Dagur - 06.07.1977, Page 1

Dagur - 06.07.1977, Page 1
TRULOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREYRI ÐAGTJR LX. ARG. AKUREYRI, MDDVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1977 29. TÖLUBLAÐ Lófót-línan Reykjavíkurblöðin hafa oftar en einu sinni birt 111 fréttir af Lófótlínu, sem á að vera allt að fjórum sinn- um fisknari en sú venju- lega. Og Sjómannablaðið Víkingur tekur þessar frétt- ir upp og segir frá skip- stjórum af iSuðurnesjum, sem fóru utan til að sjá þetta undratæki og læra á það. Ekki er laust við, að trillukarlar við Eyjafjörð brosi í kampinn þegar skrif- að er um þessa undralínu, því sjálfir hafa þeir notað hana, jafnvel í áratugi, og tlji ekki talið til stórtíðinda. — Blaðið leitaði af þessu til- efni umsagna sjómanna, sem birtast á öðrum stað í blaðinu. Or lausu lofti Eitt bæjarblaðanna segir frá því að vegna sumarleyfa í prentsmiðjum komi bæj- arblöðin á Akureyri ekki út í júlímánuði. Blað þetta segir meira en það veit og fer hér með fleipur, því ekkert hefur verið um það ákveðið, hvort Dagur fari í sumarfrí, heldur að því stefnt, að svo verði ekki. Kvörtum ekki Togarasjómaður einn á Akureyri, sem blaðamaður hitti í sumarleyfi hans við veiðiá eina, sagði að á með- an hásetahluturinn á Ak- ureyrartogurunum væri 250 þúsund á mánuði, þyrftu menn ekki að kvarta og ekki að fara í verkfall. Hásetahluturinn á togskip- unum væri þó hærri og væri ekkert nema gott um það að segja, og loðnuver- tíðin í vetur hefði gefið sjó- mönnum góðan hlut. Ef sjó- menn gætu ekki lifað af þessum launum, hlyti að vera þungt fyrir fæti hjá mörgum þeim, sem í landi störfuðu. Sláttur hafinn Um miðja síðustu viku var sláttur hafinn á nokkrum bæjum frammi í Eyjafirði, sagði fréttaritarinn, Jónas Halldórsson, blaðinu þá. — Eflaust er víðar byrjað nú. En sprettan hefur verið hæg, einkum vegna mikilla þurrka á meðan heitast var, en eftir nokkra úrkomu, sem þó var óvíða mikil, kólnaði í veðri og hefur sprottið hægt. Sláttur hefst óvenju seint að þessu sinni, en tún munu óskemmd af kali og enn geta þau gefið góða uppskeru. Flestir bændur eru vel búnir tækj- um og geta heyjað mjög mikið á skömmum tíma, þegar heyskapartíð er hag- stæð. Allir vinnufærir hér starfa Þegar útibússtjóri KEA á Dalvík, Kristján Ólafsson, var hér á ferðinni á mánudaginn og leit snöggvast inn, var hann spurður frétta. Hann sagði þá meðal annars: mótin, sem verið hafa á Dalvík og líkað mjög vel. Gistiaðstaða í skólanum er góð og auðvelt að taka á móti 40 til gistingar. — Aflabrögð hafa verið léleg núna, vegna þess hve lítt hefur gefið. Nýi togarinn Björgúlfur, sem í vor var afhentur frá Slipp stöðinni reynist í alla staði mjög vel og hefur afli hans verið eftir því. Skipstjóri er Sigurður Haraldsson. Við erum mjög ánægðir með þetta skip. Við vinnum að auknum ferðamannastraumi til Dalvík- ur. Dalvík og Svarfaðardalur hafa margt að bjóða ferðafólki. Má þar nefna sjóstangaveiði- Skóli á að rísa á Grenivík Grenivík 4. júlí. Mannlíf er ró- legt og gengur sinn vanagang. Enginn er byrjaður á heyskap hér í sveit og spretta er enn heldur lítil. Bátar hafa verið hér inni og er verið að mála suma en aðrir komnir á veiðar á ný. Trillu- sjómenn hafa verið með hand- færi og reytt sæmilega, einnig þilfarsbátar, sem einnig eru með færi. En óstillt hefur verið undanfarið og sjórinn því ekki mikið sóttur. Leiðin í Fjörður er að verða jeppafær. Yfir heiðina hefur verið farið og þurfti þá að moka snjó, en nú má leiðin telj- ast fær og eins er fært út á Flateyjardalinn. Eitt tófugreni hefur fundist og var það á Gæsadal. En meira verður leit- að. Framkvæmdir eru komnar vel á stað. Byrjað var á fjórum íbúðarhúsum ó Grenivík í vor. En hér í þorpinu eru 225 manns. Þá er holræsagerð í gangi hjó hreppnum og við erum að berj- ast við að fá leyfi ríkisvaldsins til að fara af stað með skóla- byggingu hér. En þar á saman að fara skóli og aðstaða til íþróttaiðkana og félagsstarfa. — Við vonum að leyfið komi fljótlega og verður Iþá strax hafist handa um framkvæmd- irnar. Sjálfir erum við tilbúnir. Skólahúsið á að standa rétt of- an við kirkjuna. P. A. Kristján Ólafsson, útibússtjóri. Náttúrufegurð er mikil og neðsti hluti, mýrlendið, verndað og alfriðað land. Gott er að stunda þarna fjallgöngur og skemmtilegt að aka um nærliggj andi leiðir, ekki síst um sjálfan dalinn eða dalina tvo, Svarf- aðardal og Skíðadal. Slátturinn fer að hefjast í dalnum og mun grasspretta að þessu sinni lítið á eftir sveitum innar í sýslunni. Það má segja Vegagerðinni til hróss, að vegirnir hafa