Dagur - 26.01.1977, Side 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11 66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVlÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Munur á stefnu
og störfum
Öðru hverju er þeim hnútum kastað
að samvinnufélögunum, að þau
stundi einokun. En einokun er það
skammaryrði, sem líklegt þykir að
auðtrúa fólk láti blekkjast af, þótt
allir ættu að vita, að það voru sam-
vinnufélögin, sem leystu öðru frem-
ur og léttu verslunareinokunni af
þjóðinni og gera enn.
Samvinnurekstur og einkarekstur
er á mörgum sviðum ólíkur og þurfa
allir að glöggva sig á því. Samvinnu-
félög eru öllum opin en einkarekstur
ekki, og eru lilutafélög glöggt dæmi
um þær takmaikanir, og þarf að
jafnaði fjármagn til þess. Þar er það
þtu fjármagnið, sem ræður, enda
atkvæðamagnið í hlutfalli við fjár-
magnið. Því hefur það með réttu
verið sagt, að ríkur maður í hluta-
félagi liafi margar hendur þegar
atkvæði eru greidd. Fólkið í sam-
vinnufélögunum hefur jafnan at-
kvæðisrétt og hefur hver maður eitt
atkvæði, hvað sem efnahag líður.
Þannig ræður fjármagnið í einka-
fyrirtækjum en fólkið í samvinnu-
félögum og er á því glöggur munur.
Fólk í samvinnufélögum fær tekju-
afgang viðskiptanna, en viðskipta-
vinir hlutafélagsins ekkert. Sam-
vinnufélög eru ábyrg gagnvart fólk-
inu, hvert á sínu svæði, og verða t. d.
að sjá því fyrir nauðsynjavörum,
hvort sem hagnaðarvon er af þeim
viðskiptum eða ekki. Einkafyrir-
tækjum er þetta ekki skylt, en þau
vilja gjarnan grípa inn í viðskiptin
þegar hagnaðarvonin er mest.
Samvinnufélögin eru bundin við
sinn stað og sitt umhverfi með lög-
um. Þau geta ekki selt eignir sínar
og flutt til ábatavænlegri staða, eins
og einkafyrirtækin gera oft. Fjár-
magn það, sem skapast í samvinnu-
félögum á hverjum stað, verður því
ávallt kynt á þeim stað, sem það
skapaðist og er það margri byggð-
inni mikill styrkur.
Ekki þarf lengur að rekja mismun
þennan til að allir megi sjá, að hann
er svo mikill, að enginn hugsandi
maður gengur hans dulinn. Því má
svo við bæta, sem rétt er og hefur
áþreifanlega sannast, að samvinnu-
félögin eru stofnuð af fólkinu sjálfu
og fyrir það. Þeim er líka stjómað
af fólkinu og sýnir reynslan, að best
fer á því. □
Alþingismennirnir voru í jóla-
leyfi til 24. janúar, og ræddi
blaðið fyrir skömmu við Stefán
Valgeirsson og lagði fyrir hann
nokkrar spurningar, sem hann
svaraði um hæl.
Er það rétt, sem sagt er, að
hagur bændastéttariimar hafi
þrengst verulega?
Landbúnaðarmálin hafa mjög
verið á dagskrá á síðustu mán-
uðum og hörð gagnrýni komið
fram, ekki síst fyrir útflutnings-
uppbæturnar. Því miður hefur
ekki viðunandi verð fengist er-
lendis fyrir sumar landbúnaðar-
vörur og liggja til þess margvís-
legar orsakir. En landbúnaður-
inn hefur það hlutverk að
leggja þjóðinni til mikilvægustu
fæðutegundirnar, sem hún get-
ur ekki verið án. En til þess að
geta það, verður ætíð einhver
umframfamleiðsla í góðum ár-
um, og einingarverðið yrði ef-
laust hærra, ef landbúnaðurinn
væri skipulagður mjög veru-
lega til að ná því marki, að fram
leiðslan væri nægileg innan-
lands og ekki meira. En utanað-
komandi áhrif hafa mikil áhrif
á landbúnaðarframleiðsluna,
. svo sem-veðurfar og verður ekki
við þvi gert. Það myndi heyrast
hljóð úr horni ef mjólk vantaði
eða smjör, ekki síður en ef eitt-
hvað þarf að verðbæta útfluttar
búvörur. Við getum tekið mjólk
urframleiðsluna sem dæmi.
