Dagur - 06.04.1977, Síða 4
Skrifstofur Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar: Ritstjóm 11166, Augl. og afgreiðsla 11167
Ritstj. og ábyrgðarm.: ERLINGUR DAVÍÐSSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentvcrk Odds Bjömssonar h£.
Senn
kemur
vorið
Hversu sem viðrar frá degi til dags,
vitum við að vorið kemur senn og er
okkur kærkomnara en flestum öðr-
um þjóðum vegna norðlægrar legu
lands okkar og hins skamma sumars.
En við erum að því leyti betur settir
en íbúar þeirra landa, sem sunnar
eru á hnettinum, að langdegi er hér
meira og nóttlaus hásumartíð. Hinn
langi sólargangur hjálpar gróðrinum
til að verða fegurri, efnaríkari og
hraustari en þekkist í suðlægari ná-
grannalöndum, og njótum við þess
ríkulega.
Og þess verður vart, jafnvel inni á
skrifstofum, að gestir, sem þangað
leggja leið sína utan af strönd og dal,
hafa fundið vorið nálgast og bera það
með sér í hug og hjarta. íslenskt vor
og sumar glæðir vonir okkar og lífs-
hamingju og lofar okkur miklu. Vor-
ið gefur okkur kjark til að stíga á
stokk og strengja heit, og langdegið
getur hjálpað okkur til að standa við
þau.
Á hverju vori verður öll náttúra
lands okkar ástfangin og full af lífi
og unaði. Allar lífverur, sem blund-
að hafa undir vetrarfeldi, vakna til
lífsins og öll skepna skaparans,
hverju nafni sem nefnist, bergir af
lífsins brunnum, hver eftir sínum
þroska.
Bóndinn fylgir hjörð sinni og
hjálpar jörðinni til að bera ávöxt,
sjómaðurinn leggur net sín og báðir
njóta þeir tónlistar farfuglanna,
lækjamiðs og bámkvaks, eftir því
sem næmleiki þeirra getur notið. Nú
þegar er tími til þess kominn fyrir
þá, sem þétt búa og lítið land eiga,
að huga að fjölæmm garðplöntum,
mnnum og trjám. Sumir munu
búnir að sá sumarblómafræi í kassa
í stofuglugganum, aðrir þurfa að
klippa greinar og kvisti og má ekki
draga það lengur, og senn em kart-
öflur settar til spímnar, en allt starf
í húsagarðinum gæti verið fjöldan-
um andlegur og líkamlegur heilsu-
gjafi, langt umfram það sem algeng-
ast er.
Og vorið lofar ferðalögum um
sveitir þessa lands, sem búa yfir svo
óendanlegri og fjölbreyttri fegurð.
Vorið býr yfir gagni og gleði öllum
þeim, sem vorhuga eiga í sálu sinni
og geta tekið á móti dásemdum lífs-
ins, sem vorið glæðir.
Þótt vetur ríki eflaust enn um
stund, geta menn í huga og hjarta
gefið sig á vald hinna björtu daga,
sem framundan em. □
Takast þarf nánara samstarf milli
Alþingis og láglaunafólks
Ingvar Gíslason alþingismaður skrifar
Eins og kjörum láglaunafólks
er háttað, er varla hægt að bú-
ast við öðru en að kauphækk-
anir eigi sér stað í vor. Hins
vegar er óraunsætt að hugsa
sér samninga á grundvelli
þeirrar kröfugerðar, sem fyrir
liggur, án þess að á eftir fylgi
miklar verðhækkanir og tvíefld
verðbólga. Þetta stafar af því,
að engin trygging er fyrir,
hversu ört kauphækkanir breið
ast út um allt launakerfið, enda
munu þær ekki staðnæmast við
láglaunafólkið, ef ekkert er að
gert, auk þess sem viðurkenna
verður, að atvinnulífið er ekki
við því búið án skipulagsað-
gerða að tryggja sömu fram-
leiðsluafköst á 8 klukkustund-
um og 10 stundum. Hætt er því
við að fyrst um sinn muni dag-
leg eftirvinna haldast jafnvel
þótt verkafólki væri tryggt líf-
vænlegt dagvinnukaup. Án
skipulagsbreytingar myndi því
kauphækkun leiða til verulega
aukinna útgjalda hjá mörgum
atvinnufyrirtækjum. Einnig er
óraunsætt að horfa fram hjá
efnahagslegum staðreyndum
eins og þeirri, að ávállt er um
að ræða víxlverkun milli kaup-
gjalds og verðlags sem kemur
fram í verðbólgu. Því fær eng-
inn máttur breytt, hvorki á
himni né jörð.
