Dagur - 31.08.1977, Blaðsíða 1

Dagur - 31.08.1977, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGUR 31. AGÚST 1977 37. TÖLUBLAÐ Slysadagur Föstudagurinn síðasti var sannkallaður slysadagur og voru átta fluttir í sjúkra- hús á Akureyri eftir um- ferðarslys þann daginn. Á sunnudagsmorgunn varð svo enn einn árekst- urinn, er tveir bilar rákust saman á mótum Byggða- vegar og Þingvallastrætis. Tveir voru fluttir á sjúkra- hús, en meiðsli óveruleg. í gærmorgun var lögregl unni tilkynnt um innbrot í Krókeyrarstöðina, en þar hafði verið farið inn um nóttina og peningum stohð. Ekki var vitað í gær hversu mikið var tekið. Hafi ein- hver orðið mannaferða var við Krókeyrarstöðina í fyrrinótt er hann beðinn að '. .' snúa sér til lögreglunnar. í fyrrinótt var bíl stolið frá Skipagötu 2, drapplitum Opel með dökkum toppi, A 1715. Bíllinn fannst í gær morgun á Hörgárbraut. Það eru tilmæli lögreglunn E.;:'.;' ar að þeir sem kynnu að hafa orðið bílsins varir eftir kí. 23 á mánudagskvöld lati vita. Seðlabankalán veröi 70°/o af útflutnings- verðmæti Framkvæmdastj órar frysti- húsa á Norðurlandi vestra héldu nýlega fund á Sauð- árkróki og ræddu vanda sinna frystihúsa. Á fundinn mættu fulltrúar frystihúsa frá Skagaströnd, Sauðár- króki, Hofsósi og Siglufirði. Á fundinum var eftirfar- andi samþykkt gerð: „1. Fundurinn telur, að útflutningsverð sjávaraf- urða þurfi að hækka veru- lega í íslenskum krónum, þar sem hráefni, vinnu- laun, vextir og annar kostn- aður hafa hækkað umfram greiðsluþol fyrirtækjanna og er nú til mikilla muna óhagstæðara hlutfall miðað við framleiðsluverðmæti, en var fyrir 1. júlí sl. 2. Með yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar, sem sjávar- útvegsráðherra gaf út 6. júlí sl. er gert ráð fyrir, að núverandi framleiðslulán- um sé ráðstafað að fullu til fiskseljanda við hverja verðsetningu í viðskipta- banka. Verða því útlánin á afurðirnar óhjákvæmilega að hækka sem svarar greiðslu vinnulauna, vaxta og annars kostnaðar. Fund- urinn leggur því til að Seðlabankalán verði hækk- uð í a. m. k. 70% af út- flutningsverðmæti og hlut- fall viðskiptabanka haldist óbreytt. 3. Stöðvun fiskvinnslu- fyrirtækjanna er óumflýj- anleg, verði fyrrgreind at- riði ekki tekin til úrlausn- ar hið bráðasta.“ Ennþá vantar 21 kennara í störf víða á Norðurlandi Skortur á kennurum til starfa við grunnskólana er óvenju mikill á þessu hausti og horfir til vandræða í sumum byggðar- lögum af þeim sökum. Á Norð- urlandi er ástandið í þessum efnum þó betra en víða annars staðar, þegar á heildina er litið, en samkvæmt upplýsingum fræðsluskrifstofanna vantar nú í ágústlok tuttugu og einn kenn ara til starfa. Á vestanverðu Norðurlandi er ástandið verra, þar vantar ellefu kennara í fimm skóla, þar af vantar skóla- stóra við skóla í Skagafirði. Sveinn Kjartansson. fræðslu- stjóri á Norðurlandi vestra sagði í samtali við Dag, að aug- lýstar hefðu verið 48 lausar kennarastöður í sumar og enn vantaði ellefu kennara, sem væri óvenj-u mikið. Sagði hann, að stöður þessar hefðu verið margauglýstar án árangurs. Valgarður Haraldsson fræðslustjóri á Norðurlandi eystra sagði í samtali við Dag, að tíu kenara vantaði og væri það svipað og síðustu ár um Grundvöllur atvinnu- rekstrar tekinn til vin samlegrar athugunar „í tilefni af erindi hreppsnefnd- ar Amarneshrepps varðandi •hugsanleg kaup á eignum Lands banka íslands á Hjalteyri lýsir stjóm KEA því yfir, að hún telur eðlilegt og æskilegt að Arnarneshreppur eignist lóðir og mannvirki á þessum stað, og mun taka til vinsamlegrar at- hugunar, í samvinnu við sveitar félagið, hvort grundvöllur finnst fyrir einhvern atvinnu- rekstur á þessum stað, ef af kaupunum verður.