Auðveldast og ódýrast er að
framleiða hana á sumrin. Verð
á henni hlyti að hækka, ef kraf-
ist væri jafnrar framleiðslu allt
árið.
Þá leggur landbúnaðurinn
iðnaðinum til mikilvæg hrá-
efni?
Já, og það svo um munar.
Það eru einmitt vörur unnar úr
ull og skinnunum, sem skara
langt fram úr öðrum iðnvörum
til útflutnings.
Fram hefur komið, að þrír
eða fjórir starfsmenn þéttbýlis-
staðanna hafa vinnu við ýmis-
konar þjónustustörf og iðnaðar-
framleiðslu vegna framleiðslu
hvers bónda að jafnaði. Sést á
þessu hve hagsmunir fólks í bæ
og byggð eru saman tengdir.
Sýnilegt er, að iðnað á þessu
sviði er enn hægt að stórauka,
því enn er nokkuð af þessu á-
gæta hráefni flutt út lítt eða
ekki unnið, og þarf að verða
breyting á því.
Neytendur heyrast oft kvarta
um hátt verð búvara. Kartöflur
hefur þurft að flytja inn í
nokkru magni og þær hafa ver-
ið dýrari en innlesdar. Ætli það
sama kæmi ekki á daginn á
fleiri vörutegundum, ef á það
reyndi.
En þá kemur raunar að þeirri
spurningu, sem ég svaraði ekki
áðan, um hag bændastéttarinn-
ar. Fram hefur komið á fjöl-
mennum bændafundum, að hag
ur bændanna er mjög versnandi
og vaxandi erfiðleikar. Ég hef
reynt að kynna mér þetta atriði
sem best. Á undanförnum tveim
árum og sérstaklega þó á síð-
asta ári, hefur hagur bændanna
þrengst til muna. Veruleg
skuldasöfnun hefur orðið hjá
þeim um land allt, þótt það sé
migjafnlega mikið. Eflaust er
það meira á óþurrkasvæðunum.
í sumum héruðum eru kaup-
félögin komin í mikla örðug-
leika af þessum sökum og er
ekki séð hvernig úr því rætist.
En ef kaupfélögin geta ekki
leyst úr framleiðsluerfiðleikum
bændanna, svo sem með því að
leggja þeim til rekstrarvörur,
er auðvitað vá fyrir dyrum. Ég
veit um viss kaupfélög, þar sem
skuldaaukning bænda til jafn-
aðar hefur orðið um ein milljón
á síðasta ári. í þessu sambandi
Stefán Valgeirsson, alþingismaður, svarar spurningum blaðsins
er hægt að nefna skuggalegar
tölur, en kaupfélagsstjórarnir
ættu að svara þessu, frekar en
ég.
Menn velta því fyrir sér,
hvernig standi á þessari versn-
andi afkomu þrátt fyrir hækk-
un afurðaverðsins og neytend-
um þyki það hátt, hefur til-
kostnaður vegna framleiðslunn-
ar hækkað enn meira. Og vaxta
okrið í þjóðfélaginu kemur
ákaflega hart niður á landbún-
aðinum, ekki síst vegna þess, að
fjármagnskostnaðurinn í vísi-
tölubúinu er vantalinn. Bænd-
ur fá seint verð fyrir vörur sín-
ar, bíða kannski hálft ár eða
meira eftir fullnaðar greiðslu.
