Dagur - 02.11.1977, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGINN 2. NÓVEMBER 47. TÖLUBLAÐ
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing framsókn-
armanna í Norðurlands-
kjördæmi eystra verður
haldið á Hótel Varðborg á
Akureyri daga 5. og 6. nóv-
ember, og hefst það klukk-
an 10 árdegis fyrri fundar-
dag.
Meiri verkefni bíða þessa
kjördæmisþings en á síð-
. ustu þingum, vegna al-
þingiskosninganna og sveit-
arstjórnarkosninga á næsta
vori. Er því mikil nauðsyn
á góðri mætingu og að nýta
takmarkaðan fundartíma
sem allra best.
Meðal verkefna þessa
kijördæmií'jþings er fram-
boð til alþingis. Mun und-
irbúningsnefnd leggja fram
tillögu um skipan lista, sem
þingið síðan fjallar um. —
Ennfremur verða gerðar
ályktanir um fjölmörg mik-
ilvæg mál, bæði atvinnu-
mál og menningarmál.
■
■
Aðalfundur
Framsóknarfél.
Akureyrar
Þess hefur verið óskað, að
athygli sé vakin á auglýs-
ingu í síðasta blaði um að-
alfund Framsóknarfélags
Akureyrar, sem haldinn
verður í Hafnarstræti 90,
fimmtudaginn 30. nóvember
og hefst klukkan 20.30.
Á aðalfundinum fer fram
stjórnarkjör í félaginu og
þar verða kjörnir fulltrúar
á kjördæmisþingið.
Hálka og
árekstrar
á götunum
Samkvæmt umsögn lög-
reglunnar á mánudags-
kvöldið, var orðin mikil
hálka á götum bæjarins og
þrír árekstrar urðu með
skömmu millibili. Er því
mál til komið, að menn búi
bíla sína undir akstur í
hálku og snjó. Negldir snjó-
hjólbarðar eru taldir full-
gildur vetrarbúnaður bif-
reiða í þessu efni og leyfi-
legt að setja þá undir um
miðjan október, en nú mun
það nauðsyn. Þeir sem
keðjur nota á bílhjól sín,
setja þær á þegar við á og
nota þær ekki þegar þeirra
er ekki þörf. Án þess að
gera þar upp á milli, er
minnt á, að á mánudaginn
sagði þörfin á vetrarhjóla-
búnaði til sín og hennar
kalli verður að hlýða. Lög-
reglan telur það einkar
áríðandi, að fólk athugi vel
akstursskilyrði og aðstæð-
ur allar, áður en það
ræsir bíla sína og ekur af
stað, auk þess að búa þá
réttilega undir notkun á
þessum árstíma.
Flest bendir nú til eldgoss
segir Karl Grönvold jarðfræðingur í viðtali við blaðið
Ir stuttri heimsókn í Mývatnssveit á sunnudaginn, blasti við
nýgerður varnargarður umhverfis Kísiliðjuna, vegagerð-
in á milli Reykjahlíðar og Geiteyjarstrandar, jarðsprung-
umar miklu í Bjamarflagi og sá stóraukni jarðhiti, sem þax
er og var þannig þennan dag í alveg kyrru og einkar góðu
haustveðri, að í stað gufustrókanna, var allt hulið samfelldri
gufu.
Þegar blaðið hafði tal af Jóni
Illugasyni sveitarstjóra og
spurði hann um framkvæmdir,
vegna almannavama í sveitinni,
sagði hann meðal annars:
Gífurleg aukning jarðhitans
hefur orðið í Bjarnarflagi. Lok-
ið er að mestu gerð varnargarðs
Vamargarðurinn við Kísiliðjuna.
umhverfis Kísiliðjuna og teng-
ist hann þrónum að austan og
sunnan. Hann er þriggja metra
hár eða jafnvel hærri og margra
metra þykkur. Unnið er í K;sil-
iðjunni af fullum krafti og með
fullum afköstum og botnleðj-
urini er stöðugt dælt upp að
verksmiðjunni og verður hald-
ið áfram á meðan tíð leyfir, eða
þar til vatnið lokast af ís.
