Dagur - 06.07.1977, Side 8
DAGUR
Akureyri, miðvikudagur 6. júlí 1977
Góður hagnaður á
Kísiliðjunni
A ðalfundur Kísiliðjunnar var haldinn 22. júní á Húsavík.
1*-Á fundinum voru lagðir fram réikningar ársins 1976
ásamt skýrslu stjómar og framkvæmdastjóra. Á fundinum
kom fram að afkoma fyrirtækisins var góð á árinu og nam
reksturshagnaður eftir skatt um 22,7 millj. kr. en þá höfðu
verið afskrifaðar um 97,0 millj. króna.
Söluverðmæti framleiðslu Kísil-
iðjunnar hf. á erlendum og inn-
lendum markaði nam á árinu
samtals 865 millj. kr., en þegar
útflutningskostnaður hafði ver-
ið dreginn frá námu tekjur
verksmiðjunnar 595 millj. kr.
Framleiðsla ársins 1976 af
fullunnum kísilgúr varð 21.688
tonn eða 90,4% af framleiðslu-
áætlun sem stafaði af því að
draga varð úr framleiðslu fyrri
hluta árs vegna sölutregðu. Eru
horfur á því að sú sölutregða
sem gætt hefur á undanförnum
árum sé nú sem næst hjá liðin.
Á fundinum gerði formaður
stjórnar fyrirtækisins grein fyr-
ir þeim skemmdum sem orðið
höfðu á mannvirkjum Kísiliðj-
unnar í nýafstöðnum jarðhrær-
ingum og fyrir ráðstöfunum
sem stjórnin hefði ákveðið að
gera til að tryggja eins og við
yrði komið rekstur fyrirtækis-
ins í nánustu framtíð. Hefði í
því sambandi verið ákveðið að
gera við þær hráefnisþrær sem
fyrir skemmdum hefðu orðið,
en hins vegar hefði ekki verið
teknar neinar ákvarðanir sem
teljast mættu frambúðarlausn
þess vanda sem við blasti, enda
erfitt um vik eins og ástatt væri.
Á fundinum afhenti fulltrúi
Johns Manville Corp. í Banda-
ríkjunum Kísiliðjunni hf. 1.
verðlaun fyrir slysavarnir, en
Kísiliðjan náði bestum árangri
verksmiðja sem Johns Man-
ville á hluta í, utan U. S. A., í
slysavörnum á árinu 1976. Er
þetta annað árið í röð sem Kísil-
iðjan fær viðurkenningu af
þessu tagi.
Á árinu urðu framkvæmda-
stjóraskipti hjá fyrirtækinu. —
Tók Þorsteinn Ólafsson við-
skiptafræðingur við af Birni
Friðfinnssyni lögfræðingi sem
fjármálalegur framkvæmda-
stjóri. Stjórnarformaður Kísil-
iðjunnar hf. er Magnús Jónsson
bankastjóri, en tæknilegur
framkvæmdastjóri er Vésteinn
Guðmundsson.
(Fréttatilkynning)
Orlofskonur
þakka
Guðlaug Narfadóttir, hin aldna
heiðurskona, sem nú dvelur á
Akureyri, hefur beðið blaðið að
flytja kærar þakkir fyrir or-
ilofsdvölina í Hrafnagilsskóla,
sem nú er nýlokið. Þar var 61
kona, kvöldvökur voru á hverju
kvöldi og allur aðbúnaður hinn
ákjósanlegasti. Dvölin var ótrú-
lega hressandi, sagði Guðlaug,
og við, fjórar konur frá Akur-
eyri, sem þar dvöldum, biðjum
fyrir alúðarkveðjur, og þar á
Steinunn Finnbogadóttir, sem
öllu veitti forstöðu, sinn góða
þátt.
William Farrell, fulltrúi Johns-Manville Corp., afhendir forstjóruni
Kísiliðjunnar hf. verðlaun fyrir slysavamir. — Ljósm.st. Péturs.
