Dagur - 22.10.1976, Blaðsíða 2

Dagur - 22.10.1976, Blaðsíða 2
2 STAÐREYNDIR VARÐANDI ÁFENGISMÁL 1. Nefnd, sem þingflokkamir skipuðu til að gera úttekt á stöðu áfengismála, leggur ein dregið til að „ungmennum yngri en 2ð ára“ verði „ó- heimil dvöl eftir kl. 8 að kvöldi á veitingastað þar sem vínveitingar eru leyfðar.“ 2. Áfengislaganefnd, sem sænska þingið kaus og var að störfum tæpan áratug, lagði til að unglingum yngri en 20 ára yrði framvegis sem hing- að til bannað að kaupa sterka drykki. 3. Allar líkur benda til að greindir menn, sem kynna sér málin rækilega en draga ekki hvatvíslegar ályktanir af nasasjón einni, komist að sömu niðurstöðu: Tilraunir með lækkun áfengiskaupa- aldurs eru óþarfar og skað- legar. Það sýnir reynsla kanadamanna og bandaríkja- manna. 4. Lækkun lögaldurs til áfengis kaupa í þeim löndum úr 21 ári í 18 ár leiddi af sér: a) Gífurlega aukningu ungl- ingadrykkju, einnig meðal 15—17 ára unglinga. b) F j ö 1 g u n umferðarslysa þar sem unglingar kima við sögu. c) Fjölgun banaslysa á ungl- ingum (í Kanada um 174%). d) Aukning ofdrykkju og drykkjusýki meðal ungl- inga. fi. Ljóst er að mjög erfitt reyn- ist að koma í veg fyrir ólög- lega drykkju unglinga. Hún færist einungis til enn yngri aldursflokka með lækkuðu aldursmarki. 6. Unglingadrykkja hérlendis jókst fyrst að marki þegar rekstur vínveitingahúsa var leyfður. Áhrif þeirra á þjóð- lífið komu greinilega í ljós í þj ónaverkfallinu í fyrra og þegar dómsmálaráðherra lét loka þeim í febrúar í ár. 7. Auðveld framkvæmd til að draga úr unglingadrykkju er að fjölga eftirlitsmönnum með vínveitingastöðum. Þeir eru nú 2 í Reykjavík en þyrftu að vera 15. Eftirlit þetta er framkvæmt ríkis- sjóði að kostnaðarlausu. 8. Afnám þess fyrirkomulags að laun þjóna standi í réttu hlut falli við áfengissölu þeirra yrði áreiðanlega til góðs. Áfengisvarnaráð. Hr. Erlingur Davíðsson ritstjóri. Nú í vetur hefur innbrotum á Akureyri fjölgað mjög til muna. Svo virðist sem sömu ungling- arnir brjótist inn helgi eftir helgi, og virðist lögreglan standa uppi varnarlaus gagn- vart þessum ófögnuði. Eftir þeim upplýsingum sem bréf- ritari hefur aflað sér, er lög- gæsla hér á Akureyri algjörlega í lágmarki. Lögreglumenn allt of fáir og mun löggæslukostn- aður á Akureyri vera minni á hvern íbúa, heldur en nokkurs staðar annars staðar á landinu. Að sögn eins lögreglumanns hér í bæ, eru hinar venjulegar vaktir lögreglunnar það fáliðað- ar, að enginn tími er til eftir- litsferða um bæinn eða til sér- staks umferðareftirlits. Öll vaktin fer í útköll vegna árekstra, ölvunar o. fl. Þá fer mikill tími í skýrslugerðir vegna framanritaðs. Ekki eru lögreglumenn teknir á auka- vakt nema mjög brýn nauðsyn krefji, og þá helst á föstudags- og laugardagskvöldum vegna ölvunar sem þá er, að sögn lög- reglumannana. Þá sagði lög- reglumaður bréfritara að alls staðar annars staðar á landinu séu lögreglumenn látnir vinna aukavinnu í nokkuð miklum mæli, en aukavinna lögreglu- manna á Akureyri er nánast engin. Það er krafa okkar Akur eyringa sem búum í höfuðstað Norðurlands að löggæsla á Ak- ureyri sé ekki höfð í lágmarki heldur sé lögreglumönnum fjölgað, og þeir látnir vinna um- fram vinnuskyldu sína ef þörf krefur, enda tel ég að lögreglu- menn hér í bæ séu fullfærir til að kveða niður ófögnuð sem þann, er herjar öðru hvoru á bæjarbúa. Skora ég því á lög- reglustjóra og