Dagur - 15.12.1976, Blaðsíða 2
KRISTJÁN FRÁ DJÚPALÆK
skrifar
um
V/.W.V.V.W.V.V.V.VVVV.V.V.V.V.V.W.V.V.V
Páll H. Jónsson:
Úr Djúpadal
að Arnarhóli
Sagan um Hallgríni Kristinsson
Útgefandi: Bókaforlag Odds
Björnsonar.
Það væri goðgá að setla að
skrifa verulega dóma um þetta
mikla verk, eftir einn hrað-
lestur. En freistað skal að
kynna bókina. Aðrir mun tví-
mælalaust eiga eftir að ræða
um hana oft og víða. Bókin er
stórvirki frá öllum sjónarmið-
um. Hún er rúmlega 400 bls.
auk mynda- og heimildaskrár
og rækilegrar nafnaskrár. Bók-
in fjallar um einn mikilhæfasta
gáfu- og framkvæmdamann
aldarinnar og stofnanir eins og
K.E.A., S.Í.S. og Framsóknar-
flokkinn, en Hallgrím má hik-
laust telja föður Kaupfélags Ey-
firðinga og virkan þátttakanda
og skapanda hinna tveggja. Þá
kemur af sjálfu sér, að héraðs-
og þjóðarsaga blasa við sjónum,
enda efni verksins hluti hennar
ríkulegur. En mest þykir mér
um manninn sjálfan, Hallgrím.
Gáfaður, hugmyndaríkur og
afrenndur hugsjónamaður, ris-
inn upp úr fátækt og úrræfSa-
leysi harðindatíma. Tilfinninga-
ríkur trúmaður og mannvinur,
annars vegar. Harðsnúinn við-
skiptafrömuður og fram-
kvæmdagarpur hins vegar.
Skapofsi, sem hellir úr skálum
reiði sinnar yfir dragbíta og
sérgæðinga, svo jörðin skelfur.
Hinn sáttfúsi mildingur á sömu
stund. Bóndi í eðli og anda,
heimakær eiginmaður og faðir.
Kaupsýslumaður í bæ og borg,
sem sjaldan mátti heima vera
og una við fjölskylduarinn.
Stórbrotinn er saga hans, tíma-
bilsins og hræringa vaknandi
þjóðar. En meiðurinn var líka
mikill, sem Hallgrímur óx af og
bræður hans þrír standa hon-
um ekki einungis nærri í vin-
áttu heldur mannkostum. —
Hlutur höfundar er mikill bæði
sem seinunnið staðreyndagrúsk
og skapandi listræn vinna.
Hann dáir mjög Hallgrím og er
þaulkunnugur þeim stofnunum,
sem um er fjallað. Hefur ríkan
skilnihg á“'sögulegum forsend-
um þeirra stórvirkja, sem alda-
mótakynslóðin hefur unnið og
feður hennar tóku grunn að.
Hann á yfir að ráða- stíl og
tungutaki við hæfi, fer ekki út
í skrúömælgi né hátimbruð orð-
tök, en hins vegar má segja að
honum sjáist ekki fyrir í að-
dáun sinni og má til vorkunnar
færa. En þó flest megi gott
segja um vinnubrögð höfundar,
finnst mér nokkuð gæta endur-
tekninga, að óþarft hafi verið
að skrá ævihlaup annarra þjóð-
kunnra manna, sem við sögu
koma. (Ef sagt er Jónas Jóns-
son frá Hriflu eða Tryggvi Þór-
hallsson, vita allir allt um þá,
eða geta lesið í þeirra sögum).
Þá þykir mér hann gera of
mikið úr „útlegð“ Hallgríms
fyrstu árin við K.E.A. a. m. k.
Hann gat farið heim í Reykhús
á kvöldin og verið þar um helg-
ar. Hvað þá um sjómenn vora
og heimavist þeirra. Hjónaband
þurfti ekki að líða við fjarvistir
lengi vel og munu varla hafa
gjört það. En þetta mega kallast
smámunir hjá kostum verksins.
Bókin er alveg sérstaklega
vöhduð að frágangi og í henni
margar myndir. Mér skilst enn
að eldra fólk fyllist lotningu ef
nafn Hallgríms Kristinssonar
er nefnt. Saga hans þessi mun
ekki úr þeirri glæstu minning
draga. Og dagbókabrot hans og
sendibréf eru ólygnust um hug-
arfar hans. Mikið má vera ef
Þingeyingur hefur eða muni
skrifa betri bók um Eyfirðing.
Frá bæjarstjórninni
(Framhald af blaðsíðu 8)
Glerárhverfi verði ákvörðuð.
Fyrirhuguð landnýting á svæð-
inu er sýnd á meðfylgjandi upp
drætti.
Skipulagsnefnd samþykkir í
aðalatriðum nýtingu svæðisins,
samkvæmt uppdrætti frá teikni
stpfu skipulags ríkisins í júní
1976, breytingartillaga — D, en
tekur fram að samningar verði
gerðir milli Akureyrarbæjar og
íþóttafélagsins Þórs um gagn-
kvæm afnot milli Glerárskóla
og íþróttasvæðisins. Útlit girð-
ingar, staðsetning félagsheimilis
og bifreiðastæði séu háð sam-
þykki bygginganefndar. Endan-
leg lega girðingar ákvarðast
samkvæmt nánari útmælingu
tæknideildar bæjarins.
Starfsleikvöllur í Glerárhverfi.
Erindi fíá leikvallanefnd, þar
sem hún óskar eftir því við
skipulagsnefnd að hún tiltaki í
skipulagi svæði undir starfsleik
völl í Glerárhverfi. Leikvalla-
nefnd bendir á tvo staði í bók-
un sinni.
