Dagur - 09.06.1977, Síða 2
Afmæliskveðja til Richards Beck prófessors
Létt er ellin ungri sál,
ennþá logar hugans bál.
Langur dagur birtu ber,
blessað verði kvöldið þér.
Þessi vísa er úr kveðju Richards
Beck til móður sinnar áttræðr-
ar. Hún á einnig vel við hann
sem er áttræður 9. júní. Þessi
grein verður aðeins afmælis-
kveðja en engin ritgerð um
þennan ágæta, mikilvirka son
íslensku þjóðarinnar. Aðra
lengri grein um R. B. hef ég
ritað sem birtast mun annars
staðar síðar.
Richard Beck er austfirðing-
ur að ætt. Hann er fæddur að
Svínaskálastekk við Reyðar-
fjörð 9. júní 1897. Foreldrar
hans voru hjónin Hans Kjartan
Beck og Þórunn Vigfúsína Vig-
fúsdóttir. Þriggja ára flutti
hann með foreldrum sínum að
Litlu-Breiðuvík og ólst hann
þar upp .
Þegar hann var tíu ára missti
hann föður sinn en braust þó til
mennta. Vann hann fyrir sér
við sjómennsku á skólaárun-
um. Richard tók gagnfræðapróf
á Akureyri, utanskóla, og stúd-
entspróf í Reykjavík tveim ár-
um síðar. Sat hann aðeins í 4.
bekk menntaskólans, en las 5.
og 6. bekk utanskóla á einu
ári. Slíkur afreksmaður var
hann við námið. Þannig hefur
hann einnig verið við öll sín
störf. Eftir stúdentsprófið kenndi
hann einn vetur á Eskifriði en
fór svo til Vesturheims. Lauk
hann > þar háskófenámi og
skömmu síðar doktorsprófi í
bókmenntum. Þá gerðist hann
háskólakennari í íslensku og
norrænum málum.
Richard Beck hefur verið
einn af bestu útvörðum íslenskr-
ar menningar í Vesturheimi. —
Hann hefur kynnt íslenska
menningu og bókmenntir í
enskumælandi heimi og stutt
þjóðarbrotið íslenska til að
halda við tungu sinni. Richard
Beck hefur verið hvorttveggja
í senn Ijóðskáld og afkastamik-
ill rithöfundur og vísindamað-
ur í bókmenntum. Stærsta verk
hans til að kynna íslenskar bók-
menntir er hin stóra bókmennta-
saga hans á ensku um íslensk
Ijóðskáld sem út kom 1950.
Richard Beck hefur gefið út
þrjár ljóðabækur: Ljóðmál 1929,
Við ljóðalindir 1959 og Undir
hauststimdum himni 1973. —
Hann er gæddur næmri, ljóð-
rænni skáldgáfu. Kvæði hans
eru ort á fögru máli og vandað
til rímsins. Mörg eru þau kveðj-
ur til ættlandsins og önnur
hugðarefni skáldsins. f kvæðinu
„Hugsað heim 17. júní“ segir
hann:
Hugurinn flýgur heim í dag,
heim til blárra fjalla.
Vorblítt syngja lækir lag,
land og sær með æskubrag.
Móðurraddir mildar soninn
kalla.
Ævistarf sitt vann Richard
Beck að mestu við ríkisháskól-
ann í Grand Forks í Norður-
Dakóta. Þar var hann prófessor
í málum og bókmenntum í 38
ár til sjötugsaldurs. Þaðan sendi
hann bókmenntarit sín til ætt-
landsins. Hér verða aðeins
nefndar tvær stærstu bækurn-
ar:
Ættland og erfðir kom út 1950
á Akureyri. Þetta var stór bók
270 blaðsíður í tveimur hlutum.
Fyrri hlutinn var um þjóðrækn-
is« og menningarmál en síðari
hlutinn um íslensk ljóðskáld.
1 átthagana andinn leitar var
Dr. Richard Beck.
afmælisrit sem kom út 1957 á
sextugsafmæli R. B. Sú bók
kom einnig út á Akureyri. —
Þetta er stór bók 278 bls. og
fjallar um íslenskrar bókmennt-
ir.
Þá var Richard Beck ritstjóri
að Almanaki Ólafs S. Þorgeirs-
sonar 1941—1954 og ritaði um
margskonar efni.
Yfir öllum ritverkum Rich-
ards hvílir blær skilnings og
góðvildar til höfunda þeirra
sem hann fjallar um hverju
sinni. Hann bendir á allt sem
vel er gert, en hitt sem lakara
er lætur hann liggja milli hluta.
Hann veit að allt sem lífsgildi
hefur er þess vert að ræða um
það. Hitt sem mistekist hefur
deyr af sjálfu sér. Einn af vin-
um Richards segir að í orða-
forða hans vanti öll lastyrði. Er
það vel að orði komist.
