Dagur


Dagur - 09.02.1977, Qupperneq 8

Dagur - 09.02.1977, Qupperneq 8
Ákureyri, miðvikudaginn 9. febrúar 1977 BAGUK AUGLÝSINGASÍMI RAKVÉLA- BLÖÐIN MARGEFTIR- SPURÐU KOMIN -t Ttlítt lflptnr vprnldíil SMÁTT & STÓRT Sauðárkróki 8. febrúar. Hér er hvitalogn og besta veður á degi hverjum. Má segja, að blítt læt- ur veröldin, svo sagði Hagalín. Sigurþór Hjörleifsson í Messu holti og 11 ára dóttir hans, Ingi- björg að nafni, fóru á laugar- daginn á vélsleða fram á Hauka gilsheiði, þar sem Sigurþór les af mælum fyrir Orkustofnun- ina og er það löng leið. Gekk þó allt vel þar til á heimleið- inni, að Sigurþór missti vélsleð- ann niður um ís á vatni einu uppi á heiði og varð að skilja hann eftir. Héldu þau mæðgin- in síðan fótgangandi til byggða og voru komin að túngarðinum á Mælifellsá, þegar þyrla fann þau og flutti til síns heima. En þau höfðu þá verið á göngu í fimmtán klukkustundir. Veður var stillt en gangfæri eríitt. Sigurþór fékk nokkra strengi af gongunni, enda lítið eitt fatlað- ur, en að öðru leyti var hann vel hress og Ingibjörg fór í skólann á mánudagsmorgun og kenndi sér einskis meins. Talið ALLIR VEGIR GREIÐFÆRIR Múlavegur var opnaður á mánu daginn og Oxnadalsheiði var rudd í gær, og vegurinn til Réykjavíkur er fyrirstöðulaus. Austur er fært, alla leið til Raufarhafnar og upp í Mývatns sveit. Eins og er, eru því allar leiðir opnar, sagði Bjöm Brynj- ólfsson hjá Vegagerðinni í gær. er, að þau hafi gengið . um 30 kílómetra leið. Skagfirðingasveitin hóf leit þegar komu ferðafólksins seink- aði. Hún fékk þyrlu, sem stödd var á Akureyri og er í eigu Ásgeirs Markússonar, til að / «<** hefja leit. Flugmenn fundu slóð ina og röktu hana til byggða, en fluttu síðan telpuna heim til sín og föður hennar í annarri ferð og fór þetta allt vel. Feðg- inin voru vel búin og höfðu með sér nesti. G. O. Þyrlan og flugmennimir á Akureyrarflugvelli á mánudaginn. — (Ljósm.: Fr. Vestmann) Gunnarsstöðum í Þistilfirði 8. febrúar. Hér er nú kominn nokkuð mikill snjór og að sjá hér á ásana, sllétt af öllu. Vegir hafa verið mjög þungfærir, nema þar sem búið er að byggja þá upp, en þeir vegir standa vel upp úr. En hér eru tveir kaflar á veginum, sem eftir er að byggja upp og svo sýsluvegirnir og þar er mikið verk fyrir hönd um, því hér eru vegir langir. Hér er mjög rólegt um þessar F iskveiðisamningur í Þistilfirði mundir. Menn fara þó á milli bæja, draga í spil og eiga góðar samræðustundir. Þá fara fjár- ræktarmenn um og skoða hver hjá öðrum, svo sem hér er siður í fjárræktarfélaginu. Allir skoða hjá öllum og hingað koma gest- ir til okkar á Gunnarsstöðum klukkan 2 í dag. Þetta er einkar skemmtilegt og mjög fræðandi, því menn bera saman bækur sínar í fjárræktinni. Fontur er á veiðum. Hann veiðir en minni bátarnir ekkert, því á þeirra miðum er ördeyða. Á einu búinu hér á Gunnars- stöðum, hjá ungum bónda, Jó- hannesi Sigfússyni, sé ég dag- lega afríkunegra í snjó, og mun það líklega heldur sjaldgæf sjón hér á landi. Hann er frá Gana og er vetrarmaðui' hjá Jóhann- esi. Þetta er kátur maður og er að venjast störfunum. En einn hlut óttast hann, og