Dagur - 09.02.1977, Page 8
Ákureyri, miðvikudaginn 9. febrúar 1977
BAGUK
AUGLÝSINGASÍMI
RAKVÉLA-
BLÖÐIN
MARGEFTIR-
SPURÐU
KOMIN
-t
Ttlítt lflptnr vprnldíil
SMÁTT & STÓRT
Sauðárkróki 8. febrúar. Hér er
hvitalogn og besta veður á degi
hverjum. Má segja, að blítt læt-
ur veröldin, svo sagði Hagalín.
Sigurþór Hjörleifsson í Messu
holti og 11 ára dóttir hans, Ingi-
björg að nafni, fóru á laugar-
daginn á vélsleða fram á Hauka
gilsheiði, þar sem Sigurþór les
af mælum fyrir Orkustofnun-
ina og er það löng leið. Gekk
þó allt vel þar til á heimleið-
inni, að Sigurþór missti vélsleð-
ann niður um ís á vatni einu
uppi á heiði og varð að skilja
hann eftir. Héldu þau mæðgin-
in síðan fótgangandi til byggða
og voru komin að túngarðinum
á Mælifellsá, þegar þyrla fann
þau og flutti til síns heima. En
þau höfðu þá verið á göngu í
fimmtán klukkustundir. Veður
var stillt en gangfæri eríitt.
Sigurþór fékk nokkra strengi af
gongunni, enda lítið eitt fatlað-
ur, en að öðru leyti var hann
vel hress og Ingibjörg fór í
skólann á mánudagsmorgun og
kenndi sér einskis meins. Talið
ALLIR VEGIR
GREIÐFÆRIR
Múlavegur var opnaður á mánu
daginn og Oxnadalsheiði var
rudd í gær, og vegurinn til
Réykjavíkur er fyrirstöðulaus.
Austur er fært, alla leið til
Raufarhafnar og upp í Mývatns
sveit. Eins og er, eru því allar
leiðir opnar, sagði Bjöm Brynj-
ólfsson hjá Vegagerðinni í gær.
er, að þau hafi gengið . um 30
kílómetra leið.
Skagfirðingasveitin hóf leit
þegar komu ferðafólksins seink-
aði. Hún fékk þyrlu, sem stödd
var á Akureyri og er í eigu
Ásgeirs Markússonar, til að
/ «<**
hefja leit. Flugmenn fundu slóð
ina og röktu hana til byggða,
en fluttu síðan telpuna heim til
sín og föður hennar í annarri
ferð og fór þetta allt vel. Feðg-
inin voru vel búin og höfðu með
sér nesti. G. O.
Þyrlan og flugmennimir á Akureyrarflugvelli á mánudaginn. —
(Ljósm.: Fr. Vestmann)
Gunnarsstöðum í Þistilfirði 8.
febrúar. Hér er nú kominn
nokkuð mikill snjór og að sjá
hér á ásana, sllétt af öllu. Vegir
hafa verið mjög þungfærir,
nema þar sem búið er að byggja
þá upp, en þeir vegir standa vel
upp úr. En hér eru tveir kaflar
á veginum, sem eftir er að
byggja upp og svo sýsluvegirnir
og þar er mikið verk fyrir hönd
um, því hér eru vegir langir.
Hér er mjög rólegt um þessar
F iskveiðisamningur
í Þistilfirði
mundir. Menn fara þó á milli
bæja, draga í spil og eiga góðar
samræðustundir. Þá fara fjár-
ræktarmenn um og skoða hver
hjá öðrum, svo sem hér er siður
í fjárræktarfélaginu. Allir skoða
hjá öllum og hingað koma gest-
ir til okkar á Gunnarsstöðum
klukkan 2 í dag. Þetta er einkar
skemmtilegt og mjög fræðandi,
því menn bera saman bækur
sínar í fjárræktinni.
Fontur er á veiðum. Hann
veiðir en minni bátarnir ekkert,
því á þeirra miðum er ördeyða.
Á einu búinu hér á Gunnars-
stöðum, hjá ungum bónda, Jó-
hannesi Sigfússyni, sé ég dag-
lega afríkunegra í snjó, og mun
það líklega heldur sjaldgæf sjón
hér á landi. Hann er frá Gana
og er vetrarmaðui' hjá Jóhann-
esi. Þetta er kátur maður og er
að venjast störfunum. En einn
hlut óttast hann, og það er dýpt
snjóskaflanna, sem hann álítur,
að hann muni e. t. v. festast í
og ekki komast upp aftur. Gana
búinn er landeigandi, 32 ára
gamall og er að búa sig undir
kjötframleiðslu svína og sauða.