Margar pílagrímsfetðir hef-
ur Richard Beck komið hingað
heim til ættlandsins og flutt
ræður í mörgum félögum. —
Hann er kunnur ræðuskör-
ungur. Tveimur félagasamtök-
um er hann einkum tengdur:
Þjóðræknisfélögunum og Góð-
templarareglunni. Hann er
heiðursfélagi Þjóðræknisfélags-
ins á Akureyri og Stórstúku ís-
lands af I. O. G. T. Margskonar
heiður hefur honum fallið í
skaut. Hér verður það ekki tí-
undað, en hann er meðal ann-
ars heiðursdoktor við Háskóla
íslands.
Þá var Richard Beck ræðis-
maður íslands í Norður-Dakóta
og ágætur fulltrúi íslands vest-
an hafs um áratugi.
Richard Beck er þríkvæntur.
Nú er hann búsettur með Mar-
gréti, konu sinni, vestur á Vict-
oriueyju í Kanada. Þaðan lítur
hann yfir farinn veg á áttræðis-
afmælinu. Dagsverk hans er
mikið. Hann hefur verið vík-
ingur til starfa og aldrei af sér
dregið.
Við vinir hans hér heima
hugsum hlýtt til hans á af-
Kjarasamningar hafa staðið yf-
ir undanfarnar vikur og ekki
sýnilegt að þeim ljúki að sinni.
Kröfur Alþýðusambands ís-
lands frá því í haust og síðar
áréttaðar, miða að launajöfn-
uði og verulegri kauphækkun.
Atvinnurekendur báru fram til-
boð í launamálum, seint og um
síðir, sem var hafnað og síðan
annað, sem gekk skemmra til
mælisdaginn og sendum honum
bestu árnaðaróskir yfir hafið.
Ég ætla að taka mér það bessa-
leyfi að flytja honum innilegar
kveðjur frá Góðtemplararegl-
unni á Akureyri.
Að lokum vil ég óska Rich-
arði þess að bjartsýni hans og
glaðlyndi megi fylgja honum þó
að árum fjölgi.
Að síðustu óska ég þeim hjón-
um þess að þau megi sem lengst
njóta lífsins. Ég kveð þau með
virðingu og þökk. Lifið heil.
Eiríkur Sigurðsson.
móts við kröfur launþega en
hið fyrra. Sáttasemjari og sátta-
nefnd lögðu fram grundvöll að
samningaumræðum og ríkis-
stjórnin hefur lofað lagfæring-
um í skattamálum og Öðrum at-
riðum til að auka kaupmátt
launa.
Verkalýðshreyfingin greip til
Framhald á blaðsíðu 7.
HÖFUM TIL SÖLU
2ja herbergja Ibúðir við:
Skarðshlíð og Víðilund: .
3ja herbergja (búðir við:
Skarðshlið,
Þórunnarstræti og
Brekkugötu.
4ra herbergja íbúðir við:
Skarðshllð,
Löngumýri,
Hafnarstræti,
Hólabraut.
3ja herbergja raðhús við
Einilund og Seljahlíð.
Einbýlishús við:
Hafnarstræti,
Grænumýri,
Brekkugötu,
Þverholt,
Oddeyrargötu,
Stóragerði,
Aðalstræti og
I Glerárhverfi.
Einbýlishús á Neskaupsstað.
Fasteignasalan
Strandgötu 1,
(Landsbankahúsinu)
simi 21820.
Lögmenn:
Gunnar Sólnes hrl.
Jón Kr. Sólnes hdl.
TIL SÖLU
Einbýlishús við Háagerði I
Húsavlk. Skipti á einbýlis-
húsi á Syðri-brekkunni
möguleg.
Einbýlishús við Stafholt og
Stóragerði.
Þriggja herb. Ibúð m. bflskúr
við Vanabyggð.
Þriggja herb. Ibúðir við Ása-
byggð, Eiðsvallagötu, Ránar-
götu, Skarðshllð og víðar.
Hæð m. risi I tvíbýlishúsi við
Löngumýri.
4ra herb. íbúðarhæð við
Löngumýri.
4ra herbergja Ibúðir við
Skarðshlíð.
Skrifstofu og geymsluhúsnæði
við Hafnarstræti. Hentugt sem
iðnaðar- eða iðjuhúsnæði.
Teikningar fyrirliggjandi.
Tilboð óskast.
ÁSMUNDUR S.
JÓHANNSSON, hdl.,
Brekkugötu 1, Akureyri.
Sími 21721.
Smáauqlvsinöar
'Sala
Kerruvagn til sölu.
Uppl. I slma 21376.
Túnþökur til sölu.
Sker þökur á túnum.