Á hinum Norðurlöndunum fá
bændur afurðir sínar greiddar
að fullu eða því sem næst, við
móttöku. Á þessu er mikill
munur. Verðlagning búvöru er
flókið mál, ekki síst í verðbólgu
þjóðfélagi, eins og okkar. En ég
get ekki stillt mig um að nefna
það atriði, að rekstrarlánin til
sauðfjárbænda hafa lækkað úr
67% árið 1958 niður í 14—
20%. af afurðaverðinu. Þetta
skýrir meðal annárs rekstrar-
erfiðleika samvinnufélaganna,
því þau verða að skaffa bænd-
um allar rekstrarvörur og allt
til heimilanna. Og þegar þreng-
ir að landbúnaðinum eins og
nú, er margur bóndinn búinn
að taka út á allt innleggið, þeg-
ar búvaran er lögð inn, og í
mörgum tilfellum langt fram
yfir það.
Hver eru stærstu mál þings-
ins, sem nú er að hefjast á ný?
Efnahagsmálin eru nú og
ætíð stærstu málin. Þau eru
ætíð á dagskrá, eins og eðlilegt
er. Þá verður það mjög á dag-
skrá, hvernig við getum varið
hina nýju og stóru fiskveiði-
lögsögu okkar og hagnýtt fiski-
miðin á skynsamlegasta hátt.
Þetta er auðvitað eitt af stærstu
málunum og þeim þýðirigar-
mestu. Þá má nefna fjögurra
ára vegaáætlun og snertir það
okkur norðlendinga mjög mik-
ið, hvernig verkefnum verður
raðað, og þannig væri lengi
hægt að telja.
Hvernig er stjórnarsamstarf-
ið?
Þeir stjórnmálaflokkar, sem
nú stjórna landinu, hafa gjör-
ólík stefnumál og lífsviðhorf.
Það er ekki auðvelt fyrir þessa
flokka að vinna saman svo vel
sé. En ef út frá því er hugleitt,
hve þarna er mikið bil á milli,
verð ég að segja, að samstarfið
hafi til þessa sæmilega vel tek-
ist. Ég held til dæmis, að í fram
tíðinni verði 1. desember 1976
talinn mikill merkisdagur í
sögu þjóðarinnar vegna land-
helgismálsins, en þann dag
sigldi breski togaraflotinn af ís-
landsmiðum. Ekki verður ann-
að séð, en þann dag höfum við
unnið fullnaðarsigur í landhelg-
ismálinu, verði rétt á málum
vinnubrögð vera nefnd á Sikil-
ey eða ítalíu?
En maður verður þess hvar-
vetna var á ferðalögum, hvar
sem komið er og rætt við fólk,
að í hugum mjög margra, ekki
aðeins framsóknarmanna, hefur
Ólafur Jóhannesson mest traust
allra núlifandi stjórnmála-
manna á íslandi. Þess vegna er
allt kapp lagt á að sverta hann
sem mest.
Viltu segja eitthvað um dónis
málin?
Á allra síðustu tímum hefur
mikil afbrotaalda gengið yfir og
meðal þeirra afbrot, sem varla
þekktust áður. í sambandi við
meðferð þeirra mála var rógs-
herferð farin á hendur dóms-
málaráðherra landsins. Og þótt
hún sé auðvitað ekki marktæk,
hefur margur maðurinn lagt
trúnað á óhróðurinn, f stað þess
að kynna sér staðreyndir þeirra
mála. í þessu sambandi má
. minna á, að ég hygg að enginn
Stefan Valgeirsson dómsmálaráðherra, hvorki fyrr
alþingismaður. né síðar, hafi sinnt dómsmálun-
um meirá og betur en einmitt
Torveldar ekki rógurinn um Ólafur Jóhannesson. Ný skipan
framsóknarráðherrana stjórnar- dómsmála er nú að komast á
samstafið? laggirnar og mun hún flýta og
Það væri sama og neita að auðvelda rannsókn mála í fram
viðurkenna staðreyndir, að láta tíðinni. Og þetta munu allir sam
sem ekkert væri þegar á þetta mála um, sem til þekkja. Sjálf-
skuggalega mál er minnst. Þjóð ur beitti Ólafur sér persónulega
in veit að viss blöð í landinu fyrir því, í einu hroðalegasta
hafa stundað rógsiðju um Fram glæpamáli síðari tíma, að fá
sóknarflokkinn og beint spjót- hingað erlendan sakamálasér-
um sínum mest að forystu- færðing til aðstoðar við að upp-
mönnum hans. Sýnilegt er, að lýsa það mál. Einhvern næsta
þarna eru að verki sérhags- dag munu niðurstöður þess
munaöflin í Reykjavík og ein- máls upplýstar almenningi, og
hver verulegur hluti Alþýðu- verður það þá hæfilegt svar við
flokksins, sem fram að þessu í'óginum. Öll önnur hliðstæð
hefur fylgt Sjálfstæðisflokknum mál, sem upp hafa komið, eru
að málum. Þarna hafa þessir þegar upplýst að fullu.