Allt annað líf er hér síðan
aflinn glæddist í Öxarfirði
Olafur Friðriksson, kaupfélagsstjóri á Kópaskeri, sagði
blaðinu á föstudaginn eftirfarandi frétt: — Trillurnar
virðast alls staðar hafa veitt vel og bátamir hafa verið með
þetta 1—2 tonn eftir sólarhringinn og em sjómennimir
með færi. Talið er að hin mjög aukna fiskigengd sé að
þakka friðuninni og hér er allt annað líf en verið hefur.
Hlutafélagið Sæblik tekur fiskinn til verkunar og verkar í
salt. Kaupfélagið er þar stærsti hluthafinn.
í bændaferð héðan úr sýslu fór
44 manna hópur, þar af ein hjón
úr suðursýslunni og fararstjóri
var Jónas Jónsson, ráðunautur.
Þetta var 10 daga ferð til Nor-
egs en einnig var farið til Sví-
þjóðar og Klaupmannahafnar.
Meðal þeirra sem fóru var öll
hreppsnefnd Presthólahrepps og
sögðu gárungarnir að þeir hafi
í ferðinni óttast stjórnarbylt-
ingu heima. Af henni varð þó
ekki og var ótti þeirra því
ástæðulaus. Hreppsnefndin er
nú, eftir ferðina, talin mun
skárri en áður! Ferðafólkið lét
einstaklega vel af ferðinni og
skemmti sér hið besta, og lauk
ferðinni 28. júní.
Vígsla Kiwanisklúbbsins hér
er framundan, en sá klúbbur
var stofnaður á síðasta vetri og
fáum við heimsóknir annarra
klúbba af því tilefni.
Á allmörgum býlum sveit-
anna er verið að byggja útihús,
svo sem í Ærlæk, Núpi, Klifs-
haga, Garði og þúsund kinda
fjárhús á Daðastöðum. Hér á
Kópaskeri er verið að steypa
upp tvö íbúðarhús og unnið er
við kjötfrystihúsið.
Sennilega hefst sláttur ekki
fyrr en um miðjan júlí.
Ólafur Friðriksson,
kaupfélagsstjóri.
Kalt hefur verið síðustu dag-
ana og spretta því hæg. En í
sveitinni lítur þó betur út en
oft áður og spretta er á góðri
leið. Blaðið þakkar upplýsing-
arnar.
• Margt til
lista lagt.
Eyvindur Erlendsson, sem
fyrrum var leikhússtjóri á
Akureyri, gat sér þar gott
orð fyrir dugnað og fjöl-
þætta hæfileika. Hann var
óður bóndi, en fleira hefur
hann borið við, því hann
hefur meðal annars teiknað
og málað um fjölda ára, en
lítið Iótið á því bera. En þar
kom, að leikhúsmaðurinn
opnaði málverkasýningu í
safnahúsinu á Selfossi og
sýndi þar 65 málverk, gerð
ó ýmsum tímum ævinnar og
máluð með olíulitum, vatns-
litum og pasteL
• Elliheimili.
I Ólafsfirði er unnið við
byggingu heilsugæslustöðvar
og elliheimilis og ó að verja
til þeirra framkvæmda 30
milljónum þetta órið. Tré-
ver hf. sér um verkið. Þá
er verið að steypa götur í
bænum, einn kflómetra, og
leiguíbúðir eru í smíðum. —
Atvinna hefur verið góð í
Ólafsfirði í vor og það sem
af er sumri.
• Ekki lengur
heilagar kýr.
Sumir telja, að prestar og
læknar hafi lengi verið eins
konar heilagar kýr hér á
Iandi, sem ekki hafi mátt
hrófla við. Ekki gildir þetta
vist lengur um prestana.
En margir þeirra vinni
ómetanleg störf, bæði guði
og mönnum þóknanleg. —
Læknar héldu lengur sæti
sínu og gera raunar ennþá.
