Dagur - 16.11.1977, Side 1
TRÚLOFUNAR.
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, MDDVIKUDAGUR 16. NÓV. 1977 50. TÖLUBLAÐ
Milljónasta
værðarvoðin
Föstudaginn 28. október sl. |
framleiddi Ullarverksmið.i-
an Gefjun á Akureyri mil-
jónustu værðarvoðina fyr-
ir Sovétríkin, og var hún
afhent sendiherra Sovét-
ríkjanna, Farafonov, til
varðveizlu.
Sala værðarvoða til Sov-
étríkjanna hófst árið 1960
með sölu á 10 þúsund tepp-
um til samvinnusambands
ins í Msokvu, og árið eftir
voru gerðir fyrstu samn-
ingamir við V/O „Razno-
exr)ort“, sem er ríkisfyrir-
tæki. Síðan hafa verið gerð
ir árlegir samningar við
þessi fyrirtæki.
Banaslys
Á tólfta tímanum á laugar-
dagskvöldið var banaslys
á Hörgárbraut, nálægt mót
um Höfðahlíðar. Ekkjan
Helga Sigurjónsdóttir,
Lyngholti 1, Akureyri,
varð þar fyrir bifreið og
lést samstundis. Hún var
71 árs. Þetta hörmulega
slys er enn ein ábending
um nauðsyn mikillar gætni
og tillitssemi í umferð-
intli.
Togararnir
Afli Akureyrartogaranna
samkvæmt síðustu löndun-
um er sem hér segir:
Kaldbakur landaði 9.
nóv. 194 tn. Aflaverðmæti
10,8 milljónir króna.
Svalbakur landaði 11.
nóvember 151 tonni. Afla-
verðmæti 14,9 milljónir kr.
Harðbakur landaði 1.
nóvember 82 tonnum.
Aflaverðmæti var 5,1 millj,
króna.
Sléttbakur landaði 7.
nóv. 122 tonnum. Aflaverð-
mæti 11,00 milljónir kr.
Sólbakur landaði 3. nóv.
130 tonnum. Aflaverðmæti
var 7,3 milljónir króna.
Rafmagnið
skammtað
Á föstudaginn þurfti að
taka upp skömmtun á raf-
magni á orkuveitusvæði
Laxárvirkjunar. Ástæðan
var rennslistruflun í Laxá,
í fyrstu stórhríð vetrarins.
Þá fór orkuframleiðslan
úr 20 megavöttum niður í
12 megavött. Síðar hafa
öðru hverju orðið raf-
magnstruflanir, vegna bil-
unar í innanbæjarkerfi,
sem áður hafði einnig gert
vart við sig en fannst á
mánudagsmorguninn.
Ráðgert var að full teng-
ing byggðalínunnar færi
fram þessa daga, en sú lína
á að geta flutt 50 megawött
til Norðurlands. Og svo er
rafmagnið frá Kröflu vænt-
anlega skammt undan.
Agentinn, Erlingur Gíslason. Loftur, Gestur Jónasson. Móðirin, Sigurveig Jónsdóttir, syngja Klink-
sönginn. (Ljósmyndastofa Páls)
Sýningar á Lofti ganga vel
Leikfélag Akureyrar hefur þeg-
ar haft fjórar sýningar á söng-
leiknum Lofti, en sýningum
varð. sem kunnugt er, að fresta.
Næsta sýning verður annað
kvöld klukkan 8.30.
Mikið er um, að foreldrar
komi með börn sín á sýning-
arnar, enda skilyrði af hálfu LA
vegna skólaafsláttarins.
Kasetturnar, sem LA lét gera
hér á Akureyri með söngvum
úr leiknum, hafa runnið út eins
og heitar lummur. Þær fást
Árið 1976 voru nýræktir hér á
landi samtals 31400 ha. Af þeim
voru 1640 ha ræktaðar á fram-
ræstri mýri 'og 1500 á þurrlendi.
Árið 1975 voru nýræktir 2996
ha og 2848 ha árið 1974. Árið
1976 var mest ræktað á Suður-
landi, en í Árnessýslu, Rangár-
leikdagana í leikhúsinu á meðan
þær endast, en munu brátt upp
seldar. Af þessum kasettum
hefur verið leikið í útvarpinu
snemma dags, með viðeigandi
skýringum.
Byrjað verður eftir nokkra
daga að æfa branaleikritið Snæ-
drottninguna, sem byggt er á
einu ævintýra H. C. Andersens,
og bvrjað er að æfa annað
barnaleikrit, sem til bráða-
birgða er nefnt Trúðleikur og
töfrabrögð. Það leikrit er hugs-
vallasýslu og Vestur-Skafta-
fellssýslu voru ræktaðir um
1000 ha af þessum rösklega 3000
ha, sem ræktaðir voru á lnad-
inu öllu. í Rangárvallasýslu
bættist meira en 1 ha við tún
hvers býlis að meðaltali og hátt
í 1 ha bættist við túnstærð í
að sem farand- eða flökkuleik-
rit, sem hægt er að sýna næst-
um hvar sem er. Mun það verða
á ferðinni á meðan Snædrottn-
ingin drottnar á sviði leikhúss-
ins á Akureyri. Baldur Georgs
er höfundurinn og vinnur leik-
ritið í samvinnu við Erling
Gíslason leikara.
í lok þessa mánaðar hefjast
svo æfingar á ónefndu leikriti,
þar sem Sigurveig Jónsdóttir og
Erlingur Gíslason leika aðal
hlutverkin.
Austur- og Vestur-Skaftafells-
sýslu og í Norður-Þingeyjar-
sýslu.
Tún á öllu landinu eru nú
líklega um 127.000 ha að stærð.
