Dagur - 02.11.1977, Síða 8
DAGUR
Akureyri, miðvikudaginn 2. nóv. 1977
ÞJÓNUSTA
FYRIR
gr P
HAÞRYSTISLONGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGiN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Hitaveituframkvæmdimar á Akureyri, og jafnframt mesta framkvæmd bæjarins til þessa, ganga
nokkumveginn samkvæmt áætlun, þótt enn sé leitað meira vatns. (Ljósm. E. D.)
Iðnaðarráðuneytið hefur
enn ekki staðfest gjaldskrá
og reglugerð Hitaveitunnar
Reglugerð fyrir Hitaveitu Akur-
eyrar var samþykkt í bæjar-
stiórn í janúar sl. og þá þegar
send iðnaðarráðuneytinu til
staðfestingar. í júlímánuði var
svo gíaldskrá fvrir Hitaveitu
Akureyrar staðfest í bæjar-
stjórn og einnig send ráðuneyt-
inu til staðfestingar.
Ráðuneytið hefur verið að
velta þessum málum fyrir sér
allan þennan tíma og gert smá-
vegis athugasemdir við einstök'
atriði. Þetta varð til þess, að
bæjarstjórn tók bæði þessi mál
fyrir að nýiu á síðasta bæjar-
stiómarfundi og gerði á þeim
smávegis breytingar, sem hnigu
í átt að óskum ráðuneytisins.
Er þess nú að vænta, að ráðu-
neytið taki rögg á sig og af-
greiði málið formlega. Hitaveit-
unni er það nauðsynlegt, að fá
úr þessu skorið sem fyrst, svo
unnt sé að fara að innheimta
heimtaugargíö'd af þeim húseig-
endum, sem fá hitaveitu í fyrsta
áfanga.
Framkvæmdir ganga allvel
Samkvæmt upplýsingum hita-
vitustjórans á Akureyri ganga
framkvæmdir allvel. Á Lauga-
landi er dælustöðvarhús fok-
helt og undirbúningur hafinn að
uppsetningu á dælum. — Um
tveggja vikna vinna er eftir á
uppsetningu á loftskiljum. Að-
veituæðin hefur þegar verið
þrýstiprófuð á 6 km kafla, frá
Laugalandi að Ytragili. En
kaflinn þaðan að Brunná verð-
ur væntanlega þrýstiprófaður í
næstu viku.
Fyrirhugað er að hleypa heitu
vatni í aðveituæðina í næstu
viku eftir tengingu holu númer
7. Á Akureyri er að mestu lok-
ið við fyrsta og annan áfanga,
að undanskildum Ásvegi og
Byggðavegi, og þriðja áfanga
er áformað að ljúka innan
þriggja vikna, en hann er stofn-
æð norður Þórunnarstræti að
verksmiðjum SÍS. Fjórði á-
fangi, austan Þórunnarstrætis,
þar sem m. a. er Menntaskólinn
á Akureyri og sundlaug bæjar-
ins, er langt kominn. Nokkrar
tafir urðu á framkvæmdum
vegna verkfalls opinberra starfs
manna. Hitaveitustjóri er Gunn-
ar Svonisson.
a
JfT lá) 7T~ j y - P 1 bíi
lli li\. s - W 0. i JL -
i
• Upplýsingar
vantar.
Öðru hverju er fólk að
hringja til blaðsins eða senda
greinar til birtingar um hita-
veituframkvæmdimar, og er
þar um gagnrýni að ræða á
ýmsum þáttum framkvæmd-
anna. Þessi gagnrýni er ef-
laust að hluta af því sprott-
in ,að stjóm hitaveitunnar
og/eða bæjgrstjóm sinnir
litt þvf þarfa hlutverki að
koma upplýsingum um fram-
gang mála á framfæri við al-
menning. Er nú sem fyrr á
þetta bent, og jafnframt það,
að hitaveituframkvæmdum
miðar í heild vel og má það
vera öllum gleðiefni, hvað
sem einstökum atriðum líð-
ur og réttmætri eða órétt-
mætri gagnrýni.