“ Þannig hljóðar samþykkt stjórnar KEA frá 25. ágúst sl. Valur Arnþórsson kaupfélags stjóri sagði í samtali við Dag, að þrennt kæmi til greina, ef hrepp urinn keypti eignirnar og KEA hæfi þar einhvern atvinnurekst ur. í fyrsta lagi lítið verzlunar- útibú, í öðru lagi saltfiskverkun og í þriðja lagi léttur iðnaður í einhverri mynd. Landsbankinn hefur þegar fengið nokkur tilboð í eignir sínar á Hjalteyri en skilafrestur á tilboðum rennur út á mið- vikudagskvöld. Þegar Dagur hafði samband við Ingimar Brynjólfsson hreppstjóra í Arn arneshreppi á mánudagskvöld hafði hreppurinn enn ekki geng ið frá tilboði sínu. þetta leyti. Kvaðst hann telja mjög líklegt að kennarar fengj- ust í þessar stöður áður en skól- ar tækju til starfa. 80 lausar kennarastöður voru auglýstar á Norðurlandi eystra í sumar. Akureyrarfyrirtækið Plastein- angrun hf. sem er að mestu eign Kaupfélags Eyfirðinga og Iðn- Valgarður sagði, að 30% kenn ara á síðasta skólaári hefðu ver- ið réttindalausir og fjöldi þeirra hefði aukist ár frá ári. Hann nefndi þó, að á Akureyri hefðu fleiri kennarar með réttindi aðardeildar SÍS, hefur nú hafið framleiðslu netahringja og troll kúlna úr plasti. Fyrirtækið hef- sótt um í haust en oft áður. Á Norðurlandi eystra vantar flesta keimara til starfa í Norður- Þingeyjarsýslu, að sögn Val- garðs, en ástandið er einnig slæmt á Ólafsfirði. ur keypt bæði vélbúnað og tækniþekkingu frá norska stór- fyrirtækinu Panco og yfirtekið framleiðslu þess fyrirtækis á umræddum vörum. Jón Sigurðarson fram- kvæmdastjóri Plasteinangrunar sagði í samtali við Dag, að norska fyrirtækið hefði einkum selt þessar vörur sínar á heima- markaði og á íslandi, en fram- leiðsla þessi hefði aðeins verið lítið brot af veltu þessa stór- fyrirtækis, eða rétt um 4%. Jón sagði, að þegar hefði stór pöntun borist frá Noregi, og einnig hefðu fyrirtækinu borist fyrirspurnir frá Hong Kong og Ástralíu. Sagði Jón, að Plast- einangrun byggði á sölustarfi Panco að verulegu leyti, en jafn framt væri markaða leitað víð- ar s. s. í Færeyjum og Dan- mörku. Samkvæmt samningi fyrir- tækjanna tveggja mun Panco hafa eftirlit með framleiðslunni og aðstoða við lausn þeirra tæknilegu vandamála, sem við verður að glíma. Við þessa nýju framleieðslu mun starfsmönnum Plastein- angrunar fjölga um helming, úr sjö í fjórtán. Enginn fæst til að sigla norska teinæringnum — Það er vilji allra, þótt ekki hafi orðið úr framkvæmdum ennþá, að varðveita norska teinæringinn vel, sagði Krist- ján Ásgeirsson formaður Sam- vinnufélags útgerðarmanna og sjómanna á Húsavík, er Dagur ræddi við hann um gjöf Norð- manna í tilefni ellefu alda byggðar á íslandi, teinæring- inn, annan af tveimur, sem Norðmenn gáfu til íslands, sumarið 1974. Báturinn hefur í sumar leg- ið ónotaður uppi á Íandi, en að sögn Kristjáns hafa engar skemmdir verið unnar á hon- um. — Okkur finnst eiginlega of snemmt að gera bátinn að safngrip, sagði Kristján, og við vonuðumst eftir því, að ein- hverjir hefðu áhuga á að sigla honum, en sú von hefur alveg brugðist í sumar. Kristján kvað þó ekki loku fyrir það skotið, að báturinn ætti eftir að sýna sig á höfninni, en sagði, að ella yrði að byggja yfir hann skýli og hafa hann þar allt árið um kring. Frá því báturinn kom til Húsavíkur hefur hann verið á floti yfir sumarið, bundinn í ankeri úti á höfninni, en í sumar hefur hann aftur á móti verið í hirðuleysi uppi á landi. Reiði og seglbúnaður hefur þó allur verið í geymslu. Eigendur bátsins eru Húsa- víkurbær, Samvinnufélag út- gerðarmanna og sjómanna, — og Félag veiðiréttareigenda í Laxá. Erlendir ferðamenn sem aðrir er gista Akureyri, sjá mörg myndaefnln í bænnm. Þessi franska stúlka, sem hér var á ferð fyrir nokkru, lét sig ekki muna um það að príla upp á tuhnur við höfnina til þeses að ná góðri mynd. (Ljósmynd: Gsal). Plasteinangrun hf. með nýja framleiöslu: Vélbúnaður og tækni- þekking keypt frá Noregi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.