Þar sem enginn einn aðili safn-
ar saman stærð þeirra ,túna
sem falla úr ræktun ár hvert,
t. d. undir hús, vegi og önnur
mannvirki, vegna skemmda t.d.
af skriðuföllum og vegna þess
að jarðir fara í eyði, er óger-
legt a ðsegja til um nákvæma
stærð túna. Ef tekin eru öll lög-
býli, sem ekki eru í eyði, hvort
sem um engan, stóran eða smá-
an búrekstur er að ræða á býl-
inu, verður meðaltúnstærð á
býli tæpir 26 ha og hefur stækk
að um V2 ha árið 1976. Ef ein-
ungis eru tekin þau býli, þar
sem um einhvern búskap er að
ræða, verður meðaltúnstærð
nærri 30 ha.
(Uppl.þjónusta landb.)
Verka-
manna-
bústaðir
afhentir á
morgun
Á morgun, fimmtudag er áform
að að afhenda formlega 21 íbúð
Verkamannabústaði þá, sem
bygging var hafin á fyrir fimm-
tán mánuðum. Þrír aðilar tóku
að sér verkið, samkvæmt út-
boði: Smári hf., Hagi hf., og
Þór hf.
Stjórn Verkamannabústaða
Akureyrar skipa, Sigurður
Hannesson, formaður, Stefán
Reykjalín, varaformaður, Freyr
Ófeigsson, Viðar Helgason, Ari
Rögnvaldsson, Jón Helgason og
Jón Ingimarsson.
Fjögurra herbergja íbúðirnar
munu kosta, samkvæmt áætlun
7,5 milljónir króna og þriggja
herbergja íbúðir 6,6 milljónir.
Allt eru þetta taldar góðar
íbúðir og vel frá þeim gengið,
og þess er getið til, að verðið
sé jafnvel lægra en hér er frá
sagt og kemur það í ljós á
morgun.
En í sambandi við þennan
byggingarkostnað, má geta
þess_ að samkvæmt tilboðum
hinna þriggja verktaka, er verð
ið á aðra milljón króna lægra
en upphafleg kostnaðaráætlun
sagði til um. Virðist því vel hafa
tekist til um framkvæmd þessa.
Þeir íbúðareigendur, sem á
morgun fá lykla sína að hinum
nýju íbúðum, þurfa aðeins að
greiða 20% kostnaðar við mót-
töku.
Vegir lokast
Samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðarinnar síðdegis á mánu-
dag, var orðið þungfært til Dal-
víkur frá Akurevri og með öllu
ófært til Ólafsfjarðar. Vegna
óveðurs á mánudag var engin
tilraun gerð til lagfæringa á
þessari leið.
Öxnadalsheiði var enn fær ár-
degis á mánudaginn, en færið
þó eitthvað farið að þyngjast. í
gær var áætlað að greiða þar
fyrir umferð. Hinsvegar var
Holtavörðuheiði ófær. Ófært
var frá Akureyri til Húsavíkur
og var vegurinn opnaður á
mánudaginn. Framan Akureyr.
ar voru ekki taldir umferða-
örðugleikar þennan dag. En
veður og veðurútlit spáðu ekki
góðu.
Perur og
dagatöl
Hinir árlegu fjáröflunardagai-
Lionsklúbbsins Hugins verða
um næstkomandi helgi 19. og
20. nóv. Félagar klúbbsins
munu þá bjóða Akureyringum
perur og jóladagatöl eins og
undanfarandi ár. Ágóða af sölu
þessa varnings hefur að öllu
leyti verið varið til líknarmála
hér í bæ.
Staurar upp um allar mýrar
Gunnarsstöðum 14. nóvember.
Aðafararnótt síðasta föstudags
gerði aftakaveður með miklum
sjógangi og á föstudagsmorg-
uninn slitnaði síminn hér aust-
an við Hafralónsána, þar sem
símalínan liggur um hólmana.
Staurarnir lögðust út af og snjó-
fyllan var svo mikil, að hún
gekk upp að brúnni, en staur-
ana rak upp allar mýrar. Bil-
unin var á meira en kílómeters-
kafla. Símasamband komst á í
nótt eftir bráðabirgðaviðgerð,
en flokkur frá Húsavík vinnur
að varanlegri viðgerð.
Bátur einn lenti í erfiðleikum
í röstinni, var sunnan Langa-
ness og fékk á sig sjó og fór á
hliðina, en rétti sig. Sennilega
hefur ekki mátt miklu muna.
Bændur höfðu fé við hús en
eitthvað af því mun vanta og
var verið að leita þess í gær
og e. t. v. einnig í dag, en veð-
ur er ennþá vont, hvassviðri og
hríð öðru hverju. Ó. H.
Þáttaskil í raforkumálum
f gær, þriðjudaginn 15. nóvember átti að
tengja byggðalínuna, eða norðurlínuna, að
fullu. Sú lína á þó að geta flutt 50—60 mega-
vött til Norðurlands, en gat áður flutt ör-
fá megavött. Má því segja, að með þessari
tengingu séu þáttaskil í raforkumálum, auk
þess sem þessi tenging er mikill áfangi í
samtengingu allra raforkuvera landsins.
Er þess nú að vænta, að Norðlendingar
búi við fullnægjandi raforku næstu árin og
meira öryggi og þurfi ekki lengur að fram-
leiða rafmagn með olíu.
Um næstu mánaðamót vænta menn þess
til viðbótar, að Kröfluvirkjun hefji raforku-
framleiðslu. En aðveitustöð fyrir norðurlínu,
línu Kröfluvirkjunar og Laxárvirkjun er
hin mikla Rangárvallaspennistöð við Akur-
eyri.
Nýræktir og tún á landinu