Keyri heim ef óskað er.
Uppl. I sima 23947 og 19927.
Notað borðstofusett, skenkur
borð og sex stólar til sölu.
Sími 21258.
Til sölu Honda 250.
Uppl. I slma 63106 milli kl. 7
og 8 á kvöldin.
Hestur til sölu. 5—6 vetra,
taminn.
Þorlákur Aðalsteinsson,
Baldursheimi.
Til sölu sófasett og hljóm-
tæki.
Uppl. I síma 21764.
Til sölu nýlegur trillubátur
3,6 tonn.
Uppl. gefur Jón Eirlksson,
Bakkafirði.
Til sölu 2 skrifborð með
hillum (táningasett).
Uppl. I slma 23625.
Til sölu vefstóll (br. 1,10 m)
kr. 75.000. Rúmgóður skenk-
ur kr. 20.000. Þrískiptur fata-
skápur kr. 20.000. Þrísettur
sófi kr. 10.000.
Sími 11245.
Til sölu fjölærar garðjurtir
og sumarblóm.
Ágústa Jónsdóttir, Litla-
Árskógssandi, slmi 63140.
Til sölu Farfisa Transivox
orgel-harmonikka, kr. 300.000.
Tónabúðin.
Atvinna
jnnjslegtiHúsnædi
Afgreiðslustúlka óskast.
Umsóknir sendist I pósthólf
133 Akureyri.
Framtíðaratvinna!
Afgreiðslumaður óskast I
byggingarvöruverslunina
íbúðin hf.
Uppl. ekki gefnar I slma.
Ibúðin hf.
Tryggvabraut 22.
Eldri dansa klúbburinn!
Dansleikur I Alþýðuhúsinu
laugardaginn 11. júnl.
Húsið opnað kl. 21.
Miðasala við innganginn.
Nefndin.
Sala
Til sölu er vel með farinn
Skoda 1000 MB árg. 1967
ekinn 46 þús. km.
Uppl. I síma 23197.
Peugeot 504 árg. 1973 til
sölu. Skipti á ódýrari bíl
möguleg.
Ævar Karl Ólafsson,
slmi 21057.
Bifreið til sölu.
Plymouth Duster árg. 1974
ekinn 33.000 km.
slma 23635.
Uppl.
Til sölu er Skoda 110 árg. '74
vel með farinn. Ekinn 36 þús.
km.
Uppl. í slma 23322.
Til sölu Scaut árg. 1974 8 cyl.
sjálfskiptur. Ekinn 23 þús.
km. Skipti koma til greina á
nýlegum stadion.
Jóhannes Jóhannesson,
Héðinshöfða, Tjörnesi.
Barnagæsla
11—13 ára barnfóstra óskast
strax, fimm daga I viku kl..
5—7 og tvö kvöld I viku kl.
5—10.
Uppl. I slma 21329 kh 9—12
og eftir kl. 22.
Barngóð 13 ára barnfóstra
oskast til að gæta 3ja ára
drengs I sumar.
Uppl. I síma 19825.
Barnfóstra óskast til að gæta
tveggja barna þriggja og
fjögurra ára hluta úr degi.
Uppi. I Hafnarstræti 23,
efstu hæð.
Óskum að taka á leigu 3ja—
4ra herb. íbúð. Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er.
Uppl. I sima 11308.
2ja herb. íbúð óskast til leigu.
Uppl. I slma 11231 og 63117.
Ungt par óskar eftir her-
bergi með aðgang að eldhúsi
eða lítilli íbúð til leigu.
Uppl. á kvöldin I slma 23894.
Óska eftir herbergi til leigu
sem fyrst.
Uppl. I slma 21952.
Herbergi eða Iftil (búð óskast
til leigu strax.
Vinsamlegast hringið I slma
21653 eftir kl. 7 að kvöldi.
Raðhús til leigu.
Þeir sem áhuga hafa sendi
tilboð á afgr. blaðsins fyrir
16. júní merkt:
..Góð umgengni."
Herbergi óskast sem næst
miðbænum.
Uppl. gefur Stefán I síma
23812 eða 21717.
íbúð óskast til leigu sem fyrst.
Uppl. I síma 23281.
Til sölu 3ja herb. Ibúð við
Brekkugötu.
Uppl, I slma 22057 eftir kl.
20 næstu kvöld.
Ungt par óskar eftir 2ja til 3ja
herb. fbúð á leigu sem allra
fyrst.
Uppl. I síma 22948 eftir kl. 5
á daginn.
Skipti!
2—3ja herbergja Ibúð á Ak-
ureyri óskast I skiptum fyrir
3ja herbergja Ibúð á góðum
stað I Reykjavík.
Tilboð sendist á afgreiðslu
Dags merkt „Ibúðaskipti".
Kjarasamningar