Dagur - 27.04.1977, Síða 1

Dagur - 27.04.1977, Síða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL1977 18. TÖLUBLAÐ Góður afli hjá trillukörlum Hjá Fiskmóttöku KEA á Akureyri hefur verið unn- ið dag og nótt að heita má að undanförnu. Þar leggja trillukarlarnir upp fisk sinn. Aflinn hefur verið góður um mánaðartíma. Átta trillukarlar leggja þama upp og hefur aflinn verið hátt í tonn hjá hverj- um og upp í hálft annað tonn hjá netabátunum, en tveir eru með net og hinir með línu. Fiskurinn er mjög vænn. Meðalverð mun vera um 70 krónur kílóið af þessum góða fiski. Stutt er að sækja og gefur þetta því nokkuð í aðra hönd á meðan svona vel aflast. □ Sumardagurinn fyrsti Skátar, hestamenn og ■ lúðrasveit skemmtu akur- eyringum á sumardaginn fyrsta og um kvöldið var sýnd innlend kvikmynd, Morðsaga. Þann dag létu fyrstu stelkarnir sjá sig á Leirun- um, þrjátíu að tölu, og með þeim var sendlingur. Grá- gæsir sáust á oddaflugi. — Lóan kom á öðrum sumar- | degi. Margir smábátar sáust á sjó á innanverðum Eyja- firði og komu með mikið af fallegum þorski að landi um kvöldið. Víða á Norðausturlandi er snjór með mesta móti um þessi sumarmál og sér hvergi á dökkan díl. □ Skógar landsins 125 þúsund hektarar Skóglendi landsins er, sam- kvæmt nýjustu rannsókn- um, 125 þúsund hektarar. Rúmlega 30% þessa skóg- lendis er í framför og eru það ískyggilegar horfur. — Liðlega 26% skóglendis er í afturför og 42% er staðn- að. í nýútkominni skýrslu um þetta mál segir meðal annars, að allt of víða séu skógarskemmdir hroðaleg- ar. En ekki mega þessar fregnir draga kjark úr skógræktarmönnum, því víða dafnar skógurinn vel og er bæði til yndis og gagns. Stór ísjaki Við Suðurskautslandið hef- ur losnað ísjaki, sem á fáa sína líka og er hann á reki. Hann er sagður rúmlega 300 metra þykkur, 172 kíló- metrar á lengd og nær 42 km á breidd. □ Reksturinn gengur miög vel A ðalfundur Slippstöðvarinnar hf. á Akureyri var haldinn 23. apríl sl. Rekstur stöðvarinnar gekk vel á síðasta ári og var hluthöfum greiddur 10% arður, sem einnig var gert á fyrra ári. Þáttur viðgerða í heildarstarf- seminni var 57% og hefur ekki áður verið eins mikill. 122 skip voru tekin í slipp á árinu, og var dráttarbrautin svo til full- nýtt. í skipaviðgerðum fara nú fram ýmsar stærri viðgerðir en áður og stórar breytingar. Af stærri viðgerðum má nefna lengingu skipa, yfirbyggingar, uppsetning einangrunar og kælikerfis og flokkunarviðgerð- ir. Nýsmíðar voru t.d. skuttog- arinn Guðmundur Jónsson GK 475, sem mikla athygli vakti. Þá var unnið að smíði Björgúlfs á Dalvík, sem nú er kominn á veiðar, en smíði hans tók lengri tíma en ætlað var, svo og ný- smíðar fyrir Þórð Óskarsson hf. á Akranesi. Þá var gerður samningur við Magnús Gamal- íelsson útgerðarmann í Ólafs- firði um smíði togara. Þá tók slippurinn að sér all- mikil verkefni við Kröflu. Togarinn Björgúlfur á leið til heimahafnar, Dalvík. (Ljósm. E. D.), Tónlistardagar verða í maí Tónlistarfélag Akureyrar gengst fyrir tónlistarhátíð í sam- vinnu við Passíukórinn, dagana 5.