aðilar fengið sameignlegt áhuga
mál að berjast fyrir, til þess að Hvað um orkumálin, Stefán?
mynda nýja viðreisnarstjórn, Við stöndum frammi fyrir
og þetta er allt skipulagt hjá mikilli óvissu í orkumálunum
þeim og einskis svifist. Ekki vil hér á Norðurlandi. Allir vissu
ég þó fullyrða neitt um, hvort hvernig fór um Laxárvirkjun
búið er að prenta og útbíta fé- og þarf ekki að ræða það mál.
lagsskírteinum í þessum róg- Nú er allt í óvissu hvernig til
klúbbi, en þó þykir mér það tekst með Kröfluvirkjun, hvort
líklegt. Þetta rógsmál er einn hún færir okkur orku, hvenær
ljósasti blettur stjórnmálanna í og þá hvað mikla. Og enn gefur
áratugi hér á landi. Ný við- Byggðalinan okkur ekki umtals
reisnarstjórn, samstjórn Sjálf- verða orku. Ef Krafla bregst,
stæðisflokks og Alþýðuflokks, sem ég spái engu um, verður að
er takmarkið, og þetta hefur leggja höfuðáherslu á að ljúka
nýlega verið staðfest af þeim, Byggðalínunni á þessu ári, til
sem þessa iðju hafa stundað þess að við stöndum ekki
kappsamlegast að undanförnu. frammi fyrir orkuskorti einn
Við framsóknarmenn getum veturinn enn. Þetta verk þarf
verið ánægðir með, að þau öfl, að sitja fyrir öðrum orkufram-
sem standa fyrir þessum árás- kvæmdum á þessu ári. Líklegt
um, skuli óttast okkur, og telji, er, að þess verði ekki langt að
að það séu fyrst og fremst bíða, hvers árangurs vænta má
við, sem stöndum í vegi fyrir við Kröflu, og þá ætti það held-
hagsmunum þeirra og frama- ur ekki að vefjast fyrir mönn-
vonum. Það hljómar sem lof- um, hvað gera ber, ef Kröflu-
söngur í mínum eyrum og er virkjun leysir ekki orkuskort-
ómetanleg viðurkenning á inn. En í þessu felast engar
stefnu okkar og störfum. Hitt hrakspár.
er aftur á móti hryggilegt, að
hinir íslensku Glistrupar, skuli En málin innan kjördæmis-
ekki reynast menn til að hasla ins?
sér völl, nema með rógi og Atvinnuuppbyggingin í kjör-
ósannindum. Hvað skyldu slík dæminu verður að halda áfram
haldið framvegis, sem ég efast
ekki um, ef stjórnarsamstarfið
helst áfram. Og ef ekkert óvænt
ber til tíðinda, á ég fastlega
von á því, að þetta stjórnarsam-
starf haldist út kjörtímabilið.
og verður alltaf mál málanna,
ásámt samgöngumálunum, sem
áður vi.r minnst á.