Lágt dagvinnukaup.
Þótt þannig sé talað, getur
engum dulist að kaupgjald fyrir
venjulega dagvinnu er mjög
lágt miðað við eðlilegar lífskröf-
ur. Fæstum er mögulegt að lifa
af dagvinnukaupi eða því, sem
fæst fyrir 40 stunda vinnuviku.
Mánaðarkaupsmenn eru ekki
ofhaldnir af sínu. Enginn getur
í sjálfu sér láð launamönnum
þó að þeir setji fram kröfur um
að geta lifað af dagvinnukaupi.
En jafnvel réttlætis- og sann-
gimismál er hægt að reka of
einhliða. Mikil nauðsyn er á því
að hefja skipulegar aðgerðir til
þess að koma á raunverulegum
8 stunda vinnudegi í íslensku
atvinnulífi. Um það þarf að tak-
ast samstarf milli launþega og
atvinnufyrirtæk j a.
Næg atvinna.
En þegar rætt er um kjara-
mál, þá munu flestir sammála
um að besta kjaratryggingin
felist í því að næg atvinna sé í
boði. Krafan um fulla atvinnu
er óumdeilnlegt réttlætismál, og
verkalýðshreyfingin á að fylgja
því fast eftir að henni sé skil-
yrðislaust fullnægt. Síðustu ár
hefur verið haldið uppi fullri
atvinnu í landinu, og mun sann-
ast mála að atvinnutekjur
manna hafa, þrátt fyrir allt,
verið býsna miklar. Það sýna
þær skýrslur, sem fyrir liggja
um framtaldar tekjur kvæntra
manna á undanförnum árum. —
Ráðstöfunarfé flestra heimila
hefur verið miklu meira en
Ingvar Gíslason,
alþingismaður.
skráðir kauptaxtar gefa til
kynna. Vissulega liggur mikil
vinna á bak við þá peningalegu
afkomu, sem þarna er um að
ræða, og oftast þannig, að bæði
hjónin afla teknanna að meira
eða minna leyti, en eigi að síð-
ur hafa þessar tekjur runnið
í sameiginlegan sjóð heimilanna
og staðið undir lífskjörum, sem
ekki virðast lakari en almennt
gerist í þróuðum velferðarþjóð-
félögum.
í nýútkominni ársskýrslu Amts-
bókasafnsins á Akureyri segir
frá því, að bókakosturinn sé
24.658 bindi og hafði aukist á
annað þúsund á árinu. Þar segir
ennfremur, að bókaútlán hafi
verið að meðaltali yfir 400 bindi
á dag. Þá nutu margir aðilar
þess að fá lánaða í safninu
„bókakassa“ og njóta bókakassa-
lánin aukinna vinsælda.
Þá hefur safnið tekið upp þá
þjónustu að miðla talbókum til
blindra og sjóndapurra.
Skráðir gestir í lestrarsal
Hver er kaupmátturinn?
Nokkur tilhneiging er til þess
að gera mikið úr kjararýrnun
og minnkandi kaupmætti launa
á síðustu misserum. Miðað við
þann mælikvarða, sem notaður
er, þ. e. að kaupmáttur 1971 er
ákveðinn 100 stig, þá var kaup-
máttur 1975 að meðaltali 114
stig, 1976 113 stig og var um
115,9 stig 1. mars sl. Árin 1972
og 1973 var kaupmátturinn 117
stig fyrra árið og 119 stig hið
síðara.
