Dagur - 06.07.1977, Blaðsíða 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
ÐAGTJR
LX. ARG. AKUREYRI, MDDVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1977
29. TÖLUBLAÐ
Lófót-línan
Reykjavíkurblöðin hafa
oftar en einu sinni birt 111
fréttir af Lófótlínu, sem á
að vera allt að fjórum sinn-
um fisknari en sú venju-
lega. Og Sjómannablaðið
Víkingur tekur þessar frétt-
ir upp og segir frá skip-
stjórum af iSuðurnesjum,
sem fóru utan til að sjá
þetta undratæki og læra á
það.
Ekki er laust við, að
trillukarlar við Eyjafjörð
brosi í kampinn þegar skrif-
að er um þessa undralínu,
því sjálfir hafa þeir notað
hana, jafnvel í áratugi, og tlji
ekki talið til stórtíðinda. —
Blaðið leitaði af þessu til-
efni umsagna sjómanna,
sem birtast á öðrum stað í
blaðinu.
Or lausu lofti
Eitt bæjarblaðanna segir
frá því að vegna sumarleyfa
í prentsmiðjum komi bæj-
arblöðin á Akureyri ekki
út í júlímánuði. Blað þetta
segir meira en það veit og
fer hér með fleipur, því
ekkert hefur verið um það
ákveðið, hvort Dagur fari
í sumarfrí, heldur að því
stefnt, að svo verði ekki.
Kvörtum ekki
Togarasjómaður einn á
Akureyri, sem blaðamaður
hitti í sumarleyfi hans við
veiðiá eina, sagði að á með-
an hásetahluturinn á Ak-
ureyrartogurunum væri
250 þúsund á mánuði,
þyrftu menn ekki að kvarta
og ekki að fara í verkfall.
Hásetahluturinn á togskip-
unum væri þó hærri og
væri ekkert nema gott um
það að segja, og loðnuver-
tíðin í vetur hefði gefið sjó-
mönnum góðan hlut. Ef sjó-
menn gætu ekki lifað af
þessum launum, hlyti að
vera þungt fyrir fæti hjá
mörgum þeim, sem í landi
störfuðu.
Sláttur hafinn
Um miðja síðustu viku var
sláttur hafinn á nokkrum
bæjum frammi í Eyjafirði,
sagði fréttaritarinn, Jónas
Halldórsson, blaðinu þá. —
Eflaust er víðar byrjað nú.
En sprettan hefur verið
hæg, einkum vegna mikilla
þurrka á meðan heitast var,
en eftir nokkra úrkomu,
sem þó var óvíða mikil,
kólnaði í veðri og hefur
sprottið hægt. Sláttur hefst
óvenju seint að þessu sinni,
en tún munu óskemmd af
kali og enn geta þau gefið
góða uppskeru. Flestir
bændur eru vel búnir tækj-
um og geta heyjað mjög
mikið á skömmum tíma,
þegar heyskapartíð er hag-
stæð.
Allir vinnufærir hér starfa
Þegar útibússtjóri KEA á Dalvík, Kristján Ólafsson, var
hér á ferðinni á mánudaginn og leit snöggvast inn, var
hann spurður frétta. Hann sagði þá meðal annars:
mótin, sem verið hafa á Dalvík
og líkað mjög vel. Gistiaðstaða
í skólanum er góð og auðvelt að
taka á móti 40 til gistingar. —
Aflabrögð hafa verið léleg
núna, vegna þess hve lítt hefur
gefið. Nýi togarinn Björgúlfur,
sem í vor var afhentur frá Slipp
stöðinni reynist í alla staði mjög
vel og hefur afli hans verið
eftir því. Skipstjóri er Sigurður
Haraldsson. Við erum mjög
ánægðir með þetta skip.
Við vinnum að auknum
ferðamannastraumi til Dalvík-
ur. Dalvík og Svarfaðardalur
hafa margt að bjóða ferðafólki.
Má þar nefna sjóstangaveiði-
Skóli á að rísa á Grenivík
Grenivík 4. júlí. Mannlíf er ró-
legt og gengur sinn vanagang.