Nýir togarar hafa verið að
koma og það er verið að auka
iðnaðinn á Akureyri. Kannski
er stærsta átakið í þeim málum
í Norður-Þingeyjarsýslu, þegar
litið er til þéttbýlisstaðanna í
sýslunni. Stórt frystihús tók til
starfa á Þórshöfn og þangað er
kominn togari. Þar er til tíu ára
gömul síldarverksmiðja, sem
brætt getur 300 tonn á sólar-
hring. En til þess að búa hana
undir starf þarf 60—70 milljónir
króna, en með núgildandi verð-
lagi myndi þessi verksmiðja
kosta 400—450 milljónir, er mér
tjáð.
Á Raufarhöfn er togari og
hefur rekstur hans gengið sæmi
lega síðasta ár. Utflutningsverð-
mæti frá Raufarhöfn varð á sl.
ári yfir 600 milljónir, en íbúa-
talan er innan við 500. Raufar-
höfn getur áreiðanlega keppt
við Faxaflóasvæðið í sambandi
við útflutningsverðmæti á íbúa.
Nú er þarna allt fullt af loðnu
og nóg að gera.
Um Kópasker er það að segja,
að þar er komin nokkur útgerð
og þar er komin upp rækju-
verksmiðja. Þar hefur því orðið
atvinnubylting og næg atvinna
fyrir heimafólk, og þótt fleira
væri. Og þar er uppbyggingin
eftir jarðskjálftana vel á vegi.
Á Húsavík er nú nýr togari,
sem væntanlega er kominn yfir
byrjunarerfiðleikana og þar er
fiskiðjusamlag, eitt hið best
rekna á landinu.
Til Dalvíkur kemur væntan-
lega nýr togari í mars til Út-
gerðarfélags Dalvíkinga, sem á
einn togara fyrir, og vonir
standa til, að Söltunarfélag Dal-
víkur fái þangað rækjutogara
í apríl.
Þá fengu hríseyingar sinn
togara 1975 og er þar mikil
breyting á orðin, þótt enn vanti
frystihúsið hráefni.
En hér má í engu slaka á og
þurfa allir að vera samtaka um
það, að tryggja atvinnuöryggi
fólksins í framtíðinni. Þótt nokk
uð hafi miðað í rétta átt, bíða
óteljandi verkefni úrlausnar,
sérstaklega í sambandi við iðn-
aðinn. Svo þarf að einbeita sér
meira að því en gert hefur ver-
ið, að hjálpa ungu fólki til að
eignast þak yfir höfuðið. Það
hefur sýnt sig, að það er hægt
að lækka byggingarkostnaðinn
verulega með samhjálp og sam-
vinnu, og á því sviði er bæði
nauðsynlegt og áhugavert verk-
efni, sem við, samvinnumenn,
þurfum að vinna að í meira
mæli en hingað til, sagði Stefán
Valgeirsson alþingismaður að
lokum, og þakkar blaðið svör
hans. E. D.
-MÍNNING
Hjartans amma mín.
Nú þegar þú, sem varst og ert
mér svo afar kær, ert horfin frá
þessu jarðneska lífi, er mér
einkar ljúft að skrifa nokkur
þakkar-. og kveðjuorð til þín.
Minningarnar sækja að hver af
annarri og allar eru þær jafn
hugljúfar, þar ber engan
skugga á. Ég minnist lágvax-
innar konu, sem alltaf var svo
frá á fæti, hljóðláts fótataks,
vinnusamra handa, sem ávallt
voru reiðubúnar til hjálpar, ef
tök voru á. Ég minnist einnig
augna þinna, er þau horfðu á
mig, svo hlý, svo trygg. Ég
minnist hljóðlátra stunda með
þér, bæði sem barn og einnig
sem fullorðin kona. Ég minnist
þess, er ég sem barn dvaldi hjá
þér á sumrin, allra stundanna
okkar saman. Manst þú eftir
lítilli stúlku, sem alltaf beið á
horninu eftir að amma hennar
kæmi heim úr vinnunni. Já, ég
veit að þú manst það. Og alltaf
komst þú með eitthvað til þess
að gleðja lítið barnshjarta með.