Ó. H.
Ú. A.
Þótt margir spáðu illa fyrir tog
araútgerð á Akureyri þegar það
mál var í uppsiglingu, er nú svo
komið, að Útgerðarfélag Akur-
eyringa mun eitt best rekna
togaraútgerðin hér á landi, á nú
fimm nýlega skuttogara, hefur
mörg hundruð manns í vinnu,
bæði á sjó og landi, og er lyfti-
stöng atvinnulífs í höfuðstað
Norðurlands. Hér í blaðinu
voru nýlega birtar skýrslur um
afla togaranna og vinnslu afl-
ans. Kom þar þá meðal annars
í ljós, að fjórir af þessum fimm
togurum höfðu á síðasta ári afl-
að nær 4000 tonn fiskjar hver.
Ú. A. OG BÚR
Tíminn gerði nýlega samanburð
á togaraútgerð akureyringa og
Bæjarútgerð Reykjavíkur og
segir m. a.:
Fimm togarar Ú. A. öfluðu
17.261 tonn á sl. ári og fengu
fyrir aflann 969.5 millj. kr. Með-
alverð, sem þeir fengu, var því
56,17 kr. eða 14,50 kr. hærra en
tógarar Bæjarútgerðarinnar
fengu. Þessi mikli munur á
meðalverði stafar að verulegu
leyti af því, að löndunaraðstaða
í Reykjavíkurhöfn er eins óhag-
kvæm og hugsazt getur og lönd
unarkostnaður því mikill.
Ir ;i»i tj. • J
BETRI OG VERÐMEIRI
FISKUR
Enn segir Tíminn:
Togarar Ú. A. koma með nær
allan sinn fisk í kössum, sem
þýðir strax 8% liærra verð auk
þess, að yfir 95% aflans fór í
1. gæðaflokk. Togarar BÚR eru
hins vegar með nær allan sinn
afla lausan, enda fór ekki nema
70—75% af þorski og ýsu í 1.
gæðaflokki. Láta mun nærri, að
togarar BÚR hefðu fengið um
90 milljón krónum meira fyrir
þann afla, sem þeir fengu á sl.
ári, ef aðstaða í landi væri
svipuð hér og liún er á Akur-
eyri.
MEINSÆRI OG RÓGUR
Lokið er hjá Sakadómi Reykja-
víkur rannsókn Geirfinnsmáls-
ins, en Geirfinnur Einarsson
hvarf haustið 1974. Þrír menn
bönuðu lionum og liafa nöfn
þeirra verið birt, og tveir voru
auk þess í vitorði með þeim.
Vegna nieinsæris hinna seku
sátu fjórir saklausir menn lengi
í varðhaldi. Vonandi verða þeir
Frá hitaveitunefnd
við færeyinga
íslendingar og færeyingar hafa
samið um gagnkvæmar veiðar
innan landhelgi. Færeyingar fá
að veiða 25 þúsund tonn af
loðnu á íslandsmiðum, til
bræðslu í Færeyjum, en íslend-
ingar fá í staðinn að veiða 25
þúsund tonn af kolmunna á fær
eyskum miðum. Var samningur
um þessar veiðar undirritaður
4. febrúar af Einari Ágústssyni
utanríkisráðherra og Atla Dam
lögmanni.
Færeyskir og íslelnskir stjórn
málamenn eru sammála um
nauðsyn þess, að fiskifræðingar
beggja landanna taki upp sam-
vinnu á sviði rannsókna á göng-
um kolmunna á hafsvæðinu
milli íslands og Færeyja. □
Með tilvísun til þess að bæjar-
stjórn hefur samþykkt reglu-
gerð fyrir Hitaveitu Akureyrar,
þá leggur hitaveitunefnd til að
auglýst verði laust starf fram-
kvæmdastjóra Hitaveitu Akur-
eyrar.
Umsækjandi hafj. verjjfræði-
eða tæknifræðimenntun.
Hitaveitunefnd samþykkir að
samið verði við Sigurð Svein-
björnsson, Reykjavík, um kaup
á þenslustykkjum í aðveituæð
frá Teddington og ganga inn í
það tilboðsverð, sem boðið var
Hitaveitu Suðurnesja, sam-
kvæmt útboði. Um er að ræða
140 stk. 0 500/16/125.