• Kyndistöð við
vatnsgeymana?
Skipulagsnefnd bæjarins hef-
ur samþykkt erindi frá Hita-
veitu AkurejTar, þar sem
farið er fram á leyfi til að
byggja kyndistöð við fyrir-
hugaða vatnsgeyma sunnan
við elliheimilið, Dvalarheim-
ilisins Hlíð hér í bæ.
Þessi beiðni er hugsuð sem
öryggisráðstöfun fyrir næstu
ár, ef skortur yrði á heitu
vatni og ekki eru uppi
áform um að byggja kyndi-
stöðina að svo stöddu. Hins-
vegar er gert ráð fyrir tvö-
földu dreifikerfi í hluta bæj-
arins ,en tvöfallt dreifikerfi
þýðir, að notað vatn verður
sett aftur inn á kerfið til
betri nýtingar. Bæjarstjóm
hefur að tillögu skipulags-
nefndar, samþykkt þessa
beiðni Hitaveitunefndar.
• Margar eru
kvartanimar
Margar eru þær umkvartan-
ir, sem btaðinu berast, ýmist
skriflega eða munnlega og
er ekki unnt að koma þeim
öllum á framfæri.
Síðast kom sú, er beinist
að lögreglumálum. Undan
því er kvartað eins og oft
áður, að lögreglan hafi ekki
tök á að koma í veg fyrir
tryllingsakstur um lielgar,
og hávaðaakstur vélhjóla og
„átta gata tryUitækja". A
það var í þessu sambandi
bent, að ökumenn, sem þetta
geri sér að leik og kasta auk
þess tómum flöskum út um
bQgluggana, ættu að verða
af með ökutæki sín fram yfir
helgi a. m. k. en þau væru
geymd í vörslu lögreglunn-
ar. Er ábendingunni hér með
komið á framfæri. Þótt e.t.v.
sé ekki nauðsyn að benda
lögreglunni á hinn ómenn-
ingarlega blæ í bænum um
helgar, getur almennings
álitið aðstoðað mjög við
breytingu til batnaðar.
• Margir sóttu
um.
1 haust var auglýst staða
safnvarðar við Amtsbóka-
safnið á Akureyri. EUefu
umsóknir bárust og var
Hólmfríði Andrésdóttur veitt
staðan. Atvinna er næg á
Akureyri en störf misjafn-
lega eftirsótt, svo sem fram-
anskráð sýnir.
Hjálpum öll drykkjusjúkum
Stofnun Sambands áhugafólks um áfengisvandamálið —
SÁÁ — vekur hvarvetna áhuga og stuðning einstaklinga
og félaga og við hana eru miklar vonir bundnar. Til Akur-
eyrar kemur starfsmaður eftir áramótin og hefur hjálpar-
starf.
Samtök áhugafólks um áfeng
isvandamálið, SÁÁ, hafa frá því
sagt, að samningar hafi tekist
milli samtakanna og Styrktar-
félags fatlaðra og lamaðra, um
leigu á húsnæði Styrktarfélags-
ins að Reykjadal í Mosfells-
sveit, en þar verður afvötnunar-
stöð SÁÁ og verður greinar-
gerð um hana send heilbrigðis-
ráðuneytinu til umsagnar eða
hefur þegar verið gert. Hilmar
jenkins leikur á laugardag
A öðrum tónleikum Tónlistar-
félags Akureyrar leikur hinn
velþekkti píanóleikari Philip
Jenkins í Borgarbíói næstkom-
andi laugardag 5. nóv. kl. 17.