Skipulagsnefnd samþykkir að
fela taeknideild bæjarins að
staðsetja starfsvöll í samráði
við starfsmenn leikvallanefndar
og bendir á autt svæði, sem
myndast í blokkahverfi vestan
íþróttasvæðis Þórs.
Starfsleikvöllur í Lundahverfi.
Ennfremur fer leikvallanefnd
þess á leit að skipulagsnefnd
tiltaki svæði undir starfsleik-
völl í Lundahverfi. Um starfs-
leikvöll í Lundahverfi bendir
skipulagsnefndin á að kanna
hvort ekki væri möguleiki á því
að staðsetja starfsleikvöll sunn-
an Aðalspennistöðvar.
Deiliskipulag iniðbæjar. 1 .*■*
Skipulagsnefnd hefur ráðið
Svan Eiríksson, arkitekt, til
undirbúningsstarfa við deili-
skipulag miðbæjar undir stjórn
húsameistara og í samvinnu við
hann og tæknideild bæjarins.
Miðað skal við að starfi þessu
verði lokið í febrúar 1977.
GÓÐ SKEMMTUN
Sunnudaginn 21. nóv. sl. var
skemmtun haldin í Freyvangi,
nokkuð frábrugðin venjunni.
Hvorki var þar dans, né heldur
hljómsveit með yfirþyrmandi
hávaðalátum. En óhætt er þó
að fullyrða að allir þeir, er
skemmtunina sóttu, hafi að
henni lokinni farið harla
ánægðir heim til sín og talið sig
hafa fengið aura sína og ómak
margfaldlega endurgoldið. Hús-
ið var fullt. En mér hefði ekki
þótt undarlegt, þó að þrefalt
fleiri hefði komið, miðað við
auglýsta dagskrá. Ég held að
fólk hafi bara ekki áttað sig á
því, hvað í boði var.
Þarna skemmtu: Thomas
Jackmann og Claudia Hoeltje,
með einleik á píanó og samleik
á píanó og fiðlu. Heiðdís Norð-
fjörð las kvæði eftir góðskáldið
Kristján frá Djúpalæk. Guðrún
Á. Símonar, óperusöngkona,
söng bæði innlend og erlend lög
við undirleik Jackmanns. Og að
lokum skemmti Ómar Ragnars-
son, við undirleik Ingimars
Eydal, þegar hans þurfti með.
Allt er þetta þjóðkunnugt
listafólk, sem kann sitt fag.
Enda voru undirtektir sam-
komugesta hinar beztu. Má
segja, að húsið skylfi af lófa-
taki og fagnaðarlátum áheyr-
enda. Skemmtiatriðin voru líka
öll frábær, hvert á sinn hátt.
Vil ég þakka þeim, sem þama
komu fram og lögðu til efni,
þessa góðu stund í Freyvangi.
Tel ég mér óhætt að gjöra það
í nafni allra samkomugesta. Og
ekki síður skal þeim þakkað, er
fyrir samkomunni stóðu, en
hún var haldin á vegum ung-
mennafélagsins Árroðans og
stjórnað af Jóhannesi Sigur-
geirssyni á Ongulsstöðum.
Okkur þykir þetta hafa verið
góður gleðigjafi í skammdeg-
inu og þörf nýbreytni í skemmt-
anahaldi hér um slóðir. Mætti
þar framhald á verða.
Bjartmar Kristjánsson.
Brúðarkjólar!
Amerískir brúðarkjólar,
slör og hattax', einnig
skírnarkjólar leigðir út.
Gjörið svo vel að hringja
í síma 2-16-79.
Geymið auglýsinguna.
ÓSKILAFÉ
í Saurbæjarhreppi
haustið 1976:
1. Hvít ær, mark síýft
hægra, stúfrifað vinstra.
2. Hvítur lambhrútur,
markt hvatt biti aftan
hægra, tvíbitað aftan
vinstra.
Réttir eigendur Jxessara
kinda geta vitjað and-
virðis þeirra til undir-
ritaðs.
Fjallskilastjóri.
Bifreiðir
Til sölu Ford Cortina
árg. 1974.
FORD-umboðið
BÍLASALAN HF.
Strandgötu 53.
Frá Leikfanga-
markaðinum
Nú er hún komin hún
Dasiy ásamt hesti og hús-
munum. Og verðið er
mjög hagstætt.
FISHER PRICE - nýtt
S júkraihús og ný sería
fyrir 5—9 ára.
ÆFINTÝRAFÓLKIÐ
Amerísk hestalíkön fyrir
liestamennina,
mjög falleg.
Fótboltaspil 3 gerðir.
Golfspil. Kastspil.
Bingo. SlönguSpil, Lúdó
Söguspilið. Mattador.
Master mind o. fl.
Leikfangamarkaðurinn
Hafnarstræti 96.
Til jólagjafa
Peysur í miklu úrvali,
st. 1 — 14 ára.
Crepbolir 2—14 ára,
margir litir.
Crepbolir,
dömustærðir.
Daglega nýjar vörur
til jóla.
VERSL. ÁSBYRGI
60-180 cm
verð frá kr.
2300
Jólatrésskraut
, i i ' J ’
Jólatrésseríur
r
ítalskar
dömublússur
margir litir og gerðir.
Heppileg jólagjöf
handa eiginkonunni.
VERSLUNIN DRÍFA
SÍMI 2-35-21.
fiff Ör Húsnæói
WMnam /Tíil leigú 2ja hérb. íbúð
Fundist liefur hvítur og í fjóra mánuði frá ára-
svartgrár köttur, mótum. Góð umgengni
frekar stór. áskilin.
Sími 2-39-21. t Uppl. í síma 2-27-32.
DANSKUR
KONFEKT MARSSPA
TVÆR GERÐIR