Dagur - 14.10.1977, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, föstudagur 14. október 1977.
Skólamálin á Sauðárkróki
Nýtt heimavistarhúsnæði tekið í notkun
Séð yfir hluta af Sauðárkróki.
(Ljósm. E. D.).
Sauðárkróki 12. október. Skól-
arnir á Sauðárkróki tóku til
starfa fyrir mánaðamótin. —
Kennsla hófst í barnaskólan-
um 20. september. í skólanum
eru 270 nemendur í 13 bekkj-
ardeildum. Skólastjóri er
Björn Björnsson. Skólahús-
næðið er nú orðið nokkuð
þröngt og ófullkomið og áhugi
er á bví að bæta þar um, enda
var húsið byggt 1947.
Geta má þess, að í barna-
skólahúsinu er pini fþrótta-
salurinn í bænum og er hann
bæði fyrir barnaskólann og
grunnskólann og þar fer öll
íþróttastarfsemi innanhúss
fram. fþróttasalur þessi er
notaður frá því klukkan 8 á
morgnana til klukkan tólf á
kvöldin. Áhugi er á byggingu
nýs íþróttahúss, sem að líkum
lætur.
í Iðnskólanum eru 30 nem-
endur, fjórði bekkur eftir
gömlu reglunum og annar
áfangi eftir nýju reglunum. —
Prófi fjórða bekkjar lýkur
fyrir jólin, en í öðrum áfanga
í janúarlok. Þá tekur við
fyrsti áfangi samkvæmt nýju
reglunum. Skólastjóri er Jó-
hann Guðjónsson.
Gagnfræðaskólinn á Sauð-
árkróki var settur föstudaginn
30. september. f ræðu skóla-
stjórans, Friðgeirs Margeirs-
sonar, kom það m. a. fram, að
nú eru þáttaskil í starfi skól-
ans. Á síðastliðnu vori voru í
síðasta skipti útskrifaðir gagn-
fræðingar frá skólanum, en
þá hafði skólinn útskrifað
gagnfræðinga í 10 ár.
Nú taka hinsvegar til starfa
í skólanum framhaldsdeildir í
þrem brautum, bóknámsbraut,
uppeldisbraut og verslunar-
braut. Kennarar við skólann
eru 18, en nemendur rúmlega
140. Þar af rúmlega 20 í fram-
haldsdeildum. Við hlið þessara
námsbrauta skólans, starfar
Framhald á blaðsíðu 2
því í grjótgarða við höfnina
og er þeim áfanga, sem vinna
átti í sumar, lokið.
Unnið er að vatnsveitu fyrir
Ólafsfjarðarkaupstað. Vatnið
verður tekið í Burstarbrekku-
dal, sem er fjórir kílómetrar frá
bænum. Þar er mjög gott vatn.
Mun það kosta um 15 milljónir
króna, að koma vatninu í geym
ana við bæinn, en þaðan rennur
það í dreifikerfi bæjarins. Við
erum búnir að kaupa lögnina
og hún er komin á staðinn, og
verið er að jafna undir hana.
Unnið verður við þetta verk-
efni á meðan veður leyfa.
Við vinnum ennþá í gatna-
gerð og er verið að skipta um
jarðveg í götum, sem kemur sér
vel fyrir framtíðina. Vegagerð-
in vinnur við að fullgera veg
fram úr bænum að austan og
er fyrsti hluti hans frágenginn,
en ekki nema idálítill spotti.
Vegur þessi á að verða aðal
ökuleið fram fjörðinn og til
Lágheiðar, austan vatnsins.
Heilsugæslustöðin, þar sem
einnig verður dvalarheimili
aldraðra, er í byggingu og mið-
ar allvel. Tveir þriðju hlutar
byggingarinnar hafa þegar ver-
ið stevptir upp og nú er verið
að vinna innan húss.
Þá er sveitarfélagið að láta
byggja sjö leiguíbúðir og unnið
er í mörgum byggingum ein-
staklinga.
Sólberg landaði 125 lestum á
manudaginn. Ólafur bekkur er
í slipp og Sigurbjörg er vænt-
anleg um helgi. Reytingur hef-
ur verið á minni bátana undan-
farið. Hér eru engin verkföll,
því starfsmenn bæjarins hafa
ekki með sér félag, sagði bæj-
arstjóri að lokum,
Pétur Már Jónsson, bæjarstjóri
í Ólafsfirði sagði blaðinu meðal
annars eftirfarandi í fyrradag:
Ekið var miklu grjóti, eða fast
að 20 þúsund rúmmetrum af
Laxveiðin víða góð í sumar
Ekki veit ég hvort menn kann-
ast við þennan veiðistað, en
myndin var tekin suðvestan-
lands í sumar, og voru menn
þar að veiðum og hittu á mikla
laxagöngu. Upp af þessu fagra
veiðisvæði er laxastigi.
Laxveiðin gekk allvel í sum-
ar, víðast á landinu, og í sum-
um ám var metveiði. Laxveiði-
leyfin hafa farið hækkandi ár
frá ári, meðal annars vegna
þess hve margir erlendir lax-
veiðimenn sækja það fast að
veiða í íslenskum laxveiðiám.