Philip Jenkins kemur frá
London, þar sem hann er bú-
settur og starfandi sem pró-
fessor í píanóleik við Konung-
lega Tónlistarháskólann. Við
lokapróf frá sama skóla hlaut
Philip „Dove“-verðlaunin, sem
eingöngu eru veitt fyrir afburða
frammistöðu í hlióðfæraleik.
Árið 1958 sigraði Philip Jenkins
í alþjóðlegri píanósamkenpni
sem stórblaðið The Daily Mirr-
or efndi til, og sex árum síðar
vann hann aftur alþjóðasam-
keppni píanóleikara um Harriet
Cohen verðlaunin. Hann var
einn af meðlimum Trio of Lond-
on, sem hlaut mikla viðurkenn-
ingu fyrir tónlistarflutning sinn
víða um lönd.
Philip var um árabil kennari
við Tónlistarskólann á Akur-
eyri, og átti miklum vinsældum
að fagna. Á efnisskránni að
þessu sinni er: Sónata og fanta-
sía eftir Mzoart, Stef og til-
brigði eftir Fauré, Mazurkar og
Impromptu eftir Chopin og són-
ata eftir pólska tónskáldið
Szymanovski, en síðasttalda tón
verkið er eitt af þeim vanda-
sömustu, sem skrifuð hafa ver-
ið fvrir píanó.
Aðgöngumiðar á Akureyri
eru seldir í Bókabúðinni Huld
og við innganginn 2 klst. fyrir
tónleika.
Helgason, form. SÁÁ sagði, að
hann vonaðist til, að þarna
yrði tekið til starfa mjög bráð-
lega. Þeim sem leituðu þangað
yrði frjálst að hverfa þaðan
hvenær sem þeim sýndist.
Hann sagði, að allt kapp yrði
lagt á að fræða sjúklingana með
fyrirlestra- og fundahöldum,
viðtölum og kvikmyndasýning-
um, auk læknismeðferðar.
Stefnt væri að því að opna
leitar- og leiðbeiningarstöð á
svipuðum tíma, þar sem rætt
yrði við áfengissjúklinga og
vandamál þeirra. Reynslan
hefði sýnt, að vandamál aðstand
enda áfengissjúklinga væri oft
svo, að þeir væru ekki síður
hjálpar þurfi en sjúklingamir
sjálfir.
Útgáfa blaðs er í undirbún-
ingi og stefnt er að því, að senda
það til félagsmanna og ennfrem
ur gíróseðla fyrir stofnframlög
fyrir miðja næsta mánuð. Engin
uppphæð er tilgreind á þessum
gíróseðlum_ og því öllum í sjálfs
vald sett að láta af hendi rakna
þær upphæðir, er hver og einn
kýs.
Ekki verður farið fram á
styrk frá hinu opinbera fyrr en
SÁÁ hafa sannað gildi sitt. Yrði
slíkur styrkur veittur í fram-
tíðinni, myndi hann notaður til
að upplýsa fólk um áfengis-
sjúkdóminn.
Þetta og margt annað kom
fram á blaðamannafundi, sem
forráðamenn hinna nýju sam-
taka héldu á Varðborg á laug-
ardaginn, en síðar sama dag var
þar haldinn almennur kynn-
ingarfundur um áfengisvand-
ann og stefnu hinna nýstofnuðu
landssamtaka.
SÁÁ hefur leitað til aðila
vinnumarkaðarins, þ. e. til
verkalýðsforystunnar og vinnu
veitenda og hvarvetna fengið
hinar ákjósanlegustu undirtekt
ir um stuðning. Almenningur,
sem virðist nú skilja áfengis-
vandamálið betur en áður, hef-
ur flykkst í hið nýja félag í von
um, að raunhæfara verði tekið
á málum en áður. Það eru ekki
aðeins sex þúsund áfengissjúkl-
ingar, sem bíða hjálpar, heldur
aðstandendur þeirra og það
óteljandi fólk, sem hættan vof-
ir yfir vegna þeirrar drykkju-
tísku, sem nú ríkir.