-8. maí. Hátíð þessi ber yfirskriftina „Tónlistardagar í maí 1977“. Um þrjá tón- leika er hér að ræða. Fyrstu tónleikarnir verða í Ak- ureyrarkirkju 5. maí og hefjast klukkan 8.30 e. h. Þar syngja Sieglinde Kahman, Rut Magn- ússon, Sigurður Björnsson og Halldór Vilhelmsson Ástar- söngvavalsana við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar og Guðrúnar Kristinsdóttur og fleiri söngvar eru þar á dag- skránni. Hinn 6. maí leikur Sinfóníu- hljómsveit íslands í íþrótta- skemmuunni undir stjórn Hu- berts Soudant, en einleikari er sellóleikarinn Erling Blöndal Bengtson. Fluttur verður hinn frægi Sellokonsert í H-moll eftir Dvorak, og einnig verður 2. sinfónía Brahms flutt. Síðasta daginn, sunnudaginn 8. maí, verður óratorían Messías eftir Hándel flutt í íþrótta- skemmunni af Passíukórnum á Akureyri, undir stjórn Roars Kvam. Með Passíukórnum leik- ur 25 manna kammersveit úr Sinfóníuhljómsveitinni og eru í þeirri sveit einleikaraarnir Helga Ingólfsdóttir, Nina G. Flyer, Lárus Sveinsson. Ein- söngvarar eru: Halldór Vil- helmsson, Michael J. Clarke, Rut Magnússon, Sigrún Gests- Passíukórinn á æfingu. Roar Kvam, stjórnandi Passíukórsins á Akureyri. dóttir og Sigurður Björnsson. Hér er um að ræða stærsta tón- verk ,sem flutt hefur verið á Akureyri, og er fyrsta heildar- uppfærslan á Messíasi utan Reykjavíkur. Tónlistarfélagið og Passíukór- inn vilja með þessari hátíð gefa akureyringum og öðrum norð- lendingum tækifæri til að njóta tónlistarflutnings, sem jafna má við það besta, sem upp á er boðið hérlendis. Hér er í mikið ráðist, en væntanlega verður það ljóst af mikilli aðsókn, að þessi stórhugur verði sjálfum sér og almenningi til sóma. Áskriftarmiðar að þessum þrem tónleikum spara nokkra fjárhæð. Forsala aðgöngumiða fer fram í Bókabúðinni Huld og í Bókaverslun Jónasar Jóhanns- sonar. Einnig verður forsala á Húsavík, Dalvík, Ólafsfirði og á Sauðárkróki. Um 240 manns vinna hjá Slippstöðinni á Akureyri og stöðin talin best útbúna skipa- smíðastöð landsins. Rekstrarafkoman varð góð á árinu og má segja að brútttó- hagnaður hafi numið 138 millj- ónum. Þar af er hagnaður tal- inn 7,8 milljónir, arður 8,3 millj., afskriftir 23,4 milljónir og lækk- un álagningar á nýsmíði 99,3 milljónir króna. Stjórn Slippstöðvarinnar hf. skipa: Stefán Reykjalín, stjórn- arformaður, Helgi M. Bergs, varaformaður (í stað Bjarna Einarssonar), Inglfur Árnason, ritari og meðstjórnendur eru Bjarni Jóhannesson, Gunnlaug- ur Claessen, Lárus Jónsson og Tómas Steingrímsson. Fram- kvæmdastjóri er Gunnar Ragn- ars. Valur Amþórsson stjómaði aðalfundinum og Ingólfur Sverr- isson var fundarritari. □ Vanfóðrun er sjaldgæf Forðagæslumenn eru í öllum sveitarfélögum. Því miður er það of algengt að búfjáreigend- ur setja illa á og hugsa'ekki nægilega vel um bú sitt, hvað hirðingu snertir. Þegar svo ber við, kemur til kasta ráðunauta, en síðan sveitastjórna ef vemlegar að- gerðir reynast nauðsynlegar. Hér í Eyjafjarðarsýslu og á Akureyri hafa ráðunautar á nokkrum stöðum verið kallaðir á vettvang, en þó sjaldnar en oftast áður, og forðagæslumenn fylgjast með fóðrun og hirð- ingu hjá nokkrum. Er þar um að ræða bæði sauðfjár- og hrossaeigendur. Vanfóðrun og vanhirðing eru sjaldgæfar und- antekningar, og sem betur fer enn sjaldgæfari nú en á fyrir- farandi árum. □ Togararnir afla ágætlega Kaldbakur landaði 160 tonnum 20. apríl. Aflaverðmæti 10,0 millj. kr. Harðbakur landaði 22. apríl 292 tonnum. Aflaverðmæti 20,1 millj. kr. Sléttbakur var að landa 150—160 tonnum á mánu- daginn. Svalbakur landaði 116 tonnum 18. apríl. Aflaverðmæti 7,9 millj. kr. Sólbakur landaði 167 tonnum 13. apríl. Aflaverð- mæti 11,8 millj. kr. □ Minningarmót um Halldór Helgason Á laugardaginn kl. 13.30 hefst minningamót í bridge um Hall- dór Helgason. Mótið vérður í Gefjunarsalnum. — Keppninni, sem verður í nýju sveitakeppnis formi, stjórnar Guðmundur Kr. Sigurðsson frá Reykjavík. — Verðlaun eru gefin af Lands- bankum á Akureyri.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.