Dagur - 06.07.1977, Blaðsíða 8

Dagur - 06.07.1977, Blaðsíða 8
DAGUR Akureyri, miðvikudagur 6. júlí 1977 Góður hagnaður á Kísiliðjunni A ðalfundur Kísiliðjunnar var haldinn 22. júní á Húsavík. 1*-Á fundinum voru lagðir fram réikningar ársins 1976 ásamt skýrslu stjómar og framkvæmdastjóra. Á fundinum kom fram að afkoma fyrirtækisins var góð á árinu og nam reksturshagnaður eftir skatt um 22,7 millj. kr. en þá höfðu verið afskrifaðar um 97,0 millj. króna. Söluverðmæti framleiðslu Kísil- iðjunnar hf. á erlendum og inn- lendum markaði nam á árinu samtals 865 millj. kr., en þegar útflutningskostnaður hafði ver- ið dreginn frá námu tekjur verksmiðjunnar 595 millj. kr. Framleiðsla ársins 1976 af fullunnum kísilgúr varð 21.688 tonn eða 90,4% af framleiðslu- áætlun sem stafaði af því að draga varð úr framleiðslu fyrri hluta árs vegna sölutregðu. Eru horfur á því að sú sölutregða sem gætt hefur á undanförnum árum sé nú sem næst hjá liðin. Á fundinum gerði formaður stjórnar fyrirtækisins grein fyr- ir þeim skemmdum sem orðið höfðu á mannvirkjum Kísiliðj- unnar í nýafstöðnum jarðhrær- ingum og fyrir ráðstöfunum sem stjórnin hefði ákveðið að gera til að tryggja eins og við yrði komið rekstur fyrirtækis- ins í nánustu framtíð. Hefði í því sambandi verið ákveðið að gera við þær hráefnisþrær sem fyrir skemmdum hefðu orðið, en hins vegar hefði ekki verið teknar neinar ákvarðanir sem teljast mættu frambúðarlausn þess vanda sem við blasti, enda erfitt um vik eins og ástatt væri. Á fundinum afhenti fulltrúi Johns Manville Corp. í Banda- ríkjunum Kísiliðjunni hf. 1. verðlaun fyrir slysavarnir, en Kísiliðjan náði bestum árangri verksmiðja sem Johns Man- ville á hluta í, utan U. S. A., í slysavörnum á árinu 1976. Er þetta annað árið í röð sem Kísil- iðjan fær viðurkenningu af þessu tagi. Á árinu urðu framkvæmda- stjóraskipti hjá fyrirtækinu. — Tók Þorsteinn Ólafsson við- skiptafræðingur við af Birni Friðfinnssyni lögfræðingi sem fjármálalegur framkvæmda- stjóri. Stjórnarformaður Kísil- iðjunnar hf. er Magnús Jónsson bankastjóri, en tæknilegur framkvæmdastjóri er Vésteinn Guðmundsson. (Fréttatilkynning) Orlofskonur þakka Guðlaug Narfadóttir, hin aldna heiðurskona, sem nú dvelur á Akureyri, hefur beðið blaðið að flytja kærar þakkir fyrir or- ilofsdvölina í Hrafnagilsskóla, sem nú er nýlokið. Þar var 61 kona, kvöldvökur voru á hverju kvöldi og allur aðbúnaður hinn ákjósanlegasti. Dvölin var ótrú- lega hressandi, sagði Guðlaug, og við, fjórar konur frá Akur- eyri, sem þar dvöldum, biðjum fyrir alúðarkveðjur, og þar á Steinunn Finnbogadóttir, sem öllu veitti forstöðu, sinn góða þátt. William Farrell, fulltrúi Johns-Manville Corp., afhendir forstjóruni Kísiliðjunnar hf. verðlaun fyrir slysavamir. — Ljósm.st. Péturs. Allt annað líf er hér síðan aflinn glæddist í Öxarfirði Olafur Friðriksson, kaupfélagsstjóri á Kópaskeri, sagði blaðinu á föstudaginn eftirfarandi frétt: — Trillurnar virðast alls staðar hafa veitt vel og bátamir hafa verið með þetta 1—2 tonn eftir sólarhringinn og em sjómennimir með færi. Talið er að hin mjög aukna fiskigengd sé að þakka friðuninni og hér er allt annað líf en verið hefur. Hlutafélagið Sæblik tekur fiskinn til verkunar og verkar í salt. Kaupfélagið er þar stærsti hluthafinn. í bændaferð héðan úr sýslu fór 44 manna hópur, þar af ein hjón úr suðursýslunni og fararstjóri var Jónas Jónsson, ráðunautur. Þetta var 10 daga ferð til Nor- egs en einnig var farið til Sví- þjóðar og Klaupmannahafnar. Meðal þeirra sem fóru var öll hreppsnefnd Presthólahrepps og sögðu gárungarnir að þeir hafi í ferðinni óttast stjórnarbylt- ingu heima. Af henni varð þó ekki og var ótti þeirra því ástæðulaus. Hreppsnefndin er nú, eftir ferðina, talin mun skárri en áður! Ferðafólkið lét einstaklega vel af ferðinni og skemmti sér hið besta, og lauk ferðinni 28. júní. Vígsla Kiwanisklúbbsins hér er framundan, en sá klúbbur var stofnaður á síðasta vetri og fáum við heimsóknir annarra klúbba af því tilefni. Á allmörgum býlum sveit- anna er verið að byggja útihús, svo sem í Ærlæk, Núpi, Klifs- haga, Garði og þúsund kinda fjárhús á Daðastöðum. Hér á Kópaskeri er verið að steypa upp tvö íbúðarhús og unnið er við kjötfrystihúsið. Sennilega hefst sláttur ekki fyrr en um miðjan