Ég sé okkur fyrir mér ganga
saman heim, hönd í hönd, svo
glaðar og ánægðar. Eða þá
kvöldin, þegar þú komst og
straukst svo létt en þó svo blítt
yfir vanga minn og bauðst mér
góða nótt, þá var gott að vera
til. Já, þú varst amma, í orðsins
fyllstu merkingu, og eins og
þær gerast beztar, og Guð gefi
að sem flestir eigi og eignist
slíka ömmu, því það er dýr-
gripur í lífi hverrar manneskju.
Ég gæti talið upp ótal atvik í
okkar sambandi, sem er svo
gott að minnast, en þau ætla
ég að geyma í minningasjóðin-
um mínum og hann er stór. Og
þó að við höfum alltof sjaldan
hitzt síðustu árin, þá hefur
hugur minn oft dvalið hjá þér,
og ég hef beðtð Guð að styrkja
þig í veikindum þínum. Og þó
að ég vissi, að þú yrðir sífellt
lasnari, þá trúi ég því ekki
almennilega enn, að þú sért
farin frá okkur. Samt finnst
mér einkar táknrænt, að þú
skyldir kveðja þetta líf á sjálfa
jólanóttina, fæðingarhátíð Frels
arans. Það átti vel við þig. Lífið
heldur áfram, en gott er að eiga
í fórum sínum falinn fjársjóð,
fagrar minningar um yndislega
ömmu, minningar, sem enginn
fær frá manni tekið, þó að
veraldargengið sé valt. Elsku
amma mín, hafðu mínar hjartan
legustu þakkir fyrir alla þina
góðsemi í minn garð svo og
fjölskyldu mirinar. Brosið þitt
bjarta og blíða mun geymast í
vitund minni. Hafðu góða heim
komu og njóttu sem bezt sam-
fundanna við horfna ástvini
þína, sem efláust bíða þín, og
þeir eru margir, þar af sex börn
þín, sem þú máttir sjá af á öll-
um aldri, svo og þrjú tengda-
börn, sem öll hurfu héðan í
blóma lífsins. Hittumst heilar á
ný. Og að lokum eins og við
enduðum öll okkar bréf. Guð
og góðir englar verndi þig og
blessi.
Þín dótturdóttir,
Sóley Benna.
Rune Dimberg, yfirlæknir stofn
unar, sem í Stokkhólmi veitir
ungum áfengisneytendum og
eiturlyfjasjúklingum viðtöku,
segir m. a.:
„Fyrir fimmtán til tuttugu ár-
um voru drukknir unglingar
harla sjaldgæf sjón í Stokk-
hólmi. Nú ber það við, að skól-
um verði að loka vegna þess, að
fjöldi unglinga er ekki allsgáð-
ur. Móttökustöð unglinga, sem
orðnir eru drykkjuskap eða
eiturlyfjum að bráð hefur ekki
undan að taka við þessu fólki,
þar á meðal börnum, og eru
tuttugu aðrar heilsugæzlustöðv
ar, sem annast slíka móttöku í
Stokkhólmi, og með börn og
unglinga, sem finnast meðvit-
undarlaus eða viti sínu fjær er
farið í sjúkrahús, enda þarf oft
bráðra viðbragða til þess að
koma f veg fyrir, að þau bíði
bana.
Miðlungi sterk öl, sem menn
héldu einu sinni, að yrði til
bóta, á mikla sök á því, hvernig
komið er, og verður framleiðsla
þess og sala bönnuð 1. júlí í
sumar, þar sem nú er ljóst, að
það hefur reynzt hinn mesti
skaðvaldur, einmitt börnum.