batn- að, t. d. milli Dalvíkur og Ak- ureyrar. En mér þykir hart að þurfa að horfa á nýja og vel gerða vegi eyðilagða með því að fletja þá út með vegheflum eins og gert er. Rúmir 1200 fbúar eru í Dal- víkurkaupstað. Húsnæðisekla er mikil því margir vilja flytja til Dalvíkur, meðal annars af Stór-Reykjavíkursvæðinu, en Framhald á bls. 3. Óvenju góður afli í ár Blaðið hafði samband við Ármann Þórðarson, kaupfélags- stjóra í Ólafsfirði nú um helgina og sagði hann þá meðal annars: Hér við ströndina hefur verið allgóð silungsveiði í allt vor og er enn. Líklega er silungurinn, sem er falleg bleikja, einnig far- in að ganga upp í Ólafsfjarðar- vatn. Margir stunda veiðarnar með stöng. En hér í Ólafsfirði snýst flest um fiskinn, bæði útgerð og fisk- verkun. Togararnir Ólafur bekkur og Sólberg afla sæmi- lega vel og ennfremur Sigur- Tíu laxar fyrsta daginn Vopnafirði 2. júlí. Laxveiði hófst i Selá í gær og veiddust þá 10 laxar og lofar sú veiði góðu. — Veiðin í Hofsá var einnig góð fyrstu dagana. Spretta er í seinna lagi og eitthvað ber á kali, en ekki stórvægilegt. Sláttur hefst seint í ár, en að öðru leyti geng- ur allt vel, eins og smurð vél. Á sveitabýlum er ætíð nóg að starfa og í kauptúninu er einnig mikil atvinna. Þar verður lögð olíumöl í sumar og við flugvöll- inn eru framkvæmdir hafnar. Trillur og dekkbátar hafa afl- að mjög þokkalega og þurfa styttra að sækja en áður. — Frystihúsið hefur því nóg. verk- efni. Já, menn geta svo sem verið ánægðir þegar vel veið- ist bæði í söltu .vatni og ósöltu. Þ. Þ. Armann Þórðarson, kaupfélagsstjóri. Norræn menningarvika verður í ágúst Ablaðamannafundi á Hótel KEA á föstudaginn kynnti Ólafur Rafn Jónsson dagskrá menningarviku, sem hald- in verður í nokkrum norðlenskum bæjum í næsta mánuði, en hann er formaður framkvæmdanefndarinnar. í fréttatilkynningu segir meðal annars: Norræni Menningarsjóðurinn hefir veitt bæjunum Akureyri, Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Húsavík sameiginlega upphæð til styrktar norrænni menning- arviku sem áformað er að halda á tímabilinu 13. til 20. ágúst n. k. Á Akureyri stendur menn- ingarvikan þá daga, sem að framan greinir, en skemur í hinum kaupstöðunum. Upphæð styrks Norræna Menningar- sjóðsins er 1,6 milljónir íslensk- ar og samanlagt á önnur eins upphæð að koma frá kaupstöð- unum, sem að þessu standa. Á menningarvikunni eru Norður- löndin rækilega kynnt og með margvíslegu móti. — Erlendir skemmitkraftar heimsækja Norðurland og Norðlendingar setja ekki ljós sitt undir mæli: ker. En að sögn framkvæmda- stjóra er að því stefnt að þetta verði „létt menningarvika" og um leið skemmtileg. Framkvæmdastjórn menning- arvikunnar mun síðar þegar dag skrár eru fullmótaðar, auglýsa þær rækilega þegar þar að kem- ur. Vorvika Akureyrar, sem haldin var í fyrra og átti að vera árlegur viðburður, fellur niður að þessu sinni, en menn- ingarvikan á að fylla það skarð. björg. Dekkbátarnir eru margir og mismunandi að stærð, líklega hálfur annar tugur og einn fleiri opnir vélbátar. í vetur var aflinn óvenjulega mikill. Og í þessari viku landaði Sólberg 260 tonnum, eða fullfermi, — og er það mesti afli þess skips. Mikill hluti aflans var grálúða. Hraðfrystihús Ólafs- fjarðar og Hraðfrystihús Magn- úsar Gamalíelssonar taka á móti aflanum og vinna hann. — Einn bátur er gerður út á djúp- rækju og er það Múli. í Ólafsfirði er vélsmiðja og þrjú trésmíðaverkstæði. Vél- smiðjan Nonni keypti vélar af Stálhúsgögnum á Akureyri og er framleiðsla stálhúsgagna haf- in. Samsetning skipavéla er í undirbúningi og hús fyrir þá starfsemi í byggingu. Þetta er nú uppistaðan í atvinnulífinu og framleiðslu þeirra 1143 manna, sem hér búa. Hér var nýlega prestskosn- ing. Ulfar Guðmundsson var kosinn lögmætri kosningu. Þá höfum við fengið nýjan bæjar- fógeta, sem er að flytja hingað. Kemur hann í stað Sigurðar Guðjónssonar, sem er látinn. — Nýi bæjarfógetinn heitir Barði Þórhallsson, sem- áður var í Bol- ungavík. Þá eru á döfinni samninga- viðræður milli Kaupfélags Ól- afsfjarðar og Kaupfélags Eyfirð- inga um sameiningu félaganna eða að KEA kaupi félag okkar. En endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin í málinu. Mikinn hluta Aðalgötu er verið að ljúka við að steypa, eða þann kafla, sem fyrir var tekinn nú. Unnið er af fullum krafti við byggingu þá, sem verður elliheimih, heilsugæslu- og sjúkraskýli, sem valinn var staður sunnan við bæinn aust- an við vatnið. Verið er að steypa neðri hæðina. Tréver sér um framkv. samkv. útboði.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.