Vegagerðin gengur vel og
mun um það bil tíu daga verk
eftir. Vegurinn er hækkaður
mjög og breikkaður á milli
Reykjahlíðar og Geiteyjar-
strandar. Kostnaður mun
nokkru minni en áætlaður var.
Þá hafði blaðið samband við
Karl Gránvold jarðfræðing,
sem ásgmt fleiri vísindamönn-
um fylgist með framvindu
mála. Hann sagði meðal annars:
Landið umhverfis Leirhnjúk
heldur áfram að rísa. Stöðvar-
(Ljósm.: E. D.).
hús Kröfluvirkjunar er eins-
konar hallamælir við athuganir
okkar. Leirhnjúkur er miðja
landlyftingarinnar, þar sem
hraunkvikan safnast saman, en
kvikan getur hlaupið suður,
eins og áður hefur gerst í tvö
skipti. Jarðskjálftar þeir, sem
verið hafa og hafa farið dvín-
andi, eru fyrst og fremst eftir-
stöðvar, eða halinn á septem-
berhrynunni, því skjálftavirkn-
in hefur verið lengi að fjara
út þessa daga. En við enn vax-
andi lyftingu lands við Leir-
hnjúk, myndast aftur spennia
og jarðskjálftar og þeir hafa
enn ekki orðið. Eftir því, sem
nú horfir, er mest hætta á gosi
þar, en hún er fyrir hendi alls
staðar á sprungusveimnum og
hún er talsverð í Bjarnarflagi.
Flest bendir til þess nú, sagði
Karl, að gos verði.
Bankamenn
Samningar um kaup og kjör
bankamanna voru undirritaðir
í gær, eri síðan verða greidd at-
kvæði um samninginn. Hann-
tekur til um 1800 starfsmanna.
Samkvæmt lögum átti deila
þessi, á milli bankaráðsmanna
og bankastarfsmanna, að ganga
til ríkissáttasemjara í gær,
hefðu samningar ekki tekist. —
Formaður samninganefndar
bankastarfsmanna var Sólon
Sigurðsson, en formaður samn-
inganefndar bankanna var
Björgvin Vilmundarson banka-
stjóri. Bankamenn höfðu boð^ð
verkfall.
Kristneshæli hálfrar aldar
sjúklingurinn tekinn af berkla-
skrá.
Nú er þar hjúkrunarspítali
með tvíþættu hlutverki. í fyrsta
lagi dvelur þar fólk, sem komið
er út úr heiminum, sem kallað
er, einkum gamalt fólk, sem
þarf hjúkrunarmeðferð og í
öðru lagi dvelur þar fólk, sem
kallað er utangarðs við þjóð-
félagið, þ. e. fólk, sem ekki
bjargar sér sjálft. Alls eru nú
vistmenn 77 en voru heldur
fleiri fyrr á árinu og er alltaf
fullsetið.
Kristneshæli hálfrar aldar stofnun.
(Ljósm.: E. D.).
Aðrir
samningar
Hinn 9. og 10. nóvember fer
fram atkvæðagreiðsla BSRB
um nýlega gerða kjarasamninga
við ríkið. Kosið verður á 40
stöðum utan höfuðstaðarins. —
BSRB efnir áður til 19 funda
til að skýra kjarasamningana.
Eins og kunnugt er, var verkfall
opinberra starfsmanna frestað
og hefst að nýju 15. nóvember,
verði samningum hafnað í at-
kvæðagreiðslunni 9.—10. nóv-
ember.
Þess var minnst í gær að Krist-
neshæli er nú hálfrar aldar
stofnun. Hátiðasamkoma átti að
vera þar klukkan 8 og þá var
opið hús og allir velkomnir. Þar
rakti Eiríkur Brynjólfsson fram
kvæmdasöguna, Brynjar Valdi-
marsson talaði um baráttuna
við hvíta dauðann og Jórunn
Ólafsdóttir talaði um félagslegu
hliðina málsins og flutti hátíða-
Ijóð.
Kristneshæli var byggt sem
berklahæli og var það til árs-
ins 1976, en þá var síðasti