Enginn er byrjaður á heyskap
hér í sveit og spretta er enn
heldur lítil.
Bátar hafa verið hér inni og
er verið að mála suma en aðrir
komnir á veiðar á ný. Trillu-
sjómenn hafa verið með hand-
færi og reytt sæmilega, einnig
þilfarsbátar, sem einnig eru
með færi. En óstillt hefur verið
undanfarið og sjórinn því ekki
mikið sóttur.
Leiðin í Fjörður er að verða
jeppafær. Yfir heiðina hefur
verið farið og þurfti þá að
moka snjó, en nú má leiðin telj-
ast fær og eins er fært út á
Flateyjardalinn. Eitt tófugreni
hefur fundist og var það á
Gæsadal. En meira verður leit-
að.
Framkvæmdir eru komnar
vel á stað. Byrjað var á fjórum
íbúðarhúsum ó Grenivík í vor.
En hér í þorpinu eru 225 manns.
Þá er holræsagerð í gangi hjó
hreppnum og við erum að berj-
ast við að fá leyfi ríkisvaldsins
til að fara af stað með skóla-
byggingu hér. En þar á saman
að fara skóli og aðstaða til
íþróttaiðkana og félagsstarfa. —
Við vonum að leyfið komi
fljótlega og verður Iþá strax
hafist handa um framkvæmd-
irnar. Sjálfir erum við tilbúnir.
Skólahúsið á að standa rétt of-
an við kirkjuna. P. A.
Kristján Ólafsson,
útibússtjóri.
Náttúrufegurð er mikil og
neðsti hluti, mýrlendið, verndað
og alfriðað land. Gott er að
stunda þarna fjallgöngur og
skemmtilegt að aka um nærliggj
andi leiðir, ekki síst um sjálfan
dalinn eða dalina tvo, Svarf-
aðardal og Skíðadal.
Slátturinn fer að hefjast í
dalnum og mun grasspretta að
þessu sinni lítið á eftir sveitum
innar í sýslunni.
Það má segja Vegagerðinni
til hróss, að vegirnir hafa batn-
að, t. d. milli Dalvíkur og Ak-
ureyrar. En mér þykir hart að
þurfa að horfa á nýja og vel
gerða vegi eyðilagða með því
að fletja þá út með vegheflum
eins og gert er.
Rúmir 1200 fbúar eru í Dal-
víkurkaupstað. Húsnæðisekla
er mikil því margir vilja flytja
til Dalvíkur, meðal annars af
Stór-Reykjavíkursvæðinu, en
Framhald á bls. 3.
Óvenju góður afli í ár
Blaðið hafði samband við Ármann Þórðarson, kaupfélags-
stjóra í Ólafsfirði nú um helgina og sagði hann þá
meðal annars:
Hér við ströndina hefur verið
allgóð silungsveiði í allt vor og
er enn. Líklega er silungurinn,
sem er falleg bleikja, einnig far-
in að ganga upp í Ólafsfjarðar-
vatn. Margir stunda veiðarnar
með stöng.
En hér í Ólafsfirði snýst flest
um fiskinn, bæði útgerð og fisk-
verkun. Togararnir Ólafur
bekkur og Sólberg afla sæmi-
lega vel og ennfremur Sigur-
Tíu laxar fyrsta daginn
Vopnafirði 2. júlí. Laxveiði hófst
i Selá í gær og veiddust þá 10
laxar og lofar sú veiði góðu. —
Veiðin í Hofsá var einnig góð
fyrstu dagana.
Spretta er í seinna lagi og
eitthvað ber á kali, en ekki
stórvægilegt. Sláttur hefst
seint í ár, en að öðru leyti geng-
ur allt vel, eins og smurð vél.
Á sveitabýlum er ætíð nóg að
starfa og í kauptúninu er einnig
mikil atvinna. Þar verður lögð
olíumöl í sumar og við flugvöll-
inn eru framkvæmdir hafnar.
Trillur og dekkbátar hafa afl-
að mjög þokkalega og þurfa
styttra að sækja en áður. —
Frystihúsið hefur því nóg. verk-
efni. Já, menn geta svo sem
verið ánægðir þegar vel veið-
ist bæði í söltu .vatni og ósöltu.