Á árinu 1974 var kaupmáttur
133 stig. Sú tala er þó algerlega
óhæf til viðmiðunar, enda var
kaupmáttur þá aukinn til stutts
tíma með óeðlilegri samnings-
gerð. Hið sanna er að kaup-
máttur launa síðustu 2 ár hef-
Skorað á
Fimmtudaginn 3. mars sl. var
haldinn fundur með foreldrum
þeirra 8 ára barna, sem eiga
skólasókn í Lundarskóla. Skóla-
stjórinn, Hörður Ólafsson, gerði
stuttlega grein fyrir starfi skól-
ans og leiddi síðan ásamt nokkr-
um samkennurum sínum um-
ræður um samskipti skóla og
heimila, heilsugæslu í skólanum
o. fl. Vegna fjölmennis, en alls
mættu um 50 manns á fundin-
um, var gestum skipt í umræðu-
hópa, alls 8 og skilaði hver hóp-
ur niðurstöðum í lok fundarins.
Ein tillaga var nokkuð rædd og
ákveðið að beina svohljóðandi
áskorun til bæjaryfirvalda:
„Fundur foreldra og forráða-
manna 8 ára barna, sem nema í
Lundarskóla, skorar á bæjar-
voru 8.580 á síðasta ári. Filmu-
safn Amtsbókasafnsins er mikið
notað af fræðimönnum. Þá er
þess getið í skýrslunni, ásamt
margs konar öðrum fróðleik, að
Thersia Guðmundsson, fyrrv.
veðurstofustjóri og börn henn-
ar tvö, Hákon Barðason og
Hildur Barðadóttir, hafi gefið
safninu veglega bókagjöf úr
bókasafni Barða Guðmundsson-
ar, fyrrverandi þjóðskjalavarð-
ar og voru allflestar úr búi
föður hans, Guðmundar Guð-
mundssonar hreppstjóra á
Þúfnavöllum. □
Frá Amtsbókasafninu á Akureyri
• Sfldarverksmiðjan
á Hjalteyri.
Eins og margir vita, sem
muna síldarárin, þá hefir ýms-
um sjávarþorpum, sem byggðu
afkomu sína að öllu eða mestu
leyti á síldarverkun, farið mjög
aftur síðan síldin hvarf. Á ein-
staka stað gekk þetta svo langt,
að heil þorp stóðu sem næst
mannlaus og í niðumíðslu að
fáum árum liðnum. Nægir að
minna á Eyri við Ingólfsfjörð
og Djúpuvík við Reykjarfjörð
vestra. Á Siglufirði og Raufar-
höfn var ástandið lengi slæmt,
en batnaði stórum við auknar
loðnuveiðar.
Nú vill svo til, að hér við
Eyjafjörð er ein stærsta síldar-
verksmiðja sem til á íslandi.
Þetta er verksmiðjan á Hjalt-
eyri, sem Hf. Kveldúlfur lét
reisa árið 1937, og þótti þá eitt
mesta mannvirki hér á landi.
Þessi verksmiðja starfaði síðan
til ársins 1966 að síldveiðar
hættu að mestu. Síðan hefir
verksmiðjan skipt um eigendur,
því Landsbanki íslands tók all-
ar eignir Hf. Kveldúlfs upp í
skuldir félagsins við bankann.
Mjög er nú rætt um leiðir til
að auka loðnuvinnslu. Mér virð-
ist í fljótu bragði, að auðvelt
myndi öflugum félögum eins og
SÍS að koma rekstri Hjalteyrar-
verksmiðjunnar aftur af stað.
Ekki skiptir miklu máli hvort
reksturinn yrði i höndum ríkis,
bæjar og samvinnuhreyfingar-
innar, við höfum ekki efni á að
láta þetta vandaða húsnæði
standa autt árum saman. Afköst
verksmiðjunnar voru talin 10
þús. mál, sem er 1350 tonn á
sólarhring. Að vísu þarf að
kaupa flest allar vélar til
vinnslu aftur af stað, því mikið
hefir verið selt af vélakostin-
um. Það væri veglegur áfangi
byggðastefnunnar að koma til
móts við óskir þeirra, sem
hamla vilja gegn sóun verð-
mæta í hvaða mynd sem er.