Þó er nú svo komið, að upp
hefur komist um meint mis-
ferli í peningamálum í
læknastétt, sem ekki hefur
verið talið skynsamlegt að
þagga niður. Dæmi um það
eru reikningar læknis eins
fyrir vestan, sem gerði, sam-
kvæmt fregnum, nokkuð
grófa reikninga, sem nú eru
í rannsókn. Ekki viljum við
án lækna vera og öll virðum
við góða og samviskusama
lækna. En væntanlega er sá
tími nú upp runninn, að
þeim leyfist ekki hvað sem
er á viðskiptasviðinu, og er
mál til þess komið.
• Ratleikur.
Sagt hefur verið frá „ratleik“
í Reykjavík, þar sem kepp-
endur keppa um að rata
fyrirfram ákveðna leið eftir
korti og áttavita. Jafnframt
því að leikurinn er skemmti-
legur útivistarleikur, er
hann þroskandi, og eflaust
finnst mörgum hann bein-
línis spennandi. Ætla mætti,
að það væri ómaksins vert
fyrir fólk á ýmsum stöðum
á landinu, þar sem menn
sitja með sveitta skallana við
að finna upp tómstundagam-
an, að setja upp þroskaleiki
af þessu tagi, þar sem bæði
þarf að nota skynsemi og
einföld hjálpartæki.
• Kornyst leiðar
sinnar.
Skinnbáturinn Brendan, sem
svo oft hefur verið nefndur
í fréttum, komst leiðar sinn-
ar frá Reykjavík til Ný-
fundnalands á 50 dögum og
hafði þá farið um tvö þús,-
ud kílómetra leið, þar sem
hann fór ekki beinustu leið,
en hrakti verulega að leið-
um eftir vindum og straum-
um. Báturinn er írskur og
kom frá heimalandi sínu til
íslands í fyrrasumar. Fjög-
urra manna áhöfn var á
bátnum, sem ekki sýndist
merkilegur farkostur til út-
hafssiglinga. En með þessari
för þykir sannað, að heilag-
ur Brendan af irlandi hafi
getað siglt þessa sömu leið
á sjöttu öld, eins og fornar
sagnir herma. Leiðangurinn
var farinn til að sanna þetta.
• Megn óánægja.
Hreppsnefnd Grýtubakka-
hrepps samþykkti svohljóð-
andi tillögu á fundi sínum
14. júní 1977: „Hreppsnefnd
Grýtubakkahrepps lýsir
megnustu óánægju með
vegasambandið til Akureyr-
ar, telur að vegurinn hafi
ekki lengi verið svo slæmur
og brýn nauðsyn sé á skjót-
um úrbótum“.
Aætlunarflug til Parísar
Laugardaginn 2. júlí hófst reglu-
bundið áætlunarflug milli ís-
lands og Frakklands, þ. e. a. s.
milli Keflavíkur og Orly-flug-
vallar við París.
Stjórn Flugleiða hf. ákvað
fyrir alllöngu síðan að flug
milli íslands og Frakklands
skyldi, að fengnum nauðsynleg-
um leyfum, tekið upp og í fram-
haldi af því var sótt um flug-
leyfi fyrir Flugfélag íslands
vegna flugs milli ofangreindra
staða. Leyfið fékkst og í sumar
munu Boeing-727 þotur félags-
ins fljúga þessa leið einu sinni
í viku, þ. e. a. s. síðdegis á laug-
ardögum, brottför kl. 15.00. —
Komutími til Keflhvíkurflug-
vallar verður kl. 22.45. Áætlað
er að flugið standi í tvo mán-
uði en næsta vor verði þráður-
inn tekinn upp aftur.
Bæði íslensku flugfélögin
höfðu áður og um árabil, unnið
að sölustarfsemi á franskri
grund og var því Flugleiðum
auðveldara að taka þessa
ákvörðun og hefja áætlunar-
flugið.
(Úr fréttatilk. Flugleiða hf.)