Þ. Þ.
Armann Þórðarson,
kaupfélagsstjóri.
Norræn menningarvika
verður í ágúst
Ablaðamannafundi á Hótel KEA á föstudaginn kynnti
Ólafur Rafn Jónsson dagskrá menningarviku, sem hald-
in verður í nokkrum norðlenskum bæjum í næsta mánuði,
en hann er formaður framkvæmdanefndarinnar.
í fréttatilkynningu segir meðal
annars:
Norræni Menningarsjóðurinn
hefir veitt bæjunum Akureyri,
Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og
Húsavík sameiginlega upphæð
til styrktar norrænni menning-
arviku sem áformað er að
halda á tímabilinu 13. til 20.
ágúst n. k.
Á Akureyri stendur menn-
ingarvikan þá daga, sem að
framan greinir, en skemur í
hinum kaupstöðunum. Upphæð
styrks Norræna Menningar-
sjóðsins er 1,6 milljónir íslensk-
ar og samanlagt á önnur eins
upphæð að koma frá kaupstöð-
unum, sem að þessu standa. Á
menningarvikunni eru Norður-
löndin rækilega kynnt og með
margvíslegu móti. — Erlendir
skemmitkraftar heimsækja
Norðurland og Norðlendingar
setja ekki ljós sitt undir mæli:
ker. En að sögn framkvæmda-
stjóra er að því stefnt að þetta
verði „létt menningarvika" og
um leið skemmtileg.
Framkvæmdastjórn menning-
arvikunnar mun síðar þegar dag
skrár eru fullmótaðar, auglýsa
þær rækilega þegar þar að kem-
ur. Vorvika Akureyrar, sem
haldin var í fyrra og átti að
vera árlegur viðburður, fellur
niður að þessu sinni, en menn-
ingarvikan á að fylla það skarð.
björg. Dekkbátarnir eru margir
og mismunandi að stærð, líklega
hálfur annar tugur og einn
fleiri opnir vélbátar. í vetur var
aflinn óvenjulega mikill. Og í
þessari viku landaði Sólberg
260 tonnum, eða fullfermi, —
og er það mesti afli þess
skips. Mikill hluti aflans var
grálúða. Hraðfrystihús Ólafs-
fjarðar og Hraðfrystihús Magn-
úsar Gamalíelssonar taka á
móti aflanum og vinna hann. —
Einn bátur er gerður út á djúp-
rækju og er það Múli.
í Ólafsfirði er vélsmiðja og
þrjú trésmíðaverkstæði. Vél-
smiðjan Nonni keypti vélar af
Stálhúsgögnum á Akureyri og
er framleiðsla stálhúsgagna haf-
in. Samsetning skipavéla er í
undirbúningi og hús fyrir þá
starfsemi í byggingu. Þetta er
nú uppistaðan í atvinnulífinu
og framleiðslu þeirra 1143
manna, sem hér búa.
Hér var nýlega prestskosn-
ing. Ulfar Guðmundsson var
kosinn lögmætri kosningu. Þá
höfum við fengið nýjan bæjar-
fógeta, sem er að flytja hingað.
Kemur hann í stað Sigurðar
Guðjónssonar, sem er látinn. —
Nýi bæjarfógetinn heitir Barði
Þórhallsson, sem- áður var í Bol-
ungavík.
Þá eru á döfinni samninga-
viðræður milli Kaupfélags Ól-
afsfjarðar og Kaupfélags Eyfirð-
inga um sameiningu félaganna
eða að KEA kaupi félag okkar.
En endanleg ákvörðun hefur
ekki verið tekin í málinu.
Mikinn hluta Aðalgötu er
verið að ljúka við að steypa,
eða þann kafla, sem fyrir var
tekinn nú. Unnið er af fullum
krafti við byggingu þá, sem
verður elliheimih, heilsugæslu-
og sjúkraskýli, sem valinn var
staður sunnan við bæinn aust-
an við vatnið. Verið er að
steypa neðri hæðina. Tréver
sér um framkv. samkv. útboði.