Framfaramað ur.
ur verið nokkuð jafn og er
miklu hærri en var á áratugn-
inn 1960—1970 og verulega
hærri en árið 1971. Hann er að
vísu lægri en árin 1972 og 1973,
en varla verður sagt að þar
muni afar miklu. Hafa verður
í huga að árin 1972 og 1973 voru
mikil uppgangsár, einkum ef
miðað er við viðskiptakjör, en
árin, sem á eftir komu, voru
ákaflega erfið í því tilliti.
Mín skoðun er sú að beita
verði öllum tiltækum ráðum til
þess að bæta kjör láglaunafólks.
Vonandi er að hinar hefð-
bundnu aðferðir dugi til þess,
en þó er ástæða til að draga það
í efa. Ég álít að nánara og
beinna samstarf þurfi að takast
milli Alþingis og láglaunafólks-
ins um sanngjarnar lausnir á
vandamálum þess. Kemur þá til
greina að setja kaupbindingu á
hina hærri launaflokka. En
trygging fullrar atvinnu er þó
stærsta kjaramálið, þegar öllu
er á botninn hvolft.
yfirvöld
yfirvöld að koma hið fyrsta upp
gangbrautarvörslu við Þing-
vallastræti hjá eða ofan Spenni-
stöðvar á mestu umferðartím-
um, s. s. er börn fara í skóla
árla morguns, um hádegi, þ. e.
beggja vegna matarhlés og
endranær, er veður eða aðrar
ástæður gefa tilefni tiL“
Greinargerð: Þeir sem við
Þingvallastræti búa hafá á fáum
árum orðið vitni að gflurlegri
umferðaraukningu um Þing-
vallastrætið, bæði hefur bif-
reiðafjöldi aukist, stórar vöru-
bifreiðar hafa orðið æ meir áber-
andi og ökuhraði virðist meiri
en fyrr. Á þeim tímum dagsins,
er umferðarþungi er hvað mest-
ur, veitist fullorðnu fólki full-
erfitt að komast áfallalaust yfir
götuna. Að vísu skal það tekið
fram, að gangbrautir hafa verið
merkatar á tveim stöðum ofan
Spennistöðvar, en bæði öku-
menn og gangandi vegfarendur
virðast bera takmarkað traust
til þeirra. Minna má á, að
a. m. k. þrjú umferðarslys hafa
orðið á Þingvallastræti ofan
Mýrarvegar nú í vetur, þar af
eitt dauðaslys.
Þau börn, sem búa norðan
Þingvallastrætis og eiga skóla-
sókn í Lundarskóla þurfa a.m.k.
tvisvar á dag og reyndar flesta
daga oftar leið yfir götuna,
hvernig svo sem veðri, færð og
skyggni er háttað. Allir vita, að
mat barna á fjarlægð, hraða og
tíma er annað en fulldrðinna,
auk þess sem athygli þeirra er
oftast dreifðari og kvikulli.
Þess vegna — og eingöngu til
að tryggja öryggi bamanna —
skorum við á bæjaryfirvöld að
koma upp vörslu við áðumefnda
götu á þeim tímum dagsins,
þegar mest umferð bama er yfir
hana. Fordæmi um slíka þjón-
ustu eru mörg, bæði frá ná-
grannalöndum og „að sunnan“
svo sem meðfylgjandi mynd frá
Hafnarfirði sýnir. Það er álit
okkar, að því fé sem til slíkrar
þjónustu yrði varið, væri ekki
á glæ kastað.
Á Góuþræl 1977.
Ritað skv. beiðni fundargesta.
Bernharð Haraldsson,
Víðilundi 18.
Gísli Júlíusson,
Akurgerði 5D.
4•DAGUR
- Vegaframkvæmdir ...
Framhald af blaðsíðu 8.
fram með þeim hætti, að tekið
var tillit til lengdar þjóðbrauta,
ástands þeirra og umferðar-
þunga eftir ákveðinni formúlu.
Af þeim 400 milljónum, sem
áætlaðar eru í þjóðbrautir,
koma 17% í Norðurland eystra,
en í sumum kjördæmunmn var
fært fé af stofnbrautum yfir á
þjóðbrautir, að ósk viðkomandi
þingmanna.
Nýbygging vega á Norðurlandi eystra, samkv. vegaáætlun 1977—
1980, talið í milljónum króna.
