Dagur - 15.12.1976, Síða 2

Dagur - 15.12.1976, Síða 2
KRISTJÁN FRÁ DJÚPALÆK skrifar um V/.W.V.V.W.V.V.V.VVVV.V.V.V.V.V.W.V.V.V Páll H. Jónsson: Úr Djúpadal að Arnarhóli Sagan um Hallgríni Kristinsson Útgefandi: Bókaforlag Odds Björnsonar. Það væri goðgá að setla að skrifa verulega dóma um þetta mikla verk, eftir einn hrað- lestur. En freistað skal að kynna bókina. Aðrir mun tví- mælalaust eiga eftir að ræða um hana oft og víða. Bókin er stórvirki frá öllum sjónarmið- um. Hún er rúmlega 400 bls. auk mynda- og heimildaskrár og rækilegrar nafnaskrár. Bók- in fjallar um einn mikilhæfasta gáfu- og framkvæmdamann aldarinnar og stofnanir eins og K.E.A., S.Í.S. og Framsóknar- flokkinn, en Hallgrím má hik- laust telja föður Kaupfélags Ey- firðinga og virkan þátttakanda og skapanda hinna tveggja. Þá kemur af sjálfu sér, að héraðs- og þjóðarsaga blasa við sjónum, enda efni verksins hluti hennar ríkulegur. En mest þykir mér um manninn sjálfan, Hallgrím. Gáfaður, hugmyndaríkur og afrenndur hugsjónamaður, ris- inn upp úr fátækt og úrræfSa- leysi harðindatíma. Tilfinninga- ríkur trúmaður og mannvinur, annars vegar. Harðsnúinn við- skiptafrömuður og fram- kvæmdagarpur hins vegar. Skapofsi, sem hellir úr skálum reiði sinnar yfir dragbíta og sérgæðinga, svo jörðin skelfur. Hinn sáttfúsi mildingur á sömu stund. Bóndi í eðli og anda, heimakær eiginmaður og faðir. Kaupsýslumaður í bæ og borg, sem sjaldan mátti heima vera og una við fjölskylduarinn. Stórbrotinn er saga hans, tíma- bilsins og hræringa vaknandi þjóðar. En meiðurinn var líka mikill, sem Hallgrímur óx af og bræður hans þrír standa hon- um ekki einungis nærri í vin- áttu heldur mannkostum. — Hlutur höfundar er mikill bæði sem seinunnið staðreyndagrúsk og skapandi listræn vinna. Hann dáir mjög Hallgrím og er þaulkunnugur þeim stofnunum, sem um er fjallað. Hefur ríkan skilnihg á“'sögulegum forsend- um þeirra stórvirkja, sem alda- mótakynslóðin hefur unnið og feður hennar tóku grunn að. Hann á yfir að ráða- stíl og tungutaki við hæfi, fer ekki út í skrúömælgi né hátimbruð orð- tök, en hins vegar má segja að honum sjáist ekki fyrir í að- dáun sinni og má til vorkunnar færa. En þó flest megi gott segja um vinnubrögð höfundar, finnst mér nokkuð gæta endur- tekninga, að óþarft hafi verið að skrá ævihlaup annarra þjóð- kunnra manna, sem við sögu koma. (Ef sagt er Jónas Jóns- son frá Hriflu eða Tryggvi Þór- hallsson, vita allir allt um þá, eða geta lesið í þeirra sögum). Þá þykir mér hann gera of mikið úr „útlegð“ Hallgríms fyrstu árin við K.E.A. a. m. k. Hann gat farið heim í Reykhús á kvöldin og verið þar um helg- ar. Hvað þá um sjómenn vora og heimavist þeirra. Hjónaband þurfti ekki að líða við fjarvistir lengi vel og munu varla hafa gjört það. En þetta mega kallast smámunir hjá kostum verksins. Bókin er alveg sérstaklega vöhduð að frágangi og í henni margar myndir. Mér skilst enn að eldra fólk fyllist lotningu ef nafn Hallgríms Kristinssonar er nefnt. Saga hans þessi mun ekki úr þeirri glæstu minning draga. Og dagbókabrot hans og sendibréf eru ólygnust um hug- arfar hans. Mikið má vera ef Þingeyingur hefur eða muni skrifa betri bók um Eyfirðing. Frá bæjarstjórninni (Framhald af blaðsíðu 8) Glerárhverfi verði ákvörðuð. Fyrirhuguð landnýting á svæð- inu er sýnd á meðfylgjandi upp drætti. Skipulagsnefnd samþykkir í aðalatriðum nýtingu svæðisins, samkvæmt uppdrætti frá teikni stpfu skipulags ríkisins í júní 1976, breytingartillaga — D, en tekur fram að samningar verði gerðir milli Akureyrarbæjar og íþóttafélagsins Þórs um gagn- kvæm afnot milli Glerárskóla og íþróttasvæðisins. Útlit girð- ingar, staðsetning félagsheimilis og bifreiðastæði séu háð sam- þykki bygginganefndar. Endan- leg lega girðingar ákvarðast samkvæmt nánari útmælingu tæknideildar bæjarins. Starfsleikvöllur í Glerárhverfi. Erindi fíá leikvallanefnd, þar sem hún óskar eftir því við skipulagsnefnd að hún tiltaki í skipulagi svæði undir starfsleik völl í Glerárhverfi. Leikvalla- nefnd bendir á tvo staði í bók- un sinni. Skipulagsnefnd samþykkir að fela taeknideild bæjarins að staðsetja starfsvöll í samráði við starfsmenn leikvallanefndar og bendir á autt svæði, sem myndast í blokkahverfi vestan íþróttasvæðis Þórs. Starfsleikvöllur í Lundahverfi. Ennfremur fer leikvallanefnd þess á leit að skipulagsnefnd tiltaki svæði undir starfsleik- völl í Lundahverfi. Um starfs- leikvöll í Lundahverfi bendir skipulagsnefndin á að kanna hvort ekki væri möguleiki á því að staðsetja starfsleikvöll sunn- an Aðalspennistöðvar. Deiliskipulag iniðbæjar. 