi keppti kvenna- flokkur Þórs f körfubolta við KR og stúdenta f Reykjavík og sigruðu í báðum leikjunum með nokkrum yfirburðum. En um síðustu helgi léku Þórsstúlk- unar við ÍR og Fram og sigruðu einnig í báðum þeim leikjum og unnu þar með íslandsmeist- aratitilinn og voru ósigraðar á þessu móti. Norðanstúlkurnar sigruðu Fram og ÍR með nokkrum stiga mun, unnu IR með 53—44 og Fram með 39—32, og eru því vel að nafnbótinni komnar. □ unum í bænum. Var ákveðnu úrtaki foreldra barna innan 6 ára sent bréf með nokkrum spurningum þar að lútandi og veittur tveggja vikna frestur til að senda svör. Frestur þessi er nú liðinn og kom í ljós að þátttaka foreldra var heldur dræm. Þeir, sem að könnuninni standa, hvetja for- eldra, sem ekki hafa enn sent svör, að bregðast fljótt við og senda þau. Nægilegur fjöldi svara þarf að berast til þess að hægt sé að byggja á niðurstöð- um könnunarinnar. Svörin send ist í umslaði merktu: Dagvist- unarmál, pósthólf 569, Akur- eyri. Bréf þessi má senda ófrí- merkt. Foreldrar, sem óska frekari upplýsinga, vinsamlega hringi í síma 21580. (Fréttatilkynning) Félagsheimili Húsavíkur vígt á laugardaginn. (Ljósm.: Ljósmyndastofa Péturs) Féiagslieimili vígt á Húsavík ■fe: Húsavík, 29. mars. Laugardag- inn 27. þ. m. var félagsheimilið á Húsavík formlega vígt og því gefið nafn. Vígsluathöfnina framkvæmdi sóknarpresturinn á Húsavík, séra Björn H. Jóns- son. Félagsheimilið hlaut nafnið Féilagsheimili Húsavíkur og mun það nafn hafa unnið sér hefð. Einstökum salarkynnum í húsinu var einnig gefið nafn. Lítill fundarsalur í félagaálmu hússins heitir Víkurbær, aðal samkomusalurinn heitir Víkur- naust og leikhúsálman, sem enn er óbyggð, á að heita Víkurver. Eldur í Fataverksm. Heklu Eldur varð laus í Fataverksmiðj unni Heklu á Akureyri aðfara- nótt síðasta föstudags. Var slökkviliðið þegar kallað á stað- inn og slökkti það eldinn á skömmum tíma. Skemmdir é húsinu voru litlar, að undanteknum skilrúm um, en allt varð atað í reyk, og miklar skemmdir urðu á vör- um, einkum skinnavörum. Blaðið náði tali af Hirti Eiríkssyni framkvæmdastjóra Iðnaðardeildar SÍ'S á mánudag- inn og sagði hann m. a.: Viðgerðum á húsinu er að ljúka og einnig er búið að mála það hátt og lágt. í brunanum eyðilögðust mjög verðmæt hrá- efni, einkum skinnavörur, hin dýrmætu mokkaskinn. Ennfrem ur eyðilagðist nokkuð mikið af prjónavoð. Búið er að gera skrá yfir brunatjón varanna, en ekki að verðleggja það. Tjónið skipt- ir milljónum króna, ef ekki millj ónatugum. Búið var fyrir nokkru að ákveða að flytja skinnadeild Heklu í nýtt húsnæði á Óseyri (áður Einir). Flutningi var flýtt og fór hann fram um helgina og þarna hefst vinna á miðviku- daginn. Þarna verða saumaðar mokkakápur, leðurjakkar og margt fleira. Sem kunnugt er, er starfsemi Fataverksmiðjunnar Heklu þrí- skipt. Þar er prjónadeildin, sem er stærsta deildin og framleiddi á síðasta ári um 300 þúsund peysur til útflutnings, þá vinnu- í tilefni vígslunnar var efnt til mannfagnaðar í félagsheimil- inu með fjölþættri skemmtiskrá og veitingum. Árið 1958 var stofnað til samtaka um bygg- ingu félagsheimilisins, en fram- kvæmdir hófust árið 1962. Félagsheimili Húsavíkur er mjög glæsileg bygging, í tengsl- um við nýtt hótel. Enn er þó eftir að byggja leikhúsálmuna við félagsheimilið. Arkitekt hússins er Jósep Reynis. Þ. J. Slétfubændur kaupa loðnu fatadeild, sem