Þjóðbrautir:
1977 1978 1979 1977 1978 1979
Fjárv. Fjárv. Fjárv. Fjárv. Fjárv. Fjárv.
Greniv.vegur 21,5 Mýv.sv.v. 13,4
Svarfd.vegur 7,5 13,0 Baldurs-
Bakkavegur 4,6 6,0 heimsvegur 2,7
Hörgárd.v. 1,1 Útkinnarv. 4,0
Dagv.eyrarv. 6,0 Sandsvegur 6,0 2,5
Norðurlandsv. Staðarbraut 14,5
— Finnast.v. 1,0 Laxárd.vegur 4,5
Kristnesv. 6,4 Hólsfjallav. 15,4
Hólavegur 3,0 Gilsbakkav. 8,7
Eyjafj.braut Austursandsv. 5,0
eystri 11,7 13,2 Laxárd.vegur 7,4
Vaðlah.vegur 2 Langanesv. 8,0
Fnjóskad.-
vegur eystri 5 Brýr:
Vaglask.vegur 7,0 1977 1978 1979
Fremstafells- Fjárv. Fjárv. Fjárv.
vegur 2 Mjóadalsá 34
Lundarbr,- Bakkaá 1
vegur 0,5 Grjótá á Öxnd.h. 21
Bárðardalsv. Búðarárgil 49
eystri 3,0 Svarfaðardalsá 27
Stafnsvegur 2,0 Eyvindarlækur 13
Stofnbrautir:
1977 1978 Fjárv.
Fjárv. Lánsh. Fjárv. Lánsh. 1979
Um Öxnadalsheiði 25 10 30 10 10
Norðan Akureyrar .... 40 12 40 15 50
Víkurskarð 50 30 46 25 55
Ljósavatnsskarð 6 4 4 20
Um Svalbarðsströnd .... 20 6 5
Kross — Fosshóll 10
Brún — Máskot 8 2 2
Vestan Helluvaðs 4 6 6
Vindbelgur — Nesl.vík 8 2 2
Námaskarð 21
Ólafurfjörður — Ólafsfj.v. 10 4 4
Hörgárd.v. — Norðurl.v. 20 10 10
Þorvaldsdalsá 40
Hámundarstaðir — Dalv. 15 10 20
Múlavegur, vegsvalir . . 10
Kaldakinn 12 21 10 10
Tjörnes 5 20
Lón — Víkingavatn .... 20 5 30
Sunnan Brunnár 20
Við Kópasker 15
Melrakkaslétta 18 5 25 5 30
S.-Áland — Hafralónsá . . 12 10
Þistilfjörður . 10
| Kveðja við útför
| Sigþórs
i Valdemars-
&
|sonar
1 frá bróður hans
| Öðni
f
I
I
I
1
I
I
I
§
Hvað get ég nema beygt mín kné í bæn,
því bróðir minn og vinur, hann er dáinn?
Þó ljós að baki skuggans skynjum við,
eins skelfir okkur gesturinn með ljáinn.
Ég hefi séð í sorgarinnar hyl
og sopið ramman drykk af bikar jarðar.
Og kafað tregans kalda, myrka djúp.
En kannski var ég aldrei lostinn harðar.
Þó var ég aldrei vinalaus og einn,
mig vöfðu ástrík hjörtu kærleik sínum.
En þó var enginn eins og bróðir minn.
Hans ævitryggð skal ljós á vegi mínum.
y
*
<■
?
t
|
1
f
|
f
|
f
|
f
é
f-
f
|
f
f
f
I
f
f
f
t
<3
5
I
Ég bið, er sál hans siglir þar í höfn,
er sólardísir gullnum voðum tjalda:
— Guð, réttu bróður mínum hjálpar hönd,
því lionum á ég stærstu skuld að gjalda.
f
t
f
t
Hjallabrautarmótið 1977
fór fram um helgina
Um siöustu helgi var haldið a
vegum foreldraráðs Skíðaráðs
Akureyrar svokallað Hjalla-
brautarmót 1977, og var það
keppni í svigi í öllum flokkum
12 ára og yngri. Var þetta jafn-
framt síðasta mótið í svokall-
aðri bikarkeppni þessara
flokka. Á laugardag var veður
og færi gott til keppni en
verra á sunnudag en batnaði
þegar á daginn leið. Úrslit í
mótinu urðu þessi:
7 ára og yngri: sek.