Landeigendur fá víða talsvert
háa leigu fyrir laxárnar og víða
er lagt í mikinn kostnað til að
örfa laxagengd og taka úr vegi
hindranir í ám svo að þessi dýr-
mæti nytjafiskur gangi lengra
upp.
í fréttabréfi Guðmundar á
Ási í Vatnsdal segir svo: Síðast-
liðinn sunnudag var haldinn í
Flóðvangi fundur í Veiðifélagi
Vatnsdalsár til þess að taka
ákvörðun um leigutilboð, sem
borist höfðu í ána, Vatnsdalsá.
Ákveðið var að taka tilboði
Ingimundar Sigfússonar í laxa-
svæðin. Leigan sem hann
greiðir eru 11 milljónir króna,
og auk þess allur reksturskostn-
aður veiðihúss. Leigutaki sil-
ungasvæðanna er Guðmundur
Ágúst Ingvarsson og greiðir
hann fyrir þau 3 milljónir
króna. Leigan er ákveðin til
tveggja ára. Einhver ákvæði
munu vera um vísitöluhækkun.
m
la
• Engin svör fást.
Stundum bregða blöð „hins
frjálsa framtaks" fyrir sig
ljótu orðbragði um sam-
vinnufélögin og nefna þau þá
gjaman niðurlægjandi nöfn-
um. Og ennþá treysta skrif-
finnar þeirra svo á trúgimi
fólks, að þeir fullyrða, að
samvinnufélögin njóta skatta
legra fríðinda. Jafn oft em
þær fyrirspumir gerðar opin-
berlega, hver þessi fríðindi
séu og hefur því aldrei verið
svarað, enda ekki um þau
að ræða.
• Margir eiga rétt
til landsins.
Þótt mennimir telji sig alls
ráðandi til sjós og lands, fer
það ekki milli mála, þegar
betur er að gáð, að margir
fleiri eiga sinn rétt á þvi að
lifa í þessu Iandi en hinir
tvífættu herrar alls sköpun-
arverks. Um land allt og í
sjónum umhverfis landið lif-
ir urmull dýra, stórra og
smárra. Okkur hættir til að
vanmeta gildi þeirra í líf-
kéðjunni miklu og gildir það
jafnt um þau, sem lágþróuð
eru talin og hin, sem teljast
háþróuð. Þessi dýr hafa
óumdeildan rétt til landsins,
eins og mennirnir og hags-
munimir mega ekki rekast
svo harkalega á, að lífkeðjan
raskist.
• Lög eru sett og
félög stofnuð.
Lög eru sett til vemdar
dýrategundum og félög em
stofnuð í þeim tilgangi að
vernda dýr, bæði frá algerri
tortímingu og einnig vondri
meðferð manna á þeim. Dýra-
vemdunarfélag er t d. á
Akureyri og þótt æskilegt
væri, að það hefði sem
minnst verkefni eða helst
engin, mun sú raunin, að
þau séu fleiri og stærri en í
fljótu bragði virðist. 1 okkar
ágæta bæ og í nágrannahér-
uðum er þörf á aðhaldi al-
menningsálitsins og dýra-
vemdunarfélaga, vegna þess
að meðferð dýra er ekki ætíð
eins góð og vera ber. Það er
siðferðileg skylda borgar-
anna að láta dýravemdunar-
félag vita, ef meðferð hús-
dýra þykir ábótavant og það
er verksvið Dýravemdunar-
félagsins, bæði hér á Akur-
eyri og öðrum stöðum, að
stuðla á allan hátt að sóma-
samlegri meðferð dýranna.
• Vitnisburður.
Kunnur Skagfirðingur,
Magnús á Frostastöðum, hóf
með þessum orðum grein
eina I Þjóðviljanum nú í
haust, þar sem greinarefni
var bók Bjöms í Austurgörð-
um:
Vart mun það leika á tveim
tungurn, að engin félagsmála-
hreyfing hefur reynst ís-
lensku dreifbýlisfólki og þá
ekki síst til sveita, heilla-
drýgri en samvinnuhreyfing-
in. Til hennar má í raun og
rekja allar þær framfarir,
sem orðið hafa í sveitum
landsins undanfama áratugi
og em svo stórfelldar, að
miklu fremur má líkja við
byltingu en þróun.
• Ogennsegir:
Þeim Grettistökum, sem
bændur hafa lyft í ræktun,
byggingum og margháttuð-
um öðrum framförum hefði
ekki verið unnt að bifa án
almennrar þátttöku þeirra í
samvinnustarfinu. Sama máli
gegnir um mörg sjóþorpin,
ekki hvað síst þau minni. Án
starfsemi kaupfélaganna
hefðu þau, sum hver a. m. k.,
hreinlega lagst í eyði. Þessar
staðreyndir er auðvelt að
rökstyðja, en á hinn bóginn
þarflaust, því þær þekkja
allir.
Ný vatnsveita í Ólafsfirði