einnig er þýðing- amikil og framleiddi á síðasta ári 100 þúsund vinnubuxur, kuldaúlpur og annan fatnað og . svo skinnadeildin, sem mjög miklar vonir eru við bundnar. En alls vinna um 240 manns á Heklu, þar af nokkur hluti þó aðeins hálfan daginn. Fram- kvæmdastjóri er Ásgrímur Stefánsson. Stöðvun framleiðslunnar nú, er alveg óþolandi, sagði Hjörtur Eiríksson að lokum, því það er búið að selja alla þessa árs fram leiðslu fyrirfram. í prjónadeild hefur verið unnið allan sólar- hringinn en tvær vaktir f hin- um deildunum. Meðfylgjandi mynd tók Páll A. Pálsson af slökkvistarfinu. Hóli við Raufarhöfn, 30. mars. Veðráttan hefur verið hagstæð og skemmtileg og góan sólrík, snjóinn hefur tekið og svellin á túnunum hafa næstum horfið. Bændur hafa beitt fé sínu, enda beitarjörð góð, nýkomin undan gaddinum. Bændur á Sléttu keyptu loðnu til fóðurs og er talið að álíka mikið af henni og góðri töðu fari í fóðureininguna, en þó mun loðnan eggjahvíturíkari og kalkauðug er hún. Togarinn Rauðinúpur er bú- inn að veiða 620 lestir síðan um áramót í átta veiðiferðum og landaði í síðustu viku 120 tonn- um og kemur hér á ný með afla seinni part þessarar viku. Vinnu afl vantaði til að vinna að afl- anum og voru fengnar stúlkur frá Þórshöfn til viðbótar heima- fólki eftir síðustu löndun. Unnu þá 50—60 konur í fyrstihúsinu. Atvinna er góð. Skipstjóri á Rauðanúpi er Ólafur Aðal- björnsson frá Akureyri. Grásleppuveiði er hafin og munu fast að tuttugu bátar stunda þær veiðar, bæði opnir vélbátar og þilfarsbátar. Þorsk- afli er mjög lítill. Áburðarskip kom nýlega til Raufarhafnar með allan erlend- an áburð á félagssvæði Kaup- félags Norður-Þingeyinga. Hafn araðstöðu vantar á Kópaskeri og því eru áburðarflutningar um héraðið á landi tilfinnan- legir og dýrir. Minnir það enn á nauðsyn þess, að Sléttuveginn þarf að byggja upp. Þ. S. Lions-bingo N. k. sunnudag kl. 20.30 heldur Lionsklúbbur Akureyrar sitt kunna Lionsbingó í Sjálfstæðis- húsinu. Að venju verður fjöldi glæsilegra vinninga, en aðal- vinningui'inn er Sunnuferð að eigin vali fyrir allt að kr. 50.000. Auk þess verða alls konar raf- magns- og heimilistæki að eigin vali vinningshafa, og verða vinningar til sýnis í glugga Iðnaðarbankans frá n. k. mið- vikudegi. Hinir stórsnjöllu Gísli Rúnar og Baldur Brjánsson sjá um skemmtiatriði. Akureyringar og nærsveita- menn eru hvattir til að fjöl- menna og styrkja gott málefni, þar sem allur ágóði rennur til kaupa á krabbameinsleitartæki fyrir F.S.A. Aðgöngumiðar verða seldir x Sjálfstæðishúsinu sama dag milli kl. 3 og 5 og frá kl. 7. Lionsklúbbur Akureyrar. Umhveríis jörðina á 80 dögum í morgunkaffinu í gær sagði leikhússtjórinn, Eyvindur Er- lendsson: Nú er leikflokkur Leikfélags Akureyrar vestur á Sauðár- króki og sýnir þar Glerdýrin á Sæluviku skagfirðinga fjórum sinnum. Lokið er sýningum á Rauð- hettu. Sýningar urðu 17 talsins og áhorfendur hátt á fjórða þúsund. Verið er að æfa hinn fræga sjónleik Umhverfis jörðina á áttatíu dögum undir leikstjórn leikhússtjórans. Leikendur eru 16, en með aðal hlutverkin fara: Gestur E. Jónasson, Aðalsteinn Bergdal, Þórir Steingrímsson og Saga Jónsdóttir. Frumsýningin verður um 20, apríl og er þetta síðasta verkefni L. A. á þessu leikári. En Davíðskvöld undir stjórn Guðmundar Gunnars- sonar er einnig f æfingu. Q

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.