Dagur - 06.10.1976, Blaðsíða 8
------------- ---
BÁTAVÉLAR
5—45 hestafla
VÉLAR OG SKIP H.F.
Pósthóif 1006
Sími 27544 - Reykjavík
......... J
Akureyri, miðvikudaginn 6. okt. 1976
Barnahnífapör
0g ff i GULLSMIÐIB
barnarammar J/ |\ SIGTRYGGUR
nýkomið. \J & PÉTUR ;
N f AKUREYRI » ■ ' ' □
Helgi M. Bergs bæjarstjóri afíiendw- Haraldi Heigusyni, ioriii. j>órs, peningauppliæð. (Ljósm.st. Páls)
Bæjarstjórn afhenti íþrótta-
félaginu Þór 100 þúsund króna
gjöf, sem viðurkenningu til
kijaítspyrnudeildarinnar fyrir
þann ágæta árangur hennar, að
komast úr þriðju deild upp í
fyrstu leild á tveimur árum. En
þetta er í fyrsta sinn, sem ein-
stakt íþróttafélag á Akureyri
leikur sjólfstætt í deildinni.
Á síðastliðnum vetri var gerð
tilraun til reksturs skóladag-
heimilis á Akureyri í fyrsta
sinn. Það var rekið í leiguhús-
næði. En skóladagheimili er
fyrir börn, sem einhverra hluta
vegna þurfa á sérstakri aðstöðu
að halda, utan skólatíma. Þessi
starfsemi á sl. vetri gaf góða
raun og nauðsyn talin á, að
framhald verði á þessari aðstoð.
Meirihluti bæjarráðs hefur lagt
til við bæjarstjórn, að keypt
verði húseignin Brekkugata 8,
sem er tvær hæðir á kjallara
til þessara nota. Q
Frá Bridgefélagi
Akureyrar
Starfsemi Bridgefélags Akur-
eyrar er hafin. Aðalfundur fé-
lagsins var haldinn 28. septem-
ber ao Hótel KEA.
Fyrsta keppni félagsins verð-
ur fjögurra umferða tvímenn-
ingskeppni sem hefst þriðju-
daginn 12. október kl. 8. Athygli
skal vakin á því að nú verður
spilað í Gefjunarsalnum. Salur-
inn er mjög bjartur og rúm-
góður og loftræsting er þar afar
góð. Þá verður ákveðinn tími á
hvert spil, þannig að keppnin
gangi hraðar en verið hefur.
Bæjarstjórinn, Ilelgi M. Bergs,
afhenti iormanni Þórs, Haraldi
Helgasyni, peningaupphæðina í
kvöldboði sl. föstudag, þar sem
knattspyrnu- og stjórnarmenn
Þórs voru mættir. Við það tæki
færi tóku til máls, auk bæjai'-
stjóra: Forseti bæjarstjórnar,
Valur Arnþórsson, Haraldur
Helgason, Gísli Jónsson, Har-
aldur Sigurðsson og Sigurður
Oli Brynjólfsson. □
Nýkjörin stjórn Bridgefélags
Akureyrar er þannig skipuð:
Þórarinn B. Jónsson formaður,
Ingimundur Árnason varafor-
maður, Gylfi Pálsson gjaldkeri,
Frímann Frímannsson ritari og
Stefán Vilhjálmsson áhalda-
vörður. □
Stjórn kaupfélagsins hefur sam-
þykkt að gefa Vélskóla íslands,
Akureyrardeild, aðal aflvélina
úr gamla Snæfelli, sem ekki er
lengur haldið til veiða og mun
vería sökkt á hafi úti eða eytt
með aðrurn hætti.
Munu aemendur Vélskólans,
undir stjórn forstöðumanns
síns, Björns Kristinssonar, taka
vélina úr skipinu og færa hafa
til geymslu. En framtíðarstaður
hennar mun verða í nýjum húsa
kynnum Vélskólans, sem rísa
eiga á lóð Iðnskólans.
A5 dómi forstöðumanns, er
SMATT & STORT
SAUÐFÉNU FJÖLGAR
Sauðfé landsmanna, fram talið
í ársbyrjun 1975, var 863.638 og
hafði þá fjölgað um 18 þúsund
frá árinu áður. í fyrrahaust var
lógað 871.755 dilkum á slátur-
húsum og giskað á 25.000 fjár
heimaslátrað. Heildarmagn
kindakjöts var 14.715 tonn. —
Ekki hefur verið giskað á slátr-
un á þessu hausti, en þó áætlað,
að ein milljón dilka muni liafa
verið á fjalli í sumar. Víða ber-
ast þær fréttir, að enn muni
sauðfé fjölga í landinu og er
það mörgum áhyggjuefni vegna
gróðurs afréttanna.
FÁTT UM GEITFÉNAÐINN
Ovíða verður þess vart þótt
ferðast sé um Iandið, að geitur
séu til. Þær eru þó, eða voru á
síðasta ári, taldar 286 og eig-
endur þeirra 55 talsins. Ríkis-
framlag er veitt til þess að halda
stofninum við og fer stofninn
vaxandi. Geitur voru mjög
algengar fyrrum, en urðu nær
útdauða og eru ekki teljandi
þáttur búskapar í landinu. Víða
um lönd eru geitur taldar hrein
asta hjálpræði heirnilanna, svo
þurftarlitlar eru þær og þó
mikil mjólkurdýr.