yfirlögregluþjón að spara ekki vinnukraft sinn, enda eigum við bæjarbúar að mínu mati færustu lögreglu- menn landsins, ef þeir bara fá að glíma að fullum krafti við þau. vandamál er upp' kunna að koma. Akureyri, 5. mars 1976. Bjeess. Norðlenska fímariti Út er komið 12. heftið af Súlum, hinu norðlenska og vinsæla riti og er þá sjötti árgangur kom- inn út. Það er nú Sögufélag Eyfirðinga, sem á þetta tímarit og gefur það út undir ritstjórn þeirra Jóhannesar Óla Sæ- mundssonar og Valdimars Guðnasonar. Eins og í fyrri heftum er efnið fjölbreytt og læsilegt. Fyrsta greinin í heftinu er um lenska stúlku, ævintýri og ævi- kjör og er frásögnin skráð af Ara Gíslasyni. Eiríkur Sigurðsson ritar aðra grein sína um Héðinsfjörð og pekkt rit og kærkomið 11111111111111111111111111111 Dr. Richard Beck .1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 Fyrir stuttu síðan bárust mér í hendur Tíðindi Prestafélags liins forna Hólastiftis, nánar til- tekið, 4. hefti síðastliðins árs. Útgáfu þessa heftis önnuðust þeir séra Gísli Kolbeins, séra Pétur Sigurgeirsson vígslu- biskup og séra Þórhallur Hösk- uldsson af hálfu stjórnar Presta félagsins. Farast þeim þannig orð í formálanum: „Þrír fjórðu aldar eru frá því, að Tíðindi hófu ferð sína á veg- um Prestafélags Hólastiftis. Fjórða hefti kemur í tilefni ellefu alda byggðasögunnar." Á þessum merku tímamótum í sögu ritsins sýnist mér ærin ástæða til þess að draga athygli að því, en auk þess á það nokkra umsögn skilið vegna in.nihalds þess. Þetta er stæi'ðarrit, 176 blað- síður. Einnig er það vandað og fallegt að ytri búningi, og um- gerðin hæfir innihaldinu, sem ér efnismikið, fjölskrúðugt og um leið með þjóðlegum blæ. Þar er „hátt til lofts og vítt til veggja“, og er mér slíkt andlegt andrúmsloft vel að skapi. Mikill og góður fengur er að inngangsritgerð forseta íslands, dr. Kristjáns Eldjárns „Helgi- gripir úr íslenskri frumkristni". Sama máli gegnir um erindi biskups íslands, herra Sigur- björns Einarssonar „Á Hólum“, er hann flutti á Hólahátíð 29. júlí 1973. Gagnorð grein séra Björns Björnssonar, prófasts að Hólum, er einnig hin athyglis- verðasta. Gildir það einnig um hið tímabæra erindi séra Frið- riks A. Friðrikssonar, heiðurs- forseta Prestafélags Hólastiftis, „Allir eiga þeir að vera eitt“ (Þjóðkirkjan og framtíð henn- ar). Hugþekkt mjög er hið ágæta viðtal séra Gísla Kolbeins, „Hús vitjun var hátíð“, við séra Þor- stein B. Gíslason, fyrrv. prófast í Steinnesi. Það ryfjaði upp í huga mínum Ijúfa minningu um það, þegar ég lítill drengur heima á æskuheimili mínu í Litlu-Breiðuvík í Reyðarfirði, sat á hné séra Jóhanns L. Svein bjarnarsonar, er hann var í hús- vitjun þar. — Markviss og um- hugsunarverð að sama skapi er grein séra Gísla „Gamla biblíu- sögumyndin". Tímabært og greinagott er yfirlit séra Birgis Ásgeirssonar „Þjóðhátíð — Þjóðkirkja“, um „þátt kirkjunnar í hátíðarhöld- um tengdum þjóðhátíð í Hóla- stifti“. Séra Pétur Sigurgeirsson leggur drjúgan skerf til ritsins. Hann ritar hlýyrta grein um Nýja ísland í tilefni af nýafstað inni aldarhátíð Vestur-íslend- inga þar, einnig athyglisverða „Hugmynd um Hólaskóla“, enn fremur maklega grein um bindindisfrömuðinn séra Magn- ús Jónsson prest í Laufási, sem íslenskir Góðtemplarar hafa sér staka ástæðu til að minnast með þakklátum huga, því að rétti- lega segir séra Pétur, að hann hafi verið „fyrirrennari