júlí. Ólafur Friðriksson, kaupfélagsstjóri. Kalt hefur verið síðustu dag- ana og spretta því hæg. En í sveitinni lítur þó betur út en oft áður og spretta er á góðri leið. Blaðið þakkar upplýsing- arnar. • Margt til lista lagt. Eyvindur Erlendsson, sem fyrrum var leikhússtjóri á Akureyri, gat sér þar gott orð fyrir dugnað og fjöl- þætta hæfileika. Hann var óður bóndi, en fleira hefur hann borið við, því hann hefur meðal annars teiknað og málað um fjölda ára, en lítið Iótið á því bera. En þar kom, að leikhúsmaðurinn opnaði málverkasýningu í safnahúsinu á Selfossi og sýndi þar 65 málverk, gerð ó ýmsum tímum ævinnar og máluð með olíulitum, vatns- litum og pasteL • Elliheimili. I Ólafsfirði er unnið við byggingu heilsugæslustöðvar og elliheimilis og ó að verja til þeirra framkvæmda 30 milljónum þetta órið. Tré- ver hf. sér um verkið. Þá er verið að steypa götur í bænum, einn kflómetra, og leiguíbúðir eru í smíðum. — Atvinna hefur verið góð í Ólafsfirði í vor og það sem af er sumri. • Ekki lengur heilagar kýr. Sumir telja, að prestar og læknar hafi lengi verið eins konar heilagar kýr hér á Iandi, sem ekki hafi mátt hrófla við. Ekki gildir þetta vist lengur um prestana. En margir þeirra vinni ómetanleg störf, bæði guði og mönnum þóknanleg. — Læknar héldu lengur sæti sínu og gera raunar ennþá. Þó er nú svo komið, að upp hefur komist um meint mis- ferli í peningamálum í læknastétt, sem ekki hefur verið talið skynsamlegt að þagga niður. Dæmi um það eru reikningar læknis eins fyrir vestan, sem gerði, sam- kvæmt fregnum, nokkuð grófa reikninga, sem nú eru í rannsókn. Ekki viljum við án lækna vera og öll virðum við góða og samviskusama lækna. En væntanlega er sá tími nú upp runninn, að þeim leyfist ekki hvað sem er á viðskiptasviðinu, og er mál til þess komið. • Ratleikur. Sagt hefur verið frá „ratleik“ í Reykjavík, þar sem kepp- endur keppa um að rata fyrirfram ákveðna leið eftir korti og áttavita. Jafnframt því að leikurinn er skemmti- legur útivistarleikur, er hann þroskandi, og eflaust finnst mörgum hann bein- línis spennandi. Ætla mætti, að það væri ómaksins vert fyrir fólk á ýmsum stöðum á landinu, þar sem menn sitja með sveitta skallana við að finna upp tómstundagam- an, að setja upp þroskaleiki af þessu tagi, þar sem bæði þarf að nota skynsemi og einföld hjálpartæki. • Kornyst leiðar sinnar. Skinnbáturinn Brendan, sem svo oft hefur verið nefndur í fréttum, komst leiðar sinn- ar frá Reykjavík til Ný- fundnalands á 50 dögum og hafði þá farið um tvö þús,- ud kílómetra leið, þar sem hann fór ekki beinustu leið, en hrakti verulega að leið- um eftir vindum og straum- um. Báturinn er írskur og kom frá heimalandi sínu til íslands í fyrrasumar. Fjög- urra manna áhöfn var á bátnum, sem ekki sýndist merkilegur farkostur til út- hafssiglinga. En með þessari för þykir sannað, að heilag- ur Brendan af irlandi hafi getað siglt þessa sömu leið á sjöttu öld, eins og fornar sagnir herma. Leiðangurinn var farinn til að sanna þetta. • Megn óánægja. Hreppsnefnd Grýtubakka- hrepps samþykkti svohljóð- andi tillögu á fundi sínum 14. júní 1977: „Hreppsnefnd Grýtubakkahrepps lýsir megnustu óánægju með vegasambandið til Akureyr- ar, telur að vegurinn hafi ekki lengi verið svo slæmur og brýn nauðsyn sé á skjót- um úrbótum“. Aætlunarflug til Parísar Laugardaginn 2. júlí hófst reglu- bundið áætlunarflug milli ís- lands og Frakklands, þ. e. a. s. milli Keflavíkur og Orly-flug- vallar við París. Stjórn Flugleiða hf. ákvað fyrir alllöngu síðan að flug milli íslands og Frakklands skyldi, að fengnum nauðsynleg- um leyfum, tekið upp og í fram- haldi af því var sótt um flug- leyfi fyrir Flugfélag íslands vegna flugs milli ofangreindra staða. Leyfið fékkst og í sumar munu Boeing-727 þotur félags- ins fljúga þessa leið einu sinni í viku, þ. e. a. s. síðdegis á laug- ardögum, brottför kl. 15.00. — Komutími til Keflhvíkurflug- vallar verður kl. 22.45. Áætlað er að flugið standi í tvo mán- uði en næsta vor verði þráður- inn tekinn upp aftur. Bæði íslensku flugfélögin höfðu áður og um árabil, unnið að sölustarfsemi á franskri grund og var því Flugleiðum auðveldara að taka þessa ákvörðun og hefja áætlunar- flugið. (Úr fréttatilk. Flugleiða hf.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.