Börn, sem byrja snemma að
neyta áfengis, eiga miklu meira
á hættu en aðrir, sem ekki byrja
áfengisneyzlu fyrr en síðar á
ævinni. Þar er ekki á það eitt
hætt, að þeir verða miklu fleiri
áfengissjúklingar, auk mikillar
hættu á heilaskemmdum, held-
ur en áfengisneyzla barna og
unglinga einnig fordyri hvers
konar afbrota og glæpa.“ □
Z7
Z7
lamuikim
STÓRHRÍÐARMÓT
Um síðustu helgi var haldið í
Hlíðarfjalli við Akureyri svo-
kallað Stórhríðarmót og var
keppt í svigi. Færið var frekar
þungt og grófust braut.irnar
nokkuð. Frostlaust veður var
og nokkur ofanhríð.
Urslit í mótinu urðu þessi:
Fl. 13-—14 ára pilta. Sek.
Ólafur Harðarson 108,32
Stefán Stefánsson 115,52
Björn Sveinsson 116,60
Fl. 13—15 ára stúlkna. Sek.
Sólveig Skjaldardóttir 119,46
Ásta Ásmundsdóttir 125,55
Sigrún Sigmundsdóttir 126,50
Fl. 15—16 ára pilta. Sek.
Finnbogi Baldursson 106,53
Ólafur Grétarsson 107,64
Kvennaflokkur. Sek.
Sigurlaug Vilhelmsdóttir 116,81
Halla Gunnarsdóttir 118,44
Karlaflokkur. Sek.
Haukur Jóhannson 94,09
Jónas Sigurbjörnsson 102,54
Ingþór Sveinsson, ÚÍA 103,85
Um næstu helgi fer fram svo-
kallað Hermannsmót og er það
punktamót og jafnframt opið
fyrir keppendur hvaðan sem er
af landinu. Á laugardag verður
keppt í stórsvigi karla og
kvenna, og á sunnudag í svigi.
KA og Ármann gera jafntefii
Einn stærsti leikur annarar
deildar í handknattleik var leik
inn í íþróttaskemmunni á Akur
eyri sl. laugardag, og léku þar
Ármann úr Reykjavík og KA.
Mikill fjöldi áhorfenda var
mættur í skemmunni og voru
heimamenn hvattir ákaft. Bæði
liðin stilltu upp sínu sterkasta
liði, og var frekar lítið um inná-
skiptingar í leiknum.
Fyrsta mark leiksins skoraði
Þráinn Ásmundsson fyrir Ár-
mann og Sigurður jafnaði
skömmu síðar fyrir KA. Friðrik
Jóhannsson kom Ármanni aftur
yfir, en Ármann Sverrisson jafn
aði fyrir KA með laglegu marki.
Sigurður kom síðan KA-mönn-
um yfir með því að gera tvö í
röð og næstu mínútur skiptust
liðin á að skora en KA hafði
ávallt eins til tveggja marka
forskot. Skömmu fyrir lok fyrri
hálfleiks jafna Ármenningar og
komast yfir og í hálfleik var
staðan 9 gegn 8 fyrir Ármann.
Jóhann Einarsson gerði fyrsta
mark seinni hálfleiks og jafnaði
fyrir KA. Tvö næstu mörk gera
Ármenningar, en síðan skorar
Ármann Sverrisson stórglæsi-
legt mark eftir frábæra sam-
vinnu við Hörð Hilmarsson og
var sú leikflétta ljósasti punkt-
ur leiksins.
Leiknum lauk síðan með jafn
tefli, 18 mörkum gegn 18, og
voru það nokkuð sanngjörn
úrslit eftir gangi leiksins.
í seinni hálfleik reyndu Ár-
menningar að taka Hörð úr um-
ferð en þá tóku aðrir við að
halda sóknarleik KA í skefjum
og eftir nokkuð þóf losnaði
Hörður úr gæslunni.
Þáttur markmanna í leiknum
var mikill. Gauti í marki KA
stóð þar allan leikinn og varði
yfirleitt mjög vel. Sama er að
segja um markmenn Ármanns,
þá Egil Steinþórsson og Ragnar
Gunnarsson. Þeir vörðu mjög
vel og Ragnar m. a. eitt víti.