Góð- templarareglunnar á íslandi“. Grein séra Péturs um séra Hall grím Pétursson, „Hann kom að norðan“, dró sérstaklega að sér athygli mína. Er mér í því sam- bandi minnisstæð koma mín í bænhúsið í Gröf fyrir mörgum árum, og varð mér þar minning in um hinn mikla andans skör- ung rík í huga. Séra Pétur minnist fallega og maklega dr. Róberts A. Ottós- sonar, söngmálastjóra Þjóð- kirkjunnar, og í sama anda tveggja kærra vina minna, þeirra séra Sigurðar Stefáns- sonar, vígslubiskups, og séra Páls Þorleifssonar, fyrrv. pró- fasts. Þakklátur er ég einnig séra Pétri Þ. Ingjaldssyni fyrir prýðilega grein hans um enn annan góðvin minn, Pál V. G. Kolka, lækni. Einnig ritar séra Pótur, Þ, In^jalclsson blýlega og ) verðuga4 < rrvinrkiragargí<éin um séra Sigurð Norland. Endurprentuð er hér mjög að verðleikum fundargerð stofn- fundar Prestafélags Hólastiftis, er haldinn var á Sauðárkróki 8.—9. júní 1898. Séra Árni Sigurðsson ritar tímabæra grein um Hólafélagið í tilefni af 10 ára afmæli þess. Fer sannarlega vel á því að minna með þeim hætti á þann þarfa félagsskap. Auk hins framantalda eru í ritinu fjöldi annarra athyglis- verðra frásagna, er bregða birtu á fjölþætta starfsemi presta og blómlegu kirkjulifi. Af ljóðum í ritinu, sem eru eins og vænta má trúarlegs eðlis, er sérstök ástæða til að draga athygli að hinu fagra og trúarheita „Vígsluljóði“ eftir Kristján frá Djúpalæk. Fylgir ljóðinu lag samið af sverri Páls- syni skólastjóra. í ritinu er fjöldi mynda, sem gefur lesmálinu lífrænni svip og aukið gildi. □ Hvanndali, mjög fróðlega grein um eydda byggð og kvæði er þar um Héðinsfjörð eftir Jón Magnússon, Minna-Holti í Fljót um. Frelsiskvæði birtist í þessu hefti Súlna, eftir Tómas Símons son biskup, sem uppi var á 15. öld en kvæðið þýddi Kristján Eldjárn núverandi forseti, og fylgir bréf frá honum til ritsins. Eiður Guðmundsson á Þúfna- völlum skrifar um föður sinn, Guðmund á Þúfnavöllum, langa grein, vel ritaða og skemmti- lega. Er þar auk mannlýsinga ýmislegur sögulegur fróðleikur frá fyrri tíð. Valhildur Margrét Jónasdótt- ir á í heftinu greinina um Voga- Jón frá Vogum 4'ið Mývatn, sem er saga af baráttu íslend- ings fyrir sjálfstæði sínu og menntun. Er ritgerðin byggð á dagbókum Voga-Jóns og mörg- um öðrum heimildum. Bragaginnir Kímnisskáldsins yMft >• eftir * Marlin J. M'. Ma'gnus'sðn,' og er hún um Káinn, eða Kristján Níels Júlíus Jónsson, eins og hann hét fullu nafni. Kristján Halldórsson ritar greinina Á búnaðarnámskeiði 1913, Hjörtur L. Jónsson skrif- ar þáttinn Sagnaþætti og kviðl- inga, Jóhannes Oli Sæmunds- son um huldukonuna í Ljúflings hól og Höskuldur Baldvinsson ritar einskonar framhald af ferðasögu. □ Þjónustumiðstöðin á Dalvík í smíðum. Á Dalvík er þjónustumiðstöð í smíðum, sem bæjarstjórnin beitti sér fyrir þar í bæ, og er verið að steypa húsið upp. Þarna verður sparisjóður, bæj- arskrifstofa, rafveita, hitaveita, hafnarskrifstofa, embættisþj ón- usta bæjarfógeta, Útgerðarfélag Dalvíkur, sjúkrasamlag, verka- lýðsfélag o. fl. Gert er ráð fyrir, að þessir aðilar sameinist um vissa þjón- ustuþætti, svo sem símavörslu og ýmsan skrifstofukostnað og gert er ráð fyrir, að skapa í þessari þjónustustofnun skil- yrði fyrir tímabundna þjónustu, sem annars þarf að sækja að, með miklum kostnaði. Stofnlánasjóðir hafa ekki fengist til að lána stofnuninni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.