Jón H. Harðarson 58,8
Jón Ingvi Árnason 67,6
Jón Harðarson 68,5
8 ára stúlkur: sek.
Gréta Björnsdóttir 62,1
Hanna Dóra Markúsdóttir 63,0
Erla Björnsdóttir 67,1
8 ára drengir: sek.
Aðalsteinn Árnason 58,5
Hilmir Valsson 58,9
Gunnar Reynisson 61,3
9 ára stúlkur: sek.
Guðrún J. Magnúsdóttir 80,0
Katrín Pétursdóttir 97,4
9 ára drengir: sek.
Ólafur Hilmarsson 72,0
Smári Kristinsson 77,7
Valur Gautason 79,8
Bikarkeppni
Nú er lokið á vegum foreldra-
ráðs Skíðaráðs Akureyrar
Bikarkeppni barna yngri en
12 ára. Keppt var á fimm
skíðamótum í vetur og ræður
samanlagður árangur þriggja
bestu mótanna úrslitum. Bik-
arar og verðlaunagripir voru
allir gefnir af Kiwanisklúbbn-
um Kaldbak, Akureyri. í bik-
arkeppninni voru alls 105
þátttakendur. Formaður for-
eldraráðs er Gísli Kristinn
Lórensson og aðrir í ráðinu
eru Kristinn Steinsson, Björg
Þórðardóttir, Pétur Pálmason,
Rafn Sveinsson, Kristín Jóns-
dóttir, Björn Arason og Hörð-
ur Sverrisson. Þjálfarar voru
þeir Svanberg Þórðarson og
Viðar Garðarsson. Úrslit í
bikarkeppninni eru þessi:
7 ára og yngri: stig
Jón H. Harðarson 0
Jón Harðarson 146,15
Kristín Hilmarsdóttir 215,46
8 ára stúlkur: stig
Gréta Björnsdóttir 0
Arna ívarsdóttir 53,21
Erla Björnsdóttir 83,66
10 ara stulkur: sek.
Signe Viðarsdóttir 76,3
Andrea Björnsdóttir 87,2
Anna M. Malmquist 141,6
10 ára drengir: sek.
Þorvaldur Orlygsson 74,1
Jón Björnsson 80,4
Tryggvi Haraldsson 81,8
11—12 ára stúlkur:
Hrefna Magnúsdóttir 65,9
Lena Hallgrímsdóttir 65,9
Ásdís Frímannsdóttir 70,1
11—12 ára drengir: sek.
Erling Ingvarsson 58,1
Davíð Björnsson 58,5
Stefán Bjarnhéðinsson 58,7
Þór í 1. deild
Sl. sunnudag lék meistara-
flokkur Þórs í körfuknattleik
sinn síðasta leik í annari deild
í ár. Úrslit í leiknum skiptu
Þór ekki máli, þar eð þeir
höfðu þegar sigrað deildina og
færast því upp í fyrstu deild
unglinga
8 ára drengir: stig
Aðalsteinn Árnason 0
Hilmir Valsson 1,91
Gunnar Reynisson 105,25
8 ára stúlkur: stig
Guðrún J. Magnúsdóttir 0
Katrín Pétursdóttir 104,13
9 ára drengir: stig
Ólafur Hilmarsson 0
Guðm. Sigurjónsson 50,88
Smári Kristinsson 85,50
10 ára stúlkur: 0
Signe Viðarsdóttir 0
Anna M. Malmquist 30,60
10 ára drengir: stig
Þorvaldur Örlygsson 4,56
Björn Júlíusson 13,93
Jón Björnsson 20,92
11—12 ára stúlkur: stig
Hrefna Magnúsdóttir 0
Lena Hallgrímsdóttir 8,0
Ingibjörg Harðardóttir 86,96
11—12 ára drengir: stig
Erling Ingvason 0
Ingólfur H. Gíslason 23,77
Stefán Bjarnhéðinsson 40,14
Námskeið fyrir
knattsp.dómara
Bráðlega er fyrirhugað nám-
skeið fyrir knattspyrnudóm-
ara hér á Akureyri á vegum
KR.A. Þeir sem ljúka prófi á
námskeiðinu öðlast dómara-
réttindi sem héraðsdómarar.