Dómarar í leiknum voru þeir
Hannes Þ. Sigurðsson og Karl
Jóhannsson og dæmdu þeir yfir-
leitt mjög vel.
Mörk KA skoruðu Sigurður
7 (3 úr víti), Ármann og Þor*
leifur 4, Jóhann 2 og Albert 1.
Flest mörk Ármanns skoraði
Friðrik Jóhannsson 5, og Pétur
Ingólfsson og Hörður Karðar-
son 3 hvor.
Önnur úrslit
Frá Skákfélagi Akureyrar
Skákþing Akureyrar hófst 19.
janúar og er þriðja umferð tefld
í kvöld, miðvikudag, í Félags-
borg, starfsmannasal SÍS á
Gefjun. Keppendur eru alls 36
og tefla 12 í efri flokki, 12 í
neðri flokki og 12 í unglinga-
keppti við Taflfélag Hreyfils og
Skáksamband Suðurlands í 1.
deild í skák. Leikar fóru svo að
skákfélagið gerði jafntefli við
báða andstæðinga sína, hlaut 4
vinninga gegn 4 vinningum.
12. janúar var haldið 15 mín.
Þróttur frá Reykjavík og KA
léku í annarri deild kvenna í
handknattleik sl. laugardag.
Þróttarstúlkurnar sigruðu ör-
ugglega í leiknum, skoruðu 15
mörk á móti 6 hjá KAstúlkun-
um.
Umf. Laugdæla og UMSE
léku einn leik í fyrstu deild í
blaki sl. laugardag og sigruðu
laugvetningar í þremur hrinum
og UMSE í einni.
Þá léku Laugdælir tvo leiki
um helgina við Þór í körfu-
knattleik. Á laugardag léku
þeir í annarri deild og sigruðu
þá Þór með 59 stigum gegn 50,
og á sunnudag léku sömu aðil-
ar í Bikarkeppni KKÍ og sigraði
Þór þá einnig. með 75 stigum
gegn 65. Þórsarar eru efstir í
annarri deildinni, hafa leikið
fimm leiki og unnið þá alla. Þá
komast- þeir einnig áfram í
Bikarkeppninni og leika næst
við Val sem eins og kunnugt er
leikur í fyrstu deild.
Staðan í II. deild
Þessi húsvísku börn héldu fyrir skömmu hlutavcltu. Ágóðann, kr.
17.000, settu þau inn á bankabók Sólborgar, sem er dvalarheimili
á Akureyri fyrir þroskaheft fólk. Fénu verður varið til að gleðja á
jólum þau börn þar, sem minnst mega sín og fáa eiga að. Þorm. J.
flokki. Meðal keppenda í efri skákmót í , Félagsborg. Kepp- Staðan í annarri deild í hand-
flokki má nefna Halldór Jóns- endur voru 33 og tefldu þeir knattleik eftir leik KA og Ár-
son, margfaldan Akureyrar- 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. manns er nú þessi:
meistara, og Gylfa Þórhallsson, Röð efstu manna varð þessi:
sigurvegara í nokkrum mótum KA 9 6 2 1 210-191 14
hér hin síðari ár. í neðri flokki 1. Jón Björgvinsson 5 v. Ármann 7 5 2 0 163-120 12
tefla meðal annarra Jón Ingi- 2. Haki Jóhannesson 51/2 — KR 7 5 11 170-134 11
marsson, gamalfrægur skákmað 3. Ólafur Steinarsson 5% — Þór 7 3 13 141-132 7
ur og Akureyrarmeistari, og 4. Stefán Ragnarsson 5V2- Leiknir 8 2 2 4 160-189 6
Friðgeir Sigurbjörnsson, átt- 5. Guðm. Svavarsson 5 — Stjarnan 7 2 14 114-134 5
ræður unglingur. Skákstjóri var Albert Sigurðs Fylkir 7 2 14 110-117 5
Helgina 15.—16. jan. fór Skák son. ÍBK 9 0 0 9 149-257 0
félag Akureyrar suður og
Skákfréttaritari.