ÆÐARDÚNN FYRIR
40 MILLJÓNIR
Markaðsverð á æðardúni var
um síðustu áramót 28 þúsund
krónur kílóið innanlands, án
söluskatts, en handtíndur dúnn
til útflutnings um 32 þúsund
krónur. Meiri hluti dúnfram-
leiðslunnar var fluttur á erlend
an markað og er talið, að dúnn-
inn frá 1975 hafi skilað í gjald-
eyri, sem svarar 35—40 milljón-
um ísl. króna.
MINKABÚIN
Sex eru minkabúin á Iandinu á
þessu ári en sjö voru þau tvö
næstu ár á undan. Árið 1975
voru nær 11 þúsund læður í
minkabúunum og hvolpar
32.500. Verð minkaskinna hefur
farið heldur hækkandi og er
útíitið fremur gott nú. Norð-
lensku minkabúin gengu bctur
en þau sunnlensku, að því er
loðdýrarækíarráðunauturinn
telur.
AFREK ÍSLENSKRA
HESTA
í suniar var farin þolreið á hcst-
um yfir þver Bandaríkin, frá
New York til Sakramento í
Kaliforníu, 3500 mílna lcið. ís-
lensku hestarnir, í eigu erlendra
manna, einkum þjóðverja, voru
fluttir frá meginlandinu vestur
um haf nokkru áður cn þol-
reiðin hófst. Yfir eitt hundrað
hestar voru í þessari miklu ferð,
en helmingur þeirra lieltist úr
lestinni, þar af aðeins einn ís-
lenskur hestur af fjórtán, scm
vél þessi mikilsverð fyrir Vél-
skóladeildina. Vélin úr þessu
farsæla og mikla aflaskipi mun
varðveitast vel og gegna þörfu
hlutverki á nýjum stað. Hún er
600 hestafla, Wiehmann, í góðu
lagi- □
veiktist og drapst. Islensku
hestarnir stóðu sig svo frábær-
lega vel í þessari miklu keppni,
vegna ótrúlegs þols og hreysti,
að þeir reyndust arabísku
hlaupahestunum skæðir keppi-
nautar.
NÝR MARKAÐUR
Þessi ferð hefur án efa vakið
athygli hestamanna um allan
heim og eflaust hefst nú eftir-
spurn eftir íslenskum reiðhest-
um vestan frá Bandaríkjunum.
Getur þar eflaust opnast nýr og
óvæntur markaður fyrir þetta
liestakyn, ef vel er á lialdið.
Þolreiðin mikla yfir þver Banda
ríkin hefur varpað ljóma á ís-
lenska hestakynið og sannað
enn einu sinni hvaða ótrúlegum
hæfileikum það er búið, þegar
rækt er lögð við merðferð og
þjálfun.
SUNNANBLÖÐIN ERU
EKKI KOMIN
Einhverju sinni þegar fræðing-
ar og fjölmiðlar höfðu sagt frá
ógnar mörgum jarðskjálftum
við Kröflu, hringdi blaðaniaður
norður í Mývatnssveit og vildi
fræðast nánar um þessar nátt-
úruhamfarir. Stúlka sú, er varð
fyrir svörum sagðist ckki vita
neitt um þessa jarðskjálfta, því
sunnanblöðin væru ekki koniin!
ALLT LEIKUR A
REIÐISKJALFI
Ekki er auðvelt að ímynda sér
hvernig mývetningar liafa kom-
ist af og lifað áður en jarð-
skjálfamælar voru niður settir
(Framhald á blaðsíðu 5)
Nýtt hverfi
gripahúsa?
Skipulagsnefnd hefur lagt fram
tillögur af nýju skipulagi gripa-
húsabygginga í landi Lögmanns
hlíðar, vestan Kollugerðisvegar.
Þar er gert ráð fyrir bæði fjár-
húsum og hesthúsum og sam-
eiginlegri aðstöðu fyrir hesta-
menn. Ennfremur er þar ráð-
gerður skeiðvöllur og ýmis-
konar aðstaða til þjálfunar
hesta. □
Verið að selja
orku frá Kröflu
í fundargerðum Rafveitustjórn-
ar kemur fram, að gerð hfaa
verið drög að samningum, ann-
ars vegar milli iðnaðarróðu-
neytisins og Rafveitu Akureyr-
ar og hins vegar milli Rafveitu
Akureyrar og verkemiðja SÍS á
Gleráreyrum um sölu á raforku
til gufuframleiðslu í verksmiðj-
um SÍS. Rafveitustjórn telur
sér ekki fært að taka afstöðu
til tillagnanna um orkuverð frá
Kröfluvirkjun að ivo stöddu.
En í sambandi við þessa raforku
sölu er ekki gert ráð fyrir því,
að verksmiðjurnar noti heitt
vatn frá væntanlegri hitaveitu
Akureyrar.
Þetta munu fyrstu sa«i*inga-
drögin um sölu rafsrku frá
Kröfluvirkjun. □