Formanni, í samráði við Inn-
kaupastofnun ríkisins, falið að
ganga frá samningum.
Formanni falið að auglýsa út-
boð á steyptum undirstöðum
vegna aðveituæðar. Um er að
ræða 850 stk. samkvæmt teikn-
ingum hönnunaraðila. Tilboðs-
frestur verði til 11. febrúar
1977. Tiliboð verða opnuð 11.
febrúar 1977 kl. 11 f. h. á skrif-
stofu tæknideildar bæjarins.
Samþykkt að bjóða út ein-
angrun og álkápu vegna að-
veituæðar og fela Innkaupa-
stofnun ríkisins að annast út-
boðið í samráði við hönnunar-
aðila.
Um er að ræða um 25.000 m2
í álkápu og einangrun á að-
veituæðina.
Samþykkt að bjóða út og/eða
semja um efni í I. áfanga dreifi-
kerfis hitaveitunnar, miðað við
að lagt verði í hverfi milli
Þórunnarstrætis og Mýrarveg-
ar, austan Þórunnarstrætis
sunnan Þingvallastrætis og í
Þórunnarstræti norður að Gler-
árgötu á þessu ári. □
blettir, sem hinir saklausu
hlutu í almenningsálitinu á
meðan hin mikla og langa máls-
rannsókn stóð yfir, að fullu af
þeim þvegnir. Aðrir menn not-
uðu mál þetta til að ófrægja
Framsóknarflokkinn og sérstak
lega ýmsa forystumenn hans.
Meinsæri er Ijótur verknaður,
þótt í varnarskyni sér framið.
Rógur er lítið fegurri, og síst,
þegar hann er uppi liafður í
árásarskyni.
RANNSÓKNARLÖGREGLA
RÍKISINS
Eitt þierra mörgu mála, sem
núverandi dómsmálaráðherra
hefur unnið að, á sviði dóms-
mála, er nú að koma til fram-
kvæmda. Er það Rannsóknar-
lögregla ríkisins. Hefur Hall-
varður Einarsson verið skipað-
ur yfirmaður liennar og tekur
Rannsóknarlögregla ríkisins til
starfa í sumar.
30 MILLJÓNIR TIL
MATVÆLARANNSÓKNA
Ríkisstjórnin samþykkti í síð-
ustu viku, að veit viðtöku styrk
frá Kellogsstofnuninni í Banda-
ríkjunum, sem nota á til mat-
vælarannsókna hér á landi.
Upphæðin er 30 milljónir króna.
Rennur styrkur þessi til Rann-
sóknarstofnunar landbúnaðar-
ins í fyrrnefndu augnamiði.
KYNNA SÉR OLÍÚLEIT
Norðmenn hafa boðið íslensk-
um stjórnvöldum aðstoð í sam-
bandi við olíuleit á íslenska
landgrunninu. Islcnsk stjórn-
völd hafa þegið boð þetta og
falið sérstakri nefnd að fara til
Noregs þessara erinda. En for-
maður nefndarinnar er Árni
Tryggvason sendiherra og með
ronurn Guðmundur Pálmason
og Arni Þ. Árnason. Yfir tutt-
ugu beiðnir um rannsóknar-
leyfi vegna væntanlegrar olíu,
hafa borist íslenskum stjórn-
völdum. En enginn aðili hefur
enn fengið leyfi til olíuleitar á
landgrunninu.
GÖMUL VÍSA
Lesandi hafði yfir vísu eina
gamla og er hún svona:
Er þorratunglið tínætt er
tel ég lítinn háska.
Sunnudag næsta nefna ber
níu vikur til páska.
En svo bætir lesandi því við,
að þetta komi ekki heim og
saman nú, því páskar séu í
almanakinu viku síðar en vísan
segir til um.
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á AKUREYRI
Það slys varð á föstudaginn á
gatnamótum Glerárgötu og Þór
unnarstrætis, að létt bifhjól og
bíll rákust saman. Ökumaður
bifhjólsins var fluttur í sjúkra-
hús, en hann er nú kominn
heim.
Þá vildi það til skammt innan
við Brunná, að hestur í hrossa-
rekstri varð fyrir bíl. Slasaðist
hesturinn svo, að skjóta varð
hann á staðnum. □