það er dýpt snjóskaflanna, sem hann álítur, að hann muni e. t. v. festast í og ekki komast upp aftur. Gana búinn er landeigandi, 32 ára gamall og er að búa sig undir kjötframleiðslu svína og sauða. Ó. H. Ú. A. Þótt margir spáðu illa fyrir tog araútgerð á Akureyri þegar það mál var í uppsiglingu, er nú svo komið, að Útgerðarfélag Akur- eyringa mun eitt best rekna togaraútgerðin hér á landi, á nú fimm nýlega skuttogara, hefur mörg hundruð manns í vinnu, bæði á sjó og landi, og er lyfti- stöng atvinnulífs í höfuðstað Norðurlands. Hér í blaðinu voru nýlega birtar skýrslur um afla togaranna og vinnslu afl- ans. Kom þar þá meðal annars í ljós, að fjórir af þessum fimm togurum höfðu á síðasta ári afl- að nær 4000 tonn fiskjar hver. Ú. A. OG BÚR Tíminn gerði nýlega samanburð á togaraútgerð akureyringa og Bæjarútgerð Reykjavíkur og segir m. a.: Fimm togarar Ú. A. öfluðu 17.261 tonn á sl. ári og fengu fyrir aflann 969.5 millj. kr. Með- alverð, sem þeir fengu, var því 56,17 kr. eða 14,50 kr. hærra en tógarar Bæjarútgerðarinnar fengu. Þessi mikli munur á meðalverði stafar að verulegu leyti af því, að löndunaraðstaða í Reykjavíkurhöfn er eins óhag- kvæm og hugsazt getur og lönd unarkostnaður því mikill. Ir ;i»i tj. • J BETRI OG VERÐMEIRI FISKUR Enn segir Tíminn: Togarar Ú. A. koma með nær allan sinn fisk í kössum, sem þýðir strax 8% liærra verð auk þess, að yfir 95% aflans fór í 1. gæðaflokk. Togarar BÚR eru hins vegar með nær allan sinn afla lausan, enda fór ekki nema 70—75% af þorski og ýsu í 1. gæðaflokki. Láta mun nærri, að togarar BÚR hefðu fengið um 90 milljón krónum meira fyrir þann afla, sem þeir fengu á sl. ári, ef aðstaða í landi væri svipuð hér og liún er á Akur- eyri. MEINSÆRI OG RÓGUR Lokið er hjá Sakadómi Reykja- víkur rannsókn Geirfinnsmáls- ins, en Geirfinnur Einarsson hvarf haustið 1974. Þrír menn bönuðu lionum og liafa nöfn þeirra verið birt, og tveir voru auk þess í vitorði með þeim. Vegna nieinsæris hinna seku sátu fjórir saklausir menn lengi í varðhaldi. Vonandi verða þeir Frá hitaveitunefnd við færeyinga íslendingar og færeyingar hafa samið um gagnkvæmar veiðar innan landhelgi. Færeyingar fá að veiða 25 þúsund tonn af loðnu á íslandsmiðum, til bræðslu í Færeyjum, en íslend- ingar fá í staðinn að veiða 25 þúsund tonn af kolmunna á fær eyskum miðum. Var samningur um þessar veiðar undirritaður 4. febrúar af Einari Ágústssyni utanríkisráðherra og Atla Dam lögmanni. Færeyskir og íslelnskir stjórn málamenn eru sammála um nauðsyn þess, að fiskifræðingar beggja landanna taki upp sam- vinnu á sviði rannsókna á göng- um kolmunna á hafsvæðinu milli íslands og Færeyja. □ Með tilvísun til þess að bæjar- stjórn hefur samþykkt reglu- gerð fyrir Hitaveitu Akureyrar, þá leggur hitaveitunefnd til að auglýst verði laust starf fram- kvæmdastjóra Hitaveitu Akur- eyrar. Umsækjandi hafj. verjjfræði- eða tæknifræðimenntun. Hitaveitunefnd samþykkir að samið verði við Sigurð Svein- björnsson, Reykjavík, um kaup á þenslustykkjum í aðveituæð frá Teddington og ganga inn í það tilboðsverð, sem boðið var Hitaveitu Suðurnesja, sam- kvæmt