1 .*■* Skipulagsnefnd hefur ráðið Svan Eiríksson, arkitekt, til undirbúningsstarfa við deili- skipulag miðbæjar undir stjórn húsameistara og í samvinnu við hann og tæknideild bæjarins. Miðað skal við að starfi þessu verði lokið í febrúar 1977. GÓÐ SKEMMTUN Sunnudaginn 21. nóv. sl. var skemmtun haldin í Freyvangi, nokkuð frábrugðin venjunni. Hvorki var þar dans, né heldur hljómsveit með yfirþyrmandi hávaðalátum. En óhætt er þó að fullyrða að allir þeir, er skemmtunina sóttu, hafi að henni lokinni farið harla ánægðir heim til sín og talið sig hafa fengið aura sína og ómak margfaldlega endurgoldið. Hús- ið var fullt. En mér hefði ekki þótt undarlegt, þó að þrefalt fleiri hefði komið, miðað við auglýsta dagskrá. Ég held að fólk hafi bara ekki áttað sig á því, hvað í boði var. Þarna skemmtu: Thomas Jackmann og Claudia Hoeltje, með einleik á píanó og samleik á píanó og fiðlu. Heiðdís Norð- fjörð las kvæði eftir góðskáldið Kristján frá Djúpalæk. Guðrún Á. Símonar, óperusöngkona, söng bæði innlend og erlend lög við undirleik Jackmanns. Og að lokum skemmti Ómar Ragnars- son, við undirleik Ingimars Eydal, þegar hans þurfti með. Allt er þetta þjóðkunnugt listafólk, sem kann sitt fag. Enda voru undirtektir sam- komugesta hinar beztu. Má segja, að húsið skylfi af lófa- taki og fagnaðarlátum áheyr- enda. Skemmtiatriðin voru líka öll frábær, hvert á sinn hátt. Vil ég þakka þeim, sem þama komu fram og lögðu til efni, þessa góðu stund í Freyvangi. Tel ég mér óhætt að gjöra það í nafni allra samkomugesta. Og ekki síður skal þeim þakkað, er fyrir samkomunni stóðu, en hún var haldin á vegum ung- mennafélagsins Árroðans og stjórnað af Jóhannesi Sigur- geirssyni á Ongulsstöðum. Okkur þykir þetta hafa verið góður gleðigjafi í skammdeg- inu og þörf nýbreytni í skemmt- anahaldi hér um slóðir. Mætti þar framhald á verða. Bjartmar Kristjánsson. Brúðarkjólar! Amerískir brúðarkjólar, slör og hattax', einnig skírnarkjólar leigðir út. Gjörið svo vel að hringja í síma 2-16-79. Geymið auglýsinguna. ÓSKILAFÉ í Saurbæjarhreppi haustið 1976: 1. Hvít ær, mark síýft hægra, stúfrifað vinstra. 2. Hvítur lambhrútur, markt hvatt biti aftan hægra, tvíbitað aftan vinstra. Réttir eigendur Jxessara kinda geta vitjað and- virðis þeirra til undir- ritaðs. Fjallskilastjóri. Bifreiðir Til sölu Ford Cortina árg. 1974. FORD-umboðið BÍLASALAN HF. Strandgötu 53. Frá Leikfanga- markaðinum Nú er hún komin hún Dasiy ásamt hesti og hús- munum. Og verðið er mjög hagstætt. FISHER PRICE - nýtt S júkraihús og ný sería fyrir 5—9 ára. ÆFINTÝRAFÓLKIÐ Amerísk hestalíkön fyrir liestamennina, mjög falleg. Fótboltaspil 3 gerðir. Golfspil. Kastspil. Bingo. SlönguSpil, Lúdó Söguspilið. Mattador. Master mind o. fl. Leikfangamarkaðurinn Hafnarstræti 96. Til jólagjafa Peysur í miklu úrvali, st. 1 — 14 ára. Crepbolir 2—14 ára, margir litir. Crepbolir, dömustærðir. Daglega nýjar vörur til jóla. VERSL. ÁSBYRGI 60-180 cm verð frá kr. 2300 Jólatrésskraut , i i ' J ’ Jólatrésseríur r ítalskar dömublússur margir litir og gerðir. Heppileg jólagjöf handa eiginkonunni. VERSLUNIN DRÍFA SÍMI 2-35-21. fiff Ör Húsnæói WMnam /Tíil leigú 2ja hérb. íbúð Fundist liefur hvítur og í fjóra mánuði frá ára- svartgrár köttur, mótum. Góð umgengni frekar stór. áskilin. Sími 2-39-21. t Uppl. í síma 2-27-32. DANSKUR KONFEKT MARSSPA TVÆR GERÐIR

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.