Mikill skortur er á knatt-
spyrnudómurum hér á Akur-
eyri og í nágrenninu, og eru
því velunnarar knattspyrnu-
mála hvattir til að sækja slíkt
námskeið og gefa síðan kost
á sér til dómarastarfa. Þeir
sem hafa hug á að sækja nám-
skeiðið, tilkynni þátttöku sína
til formanna knattspyrnu-
deilda félaganna eða til Ólafs
Ásgeirssonar, sími 21606, eða
Guðmundar Sigurbjörnssonar,
síma 22346.
í körfubolta
næsta keppnistímabil. Síðasta
leikinn léku Þórsarar við
Hauka úr Hafnarfirði og töp-
uðu honum, en það var fyrsti
tapleikurinn í deildinni í vet-
ur. Fyrir nokkrum árum léku
Þórsarar í fyrstu deild í körfu-
knattleik og áttu þá mjög
sterkt lið, sérstaklega þau ár
sem Einar Bollason var þjálf-
ari og leikmaður liðsins. Vitað
er að róðurinn verður erfiður
fyrir Þór næsta vetur, en hann
mun eflaust gera sitt besta. —
Þjálfari og aðalleikmaður
Þórs nú í vetur hefur verið
Stefán Hallgrímsson, en for-
maður körfuknattleiksdeildar
er Guðmundur Hagalín. —
Blaðið óskar Þórsurum inni-
lega til hamingju með sigur-
inn.
Skíðalands-
mótið
á Siglufirði
Nú um páskana fer fram á
Siglufirði Skíðalandsmótið svo
kallaða. Keppendur á mótinu
verða á annað hundrað alls-
staðar af að landinu. Allir
bestu skiðamenn landsins leiða
þar saman hesta sína í öllum
greinum skíðaíþrótta.
K.A. sigraði
í síðustu viku léku meistara-
flokkar Þórs og KA í hand-
knattleik leik í Akureyrar-
móti. Búið var að leika þenn-
an leik áður, en þá varð jafn-
tefli. Að þessu sinni sigraði
KA með 25 mörkum gegn 20
og er því Akureyrarmeistari í
handknattleik í ár.
Miklar framfarir hjá sundfólkinu okkar
Miklar framfarir urðu hjá
sundfólki Akureyringa sl. ár.
Stór hópur barna, unglinga og
fullorðinna æfir sundíþrótt-
ina undir skipulegri þjálfun
Jóhanns G. Möllers. Árangur-
inn hefur heldur ekki látið á
sér standa. Á síðasta ári voru
alls sett 46 Akureyrarmet. —
Flest metanna setti Sólveig
Sverrisdóttir, eða 15 alls, en
hún var einnig í stúlknasveit
Óðins sem bætti metið í 4x100
m skriðsundi og 4x100 m fjór-
sundi. Aðrir sem bættu Akur-
eyrarmet á síðasta ári voru
Þórey Tómasdóttir, Marinó
Steinarsson, Ingimar Guð-
mundsson, Eygló Birgisdóttir,
Anna Björnsdóttir, Geir Bald-
ursson og Ólöf Jónsdóttir. —
Helgina 19. og 20. mars dvöld-
ust Óðinsmenn í æfingabúð-
um á Laugalandi á Þelamörk
og var þá æft og keppt alla
helgina. Á þeim mótum voru
einnig sett sex Akureyrarmet,
og ber þar hæst met Sólveigar
Sverrisdóttur í 100 metra flug-
sundi 1:15.9 en það er næst
besti árangur sem náðst hefur
í þessari grein. Þá var Geir
Baldursson fyrstur Akureyr-
inga til að keppa og synda
1500 metra skriðsund, en það
er mjög erfið keppnisgrein, og
ekki á færi nema vel þjálfaðra
pilta. Formaður Óðins er
Gestur Jónsson.
DAGUR•5