útboði. Um er að ræða 140 stk. 0 500/16/125. Formanni, í samráði við Inn- kaupastofnun ríkisins, falið að ganga frá samningum. Formanni falið að auglýsa út- boð á steyptum undirstöðum vegna aðveituæðar. Um er að ræða 850 stk. samkvæmt teikn- ingum hönnunaraðila. Tilboðs- frestur verði til 11. febrúar 1977. Tiliboð verða opnuð 11. febrúar 1977 kl. 11 f. h. á skrif- stofu tæknideildar bæjarins. Samþykkt að bjóða út ein- angrun og álkápu vegna að- veituæðar og fela Innkaupa- stofnun ríkisins að annast út- boðið í samráði við hönnunar- aðila. Um er að ræða um 25.000 m2 í álkápu og einangrun á að- veituæðina. Samþykkt að bjóða út og/eða semja um efni í I. áfanga dreifi- kerfis hitaveitunnar, miðað við að lagt verði í hverfi milli Þórunnarstrætis og Mýrarveg- ar, austan Þórunnarstrætis sunnan Þingvallastrætis og í Þórunnarstræti norður að Gler- árgötu á þessu ári. □ blettir, sem hinir saklausu hlutu í almenningsálitinu á meðan hin mikla og langa máls- rannsókn stóð yfir, að fullu af þeim þvegnir. Aðrir menn not- uðu mál þetta til að ófrægja Framsóknarflokkinn og sérstak lega ýmsa forystumenn hans. Meinsæri er Ijótur verknaður, þótt í varnarskyni sér framið. Rógur er lítið fegurri, og síst, þegar hann er uppi liafður í árásarskyni. RANNSÓKNARLÖGREGLA RÍKISINS Eitt þierra mörgu mála, sem núverandi dómsmálaráðherra hefur unnið að, á sviði dóms- mála, er nú að koma til fram- kvæmda. Er það Rannsóknar- lögregla ríkisins. Hefur Hall- varður Einarsson verið skipað- ur yfirmaður liennar og tekur Rannsóknarlögregla ríkisins til starfa í sumar. 30 MILLJÓNIR TIL MATVÆLARANNSÓKNA Ríkisstjórnin samþykkti í síð- ustu viku, að veit viðtöku styrk frá Kellogsstofnuninni í Banda- ríkjunum, sem nota á til mat- vælarannsókna hér á landi. Upphæðin er 30 milljónir króna. Rennur styrkur þessi til Rann- sóknarstofnunar landbúnaðar- ins í fyrrnefndu augnamiði. KYNNA SÉR OLÍÚLEIT Norðmenn hafa boðið íslensk- um stjórnvöldum aðstoð í sam- bandi við olíuleit á íslenska landgrunninu. Islcnsk stjórn- völd hafa þegið boð þetta og falið sérstakri nefnd að fara til Noregs þessara erinda. En for- maður nefndarinnar er Árni Tryggvason sendiherra og með ronurn Guðmundur Pálmason og Arni Þ. Árnason. Yfir tutt- ugu beiðnir um rannsóknar- leyfi vegna væntanlegrar olíu, hafa borist íslenskum stjórn- völdum. En enginn aðili hefur enn fengið leyfi til olíuleitar á landgrunninu. GÖMUL VÍSA Lesandi hafði yfir vísu eina gamla og er hún svona: Er þorratunglið tínætt er tel ég lítinn háska. Sunnudag næsta nefna ber níu vikur til páska. En svo bætir lesandi því við, að þetta komi ekki heim og saman nú, því páskar séu í almanakinu viku síðar en vísan segir til um. FRÁ LÖGREGLUNNI Á AKUREYRI Það slys varð á föstudaginn á gatnamótum Glerárgötu og Þór unnarstrætis, að létt bifhjól og bíll rákust saman. Ökumaður bifhjólsins var fluttur í sjúkra- hús, en hann er nú kominn heim. Þá vildi það til skammt innan við Brunná, að hestur í hrossa- rekstri varð fyrir bíl. Slasaðist hesturinn svo, að skjóta varð hann á staðnum. □

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.